Morgunblaðið - 19.06.2007, Page 39
Tilboð/Útboð
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Reykjavíkurborg
Þjónustu- og rekstrarsvið.
Innkaupa- og rekstrarskrifstofa,
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.
Símar 411 1042/411 1043, bréfsími 411 1048.
Netfang: utbod@reykjavik.is.
ÚTBOÐ
F.h. Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar, Orkuveitu
Reykjavíkur, Mílu ehf.
Almannadalur,
2. áfangi, gatnagerð og lagnir.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 í upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur, frá og með þriðjudeginum 19. júní 2007.
Opnun tilboða: 3. júlí 2007, kl. 14:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12002
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur og
spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Símon Bacon
og Guðríður Hannesdóttir
kristalsheilari auk fleiri íslenskra
og breskra miðla bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, einkatíma o.fl.
eru alla virka daga ársins frá kl.
13-18. Auk þess stundum á
kvöldin og um helgar.
SRFR
Raðauglýsingar
sími 569 1100
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 39
FRÉTTIR
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra ávarpaði í
síðustu viku þing Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar
(ILO) sem haldið var í Genf. Í
ávarpi sínu fjallaði félags-
málaráðherra meðal annars
um stefnu nýrrar ríkis-
stjórnar í jafnréttismálum,
einkum varðandi aðgerðir til
að eyða launamun kvenna og
karla.
Þing ILO, sem er elsta sér-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
stofnað árið 1919, var sett í
Þjóðabandalagshöllinni í
Genf 30. maí síðastliðinn en
því lauk á föstudag. Aðild-
arríkjum ILO er skylt að
senda til þingsins sendi-
nefndir sem eru skipaðar
fulltrúum ríkisstjórna, sam-
taka atvinnurekenda og sam-
taka launafólks. Þingið sækja
4.657 fulltrúar að þessu sinni
en það er hið 96. í röðinni.
Í ávarpi sínu gerði ráð-
herra meðal annars grein fyr-
ir áætlun ríkisstjórnarinnar í
því skyni að eyða launamun
kvenna og karla í þjónustu
hins opinbera.
Ávarpaði Alþjóðavinnumálaþingið
HEIMSÞEKKTIR fyrirles-
arar og umfjöllun um áhættu
frá mörgum sjónarhornum
einkenna alþjóðlegu ráðstefn-
una „Projects Under Risk“
sem Verkefnastjórnunarfélag
Íslands stendur fyrir í sam-
vinnu við NORDNET dagana
26.-28. september nk.
Í samvinnu við Háskólann í
Reykjavík hafa valist á ráð-
stefnuna fyrirlesarar á borð
við fjármálasérfræðinginn
Mark Williams frá Boston
University og framkvæmda-
sérfræðinginn Marc Sachon
frá IESE. Íslensku aðalfyr-
irlesararnir eru Guðfinna S.
Bjarnadóttir alþingismaður
og Baltasar Kormákur, at-
hafnamaður, leikstjóri og
leikari.
Auk þeirra flytja tugir er-
lendra og íslenskra áhættu-
sérfræðinga fyrirlestra um
áhættu í fjármálum, fram-
kvæmdum, rekstri, rann-
sóknum og verkfræði.
Ráðstefnan er haldin 26.-
28. september á Hótel Hilton
Nordica.
Ráðstefna
um verkefni
í voða
SKÓLASLIT Tjarnarskóla
fóru fram í Dómkirkjunni 7.
júní síðastliðinn. Eiríkur Erl-
ingsson 7. bekkingur spilaði á
trompet, Sæunn Marin Harð-
ardóttir flutti skemmtilega
ræðu fyrir hönd 10. bekkinga
og Þórir Guðmundsson flutti
kveðjuorð fyrir hönd foreldra.
Við skólaslitin fékk Kara
Magnúsdóttir sérstaka við-
urkenningu, en hún mun vera
eini 8. bekkingurinn á landinu
sem tók samræmt próf í ís-
lensku. Nú hafa nokkrir fram-
haldsskólar boðið duglegum 9.
bekkingum að sækja um
skólavist með tilteknum skil-
yrðum. Námsleiðunum er því
að fjölga og skólakerfið að
bregðast betur við því að nem-
endur fari á mismunandi
hraða í gegnum skólann, segir
í frétt frá skólanum.
Nemendur í Tjarnarskóla
hafa verið duglegir að lesa
ensku í vetur. Við uppgjör
vorsins kom í ljós að tveir
nemendur höfðu lesið mest;
Magnús Guðrúnarson í 8. bekk
las flestar blaðsíður og 37
bækur alls og Friðþjófur Ottó
Ragnars í 10. bekk las flestar
bækur, eða 45 talsins. Nem-
endur skólans lásu að meðal-
tali 8-9 enskar bækur á mann,
að meðaltali 900 blaðsíður á
mann. Enskukennaranum,
Gerði V. Colot, hefur verið
umhugað að nemendur bæti
við orðaforðann með lestri og
mætir í skólann klyfjuð bók-
um fyrir nemendur, segir í
frétt frá Tjarnarskóla.
Tjarnarskóla slitið
í Dómkirkjunni
Íslenska Kara Magnúsdóttir með Mörtu Guðjónsdóttur kenn-
ara. Kara var í 8. bekk, en tók samræmt próf í íslensku.
A. KARLSSON hefur flutt í nýtt
húsnæði í Víkurhvarfi 8 í Kópavogi
eftir 20 ára dvöl í Brautarholti.
Nýja húsnæðið er um 2.100 fer-
metrar sem fer að stærstum hluta
undir sýningarsvæði þar sem hægt
er að sjá vörur sem A. Karlsson hef-
ur upp á að bjóða.
Meðal þess sem er til sýnis má
nefna fullbúið hótelherbergi, mötu-
neyti með öllum tækjum og hús-
gögnum og bar. Einnig er hægt að
skoða og prófa heilbrigðisvörur,
lækningatæki, hjólastóla og önnur
hjálpartæki og sjúkraþjálf-
unarvörur sem í boði eru hjá fyr-
irtækinu. Öll húsgögn á svæðinu
eru til sölu, þ.m.t. skrifstofu-
húsgögn starfsfólksins.
A. Karlsson í
nýtt húsnæði
KRAFTUR – Stuðningsfélag heldur
árlega grillhátíð sína fimmtudag-
inn 21. júní næstkomandi. Hátíðin
verður haldin í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum og verður frítt inn í
garðinn frá klukkan 16 til 20 fyrir
alla sem vilja, en selt í leiktæki.
Dagskráin verður vegleg og
hentar allri fjölskyldunni. Kraftur
gefur gestum grillaðar pylsur og
gos auk þess sem veitingasala verð-
ur í garðinum eins og vanalega.
Dagskrá: Hara systur frá Hvera-
gerði kynna. Kl. 17 Skoppa og
Skrítla, kl. 17.30 Dýrin í Hálsa-
skógi, kl. 18.30 Svitabandið, kl.
19.10 skátar. Allir eru velkomnir.
Sumargrill
stuðningsfé-
lagsins Krafts
Muirfield Village
Collection
The
Fasteignafyrirtækið Castle & Cooke bjóða til sölu einbýlishús
í Windermere
„Best
Gated Community 2006-2007”. Þar er einn glæsilegasti 18 holu
golfvöllur á Florida „Golden Bear Golf Club” hannaður af Jack
garða og verslanir í Orlando s.s, Disney, Sea World, Universal
Studios, Wet And Wild, Mall at Millennia og Florida Mall.
!
"
! # $"
%&'
# #%
#
(
## )
* "
# $ +
,# - .( &
"
$,#& /-$ 0
12 3 45 666 Fulltrúar Castle & Cooke ,# Grand
Hótel Reykjavík 19. og 20. júní frá kl. 13:00 til 21:00.
# , +7 + $% %$% #
glæslega fasteign í Orlando.
8( 9 19::;;;
1 :1
Nánari upplýsingar og pöntun á sérkynningu fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga í síma 857 0161 og 893 9500.
<" =
> = 7 5? &"
Glæsilegar fasteignir
á besta stað í Orlando Florida.
Fasteignafyrirtækið Castle & Cooke kynnir á Grand Hótel 19 .-20. júní:
Staðsetning skiptir öllu máli !!! Þér bjóðast húseignir á góðum kjörum á besta stað !
Fréttir
í tölvupósti