Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 47
JAZZKLÚBBUR Seltjarnarness
gerði vel að fá Tore Brunborg, hinn
norska saxófónsnilling, til að leika hér
að nýju með tríó Sunnu Gunnlaugs-
dóttur, en þau léku á Jazzhátíð
Reykjavíkur í vetur við vonlausar að-
stæður. Á efnisskránni voru fjögur
verk eftir Sunnu, tvö eftir eiginmann
hennar og trommara, Scott McLe-
more, tvö af Tid svoog Lucie af nýj-
ustu skífu hans, Gravity. Það er svo-
lítið vandspilað verk en Sunna er
óhrædd við slíkt. Upphafslag tón-
leikana var eftir hana, Bump, og sam-
ið er hún bar fyrsta barn sitt undir
belti. Þetta er glaðlegt lag en undir-
liggjandi spenna gaf því dýpt. Sunna
var sterk í hljómunum og bæði spuni
hennar og undirleikur einkenndist af
meiri krafti en við höfum átt að venj-
ast frá henni. Hún er svo sannarlega
ekki stöðnuð í list sinni; sóló hennar í
Tunnel Vision, nýlegu verki eftir
Scott, var skemmtilega rýþmísur,
massífir hljómar og stundum ómur af
rómantískri klassík. Scott var mel-
ódískur og Þorgrímur Jónsson,
bassaleikari, spilar alltaf vel. Tore er
saxafónleikari sem hæfir Sunnu og
hefur þroskast mikið síðan hann kom
hér fyrst með Arild Andersen. Stund-
um er hann svo brothættur að maður
hættir næstum að anda – síðan brýst
krafturinn fram; en hinn norræni
tónn ríkir alltaf. Það mátti heyra að
þau leika ekki oft saman, en þetta var
indæl stund og öll skiluðu þau hlut-
verki sínu með prýði.
Kröftug Sunna
TÓNLIST
Félagsheimili Seltjarnarness
Laugardaginn 9.6. 2007.
Tore Brunborg og tríó Sunnu Gunnlaugs-
dóttur
Vernharður Linnet
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
FYRSTA breiðskífa Seabear, The
Ghost That Carried Us Away, kom
út fyrir stuttu hér á landi. Seabear
er hljómsveit sem stendur, en byrj-
aði sem eins manns föndur Sindra
Más Sigfússonar.
Sindri Már gaf á sínum tíma út
sólóskífu sem hann gerði að öllu
leyti einn, samdi músíkina, spilaði
hana og tók upp og föndraði síðan
umslagið sjálfur. Sú plata hét Sing-
ing-Arc og kom út fyrir tveimur ár-
um, heimabrennd. Nú ber annað
við, The Ghost That Carried Us
Away kemur út á vegum Morr út-
gáfunnar þýsku hér á landi, í ágúst
í öðrum löndum Evrópu og síðan í
september vestan hafs.
Stækkandi hljómsveit
Seabear er stækkandi hljóm-
sveit, eða hefur í það minnsta
stækkað á síðustu mánuðum, er nú
sjö manna sveit að því Sindri Már
segir og hann bætir við: „Ég veit
eiginlega ekki hvað gerðist, en við
erum orðin sjö. Verðum ekki fleiri,
held ég.“ Hann tekur undir það að
það séu töluverð viðbrigði frá því
að vera einn að bjástra við músík,
„en vera svo kominn með fótbolta-
lið“, segir hann og vísar til þess að
sveitin ætlar sér stóra hluti í fót-
boltakeppni tónlistarmanna í sum-
ar.
Sindri segir að The Ghost That
Carried Us Away hafi orðið til á
löngum tíma, meðal annars fyrir
það að hann var búinn að taka upp
stóran hluta af plötunni, en síðan
var það allt tekið upp aftur meira
og minna þegar hann var farinn að
vinna með hljómsveit, enda hljóm-
aði það svo miklu betur að því hann
segir.
Fyrirtæki og fótboltalið
„Það er frábært að vinna með
hljómsveitinni, en ég skil ekki
hvers vegna þau hlusta á mig, þau
eru öll svo miklu betri en ég,“ segir
hann og bætir við að hann hafi
byrjað frekar seint að fást við tón-
list; „svo er ég alltíeinu kominn
með fyrirtæki og fótboltalið“, segir
hann hálfhissa.
Sindri og félagar hans í Seabear
halda utan til tónleikahalds um það
leyti sem platan kemur út, spila lík-
lega vía í ágúst og september og
síðan aftur í nóvember og ein ferð
til er fyrirhuguð í janúar. Meðfram
þessu er hann svo að fást við laga-
smíðar, setur saman grunna og
vinnur hugmyndir sem hann ætlar
síðan að þróa áfram með sveitinni
eftir því sem færi gefst. Útgáfu-
tónleikar hér á landi verða svo
væntanlega í júlí.
Sjöfaldur
Seabear
Morgunblaðið/Eggert
Seabear Sveitin stendur í ströngu um þessar mundir.
BÚR
SALTAÐ
FRYST
og
HERT
w
w
w
. s
j o
m
i n
j a
sa
f n
. i
ssýningin
A l l t a f h e i t t á k ö n n u n n i
SJOMINJASAFNIÐ Í REYKJAVÍK
Grandagarði 8
Opið alla daga nema mánudaga