Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 44
Eins og gefur að skilja eru liðsmenn söng- flokksins í misgóðu lík- amlegu ástandi … 46 » reykjavíkreykjavík Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is LOVÍSA Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur svo sannarlega haft í nógu að snú- ast síðan lag hennar, „Please Don’t Hate Me“, sló rækilega í gegn nú fyrir jól. Samnefnd plata fylgdi síðan í kjölfarið og ýmsar uppá- komur og viðurkenningar. „Það er fyrst núna sem kemur smá pása,“ segir söngkonan. „Það er ágætt; bæði svo ég ofkeyri mig ekki, og svo að fólk fái ekki ógeð á mér.“ Lagasmiðir og rokkstjörnur Nú tekur því við svolítið sum- arfrí hjá stúlkunni. Fyrir skömmu síðan lék hún þó á fernum tón- leikum í Los Angeles og jafn- mörgum í New York. „Það var voða gaman, og bara vel mætt,“ segir Lovísa. Meðal gesta á tvenn- um hljómleikanna var hinn vel þekkti ameríski lagahöfundur Luc- inda Williams. Hún hreifst greini- lega af tónlistinni, enda bauð hún öllum hópnum út að borða eftir síðari konsertinn. „Hún var rosa hress,“ segir Lovísa um kynni sín af söngkonunni. Lucinda var þó ekki eina stjarn- an sem bar fyrir augu íslenska hópsins: „Svo sáum við Lukas Rossi, Rock Star-nördið,“ segir Kári Sturluson, umboðsmaður Lay Low. „En okkur fannst nú minna til hans koma.“ Lay Low hefur spilað á ýmsum tónlistarhátíðum að undanförnu, m.a. Midem í Cannes, By:larm í Noregi og The Great Escape í Brighton. Þá spilaði hún nýlega í Lundúnum en stefnt er að því að fara í dálítið tónleikaferðalag um Bretland einhvern tímann í lok þessa árs. Eins og landinn veit fór hún í vor hringinn ásamt þeim Pétri Ben og Ólöfu Arnalds og lék víðsvegar um landið á svokölluðum Rásar 2-túr. Margt framundan Og ævintýrið er ekki úti enn. Í haust mun Lay Low meðal annars leika á tónlistarhátíðum í Berlín og New York. Það verða einkum kynningarhátíðir, eða svokallaðar „showcase“-hátíðir. „Á þessar há- tíðir mætir faglegi endinn í tónlist- arbransanum,“ segir Kári Sturlu- son, en þessar hátíðir geta reynst mikil lyftistöng fyrir tónlist- armenn. „Í haust mun ég svo vinna með Leikfélagi Akureyrar að nýju leik- riti,“ segir Lay Low. Leikritið kallast Ökutímar. „Það á eftir að skýrast hvernig þessari samvinnu verður nákvæmlega háttað,“ segir söngkonan, en hún mun vænt- anlega taka þátt í lagasmíðum, auk þess að leika undir í verkinu. Lay Low er því með fjölmörg járn í eldinum. Þegar hún er spurð út í nýja plötu segir hún þó slík mál óráðin. „Ég er með ýmsar hugmyndir, en þetta á bara eftir að koma í ljós.“ Hátíðir um allan heim Matthías Ingimarsson Vinsæl Lay Low leikur á Tangiers klúbbnum í Los Angeles í byrjun júní en hún hélt ferna tónleika þar í borg. Lay Low er loksins komin í pásu eftir linnulausa spilamennsku í útlöndum sýningunni þar sem hún minnist á hana í inngangi að greininni, og tvíæringnum almennt, sem hún segir einn þann besta í áratugi. Feneyjatvíæringurinn er stund- um kallaður heimsmeistaramót í myndlist, en þar sýna hvorki fleiri né færri en 800 myndlistarmenn. Verk Steingríms er byggt á við- tölum við um 20 einstaklinga um margvíslega menn og málefni, þ.á m. Benedikt Gröndal, trú á álfa og huldufólk, skák og ýmsa aðra þætti íslenskrar menningar. Það er kafað djúpt í menningararfleifð Ís- lendinga og margt kemur upp úr kafinu. SÝNING Steingríms Eyfjörðs á Feneyjatvíæringnum, Lóan er kom- in, hefur fangað athygli listapenna breska dagblaðsins The Observer, Lauru Cumming. Cumming segir í úttekt sinni á því merkasta sem fyrir augu ber á Feneyjatvíæringnum að í Stein- grími hafi Íslendingar fundið hinn sanna grínista. Grínistinn Eyfjörð hafi ráðfært sig við álf í því skyni að finna falinn „sauða-penna“, sem sé að sjálfsögðu tómur. „Spreng- hlægileg ævintýraferð í myndum og máli sem ýkir hefðir landsins,“ segir Cumming um sýningu Stein- gríms. Hún er augljóslega hrifin af Steingrímur er „sannur grínisti“ Morgunblaðið/ Jim Smart Fyndinn Steingrímur Eyfjörð, fulltrúi Íslands á Feneyjum í ár. Ýktar hefðir „Sprenghlægileg ævintýraferð í myndum og máli sem ýkir hefðir landsins,“ segir m.a. í grein breska blaðsins The Observer  Tónleikar franska dúetts- ins Air fara fram í Laug- ardalshöll í kvöld. Uppselt er í stúku og palla en enn eru til miðar í stæði. Að sögn Hr. Ör- lygs sem stend- ur að tónleik- unum verður engu til sparað til að gera tónleika Air í Laugardalshöll sem glæsileg- asta úr garði og þótt eiginlegir meðlimir Air séu tveir koma þeir með heila hljómsveit með sér hing- að til lands. Kate Havne- vik, sem und- anfarin misseri hefur vakið mikla athygli beggja vegna Atlantshafsins og unnið með ýmsum lista- mönnum síð- ustu ár, m.a. Röyksopp, sér um upphitun fyrir Air. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar, BT á landsbyggðinni og á Midi.is. Miðasala verður einn- ig í Laugardalshöll frá kl. 18. Dyr Hallarinnar opna kl. 19. Kate Havnevik fer á svið kl. 20 og Air þar á eftir. Miðaverð er 3.900 kr. Enn til miðar á tónleika Air í Höllinni í kvöld  Og enn af stórtónleikum. Miða- sala á tónleika Chris Cornell í Laugardalshöll laugardaginn 8. september, hefst á fimmtudaginn kl. 10 á Miði.is og í verslunum Skífunnar í Reykjavík og BT úti á landi og í Hafnarfirði. Selt er í númeraða stúku og stæði og er miðaverð í stúku 8.900 kr. en 5.900 kr. í stæði. Aðeins 1.000 númeraðir stúkumiðar eru í boði. Sérstök Mastercard-sala fer fram daginn áður. Miðasala á Chris Cor- nell hefst á fimmtudag Franska tvíeykið Air Kate Havnevik

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.