Morgunblaðið - 16.06.2007, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jónsmessukaffi.
Farið verður í Jónsmessukaffi að
Básum í Ölfusi undir stjórn Ólafs B.
Ólafssonar, hljóðfæraleikara. Á
leiðinni austur verður ekið um nýju
hverfin í Grafar- og Norðlingaholti.
Brottför frá Aflagranda 40 kl.
12.30. Verð kr. 2.500. Skráning í
afgreiðslu og í síma 411 2700.
Félagsheimilið Gjábakki | Á morg-
un 17. júní verður hátíðardagskrá í
Gjábakka kl. 15-16. Davíð Ólafsson
og Valgerður Guðnadóttir syngja
revíulög við undirleik Helga Hann-
essonar og tónlistarhópur frá
Skapandi sumarstörfum flytja tón-
listaratriði. Hátíðarhlaðborð. Húsið
opnar kl. 14.30. Allir velkomnir.
Félagsheimilið Gjábakki |
Krummakaffi kl. 9. Hana-nú ganga
kl. 10.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Kl. 18: Hin árlega Gullsmára-
grillveizla eldri borgara og
skemmtiatriði.
Félagsstarf Gerðubergs | Þriðjud.
19. júní kl. 13 verður púttvöllur við
Breiðholtslaug formlega tekinn í
notkun, með áherslu á þjónustu við
eldri borgara, í samstarfi við
Vinnuskóla Reykjavíkur. Miðvikud.
20. júní: Jónsmessufagnaður í
Básnum, lagt af stað kl. 13.15.
Skráning hafin s. 5757720.
Furugerði 1, félagsstarf | Jóns-
messukaffi í Básnum miðvikudag
20. júní. Ólafur B. Ólafss. og Ingi-
björg Aldís syngja og leika fyrir
gesti. Lagt af stað kl. 13.15. Skrán-
ing í Furugerði í s. 553-6040.
Hjálpræðisherinn í Reykjavík |
Kaffisala 17. júní kl. 14-18 á Hjálp-
ræðishernum að Kirkjustræti 2,
Reykjavík. Mikið af góðum kökum í
boði. Söngstund kl. 16.30 í umsjá
Miriam Óskarsdóttur.
Hraunbær 105 | Miðvikudaginn 20.
júní. Jónsmessukaffi að Básum í
Ölfusi undir stjórn Ólafs B. Ólafs-
sonar, hljóðfæraleikara. Á leiðinni
austur verður ekið um nýju hverfin
í Grafar- og Norðlingaholti. Brott-
för frá Hraunbæ kl. 13. Verð. 2.500
kr. Skráning á skrifstofu eða í síma
587-2888.
Hvassaleiti 56-58 | Föstudaginn
22. júní verður hið árlega Sum-
argrill haldið í Hvassaleiti 56-58,
hátíðin hefst kl. 18 með fordrykk,
matur fram borinn, skemmtiatriði
og dans. Allir velkomnir, skráning á
skrifstofunni og í síma 535-2720.
Við óskum öllum öllum gleðilegrar
þjóðhátíðar á morgun 17. júní..
Hæðargarður 31 | Gönguferðir alla
morgna kl. 9 á laugardögum kl. 10.
Listasmiðjan opin. Tölvusveitin
hittist á þriðjud. og miðvikud. kl.
13.-15. Púttvöllurinn opnar 20. júní.
Kennsla í pútti alla miðvikudaga í
sumar kl. 17-18. Hádegismatur síð-
degiskaffi. Kíkið við og fáið alla
dagskrána. S. 568-3132.
Norðurbrún 1 | Grillveisla verður
haldin fimmtudaginn 21. júní og
hefst kl. 18.30. Allir velkomnir.
Upplýsingar í síma 5686960.
Kirkjustarf
Kristniboðsfélag karla | Kristni-
boðsfélag karla heldur fund mánu-
daginn 18. júní kl. 20 á Háaleit-
isbraut 58-60. Bjarni Gíslason sér
um Biblíulestur. Allir karlmenn vel-
komnir.
Brúðkaup | Í dag, 16. júní,
verða gefin saman í hjónaband
í Dómkirkjunni í Reykjavík
Gróa Björg Gunnarsdóttir og
Valdimar Björn Ásgeirsson.
Þau eru til heimilis í Hæðar-
garði 16, Reykjavík.
70ára. Á morgun, sunnu-daginn 17. júní, verður
Snorri Rafn Jóhannesson,
Asparholti 6, sjötugur. Af því
tilefni taka hann og fjölskylda
hans á móti gestum í Bjarkar-
húsinu, Haukahrauni 1 í
Hafnarfirði, milli kl. 17 og 20.
dagbók
Í dag er laugardagur 16. júní, 167. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út fara frá bústað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarðarinnar. (Mík. 1, 3.)
Hundaskóli Hundarækt-arfélags Íslands hefur út-skrifað hundruð hunda oghundaeigenda á þeim
mörgu árum sem skólinn hefur starfað.
Kennsluaðferðir við skólann hafa tekið
breytingum í samræmi við nýjustu
þjálfunarrannsóknir hverju sinni, og er
nú unnið að innleiðingu hunda-
námsskrár með nýjum áherslum. „Við
stöndum í öflugu uppbyggingarstarfi og
fáum hingað til lands sænska þjálfara
sem munu kenna leiðbeinendum
Hundaskóla HRFÍ. Eru sérlega spenn-
andi tímar framundan,“ segir Valgerður
Júlíusdóttir sem situr í skólanefnd
Hundaskólans.
Grunn- og sérhæfð námskeið
Hundaskólinn býður upp á ólík nám-
skeið sniðin að mismunandi þörfum
hunda og eigenda þeirra: „Grunnurinn
að allri hundaþjálfun eru hin hefð-
bundnu hvolpa- og grunnnámskeið.
Þetta eru langvinsælustu námskeiðin
hjá skólanum og veita mörg sveitarfélög
afslátt af hundaleyfi þeim hundum sem
útskrifast hafa úr náminu,“ segir Val-
gerður. „Grunnnámskeiðin eru opin öllu
hundum, hreinræktuðum jafnt sem
blendingum, en svo stendur Hundaskól-
inn einnig fyrir sérhæfðum námskeiðum
sem aðeins eru ætluð hreinræktuðum
hundum. Ákveðnar tegundir þurfa að
gangast undir vinnupróf til að öðlast
tiltla, og höldum við sporleitarnámskeið,
námskeið fyrir standandi fuglhunda og
veiðihundanámskeið fyrir þá hunda.“
Valgerður segir einnig hafa færst
aukið líf í hundafimi hérlendis: „Við er-
um með hóp af frambærilegu ungu fólki
sem vinnur öflugt starf í hundafimi og
geta hundar sem orðnir eru að minnsta
kosti árs gamlir tekið þátt í sérstökum
æfingatímum sem haldnir eru reglu-
lega.“
Boðið er upp á einkatíma fyrir þá sem
þess óska, en Valgerður segir yfirleitt
best að þjálfa hunda í hóptímum þar
sem hundarnir venjast áreiti af öðrum
hundum og fólki. „Á námskeiðum skýr-
ast skilaboðin milli hunds og eiganda.
Auk þess að læra hvernig á að fá hund-
inn til að hlýða lærum við um tjáning-
arform hundsins,“ segir Valgerður að
lokum. Finna má nánari upplýsingar á
www.hrfi.is.
Dýrahald | Hundaskóli HRFÍ býður upp á fjölbreytt námskeið
Styrkir hund og eiganda
Valgerður Júl-
íusdóttir fæddist í
Reykjavík 1960.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Flens-
borgarskólanum
1980, B.Ed. gráðu
frá KHÍ 1985, B.Sc.
í viðskiptafræði
frá Tækniháskóla
Íslands 2002 og leggur nú stund á
MPA nám við HÍ. Valgerður hefur
starfað við kennslu í mörg ár. Hún er
nú deildarstjóri sérkennslu í Öldu-
túnsskóla. Valgerður er gift Jens Guð-
björnssyni yfirtollverði og eiga þau
tvö börn og fjóra hunda.
Tónlist
Angelo | Biggo kl. 23, föstudag og laugadag.
Café Paris | DJ Börkur aka Kuggur kl. 22.
Hallgrímskirkja | Rússneski organistinn Daniel Za-
retsky, frá Sankti Pétursborg, leikur á tónleikum í
dag, 16. júní kl. 12. Tónlist eftir Bach, Böhm og
Buxtehude.
Tónlistarhátíð Babalú, Hljómalindar og S.L.Á.T-
.U.R | Á Hljómalind leika Elín Ey og Elísabet Ey-
þórsdóttir, Þóra Björk, Toggi og Úlpa kl. 15-19, í
S.L.Á.T.U.R. eru síðdegistónar / slátrun kl. 16-19 og í
Babalú leika Faðirvor, For a Minor Reflection, Eva
Williams og DJ Miquel kl. 18-23. Ókeypis er á alla
tónleikana.
Myndlist
Handverk og hönnun | Aðalstræti 10. Nú stendur
yfir sýning Sigríðar Ágústsdóttur „Á skörinni“ á
handmótuðum og reykbrenndum. Sýningin stendur
til 28. júní.
Listasafn Reykjanesbæjar | Húsafellsmyndir Ás-
gríms Jónssonar verða til sýnis á Listasafni
Reykjanesbæjar í sumar. Um er að ræða bæði
vatnslitaverk og olíuverk og kemur sýningin frá
Listasafni Íslands. Sýningin stendur til 26. ágúst.
Ráðhús Reykjavíkur | Heidi Strand sýnir í Tjarn-
arsal Ráðhússins í Reykjavík 17 ný textilverk og 2
skúlptúra.
Söfn
Minjasafn Austurlands | Kl. 15.30-17. Sýningin
„Komdu og skoðað’ í kistuna mína“ opnuð. Félagar
úr Hljómvinum koma og syngja lög við ljós Páls
Ólafssonar.
Þjóðmenningarhúsið | Kl. 11-17. Sýnd eru ýmis
merkustu skinnhandritin frá miðöldum. Hin fornu
handrit geyma einstæðar sögur, kvæði og frásagnir
sem varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð og hug-
arheim hinna norrænu þjóða frá ásatrú í gegnum
umbreytingatímabil landafunda, landnáms og
kristnitöku.
Skemmtanir
Gaukur á stöng | Gleðisveitin Buff ásamt Matta
„Papa“ laugardagskvöldið 16. júní. Frítt inn til mið-
nættis og 1.000 krónur eftir það.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | 29 júní: Þjórsárdalur-
Veiðivötn. 2.-6. júlí: Vestfirðir, Ísafjörður-
Bolungarvík-Flateyri-Þingeyri-Patreksfjörður-
Rauðisandur-Látrabjarg. Upplýsingar og skráning í
síma 892-3011, Hannes.
Krókur á Garðaholti í
Garðabæ er lítill báru-
járnsklæddur burstabær.
Hann var endurbyggður
úr torfbæ árið 1923. Í
Króki eru varðveitt ýmis
gömul húsgögn, og gefur
bærinn því glögga mynd
af húsakosti og lifn-
aðarháttum alþýðufólks á
fyrri hluta 20. aldar.
Í Króki var búið allt til
ársins 1985. Bæjarhúsin
ásamt útihúsum og innbúi
voru gefin Garðabæ árið
1998 af afkomendum þeirra hjóna Þorbjargar Stefaníu Guðjóns-
dóttur og Vilmundar Gíslasonar í Króki, en þau voru síðustu ábú-
endur á jörðinni. Þau skilyrði fylgdu gjöfinni að bærinn yrði end-
urbyggður.
Öllum er velkomið að heimsækja Krók í sumar. Bærinn stendur á
ská til móts við samkomuhúsið á Garðaholti.
Opið hús í Króki á Garðaholti sunnudag frá 13-17
Tækifæri til að kynnast húsa-
kosti á fyrri hluta 20. aldar
FRÉTTIR
VINSTRI græn á Norðurlöndum
hafa sent frá sér sameiginlega yf-
irlýsingu þar sem skorað er á
ríkisstjórnir Norðurlanda að við-
urkenna sjálfstæði Vestur-Sahara
(Saharawi Arab Democratic
Republic). Meira en 35 ár eru lið-
in síðan Spánn yfirgaf þessa fyrr-
verandi nýlendu sína en allar göt-
ur síðan hefur Marokkó hersetið
landið og íbúar þess lifað undir
oki þeirra. Sameinuðu þjóðirnar
hafa ítrekað ályktað að Vestur-
Sahara skuli fara með sjálfs-
stjórn, en án árangurs. Nú síðast
bókaði öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að reyna skyldi til
þrautar að ná pólitískri nið-
urstöðu með það að markmiði að
Vestur-Sahara fari með stjórn
eigin mála. Dagana 18. og 19.
júní fara fram samningaviðræður
í New York um stjórnskipan
þessa svæðis. Íbúar Vestur-
Sahara þurfa því nauðsynlega á
stuðningi að halda í sjálfstæð-
isbaráttu sinni næstu daga og
vikur. Vinstri græn á Íslandi
ásamt Vänsteralliansen í Finn-
landi, Socialistisk Vensterparti í
Noregi og Vänsterpartiet í Sví-
þjóð skora á stjórnvöld að styðja
Vestur-Sahara í komandi samn-
ingaviðræðum. Besti stuðning-
urinn væri að sjálfsögðu að við-
urkenna Vestur-Sahara sem
sjálfstætt ríki.
Íslensk stjórn-
völd viðurkenni
sjálfstæði
Vestur-Sahara
FYRSTI hópur reykvískra grunn-
skólakennara útskrifaðist úr námi
í svokölluðum Tölvutökum
fimmtudaginn 14. júní.
Námið felur í sér þekkingu og
færni til að samþætta betur upp-
lýsinga- og samskiptatækni í
kennslu. Tölvutökur eru eitt viða-
mesta símenntunarverkefni sem
ráðist hefur verið í hjá grunn-
skólum Reykjavíkur, það er til
þriggja ára og er unnið í sam-
starfi Menntasviðs Reykjavík-
urborgar og K.H.Í.
Alls útskrifuðust 182 þátttak-
endur við hátíðlega athöfn í Sal
Menntasviðs að Fríkirkjuvegi 1.
Námið í Tölvutökum hefur farið
þannig fram að hópur handleið-
ara, sem sótti sérstakt námskeið,
hefur leitt aðra þátttakendur í
gegnum námsefnið. Kennt er að
nota helstu forrit með höf-
uðáherslu á að nýta þau í starfi
með nemendum. Námsefnið og
námstilhögun er að danskri fyr-
irmynd og hefur verið í stöðugri
þróun síðustu ár.
Námskeið í Tölvutökum stendur
öllum grunnskólakennurum í
Reykjavík til boða og er vonast til
að flestir þeirra ljúki því. Gert er
ráð fyrir að þessu símennt-
unarverkefni ljúki á árinu 2009.
Um 200 grunn-
skólakennarar
útskrifast úr
Tölvutökum
FYRSTU trén voru gróðursett í Kolvið-
arskógi á Íslandi síðastliðinn fimmtudag,
14. júní. Í tilkynningu vegna gróðursetn-
ingarinnar segir að með þessum áfanga sé
lagður grunnur að fyrsta skóginum á Ís-
landi sem ætlað sé að binda kolefni úr and-
rúmsloftinu og hamla gegn þeirri lofts-
lagsvá sem spáð sé að geti haft alvarlegar
afleiðingar á veðurfar í heiminum.
Upphaf verkefnisins var markað með
gróðursetningu á stæðilegum birki-
plöntum. Það gerðu fulltrúar bakhjarla
verkefnisins, þeir Ingólfur Helgason for-
stjóri Kaupþings, Einar K. Guðfinnsson
ráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands
og Brynjar Stefánsson frá Orkuveitu
Reykjavíkur ásamt forsvarsaðilum og
stjórn Kolviðar.
Við þetta sama tækifæri handsöluðu
Guðfinna S. Bjarnadóttir formaður stjórn-
ar Kolviðar og Sigríður Heiðmundardóttir
formaður skógræktarfélags Rangæinga
þjónustusamning, en félagið mun hafa um-
sjón með öllum skógræktarframkvæmdum
á Geitasandi.
Kolviður áætlar í þessari fyrstu lotu að
gróðursetja um 50 þúsund plöntur. Á
svæðinu verða notaðar allt að sex trjáteg-
undir en með þeim hætti verður skógurinn
fjölbreyttur að gerð. Fjölbreytt tegunda-
samsetning mun jafnframt auka útivist-
argildi svæðisins, auk þess sem skógvist-
kerfið verður betur í stakk búið til að
standast áföll af völdum veðurs eða skor-
dýra. Hér er því um nokkurskonar áhættu-
dreifingu að ræða enda er sjóðurinn að
taka á sig skuldbindingar sem eiga að
standa til langframa og því mikilvægt að
hugsa fram í tímann. Þá verður öll kolefn-
isbinding sem á sér stað í Kolviðarskóg-
inum mæld og vottuð af sérfræðingum á
fimm ára fresti. Umsjón með allri vottun
sjóðsins hefur KPMG.
Um miðjan maí sl. var opnuð vefsíða
Kolviðar www.kolvidur.is þar sem fyr-
irtækjum og einstaklingum hefur gefist
möguleiki á því að kolefnisjafna sam-
göngur með skógrækt.
Kolefni bundin varanlega
Gróður Ingólfur Helgason, forstjóri Kaup-
þings, Einar K. Guðfinnsson ráðherra og
Brynjar Stefánsson, Orkuveitu Reykjavíkur.