Morgunblaðið - 16.06.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN | KIRKJUSTARF
Síðasta kyrrðarstundin
í Laugarneskirkju
fyrir sumarleyfi
Engin messa verður í Laugarnes-
kirkju á morgun, þjóðhátíðardag-
inn 17. júní. Næsta sunnudagsguðs-
þjónusta verður sunnudagskvöldið
24. júní kl. 20. Þá mun Sigurbjörn
Þorkelsson, framkvæmdastjóri og
meðhjálpari safnaðarins, halda ut-
an um guðsþjónustuna, predika og
Víkurkirkja í Mýrdal
Fjölskylduguðsþjónusta sem er
hluti af hátíðarhöldum Mýrdælinga
á þjóðhátíðardaginn 2007 verður í
Víkurkirkju í Mýrdal sunnudaginn
17. júní nk. kl. 13. Hátíðardagskrá
nánar auglýst af ungmenna-
félögunum. Fjölmennum til kirkju
og fylkjum þaðan liði í skrúðgöngu
eftir guðsþjónustuna. Léttur al-
mennur söngur. Haraldur M. Krist-
jánsson sóknarprestur.
Íslendingar í Lund-
únum halda þjóðhátíð
Laugardaginn 16. júní næstkom-
andi klukkan 14 munu Íslendingar í
Lundúnum halda þjóðhátíð í St. Lu-
kes-kirkjunni á Sydney Street í
Chelsea (á móti Bromton-sjúkra-
húsinu). Hátíðin hefst með hátíð-
arhelgistund þar sem sendiherra
Íslands á Bretlandseyjum, Sverrir
Haukur Gunnlaugsson, mun flytja
stutt ávarp. Guðbjörg Sandholt og
Ólafur Kjartan Sigurðsson munu
syngja einsöng og Fjallkonan flytur
ljóð. Barna- og unglingakór Dóm-
kirkjunnar undir stjórn Kristínar
Valsdóttur syngur ásamt Íslenska
kórnum í Lundúnum undir stjórn
Gísla Magnasonar. Eftir stundina í
kirkjunni verður síðan safnast sam-
an í garði kirkjunnar þar sem ým-
islegt verður í boði, til dæmis verð-
ur hoppkastali, andlitsmálun og
brúðuleikhús og tvær íslenskar
hljómsveitir munu spila. Allir hjart-
anlega velkomnir.
leiða í bæn. Síðasta kyrrðarstundin
í Laugarneskirkju fyrir sumarleyfi
verður á fimmtudaginn 21. júní.
Leiknir verða ljúfir tónar á orgel
kirkjunnar frá kl. 12. Sigurbjörn
Þorkelsson mun síðan íhuga stutt-
lega texta dagsins og leiða fyr-
irbænir.
Að stundinni lokinni gefst við-
stöddum kostur á einfaldri en
kjarngóðri máltíð í notalegu sam-
félagi í safnaðarheimilinu. Allir
hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Gamla kirkjan í Trékyllisvík.
HJÖRVAR Steinn Grétarsson
náði afbragðs árangri í flokki alþjóð-
legra meistara á First Saturday-
mótinu sem lauk í Búdapest sl.
Þriðjudag. Hjörvar hlaut 6 vinninga
af 10 mögulegum og hafnaði í 4. sæti
í sínum flokki. Sigurvegari varð
Weiming Go frá Singapore, hlaut 8
vinninga. Hjörvar Steinn var næst-
stigalægsti keppandinn í sínum
flokki og mun hækka um 39 Elo stig
fyrir frammistöðu. Ljóst er að hann
á mikið inni.
Hjörvar tefldi af miklum krafti allt
mótið. Hann var fremur seinheppinn
í byrjun en sótti í sig veðrið er á leið
og vann þá þrjár skákir í röð, þ. á m.
sigurvegarann Weiming Go í næst
síðustu umferð. Í lokumferðinni um-
ferð tapaði hann nokkuð óvænt með
hvítu. Hjörvar hefur tekið miklum
framförum undanfarin misseri.
Hann átti það til að vera svolítið
fljótfær en er smátt og smátt að
hrista þann löst af sér. Raunar eru
ungir og upprennandi skákmenn oft
dálítið óþolinmóðir og er haft fyrir
satt að Mikhail Botvinnik hafi stund-
um skammað Kasparov fyrir að leika
fyrst og hugsa svo.
Ingvar Jóhannesson tók þátt í hin-
um flokki alþjóðlegra meistara.
Hann fékk 6 vinninga af 11 mögu-
legum og varð í 5. – 6. sæti.
Íslendingar hafa undanfarin ár
gert góðar ferðir á First Saturday-
mótin Um það vitnar frammistaða
Dags Arngrímssonar og Stefáns
Kristjánssonar í fyrra en þeir náðu
þar báðir áföngum að alþjóðlegum
titlum.
Það verður í nógu að snúast hjá
ungu kynslóðinni í sumar því Íslend-
ingar taka þátt í Ólympíumóti 16 ára
og yngri í Singapore i ágúst. Nú sitja
að tafli allir fimm meðlimir Lauga-
lækjarskólasveitarinnar og tefla á
öflugu alþjóðlegu móti í Myzliborz
Póllandi. Þar er Daði Ómarsson
fremstur í flokki og hefur hlotið 3
vinninga úr fimm skákum. Fjöl-
margir íslenskir skákmenn hyggja á
þátttöku í Politiken Cup sem hefst
seinni partinn í júlí.
Aftur að First Saturday; Weiming
Go frá Singapore hafði farið mikinn
áður en hann mætti Hjörvari Steini í
næstsíðustu umferð, hlotið 7 vinn-
inga úr átta skákum. Hann fékk
heldur rýmri stöðu eftir byrjunina
og kann að hafa ætlað að eika 16.
Rd5 en eftir 16. .. exd5 17. cxd5 á
svartur millileikinn 17. .. Bb5! og
vinnur mann. Hjörvar hrindir af stað
snarpri atlögu með 20. .. Bxd4 ásamt
21. .. f5! og hvítur neyðist til að láta
skiptamun af hendi. Hann hefði get-
að haldið allgóðum færum hefði hann
ekki þanið sig um of á kóngsvæng,
33. h4 veikir f5-reitinn því með 34. ..
h5! nær svartur f5-reitnum og síðan
smokrar riddarinn sér inn fyrir her-
búðir hvíts. Besta skák Hjörvars í
Budapest.
First Saturday - Budapest;
10. umferð:
Weiming Go –
Hjörvar Steinn Grétarsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4.
O-O Rge7 5. c3 a6 6. Ba4 c4 7. d4
cxd3 8. Dxd3 Rg6 9. Be3 Be7 10. c4
d6 11. Rc3 O-O 12. De2 Bd7 13. Hfd1
Hc8 14. Hac1 Dc7 15. Bxc6 Bxc6 16.
Rd4 Bf6 17. b3 Hfd8 18. g3 De7 19.
Dh5 Hf8 20. a4 Bxd4 21. Hxd4 f5 22.
Hcd1 fxe4 23. Hxd6 Hf5 24. De2 Re5
25. Kg2 Hcf8 26. Hxc6 Rxc6 27.
Rxe4 Hd8 28. g4 Hxd1 29. Dxd1 Hf7
30. Rg5 Hf8 31. Dd3 g6 32. De4 He8
33. h4 Df6 34. Rf3 h5
35. Bg5 Df7 36. Bd2 hxg4 37.
Dxg4 Df5 38. Dg3 Hf8 39. Rh2 Re5
40. Bc3 Rd3 41. Rg4 Rf4+ 42. Kh2
Kh7 43. Re3 Df7 44. Bb4 Rh5 45.
Dg2 Df4+ 46. Kg1 Hf7 47. Bc3 Dxh4
- og hvítur gafst upp.
Keppendalistinn á HM í Mexíkó
Áskorendaeinvígjunum í Elista
lauk á miðvikudag. Þá tefldu Sergei
Rublevskí og Alexander Grischuk
þrjár atskákir til að útkljá einvígi
sem hafði lokið 3:3 þegar notaður var
venjulegur umhugsunartími. Grisch-
uk vann báðar skákir sínar með
svörtu í skoska leiknum og að við-
bættu jafntefli var sigurinn tryggð-
ur. Hann og kemst því á heimsmeist-
aramótið í Mexíkó í haust.
Lokaniðurstaðan varð þessi:
Lev Aronian –Alexei Shirov 3 ½ : 2 ½
Peter Leko – Evgenij Barreev 3 ½ : 1 ½
Boris Gelfand – Gata Kamsky 3 ½ : 1 ½
Alexand. Grischuk – Ser. Rublevkí 5 ½ : 3 ½
Hjörvar Steinn lagði
sigurvegarann
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar
Hækkar mikið Hjörvar Steinn
Grétarsson hækkar um 39 elo-stig
efstir frammistöðuna á First Satur-
day-mótinu í Budapest.
SKÁK
First Saturday-mótið
Budapest
2. – 12. júní
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Króatíu þann
24. júní í 2 vikur. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brott-
för færðu að vita hvar þú gistir. Króatía státar af fegurstu ströndum og
tærasta sjó Evrópu, heillandi menningu og glæsilegum gististöðum.
Skelltu þér til Króatíu og njóttu lífsins í sumarfríinu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Króatíu
24. júní í 2 vikur
frá kr. 59.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í
14 nætur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í 14 nætur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
SKÁK
FRÉTTIR
Í NOKKUR ár hefur Pósturinn
staðið fyrir heilsuátaki meðal
starfsmanna sinna undir yfirskrift-
inni Heilsupósturinn. Átakið hefur
falið í sér að hvetja starfsfólk til að
hreyfa sig, mælingar á árangri, eft-
irfylgni og viðurkenningar fyrir
góðan árangur. Þetta hefur mælst
svo vel fyrir að um 500 af 1.200
starfsmönnum Póstsins hafa verið
virkir þátttakendur frá byrjun, seg-
ir í frétt frá fyrirtækinu.
Í ár var búið til sérstakt markmið
átaksins, „á toppinn“. Þar voru
þátttakendur hvattir til að taka
þátt í göngu á Hvannadalshnjúk,
hæsta tind landsins en hann er
2.110 metrar yfir sjávarmáli. Þetta
er stórt og mikið verkefni og í vetur
hefur undirbúningur verið í fullum
gangi meðal starfsfólks þar sem
meðal annars var gengið á Esjuna,
Snæfellsjökul, Móskarðshnjúka og
Hvalfell til að undirbúa sig fyrir
átökin.
Gangan á Hvannadalshnjúk var
farin s.l. laugardag, 19. maí, og alls
fóru um 70 póstmenn á toppinn.
Gengin var Sandfellsleið í létt-
skýjuðu veðri og smá golu. Svo
skemmtilega hittist á að aðeins
fimm dögum eftir að póstmenn
náðu á tindinn gefur Íslandspóstur
út frímerki með mynd af Hvanna-
dalshnjúk að verðgildi 300 krónur.
Frímerkið er hluti af frímerkjaröð-
inni Jöklar á Íslandi.
Jöklar á Íslandi
Myndefnin í þessari frímerkjaröð
eru sótt til fimm hveljökla á Íslandi.
Fjórir þeirra eru á miðhálendinu:
Vatnajökull, Breiðamerkurjökull,
Langjökull og Hofsjökull. Fimmti
jökullinn er Snæfellsjökull. Frí-
merkin eru einnig eru gefin út sem
samprent í sérstöku myndskreyttu
hefti (gjafamöppu) ásamt upplýs-
ingum um íslensku jöklana á ís-
lensku og ensku.
Verðgildi frímerkjanna fimm er
5, 60, 80, 110 og 300 krónur. Hönn-
uður frímerkjanna er Tryggvi T.
Tryggvason grafískur hönnuður
hjá Himni og hafi, auglýsingastofu,
en hönnuður heftisins er Anna Þóra
Árnadóttir grafískur hönnuður hjá
EnnEmm, auglýsingastofu.
Póstmenn gengu á
Hvannadalshnjúk
Garpar Starfsmenn Póstsins gengu alla leið á topp Hvannadalshnjúks.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn