Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 22
|þriðjudagur|19. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf Íkjallara við Bergþórugötunagægjast alls kyns fygli niðurúr hillum og hornum. Und-arleg lykt liggur í loftinu, eins og nýbúið sé að verka mör í slátur. Ung kona stendur við frysti- kistu og er í þann mund að setja fjaðraham í torkennilegan vökva í gegnsæju íláti sem stendur á kist- unni. „Þetta er alkóhól, sjúkrahúss- pritt,“ segir konan brosandi og lok- ar boxinu. „Það þarf að vera svolít- ið sterkt til að drepa allar bakteríur. Svo er þessu velt upp úr hefilspæni og þurrkað með blásara þar til það er alveg þurrt.“ Sú sem talar heitir Brynja Dav- íðsdóttir og er hamskeri en hún hefur þann sérstaka starfa að stoppa upp fugla. Hún er enginn nýgræðingur í faginu því fjórtán ár eru síðan hún hélt utan til að læra iðnina, þá 18 ára gömul. „Ég bjó á landsbyggðinni þegar ég var yngri, á Laugarvatni, og þar voru fuglar út um allt. Pabbi er mikill fuglakall og kenndi mér að þekkja fuglana og hljóðin. Svo eru vinir mínir lunda- veiðimenn þannig að ég hef verið í snertingu við þetta alla tíð.“ Slæddist í flokk atvinnumanna Brynja var þrjú ár í Bretlandi við nám í faginu og síðar fimm ár á Ítalíu þar sem hún var búsett og stoppaði upp fugla. Tvö og hálft ár eru síðan hún flutti heim en hún hefur lifað af fuglunum eingöngu síðasta árið. „Undanfarið hef ég verið að vinna fyrir Náttúru- fræðistofu Kópavogs og þar eru fuglar til sýnis sem ég hef stoppað upp. Annars hef ég einfaldlega unnið fyrir þá sem óska eftir því. Eins hef ég verið með fuglakynn- ingar í skólum og leikskólum og það finnst mér virkilega gaman því börnin hafa svo mikinn áhuga. Núna er ég að setja upp æðarfugla fyrir æðarbónda og um daginn setti ég upp páfagauk þar sem eigandinn óskaði eftir því að fuglinn liti upp eins og hann væri að kíkja á sig. Það er mjög gaman að fá svona krefjandi verkefni þar sem fólk man mjög vel eftir dýrinu og er með ákveðnar hugmyndir um hvernig það á að líta út.“ Metnaðinn vantar ekki því Brynja varð í fyrra í þriðja sæti á Evrópumeist- aramóti ham- skera. „Fram að því hafði ég keppt sem áhugamaður en þarna slæddist ég óvart inn í flokk atvinnumanna. Fuglinn sem ég sendi út var snjótittlingur en hann hafði fengið verðlaun í Bret- landi nokkru áður.“ Hún við- urkennir treglega að slíkar við- urkenningar séu vissulega hvatning til að halda áfram. „Aðallega þó af því að þegar fuglarnir eru dæmdir fær maður að vita hvað er að þeim, hvort þeir séu t.d. of lappastuttir, með vitlausa kúrfu á bakinu eða með ranga sveigju á hálsinum. Slíkar ábend- ingar hjálpa manni virkilega að bæta sig.“ Ekki fyrir pjattaða Síðan hefur Brynja sótt nám- skeið hjá Peter Sunesen, dönskum hamskera sem er „heimsmeistari í fuglum“ eins og hún orðar það. Hún setur því markið hátt á heimsmeistaramótinu sem fram fer á næsta ári. Heilmikil handavinna liggur í því að stoppa upp eins og Brynja lýsir. „Eftir að ég hef fengið fuglinn í hendurnar tek ég öll mál af honum áður en ég hamfletti hann. Svo þarf að skrapa alla fitu innan úr hamn- um og þvo með alls konar sápum áður en hann er lagður í spritt í a.m.k. hálftíma. Það er svona leið- inlega hliðin á vinnunni en hitt bætir það algerlega upp. Þegar hamurinn er orðinn hreinn og fínn byrjar það skemmti- lega sem er upp- setningin á fugl- inum.“ Smíða þarf nýj- an skrokk en til þess notar Brynja balsa- við sem er bæði léttur og þægileg- ur að vinna í. Ut- an á hann koma væng- og fót- leggsbeinin sem eru notuð áfram undir hamnum. Sennilega þýðir lítið að vera mjög pjattaður í þessu starfi, eða hvað? Brynja hlær. „Nei, en veistu, ég er svolítil strákastelpa þannig að ég hef ekkert verið pjöttuð. Fannst aldrei neitt mál að aðstoða mömmu þeg- ar hún var að taka slátur og svona.“ Fuglana fær Brynja héðan og það- an. „Marga fæ ég frá fólki sem finnur þá á vegum á sumrin. Ein- hverjir eru veiddir, t.d. lundarnir, endur og gæsir. Svo tók ég með mér fugla síðast þegar ég kom frá Danmörku, tegundir sem eiga til að flækjast hingað.“ Það er þó ekkert auðhlaupamál að fara í gegnum tolla með dauðan fugl í farangr- inum. „Maður leikur sér a.m.k. ekkert að því enda þarf að hafa með sér alls konar plögg og heilbrigð- isvottorð að utan. Það er heilmikið vesen.“ Aðspurð segir Brynja um 15 manns tilheyra starfsstétt ham- skera hér á landi en sennilega sé hún eina konan í þeirra hópi. Um þessar mundir stendur hún reynd- ar á ákveðnum krossgötum því eft- irspurnin eftir uppstoppuðum fugl- um þyrfti að vera meiri svo gott væri að lifa af starfinu. „Það er mjög ergilegt því mér finnst marg- ar aðrar vinnur vera svo mikil tíma- eyðsla,“ segir hún með áherslu. „Þetta er það sem ég vil gera. En það getur vel verið að ég fari í há- skóla og verði fuglafræðingur til að hafa fleiri tromp uppi í erminni. Hins vegar hætti ég þessu ekki – alla vega ekki meðan fuglarnir fara batnandi hjá mér.“ Fuglakona sem stefnir hátt Morgunblaðið/Ásdís Fuglar Stundum veiðir fólk fugla fyrir Brynju.. Ósjálfráð kynhegðun í svefni getur verið alvarlegt vandamál fyrir þá sem hana upplifa. Bandarískir sálfræðingar hafa nú í fyrsta sinn kortlagt vandamálið með kerfisbundnum hætti. Ákveðnar svefntruflanir geta leitt til kynhegðunar sem viðkomandi finnst vandræðaleg eða óþægileg eftir að hann vaknar. Þeir sem um ræðir eiga oft erfitt með að leita til læknis því þeim finnst að hegðunin hljóti að vera meðvituð þar sem þeir muna eftir henni þegar þeir eru vaknaðir. Árið 2003 var þessu fyrirbæri lýst í fyrsta skipti en forskning.no segir frá því að nú sé búið að kortleggja það með kerfisbundum hætti. Dr. Carlos Schenck og starfsbræður hans við Minnesota Regional Sleep Disorders Center í Minneapolis söfnuðu saman gögnum um slíka svefnhegðun úr viðurkenndum fagtímaritum, kennslubókum og öðrum fræðiritum. Ýmsir hópar virtust frekar eiga á hættu en aðrir að upplifa þetta vandamál, t.a.m. þeir sem ganga í svefni, þeir sem geta hreyft sig meðan á svokölluðum REM-svefni stendur, þeir sem glíma við svefntruflanir eða þjást af fótaóeirð. „Æ fleiri greina frá óvenjulegri kynlífshegðun í svefni,“ segir dr. Schenk. „Jafnvel þótt einhverjum kunni að þykja slíkt fyndið getur það verið ákaflega erfitt, neyðarlegt, óþægilegt og alvarlegt vandamál fyrir viðkomandi einstakling eða par.“ Schenk ráðleggur þeim sem glíma við slíka ósjálfráða hegðun að hafa samband við heim- ilislækni sinn svo hann geti vísað þeim áfram til rannsókna hjá svefnsérfræðingum. Kynlíf í svefni Kynlíf Svefntruflanir geta leitt til hegðunar sem viðkomandi líður illa með þegar hann vaknar. Brynja Davíðsdóttir er sennilega eina konan á Íslandi sem hefur atvinnu af því að hamfletta fugla og stoppa þá upp. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir rabbaði við hana innan um sperrta spörfugla, lunda og páfagauk. ben@mbl.is Hamskeri Brynja Davíðsdóttir hefur þann sstarfa að stoppa upp fugla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.