Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 19
ára karlmann, Arnar Val Valsson, í
5½ árs fangelsi fyrir manndrápstil-
raun með því að stinga annan karl-
mann með hníf í bakið með þeim af-
leiðingum að hann hlaut lífshættu-
legan áverka. Arnar Valur var einnig
ákærður fyrir þjófnað og tilraun til
nytjastuldar. Í Héraðsdómi Reykja-
ness var maðurinn dæmdur í 5 ára
fangelsi.
Árásin átti sér stað aðfaranótt 14.
maí 2006 í Hafnarfirði. Ákærði knúði
dyra á heimili mannsins því hann
taldi sig eiga óuppgerðar sakir við
hann. Var ákærði vopnaður hnífi,
sem sat í slíðri, en félagi hans hafna-
boltakylfu. Eftir stimpingar við gesti
í húsi mannsins flúðu aðkomumenn
inn í bifreið sína og leituðust við að
komast burt, sem leiddi til þess að
ekið var á einn gestanna. Þá braut
maðurinn hliðarrúðu á bifreiðinni,
þeim megin sem ákærði sat. Sá snar-
aði sér þá út, vatt sér að manninum
og stakk hann fyrirvaralaust með
hnífi. Að því loknu fór hann þegar inn
í bifreiðina aftur og var henni ekið á
brott. Ber vitnum saman um að rás
atburða hafi verið mjög hröð.
Á að greiða 1,7 milljónir í bætur
Hnífurinn gekk inn í bak mannsins
á milli hryggtinda, inn í mænugöng
og skaðaði taugar með alvarlegum
afleiðingum sem líklega munu vara
ævilangt.
Arnar Valur játaði í öllum tilvikum
þá háttsemi sem honum var gefin að
sök. Hæstiréttur taldi, að þótt að-
dragandi þess að Arnar Valur stakk
hinn manninn hefði verið skammur
yrði ekki litið framhjá þeim ásetn-
ingi, sem bjó að baki för hans um
nóttina á fund mannsins, vopnaður
hættulegum hníf. Var ekki talið að
Arnari Val hefði getað dulist þegar
hann réðst að manninn að bani hlyt-
ist eða kynni að hljótast af djúpri
hnífstungu inn í líkama hans.
Til frádráttar fangelsisdóminum
kemur gæsluvarðhald sem Arnar
Valur hefur sætt frá 14. maí 2006.
Arnar Valur var dæmdur til að
greiða manninum sem hann stakk
rúmlega 1,7 milljónir króna í bætur
sem og allan sakarkostnað.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Hrafn
Bragason og Markús Sigurbjörns-
son. Verjandi var Skúli Bjarnason
hrl. og sækjandi Sigríður J. Frið-
jónsdóttir, saksóknari hjá ríkissak-
sóknara.
Dæmdur í 5½ árs fangelsi
fyrir manndrápstilraun
Í HNOTSKURN
»Hæstiréttur hefur þyngtdóm yfir hinum 19 ára
Arnari Val Valssyni fyrir til-
raun til manndráps með hníf-
stungu í maí 2006.
»Við árásina gekk hníf-urinn inn í bak fórn-
arlambsins á milli hryggtinda,
inn í mænugöng og skaðaði
taugar með alvarlegum afleið-
ingum sem líklega munu vara
ævilangt.
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá
11. desember sl. yfir karlmanni
vegna líkamsárásar gegn fyrrum
unnustu mannsins og vísað málinu
heim í hérað til aðalmeðferðar og
dómsálagningar á ný. Þá þykir
hæstarétti rétt að héraðsdómarinn
neyti heimildar 1. mgr. 5. gr. laga nr.
19/1991 um meðferð opinberra mála
til að hafa dóminn fjölskipaðan og
kveðji tvo aðra héraðsdómara til
setu með sér í dómi við nýja meðferð
málsins.
Ólafur Börkur Þorvaldsson
hæstaréttardómari skilaði sér-
ákvæði og taldi að staðfesta yrði
ályktun héraðsdóm um að slíkur vafi
væri uppi um sekt ákærða að sýkna
bæri hann af kröfum ákæruvaldsins.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Ingibjörg Benediktsdóttir,
Hjördís Hákonardóttir og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Verjandi var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og sækj-
andi Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari.
Dómur
ómerktur
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
karlmann um þrítugt, Stefán
Hjaltested Ófeigsson, í 2 ára fang-
elsi fyrir að þröngva stúlku með of-
beldi til samræðis og annarra kyn-
ferðismaka á þáverandi heimili
hans á Njálsgötu í lok maí eða
byrjun júní 2004. Þyngdi Hæsti-
réttur dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur, sem dæmdi manninn í 1½
árs fangelsi.
Hæstiréttur var í þessu máli
skipaður sömu dómurum og mild-
uðu dóm yfir karli á fimmtugsaldri
í febrúar síðastliðnum fyrir kyn-
ferðisbrot gegn börnum og mild-
uðu í maí síðastliðnum dóm yfir
karlmanni á fertugsaldri í nauðg-
unarmáli.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að skylt hafi verið að tiltaka refs-
ingu Stefáns samkvæmt 78. gr. al-
mennra hegningarlaga, en þar seg-
ir: „Verði maður, sem búið er að
dæma fyrir eitt brot eða fleiri, upp-
vís að því að hafa framið önnur
brot, áður en hann var dæmdur,
skal honum dæma hegningarauka,
er samsvari þeirri þynging hegn-
ingarinnar, sem kynni að hafa orð-
ið, ef dæmt hefði verið um öll brot-
in í fyrra málinu.“ Stefán hafði með
dómi héraðsdóms 17. nóvember
2005, sem staðfestur var í Hæsta-
rétti, verið dæmdur í fangelsi í 2½
ár fyrir nauðgun. Brot Stefáns í
þessu máli voru framin fyrir upp-
sögu héraðsdómsins frá 2005.
Hæstiréttur staðfesti ákvæði
héraðsdóms um skaðabætur og
sakarkostnað. Stefán var þannig
dæmdur til að greiða stúlkunni 1
milljón króna í miskabætur og gert
að greiða allan sakarkostnað.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason,
Hrafn Bragason og Markús Sig-
urbjörnsson. Verjandi var Brynjar
Níelsson hrl. og sækjandi Sigríður
J. Friðjónsdóttir saksóknari.
Hæstiréttur þyngdi
dóm í nauðgunarmáli
Ákærði dæmdur fyrir sams konar brot í árslok 2005
SLÁTTUR er að hefjast á Suður-
landi þessa dagana. Þegar fréttarit-
ari Morgunblaðsins átti leið
framhjá Hrepphólum í Hruna-
mannahreppi var Ólafur Stef-
ánsson, bóndi á bænum, þar að raka
saman heyi sínu með stórvirkum
vinnuvélum með aðstoð sonar síns
Odds.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ólafur sprettuna þetta árið ágæta,
hún sé öll að koma til. Aðspurður
segir hann fyrsta sláttinn þetta
sumarið vera á svipuðum tíma og í
fyrra. Sjálfur sé hann hins vegar
með þeim fyrstu til að slá, en hann
reiknar með að aðrir bændur í
sveitinni fari af stað með sláttinn á
næstu dögum.
Spurður um tíðarfarið segir Ólaf-
ur veðrið hafa verið heldur þurrt
upp á síðkastið og tekur fram að
það hefði gjarnan mátt rigna svolít-
ið. Hann segir að ekki hafi þótt ráð-
legt að bíða lengur með fyrsta slátt-
inn.
Aðspurður sagði Ólafur þá feðga
hafa slegið fjóra hektara í gærdag
og reiknuðu þeir með að slá fimm
til viðbótar í gærkvöldi. Það væri
hins vegar rétt byrjunin enda tals-
verð tún sem tilheyrðu bænum.
Ekki ráðlegt að bíða lengur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Bóndinn á Hrepphólum byrjaður að slá Segir tíðarfar gott en heldur þurrt
INNFLUTNINGUR á 32 tonnum af
loðnu frá íslensku fyrirtæki til Rúss-
lands var stöðvaður þar í landi fyrir
skemmstu þar sem rannsóknir
sýndu að bakteríuna lysteríu var að
finna í loðnunni.
Að sögn Halldórs Ó. Zoëga, for-
stjóra matvælaeftirlitssviðs Fiski-
stofu, var aðeins um eitt einangrað
tilfelli að ræða frá einu fyrirtæki en
yfir 40 fyrirtæki hér á landi hafa leyfi
til útflutnings fisks til Rússlands.
Tímabundið bann var sett á fyrir-
tækið meðan málið er rannsakað en
að sögn Halldórs mun atvikið hafa
lítil áhrif á viðskipti við Rússland.
Lystería
í loðnu
Innflutningur stöðv-
aður í Rússlandi
♦♦♦
LÖGREGLAN
í Borgarnesi
átti annasaman
dag í gær við að
stöðva öku-
menn við of
hraðan akstur.
Að sögn lög-
reglu voru um
10 ökumenn
teknir sem er óvenjumikið. Sá sem
hraðast fór ók á 146 km hraða en um
kvöldmatarleytið var annar stöðvað-
ur á 125 km hraða, reyndist sá vera
undir áhrifum fíkniefna við akstur-
inn.
Mikið um
hraðakstur
ÓMAR Ragnarsson gagnrýndi á
bloggi sínu um helgina að Íslensku
leiklistarverðlaunin, Gríman, skyldu
hafa verið færð frá kvöldi 16. júní til
þess 15. að kröfu Sjónvarpsins. Til-
færslan hafði það í för með sér að
nokkrir þeirra tilnefndu, þeirra á
meðal verðlaunahafi, komust ekki á
hátíðina vegna vinnu í leikhúsinu.
Frá upphafi verðlaunanna árið
2003 og þar til nú hefur hátíðin verið
haldin að kvöldi 16. júní.
Þórhallur Gunnarsson, dagskrár-
stjóri Sjónvarpsins, segir að ósk um
tilfærslu hafi snúist um kostnað. Út-
sendingarbíll Sjónvarpsins hafi verið
bundinn allan daginn í útsendingu
landsleiks, og leigja hefði þurft ann-
an útsendingarbíl með miklum til-
kostnaði hefðu báðir viðburðirnir
verið sendir út sama dag. | 19
Gríman
vék fyrir
boltanum
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjaness um
að karlmaður sæti áframhaldandi
gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í
málum sem höfðuð hafa verið á
hendur honum. Maðurinn mun þó
ekki sitja lengur í varðhaldi en til 27.
júní. Hann var ákærður í janúar fyr-
ir brot á lögum um ávana- og fíkni-
efni og hegningarlögum. Hann var
jafnframt ákærður í febrúar og mars
fyrir auðgunar- og fjármunabrot,
auk fíkniefna- og umferðarlaga-
brota. Þá var hann líka ákærður fyr-
ir brot gegn valdstjórninni.
Síbrotagæsla
staðfest
♦♦♦
♦♦♦