Morgunblaðið - 16.06.2007, Síða 55
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
„ÞEGAR ég heyrði fyrst gamelan-
tónlist, fyrir um 25 árum, varð ég
fyrir djúpstæðum áhrifum; ég
hafði aldrei heyrt nokkuð þessu
líkt fyrr!“ segir hinn bandaríski
klarínettu-, saxófón- og gamelon-
leikari Evan Ziporyn, en hann mun
koma fram á tónlistarhátíðinni
„Við Djúpið“ sem fram fer á Ísa-
firði dagana 18.-24. júní næstkom-
andi, og auk þess á tvennum tón-
leikum í Reykjavík, 26. og 27. júní.
Kennir gamelantónlist
á Íslandi
„Ég hef alltaf verið mikill áhuga-
maður um þjóðlagatónlist úr öllum
heimshornum,“ segir Evan.
„Gamelontónlistin heillaði mig en
gamelonhljóðfæri eru fyrst og
fremst ásláttarhljóðfæri og hljóm-
urinn ótrúlega spennandi, jafnvel
dulúðugur. Tónlistin er upprunnin
á eyjunum Java og Balí í Indónes-
íu.“
Evan hefur svo sannarlega lagt
sitt af mörkum til þess að auka
hróður þessarar framandi tónlist-
ar; hann er til að mynda höfuð-
paurinn í 30 manna gamelanhljóm-
sveit, Gamelan Galak Tika. Þá mun
hann sjá um kennslustund í þessari
músík á Ísafirði en af því tilefni
verður gamelanhljóðfæri í fyrsta
skipti flutt til Íslands.
Hlakkar til Íslandsfarar
Evan hefur komið víða við, og til
að mynda leikið frá upphafi í hinni
heimsfrægu Bang on a Can, klass-
ískri sveit sem spilar meðal annars
tilraunakennda nútímatónlist með
avant garde-áhrifum. Þá hefur
hann leikið með Paul Simon, og
brá í þau skipti fyrir sig saxófón-
inum.
Þegar blaðamaður beinir spjall-
inu að Íslandi segist Evan aldrei
hafa komið þangað. Hann kveðst
þó hlakka mikið til; eiginkonan hafi
einu sinni farið þangað í vikufrí og
ekki talað um annað er hún sneri
aftur. Þá hlær hann dátt þegar
blaðamaður gerir góðlátlegt grín
að dýrkun útlendinga á Íslandi.
Við djúpið
Tónlistarhátíðin og sumarnám-
skeiðin sem haldin eru undir yfir-
skriftinni „Við Djúpið“ fara nú
fram fimmta árið í röð. Fjölmargir
færir tónlistarmenn bjóða upp á
tónleika og svokallaða „master-
klassa“ eða kennslunámskeið. Er
allri tónlist gert jafnt undir höfði,
klassík, djassi, poppi og nútíma-
tónlist.
Ýmsir listamenn aðrir en Evan
koma fram á hátíðinni. Sé stiklað á
stóru má nefna að hinn velþekkti
Erling Blöndal Bengtsson kennir á
selló og Vovka Ashkenazy á píanó.
Þá brydda aðstandendur upp á
þeirri nýjung í ár að haldnar verða
vinnubúðir í tónsmíðum. Hin ungi
og upprennandi Simon Steen-
Andersen, danskt tónskáld, leiðir
tónsmíðanámskeiðið en verk nem-
enda verða svo valin og flutt af
Aton-tónlistarhópnum á sérstökum
tónleikum.
Einnig mun Davíð Þór Jónsson
píanóleikari kenna spunapíanóleik
og Tinna Þorsteinsdóttir fjalla um
samtímatónlist fyrir píanista.
Fjölmargir tónleikar fara fram á
hátíðinni, meðal annars laugar-
dagskvöldið 23. júní, en þá munu
allir kennarar hennar koma fram.
Þessum hljómleikum verður út-
varpað á Rás 1.
Gamelantónlist í fyrsta skipti á Íslandi
www.ziporyn.com
www.viddjupid.is
Sérkennileg instrúment Hinn fjölhæfi Evan Ziporyn leikur á gamelanhljóðfæri, en þau eru uppruninn á Balí.
Evan Ziporyn leikur á tónlistarhátíðinni Við Djúpið sem fram fer á Ísafirði dagana 18.-24. júní
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 55
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá
Íslendingum. Terra Nova býður nú frábært tilboð til þessa vinsæla
sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt
loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði
og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Súpersól til
Búlgaríu
25. júní. og 2. júlí.
frá kr. 39.995
- SPENNANDI VALKOSTUR
kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli með morgunverði í viku.
Aukavika kr. 10.000.
Súpersólar tilboð 2. júlí kr 5.000
aukalega á mann.
kr. 39.995
Netverð á mann, m.v. gistingu
fyrir 2 fullorðna og 2 börn í íbúð
m/einu svefnherbergi í viku.
Aukavika kr. 10.000. Súpersólar
tilboð 2. júlí kr. 5.000 aukalega á
mann.
Allra síðustu sætin
Ísafjörður
Föstudagur 22. júní:
Edinborgarhús, kl. 20.
Laugardagur 23. júní:
Hamrar, kl. 21.
(tónleikum útvarpað á RÚV)
Reykjavík
Tónleikar haldnir 26. og 27.
júní í Fríkirkjunni, í tengslum
við alþjóðlega Atondaga.
Hvorir tveggju tónleikarnir
hefjast klukkan 20:30.
Tónleikar
Evan Ziporyn
Fréttir í tölvupósti