Morgunblaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 21
AUSTURLAND
Krabbameins-
félagsins
Sumarhappdrætti
Útdráttur
17. júní 2007
Bifrei› e›a grei›sla upp í íbú›, 1.000.000 kr.
Úttekt hjá fer›askrifstofu e›a verslun, 100.000 kr.
Vinningar
B
ir
t
án
á
b
yr
g
ð
ar
Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga 2. júlí nk.
127
137
1503
2182
2201
3905
4052
4494
6462
7007
7521
8439
8702
10000
10305
10482
10630
11755
12116
12572
12673
12845
13060
14011
14106
14460
15628
16462
16801
17205
17397
17597
17752
18017
21575
22385
22687
23253
23605
24060
24706
25333
26438
26606
27869
28908
29258
29880
29985
31848
33553
34034
34283
36048
36275
37466
37602
38449
38697
39941
40556
41904
43200
43620
43797
43850
44255
46524
46588
48150
48931
49003
50031
50093
50597
51419
52365
52950
54915
55576
56392
56914
57981
59964
61877
62609
62701
62861
64046
66735
67471
68676
69493
69669
70485
72338
73568
74166
74368
75263
77039
77168
78464
79823
79975
79979
80289
81587
82841
83339
83592
83779
83897
84238
85542
85631
85686
86159
86297
87398
88392
88885
89476
91218
95313
96201
97209
100710
101163
101584
101871
102600
103051
104240
104563
105029
106003
106611
108984
109179
109389
111723
111730
111737
111827
112023
115785
116381
116418
116494
118105
118466
120419
120453
120908
122887
123276
123914
124148
125207
125289
125290
125490
125679
125993
126271
126521
127529
127847
Handhafar vinningsmi›a framvísi fleim á skrifstofu
Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900.
Krabbameinsfélagi› flakkar
landsmönnum veittan stu›ning
www.krabb.is
Ford Escape Limited 3,0i V6, 3.850.000 kr.
127461
44986
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Eskifjörður | Lára Eiríksdóttir á Eskifirði
rekur Fjarðaþrif. Fyrirtækið hefur með til-
komu framkvæmdanna þar eystra vaxið úr
engu í að vera fyrirtæki sem sinnir þrifum og
þvottum og hefur 20 til 30 manns í vinnu.
Fjarðaþrif var stofnað í mars árið 2003 sem
smáfyrirtæki utan um aukavinnuna hjá Láru.
„Eftir árið var þetta farið að gefa meira af sér
en aðalvinnan, þá var þetta orðið svo mikið að
ekkert vit var í öðru en að stofna um þetta fyr-
irtæki,“ segir Lára.
Sprenging með framkvæmdunum
,,Ég stofnaði síðan einkahlutafélag um
reksturinn árið 2005, það er alfarið í minni
eigu en eiginmaðurinn, Björgvin Erlendsson,
heldur utan um pappírana hjá mér. Fyrstu tvö
árin var ég mest ein, fékk eina til tvær konur
með mér í stærri verkefni.
Það var síðan í september 2004 sem ég fór
að vinna fyrir Bechtel, sem er að reisa álverið.
Um það leyti varð alger sprenging í verk-
efnum á öllu svæðinu. Ég byrjaði að þrífa tvö
lítil hús hjá Bechtel. Þetta leit sakleysislega út
til að byrja með, síðan fóru að koma inn skrif-
stofur, hreinlætisaðstaða og fundarhús, ásamt
byggingum hjá öðrum verktökum á fram-
kvæmdasvæðinu. Síðan kom Alcoa inn í þetta
á þessu ári. Þetta vatt hratt upp á sig og í dag
er ég með að jafnaði tólf manneskjur á dag í
vinnu á álverssvæðinu, hjá Bechtel, Alcoa,
Atafli og Eimskipi.
Samhliða framkvæmdunum við álverið hefur
fyrirtækið verið að vinna fyrir fyrirtæki í
Fjarðabyggð, til dæmis skrifstofur Alcoa,
Byko, Krónuna, Eimskip, AVA og Tölvusmiðj-
una, einnig þrífum við fyrir bæinn, til dæmis
söfnin fyrir sumaropnun,“ segir Lára.
Árið 2004 keypti hún litla iðnaðarþvottavél
og þurrkara sem varð fyrsti vísirinn að þvotta-
húsi fyrirtækisins. Ári seinna var keypt notuð
vél, stærri, síðan keypti fyrirtækið nýja stóra
þvottavél á síðasta ári, sem tekur 25 kíló,
ásamt þurrkara og strauvél. Þetta er orðið
stærðar þvottahús, þvær af 50 til 70 manns á
dag.
Erfitt að fá starfsfólk
„Það hefur ekki verið auðvelt að fá starfs-
fólk síðustu mánuðina, það vantar alls staðar
fólk í vinnu á svæðinu. Mikið af starfsmönn-
unum hjá mér eru útlendingar, aðallega konur
sem hafa flust til landsins með mönnum sínum
sem eru að vinna hjá öðrum fyrirtækjum í
sveitarfélaginu. Þetta er allt fólk sem er að
ílendast hér á svæðinu, með börn í skólum.
Fyrirtækið hefur gengið vel en þetta er
hrikalega mikil vinna, skemmtileg samt, en
þetta væri ekki hægt nema með góðu starfs-
fólki, en í dag vinna að meðaltali 24 hjá fyr-
irtækinu,“ sagði Lára Eiríksdóttir.
Aukavinnan varð að
alvöru atvinnufyrirtæki
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Umsvif Lára Eiríksdóttir á Eskifirði rekur fyrirtækið Fjarðaþrif sem hún hefur byggt upp úr
engu á stuttum tíma. Mikil aukning varð með stórframkvæmdunum á Austurlandi.
Fjarðabyggð | Nýr dráttarbátur Fjarða-
byggðahafna var formlega tekinn í notkun
við athöfn sem fram fór við Reyðarfjarð-
arhöfn á þjóðhátíðardaginn.
Dráttarbáturinn er með þeim öflugri
hérlendis. Í áhöfn hans eru skipstjóri, vél-
stjóri og hafnsögumaður. Hann er búinn
öflugri brunadælu sem ætluð er til að
slökkva elda um borð í skipum eða við
hafnir. Báturinn var meðal annars keypt-
ur vegna komu fleiri og stærri flutn-
ingaskipa til Mjóeyrarhafnar, ekki síst í
tengslum við álver Alcoa Fjarðaáls.
Nýr öflugur drátt-
arbátur í notkun
Hallormsstaðarskógur | Nýtt útivistar-
svæði hefur verið opnað í Hallormsstað-
arskógi. Stekkjarvík er við Lagarfljót,
neðan þjóðvegar og Hafursárbæjarins.
Þangað hefur verið lagður vegur, útbú-
in nokkur svæði með borðum og grill-
aðstöðu inni í skóginum og lagðir göngu-
stígar niður að fljótinu. Þar getur fólk
dvalið dagsstund, notið strandarinnar og
borðið nestið í skjóli skógar, en ekki tjald-
að. Tjaldsvæði eru í Atlavík og Höfðavík.
Fyrir fjörutíu árum var Stekkjarvík
skóglaus. Nú er þar blandaður lerki- og
greniskógur með birkiívafi sem skapar
skjól og fallegt umhverfi til útivistar.
Útivistarsvæði
við Stekkjarvík
LANDIÐ
Eftir Sigurð Sigmundsson
Hrunamannahreppur | Það eru
sennilega fáir sem enn slá garðinn
sinn með orfi og ljá svo sem gert
var áður. Skúli Gunnlaugsson í
Miðfelli hefur alltaf slegið garðinn
sinn með orfi og ljá. Hann segir
betra að slá í kringum tré og runna
með ljánum þar sem ekki er hægt
að koma sláttuvélunum við.
„Ég hef gaman að slættinum, vil
vera í friði og ró og vera laus við
vélagný, heyra hvininn í ljánum,
auk þess sem þetta er ágæt
áreynsla fyrir líkamann.“
Skúli smíðaði orf þegar hann var
í barnaskólanum á Flúðum, þá tólf
ára. „Ég hef alltaf slegið eitthvað
með orfi og ljá á þeim 68 árum sem
eru liðin síðan,“ heldur hann áfram.
Eylandsljáirnir bitu betur
„Það var að sjálfsögu allt heyjað
með orfi, ljá og hrífu og heyið síðan
reitt heim á hestum eins og ann-
arstaðar. Dráttarvélar komu ekki
fyrr en eftir heimsstyrjöldina en
mikið heyjað upp á gamla mátann
alllöngu eftir það. Túnin voru lítil
og því þurfti að heyja á útjörð, oft í
kargaþýfi.“
Skúli segist muna vel eftir
bakkljánum sem þurfti að dengja
til að fá bit í þá sem þó var aldrei
gott.
„Síðan komu Eylandsljáirnir,
sem kallaðir voru, en Árni Eyland
stóð fyrir því að þeir voru fluttir inn
frá Noregi. Það var mikil bylting,
þeir bitu miklu betur og þurfti þá
ekki að dengja heldur voru þeir
brýndir á hverfissteini. Ég veit
ekki hvort hægt er að fá ljái keypta
nú eins og ég á, sennilega ekki,“
segir þessi fyrrum dugmikli bóndi.
Víða var keppt í ljáslætti á árum
áður t.d. á héraðsmótum og þótti
góð skemmtan. Héraðssambandið
Skarphéðinn stór fyrir keppni í ljá-
slætti á Selfossi fyrir um áratug.
Þar tók Skúli þátt og varð sigur-
vegari enda laginn og dugmikill
sláttumaður. Til gamans má geta
þess að tengdafaðir hans, Sigurður
Ágústsson, bóndi, tónskáld og
söngstjóri í Birtingaholti, var einu
sinni sem oftar að heyja og var með
blýantsstubb í vasanum. Þá skrifaði
hann nótur á orfhælinn því enginn
var pappírinn og þetta var upphafið
af einhverju af hans bestu lögum.
Gaman að heyra
hvininn í ljánum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Enginn vélagnýr Skúli Gunnlaugsson á Miðfelli hefur slegið með orfi og ljá
frá því hann var tólf ára, eða 68 ár. Enn slær hann garðinn sinn.
Skúli slær alltaf
garðinn með ljá
Hrunamannahreppur | Veiði hefst á
öllum svæðum í Stóru-Laxá á morg-
un. Bernhard Petersen, formaður
árnefndar SVFR, sem er með ána á
leigu, segir veiðimenn spennta að
vita hvað gerist við opnunina.
Í fyrra var byrjunin róleg en nú
hafa margar netalagnir í Hvítá og
Ölfusá verið keyptar upp. Bern-
hard segir að nú verði lögð áhersla
á að menn sleppi öllum stærri löx-
um og öllum laxi frá 16. september
til lokunar í haust. Þá verður veiði-
eftirlit eflt verulega, m.a. með
starfandi veiðieftirlitsmanni.
Meiru sleppt
í Stóru-Laxá