Morgunblaðið - 19.06.2007, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRANCOIS Hollande, leiðtogi franska Sósíal-
istaflokksins, sagði í útvarpsviðtali í gær að
skilnaður hans og Segolene Royal væri einka-
mál, sem hefði engar pólitískar afleiðingar í för
með sér. Royal, sem beið lægri hlut fyrir
Nicolas Sarkozy í forsetakosningunum í
Frakklandi í liðnum mánuði, upplýsir í nýrri
bók að sambandi þeirra Hollande sé lokið og
vænir sambýlismann sinn til 25 ára um
framhjáhald.
„Ég hef jafnan leitast við að greina stjórn-
mál, sem mótast verða af grundvallarreglum,
frá einkalífi, sem ber að verja,“ sagði Hollande
í viðtali við franska ríkisútvarpið. Hollande,
sem er 52 ára, staðfesti að Royal hefði ákveðið
að skýra frá sambúðarslitunum í nýrri bók,
sem út kemur á morgun, miðvikudag.
Ólga hefur ríkt innan franska Sósíal-
istaflokksins frá því að Segolene Royal tapaði
forsetakosningunum. Í kosningabaráttunni
bar nokkuð á spennu í samskiptum „gullpars-
ins“ svonefnda og iðulega kom fyrir að
Hollande lét ummæli falla, sem gengu beinlínis
gegn stefnu sambýliskonu hans. Reyndist
þetta ekki fallið til að draga úr slúðri og vanga-
veltum um samband þeirra.
„Ég hef beðið Francois Hollande um að yf-
irgefa heimili okkar til að honum megi auðnast
að sinna ástarmálum sínum, sem nú hafa verið
opinberuð í bókum og dagblöðum og óska þess
að hann fái höndlað hamingjuna,“ sagði Royal
á sunnudag í viðtali um bókina, sem nefnist
„Ósigur að tjaldabaki“ ( fr. „Les Coulisses
d’une Defaite“). Bókina skrifa þau Christine
Courcol og Thierry Masure, sem starfa fyrir
AFP-fréttastofuna. Í viðtalinu sagði Royal að
líkt og gilti um önnur pör hefðu skipst á skin
og skúrir í sambandi þeirra Hollande. „Ég
ákvað að leggja vanda þennan til hliðar á með-
an baráttan stóð yfir fyrir forseta- og þing-
kosningarnar. Ég taldi einnig að mér bæri að
verja börn mín,“ bætti hún við. Í bókinni upp-
lýsir hún ekki hver ástkona Hollande er en
kveður nauðsynlegt hafa reynst að leggja spil-
in á borðið. „Um nokkurt skeið hafa gengið
sögusagnir um mig og Francois Hollande. Ég
tel tímabært að skýra mál þetta og segi því
einfaldlega að við höfum ákveðið að slíta sam-
bandi okkar.“ Hún bætti við að „gagnkvæm
virðing“ ríkti enn með þeim.
Hollande hefur verið aðalritari franska
Sósíalistaflokksins frá árinu 1997. Hann hefur
lýst yfir því að hann hyggist ekki gefa kost á
sér á ný þegar kjörtímabili hans lýkur á næsta
ári. Í bókinni kemur fram að Royal, sem er 53
ára, hefur ákveðið að sækjast eftir embættinu.
Royal og Hollande kynntust árið 1978 þegar
þau stunduðu nám við Stjórnsýsluháskólann í
París („Ecole Nationale d’Administration“),
eina helstu menntastofnun frönsku valdastétt-
arinnar. Síðar komust þau í forustusveit nýrr-
ar kynslóðar vinstri manna í valdatíð Francois
Mitterrands forseta. Þau hafa búið saman í
rúmlega 25 ár en ekki gengið í hjónaband. Þau
eiga fjögur börn á aldrinum 14 til 22 ára.
Einkalíf á undanhaldi
Í Frakklandi hefur löngum verið litið svo á
að einkalíf stjórnmálafólks komi alþýðu manna
ekki við. Þetta viðhorf sýnist vera á undan-
haldi ef marka má sívaxandi umfjöllun um
einkamál forustumanna í þjóðfélaginu. Í bók
einni, „La Femme fatale“, sem út kom í liðnum
mánuði, var því haldið fram að samband þeirra
Hollande og Royal stæði á brauðfótum. Parið
brást við fullyrðingum þessum með því að
höfða skaðabótamál á hendur höfundunum,
tveimur blaðamönnum Le Monde. Í bók, sem
kom út í marsmánuði, bar Royal til baka sögu-
sagnir um að sambandi þeirra væri í raun lokið
og upplýsti að þau byggju enn saman. Hafði
hún raunar áður skýrt frá því að þau íhuguðu
að ganga í hjónaband og halda í „rómantíska
brúðkaupsferð“ til Tahítí.
Segolene Royal, forsetaframbjóðandi franskra sósíalista, vænir sambýlismann sinn um framhjáhald
„Gullna parið“ slítur sambúðinni
Reuters
Skilin Segolene Royal og Francois Hollande
koma til fundar í maímánuði í París.
BRESKA lögreglan greindi í gær
frá því að búið væri að uppræta
barnaklámshring sem taldi um 700
meðlimi í 35 löndum, þar af 200 í
Bretlandi, og hefur 31 barni verið
bjargað.
Ekki kom fram til hvaða landa
aðgerðirnar náðu, utan að breska
lögreglan hafði átt samstarf við yf-
irvöld í Bandaríkjunum, Kanada og
Ástralíu. Ekki er þó vitað til þess að
neinn Íslendingur tengist málinu.
Ekki hefur verið leitað til kynferð-
isbrotadeildar lögreglunnar vegna
þess, en aðgerðir bresku lögregl-
unnar eru þær viðamestu nokkru
sinni í Bretlandi þar sem stöðvuð er
framleiðsla á barnaklámi og dreif-
ingu þess á Netinu. Rannsóknin tók
um tíu mánuði og var notast við að-
ferðir til að komast inn að kjarna
hringsins sem fyrst og fremst er
beitt gegn grunuðum hryðjuverka-
mönnum og skipuleggjendum eit-
urlyfjasmygls.
Ungbörn meðal fórnarlamba
Ofbeldismennirnir notuðu spjall-
rás sem bar nafnið „Kids The Light
Of Our Lives“, eða „Börn, ljós lífs
okkar“, til að skiptast á myndum og
myndskeiðum af kynferðisofbeldi
og mun sumt hafa verið sent út
beint á Netinu. Yngstu brotaþol-
arnir voru aðeins nokkurra mánaða
gömul börn.
27 ára gamall Breti að nafni Tim-
othy Cox stjórnaði hringnum. Cox
var handtekinn á síðasta ári og
fundust þá rúmlega 75.000 myndir
á tölvu hans og sönnunargögn um
að hann hefði sent 11.000 myndir til
annarra notenda. Cox hefur játað
brot sín og bíður dóms.
Upprættu barnakláms-
hring sem náði til 35 landa
PAKISTANSKA
þingið hefur
samþykkt álykt-
un þar sem þess
er krafist að
bresk stjórnvöld
dragi til baka
ákvörðun sína að
aðla rithöfund-
inn Salman
Rushdie. Til-
kynnt var um helgina að Rushdie
hefði verið sleginn til riddara fyrir
störf sín í þágu bókmenntanna, en
upphefðin þýðir m.a. að hann getur
sett forskeytið „Sir“ fyrir framan
nafn sitt.
Rushdie er þekktastur fyrir verk
sitt Söngvar Satans, en bókin sú olli
miklu uppnámi í múslímaheiminum
og varð til þess 1989 að Khomeini
erkiklerkur í Íran bannfærði höf-
undinn fyrir guðlast. Fordæmingin
þýddi að Rushdie hefur þurft að lifa
í felum.
Um eitt hundrað harðlínumenn í
borginni Multan í austurhluta Pak-
istans brenndu myndir af Elísabetu
Englandsdrottningu og Rushdie á
sunnudag í kjölfar fréttanna af
upphefð Rushdies. Þeir hrópuðu
slagorð gegn drottningunni og fóru
fram á að Rushdie yrði drepinn fyr-
ir að móðga guð. Írönsk stjórnvöld
hafa líka fordæmt ákvörðun
breskra yfirvalda.
Óánægja
með upp-
hefðina
Salman Rushdie
SJÖ börn týndu lífi í loftárásum
Bandaríkjahers á meintar búðir al-
Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í
Paktika-héraði í austurhluta Afg-
anistans, nálægt landamærunum að
Pakistan. Nokkrir al-Qaeda-liðar
féllu einnig.
Sjö börn fórust
AÐ minnsta kosti ellefu fórust og 31
slasaðist þegar rúta ók út af hrað-
braut nærri borginni Halle í Þýska-
landi í gær. Um borð voru einkum
ellilífeyrisþegar, alls 48 farþegar,
en þeir voru á leið til Halle. Óljóst
var um tildrög slyssins.
Ellefu týndu lífi
FORSÆTISRÁÐHERRA Ungverja-
lands hefur beðið opinbera stjórn-
endur um að heimila starfsmönnum
að mæta til vinnu án þess að vera í
sokkabuxum eða með bindi vegna
ríkjandi hitabylgju.
Vill fækka fötum
„ÞETTA er ekkert merkilegt,“
sagði Japaninn Tomoji Tanabe eftir
að honum var færð staðfesting á því
frá heimsmetabók Guinness að
hann væri nú allra karla elstur eftir
andlát hins 115 ára gamla Emiliano
Mercardo del Toro á Púertó Ríkó
24. janúar sl. „Ég hef lifað alltof
lengi. Ég biðst forláts,“ sagði
Tanabe. Tanabe er 111 ára gamall,
fæddist 18. september 1895, og
þakkar langlífi sitt því, að hann hafi
aldrei snert áfengi.
Afsakar háan aldur
KÍNVERSK yfirvöld handtóku í gær fimm til viðbótar
vegna þrælareksturshneykslis sem vakið hefur hörð við-
brögð í landinu eftir að það komst upp. Mennirnir fimm
voru, að því er Xinhua-fréttastofan greindi frá, hand-
teknir fyrir að hafa með ólögmætum hætti haldið og vilj-
andi meitt þræla í múrsteinsverksmiðju í Shanxi-héraði
norðaustarlega í Kína. Þegar hafði verið tilkynnt um
handtöku 168 manna fyrir aðild að mansalshring sem
þvingað hefur menn til þrældóms í Shanxi- og Henan-
héraði. Fullyrt er að 568 manns hafi losnað úr þræla-
kistum, þ.m.t. börn og þroskaheftir. Mennirnir á mynd-
inni eru í hópi þeirra sem hnepptir höfðu verið í þræl-
dóm.
Í síðustu viku birti Alþjóðasamband verkalýðsfélaga
skýrslu um verksmiðjur sem framleiða minjagripi um
Ólympíuleikana sem verða haldnir í Kína á næsta ári.
Var þar leitt líkum að því að börn, allt niður í tólf ára
gömul, ynnu í verksmiðjunum við harðan kost.
Reuters
Þrælakistur afhjúpaðar í Kína
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
JAVIER Solana, utanríkismála-
stjóri Evrópusambandsins, sagði í
gær að ESB myndi hefja aftur
beinan fjárhagsstuðning við palest-
ínsku heimastjórnina en rúmt ár er
nú liðið síðan þeim stuðningi var
hætt, í kjölfar þess að Hamas-sam-
tökin komust til valda eftir þing-
kosningar.
Yfirlýsing Solanas kemur í kjöl-
far þess uppgjörs sem orðið hefur
með þeim átökum sem staðið hafa
milli Fatah-hreyfingar Mahmouds
Abbas, forseta Palestínumanna, og
hinna róttæku Hamas-liða, en
Hamas neitar m.a. að viðurkenna
tilverurétt Ísraelsríkis. Hamas náði
á föstudag öllum völdum á Gaza-
svæðinu eftir blóðuga baráttu við
Fatah-liða en Abbas brást við þeim
tíðindum um helgina með því að
setja af þjóðstjórn Hamas og
Fatah, sem Hamas-liðinn Ismail
Haniyeh hefur farið fyrir síðan í
mars.
Abbas útnefndi jafnframt nýja
bráðabirgðastjórn, með aðsetur á
Vesturbakkanum, en fyrir henni fer
Fatah-maðurinn Salam Fayyad.
Áttu ummæli Solanas í gær við þá
stjórn – sem og það fyrirheit
George W. Bush Bandaríkjaforseta
að styðja við bakið á palestínskum
yfirvöldum. Hitt flækir mál að þörf-
in fyrir aðstoð ESB er mun meiri á
Gaza-svæðinu, þar sem Hamas
ræður ríkjum.
Hamas-samtökin segja nýju
stjórnina „ólögmæta undirlægju“
Ísraels og Bandaríkjanna og hafa
heitið því að halda í valdataumana
með öllum ráðum.
Bein aðstoð ESB við
Palestínu hefst á ný