Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorleifur Guð-finnur Guðna-
son fæddist á Kvía-
nesi við
Súgandafjörð 11.
júlí 1918. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 6.
janúar síðastliðinn.
Á æskuárum fór
hann í fóstur til
ömmu sinnar
Gunnjónu Ein-
arsdóttur og seinni
manns hennar,
Kristjáns Sigurðs-
sonar, á Norðureyri. Tók hann
síðar við búi þar. Foreldrar hans
voru hjónin Guðni Jón Þorleifs-
son, f. 25.10. 1887, d. 1.4. 1970,
og Albertína Jóhannesdóttir, f.
19.9. 1893, d. 2.1. 1989.
Þau bjuggu lengst af í Botni
en síðustu árin á Suðureyri við
Súgandafjörð. Systkini Þorleifs
eru Sigurður, f. 11.12. 1914,
kvæntur Sveinbjörgu Eyvinds-
dóttur á Akranesi, d. 1959. 2)
Sigurður, fórst með togaranum
Júlí á Nýfundnalandsmiðum árið
1959.
3) Guðrún Pálmfríður, f. 9.9.
1916, d. 1997, eiginmaður
með sonum sínum, Peter Jo-
hannes Jensen, f. 26.7. 1954, og
Marner Andrew Jensen, f. 11.12.
1957. Börn Peters eru Pétur Jó-
hannes, f. 13.7. 1987, og Sólveig,
f. 21.11. 1990. Sonur Marners er
Óskar Pétur, f. 26.3. 1983. Með
móður sinni fluttist einnig til
Suðureyrar Jakoba Jensen, f.
20.8. 1949. Maður hennar er
Björn Líndal Gíslason. Börn Jak-
obu eru:
1) Guðmundur J. Þorleifsson,
f. 13.12. 1969. Kona hans er Ólöf
Hrafnsdóttir og börn þeirra:
Andri Már, f. 18.4. 1991, og
Birna Rún, f. 17.9. 1996.
2) Maríanna Sigurðardóttir.
Maður hennar er Kjartan Theo-
dórsson og börn þeirra: Jórunn,
f. 14.7. 1995, Anna Lára, f. 8.7.
1996, Þorleifur Guðfinnur, f.
17.1. 2000, og Örlygur Mikael, f.
6.6. 2002. Fjórða barn Marianne
er Hansa Ziskasen, f. 8.10. 1944,
búsett í Færeyjum. Börn hennar
eru Hans, f. 11.10. 1968, og Jón-
björg, f. 20.7. 1972. Synir Jón-
bjargar eru Hallur, f. 25.10.
1994, og Jón Ari, f. 30.10. 2000.
Útför Þorleifs Guðfinns verður
gerð frá Suðureyrarkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Kjartan Ólafsson
Sigurðsson, d. 1956.
4) Sveinn, f. 23.11.
1919, d. 2005, eig-
inkona hans Sigríð-
ur Finnbogadóttir,
d. 1997. 5) Jóhann-
es, f. 29.9. 1921, d.
1990, eiginkona
hans Aldís Jóna Ás-
mundsdóttir.
6) Guðmundur
Arnaldur, f. 1.12.
1922, d. 15.1. 2007.
7) Einar, f. 6.11.
1926, eiginkona
hans Guðný Guðnadóttir. 8)
Guðni Albert, f. 3.4. 1928, eig-
inkona hans Júlíana Jónsdóttir.
9) Gróa Sigurlilja, f. 24.11. 1930,
eiginmaður Páll Guðmundsson.
10) María Auður, f. 6.6. 1932,
eiginmaður Leifur Sigurðsson, d.
1998. 11 ) Sólveig Dalrós, f. 11.6.
1934, d. 1939.
Þorleifur Guðfinnur var
ókvæntur og eignaðist sjálfur
ekki börn.
Heimili hans var á Stefnisgötu
1 á Suðureyri. Sambýliskona
hans til margra ára var Mari-
anne Jensen, f. 24.2. 1922. Flutt-
ist hún til hans á Norðureyri
Ósköp fannst manni það undarlegt
þegar komið var til sumardvalar á
heimili afa og ömmu að Botni í Súg-
andafirði að börn þeirra, sem enn
voru viðloðandi heimahús, kölluðu
hvert annað allt öðrum nöfnum en
þeirra eigin. Þarna voru Brandur,
Duni, Gvendur og glæstar heima-
sætur voru nefndar Rustikus og
Fúsi. Leifi móðurbróðir, sem hér er
kvaddur, var svo nefndur Beni, hvað
svo sem það þýddi.
Ungur varð hann fyrir því að önn-
ur mjaðmarkúla hans eyddist. Þetta
var fyrir tíma gerviliða og annarra
úrræða sem nú þekkjast, þannig að
upp frá þessu gekk Leifi draghaltur.
Ekki lét hann slíkt þó aftra sér frá
því að vinna hver þau störf sem
þurfti á búinu og annars staðar, né
síðar er hann rak sitt eigið bú á
Norðureyri við Súgandafjörð. Var
hann þó án vafa meira og minna
kvalinn hvern dag.
Leifi fæddist í gömlu kindahúsi á
Kvíanesi við Súgandafjörð og, eins
og hann sagði sjálfur frá, var þar vaf-
inn reifum og lagður í jötu eins og
annað frægara barn forðum.
Á æskuárum fór hann í fóstur til
ömmu sinnar Gunnjónu Einarsdótt-
ur og seinni manns hennar Kristjáns
Sigurðssonar á Norðureyri. Mótað-
ist hann mjög af fóstra sínum og tók
upp ýmislegt úr hans fari í fram-
göngu og talsmáta, enda festist við
hann sama viðurnefnið, „Noggi“.
Búskapurinn á Norðureyri var án
vafa afar erfiður, sérstaklega ein-
hleypum fötluðum manni. Róa þurfti
á árabát yfir straumhart sund til
Suðureyrar eftir öllum nauðþurft-
um, auk þess sem á vetrum var mikil
snjóflóðahætta á Eyrinni og húsa-
kynnin ekki byggð eftir nútímastöðl-
um hvað einangrun snerti, og eitt og
annað kann að hafa skort á það, sem
til lífsþæginda má teljast. Stundum
þegar fátt var annarra úrræða tók
Leifi einnig að sér að koma nauð-
synjavöru til síns næsta nágranna,
Óskars Aðalsteins rithöfundar, sem
þá var vitavörður á Galtarvita, ber-
andi allt á sjálfum sér, yfir skreipa
kletta og skriður Galtarins. Óskar
Aðalsteinn gerði þennan vin sinn
býsna eftirminnilegan, er hann skrif-
aði um hann eina sinna smásagna
þar sem hann notar Leifa sem fyr-
irmynd, og er hann þar nefndur Þor-
móður bóndi í Skál, kallaður Rollu
Móði.
Um nokkurra árabil gerðu þeir
Óskar Aðalsteinn, Jónas bóndi í
Skálavík og Leifi sér það til gamans
á vetrarkvöldum, að flytja hvor öðr-
um ýmsa skemmtan í gegnum tal-
stöðvar sínar. Án vafa kolólöglegt at-
hæfi, en var látið óátalið, enda
hlýddu margir á norðanverðum
Vestfjörðum í þennan tíma á þá fé-
laga sér til gamans og yndisauka.
Kominn um eða yfir miðjan aldur
fékk Leifi til sín ráðskonu, Marianne
Jensen frá Færeyjum, sem þá var
ekkja og bjó með fjórum börnum sín-
um á Suðureyri. Sú samvist varði þar
til yfir lauk. Síðast var heimili þeirra
á Rómarstíg 1 á Suðureyri.
Minnisstætt er okkur ættingjum
er við komum einu sinni sem oftar til
að halda ættarmót vestra, að þeir
frændur okkar þar buðu til kvik-
myndasýningar í Félagsheimilinu á
Suðureyri. Var þar sýnd kvikmynd
sem Lýður Árnason læknir á Flat-
eyri hafði þá nýlokið við og nefndi
„Nogginn“. Þar segir frá veiðiferð
þeirra vildarvinanna Leifa og Örlygs
Patreks Ásbjarnarsonar til hrogn-
kelsaveiða á örlítilli fleytu, sem auð-
vitað var nefnd „Nogginn“. Til allrar
hamingju voru aflaföng rýr, enda
gerði báturinn lítið betur en að fljóta
með þá félaga.
Ég kveð kæran frænda með sökn-
uði, hetjuskapar hans er ljúft og hollt
að minnast. Eftirlifandi ástvinum
votta ég fyrir hönd okkar systkina
dýpstu hluttekningu.
Guðvarður Kjartansson.
Þegar Ævar frændi minn hringdi í
mig snemma morguns í síðustu viku
og sagði mér frá andláti Leifa
frænda míns fannst mér syrta að.
Auðvitað hafði ég vitað um skeið
hvert stefndi en ég hafði ekki gert
mér grein fyrir að dauðinn væri svo
nálægur. Enn einn af Vestfjarða-
höfðingjunum sem höfðu verið svo
snar þáttur í tilveru minni frá því að
ég var barn hafði yfirgefið þessa
jarðvist. Það eru ekki mörg ár síðan
ég átti þetta örugga haldreipi þar
sem voru þau systkini pabba míns,
Gunna, Svenni, Gummi og Leifi, sem
öll bjuggu eða voru nátengd föður-
túnum mínum á norðanverðum Vest-
fjörðum. Á hverju sumri hélt fjöl-
skylda mín á vit ævintýranna í Botni
í Súgandafirði þar sem enn er vel við
haldið gamla bænum þeirra afa og
ömmu þar sem maður trítlaði um
með litla hrífu í hendi um miðbik síð-
ustu aldar og lagði fram örlítinn
skerf í þeim búskap sem þá var þar
stundaður og mér fannst að ég væri
mikilvægur hlekkur í. Þarna var þá
allt slegið með orfi og ljá og rakað og
snúið upp á gamla móðinn og þegar
búið var að hirða af túnum var heyj-
að á engjum af mikilli natni, hvert
strá nýtt. Þarna stóð hann Leifi
frændi minn þá og sló frá morgni til
kvölds og dró ekki af sér þó hann
glímdi við erfiða og kvalafulla fötlun
frá því hann var rúmlega tvítugur.
Hann var alltaf með bros á vör og
gamanyrði í hvert sinn sem maður
kom til hans í flekkinn. Síðan hef ég
haldið mikið upp á þennan frænda
minn sem alltaf vildi mér allt það
besta og hefur um dagana skemmt
mér með sögum frá því í gamla daga
af sjálfum sér og öðrum hvenær sem
við höfum hist. Mér er í minni er við
Svana frænka mín, þá unglingsskját-
ur, lögðum af stað fótgangandi frá
Botni út að Norðureyri til að heim-
sækja Leifa sem þá var farinn að búa
þar. Við héldum nú að við yrðum
fljótar í förum en reyndin var sú að
við vorum lungann úr deginum að
klöngrast þetta. Mikið vorum við
fegnar er við hittum frænda okkar
það kvöld og ekki var slegið af í frá-
bærum viðurgerningi til að fagna
okkur frænkunum.
Þegar Leifi var áttræður var mikil
hátíðastund á Norðureyri sem aldr-
egi gleymist, í svo frábæru veðri að
maður trúir varla endurminning-
unni.
Það var ógleymanlegt að eiga
þessa stund þarna á óðali feðranna
sem að vísu var þá komið í eyði, hafði
að lokum lotið í lægra haldi fyrir
náttúruöflunum, en samt skynjaði
maður svo vel þá búkosti sem höfðu
fengið frænda minn til að leggja svo
hart að sér við að halda þessu býli í
byggð þar sem hann hafði alist upp
hjá ömmu sinni og hennar seinni
manni.
Hann hafði líka lært þar fornar
verkunaraðferðir á mat, t.d. skötu og
hákarli, sem hann verkaði betur en
aðrir menn að mínum dómi. Það
gladdi á seinni árum ættingjana þeg-
ar hann sendi okkur hákarl á þorr-
anum sem maður gat notið þess að
borða og montað sig af í þorrablót-
um.
Dóttir mín kom að mér er ég hafði
fyrir skömmu fengið fregnina af and-
láti Leifa þar sem ég sat mjög
hnuggin og fannst að nú hefðu „dag-
ar lífs míns lit sínum glatað“. „En
mamma“, sagði hún, „hugsaðu um
alla sem hafa fæðst í ættinni“. Og
auðvitað er þetta rétt. Það er gangur
lífsins að þeir eldri kveðji og þeir
ungu taki við merki ættarinnar. Þeir
hafa erft öll þessi góðu gen úr Botni
frá afa og ömmu. Þeir hafa erft sam-
heldnina og ættræknina, sönggleð-
ina og gamansemina og hæfileikann
til að eiga góðar stundir saman og
ekki síst til að segja sögur og njóta
þeirra.
Ég fyllist þakklæti fyrir að eiga
allt þetta frábæra fólk að, sem í dag
syrgir með mér höfðingjann okkar,
hann Þorleif Guðnason.
Við þökkum honum samfylgdina.
Sigríður Jóhannesdóttir
Þorleifur Guðfinnur Guðnason
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Systir okkar,
HJÖRDÍS GUNNARSDÓTTIR,
Ljósheimum 22,
Reykjavík,
lést hinn 24. maí.
Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Margrét Gunnarsdóttir, Vilborg Sigríður Gunnarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson, Styrmir Gunnarsson.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR THEODÓRSDÓTTIR,
Sjafnargötu 11,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann 13. júní.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju,
mánudaginn 25. júní kl. 15.00.
Edda Þórarinsdóttir, Gísli Gestsson,
Freyr Þórarinsson, Kristín Geirsdóttir,
Kristín Þórarinsdóttir,
Bjarki Þórarinsson,
Helga Þórarinsdóttir,
Nanna Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir,
HILMAR J. HAUKSSON,
Kóngsbakka 10
og Aflagranda 20,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hring-
braut fimmtudaginn 14. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Monika Blöndal,
Sara Hilmarsdóttir,
Haukur Steinn Hilmarsson,
Svava J. Brand,
Þórunn Helga Hauksdóttir,
Björn Torfi Hauksson.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eiginmans míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ARA HEIÐMANNS JÓSAVINSSONAR
bónda og fyrrv. oddvita,
Auðnum 2,
Öxnadal.
Sérstakar þakkir til hjúkrunnarfólks á lyfjadeild 1.
á F.S.A., sr. Sólveigar Láru Guðmundsdóttur fyrir
ómetanlegan stuðning og svo kirkjukór Möðruvallasóknar og Arnórs
Vilbergssonar fyrir alla sína vinnu.
Megi góður guð blessa ykkur öll.
Fyrir mína hönd og allra í fjölskyldunni,
Erla M. Halldórsdóttir,
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
DR. SIGURÐUR JÓNSSON,
lést á sjúkrahúsi í Ganges, Frakklandi 14. júní.
Gisele Jónsson,
Solveig, Mao og Sven Küffer,
Pétur, Hrefna og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir og frænka
JÓNFRÍÐUR VALDÍS BJARNADÓTTIR,
Mosabarði 15,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 12. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristófer Bjarnason,
Róbert Örn Kristjánsson,
Elsa Esther Kristófersdóttir, Bárður Þór Sveinsson,
Alexandra Ýr,
Bjarni S. Kristófersson, Gunnþóra Rut Bragadóttir
og aðrir aðstandendur.