Morgunblaðið - 19.06.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 45
SÝNING Finnboga Péturssonar,
Teslatune, sem nú stendur yfir í sýn-
ingarsal Orkuveitu Reykjavíkur, er
tileinkuð serbneska uppfinninga-
manninum Nikola Tesla, sem vann til
vísindalegra afreka á sviði rafmagns-
fræðinnar. Tesla er faðir riðstraums-
ins sem Finnbogi notar í innsetningu
sinni til að framkalla hljóð sem hann
hleypir í sjö mislöng rör sem annars
eru notuð utan um jarðstrengi. Tíðni
riðstraumsins er 50 rið og er það mis-
jöfn lengd röranna sem ræður tón-
hæðinni.
Teslatune minnir óneitanlega á
eldri sýningu Finnboga, „Móttaka“
sem haldin var á Kjarvalsstöðum ár-
ið 1994 og samanstóð af sjö álíka rör-
um sem lágu lárétt ofar hvert öðru
eftir veggnum í miðrými hússins.
Sams konar lögmál réðu þá útkom-
unni, en meginmunurinn er staðsetn-
ing röranna. Í orkuveitunni hanga
rörin í örþunnum þráðum svo þau
sýnast svífa af sjálfsdáðum innst í
rýminu. Fjarlægðin á milli röranna
er lengri en hún var á Kjarvals-
stöðum þannig að hljóðið dreifist og
ferðast lárétt eftir rýminu miðju í
stað þess að ferðast meðfram veggn-
um.
Þetta er alvöru tæknirómantík
með tilheyrandi glæsileika og skyn-
rænu áreiti. Um leið og maður kem-
ur inn í sýningarrými orkuveitunnar
skella á manni hljóðbylgjurnar, svo
áþreifanlegar að það er engu líkara
en ósýnilegur brotaskúlptúr eða línu-
teikning sé að bora sér leið inn í lík-
ama manns. Á sama tíma er maður
hugfanginn af jöfnum takti högg-
anna, hreyfingu og seiðandi en
snaggaralegum samhljómi auk vand-
aðrar sjónrænnar útfærslu í rýminu.
Hefur innsetningin hughreinsandi
áhrif um leið og hún beinir athygli
manns að líkamanum og jarðtengir
mann. Talar því hvoru tveggja til
andlegrar og efnislegrar tilvistar
manns. Hvet ég þá sem hafa tök á að
leggja leið sína á Bæjarháls og ná
þar þráðlausu skynrænu sambandi
við Teslatune.
Morgunblaðið/ÞÖK
Teslatune Finnbogi styðst við uppfinningu Nikola Tesla til að skapa magn-
aða innsetningu í sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur.
Alvöru tæknirómantík
Myndlist
100° – Sýningarsalur Orkuveitu
Reykjavíkur
Opið mán. – fös. frá kl. 8.30-16.00. Sýn-
ingu lýkur 29. júní. Aðgangur ókeypis.
Finnbogi Pétursson
Jón B. K. Ransu
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
FULLTRÚAR Samfylkingarinnar
í menningar- og ferðamálaráði
Reykjavíkur, Oddný Sturludóttir
og varamaðurinn Felix Bergsson,
sátu hjá þegar Ragnar Bjarnason
söngvari var útnefndur borg-
arlistamaður á fundi ráðsins í síð-
ustu viku.
Oddný segir venjuna þá í ráðinu
að á fundinum fyrir útnefning-
arfundinn sjálfan, gefi formaður
fólki tækifæri til að fjalla um hver
eigi að vera borgarlistamaður og
hugsa málið. Meirihlutinn ráði
auðvitað alltaf valinu á endanum.
Tillögur að því hverjir kæmu til
greina sem borgarlistamenn hafi
ekki verið teknar fyrir eða sýndar
minnihlutanum í ráðinu.
Ekki á móti valinu
„Okkur var tilkynnt að þetta
væri borgarlistamaður Reykjavík-
ur og okkur hefði þótt eðlilegt að
fulltrúar minnihlutans, sem og
þeir tveir áheyrnarfulltrúar lista-
manna sem sitja fundi ráðsins,
hefðu komið að þessari ákvörðun,
verið með í ferlinu. Raggi Bjarna
er frábær söngvari og vel að þess-
um heiðri kominn en við ákváðum
að taka ekki afstöðu vegna þess-
ara vinnubragða. Við vorum ekki á
móti, við sátum bara hjá,“ segir
Oddný. Hún ítrekar að Samfylk-
ingin hafi ekkert út á Ragga
Bjarna að setja og þyki hann frá-
bær söngvari. Þetta sé hennar
fyrsta ár í þessu ráði og því hafi
þessi vinnubrögð komið flatt upp á
hana.
Þriðji fulltrúi minnihlutans,
Árni Þór Sigurðsson úr Vinstri
hreyfingunni – grænu framboði,
hafði ekkert við útnefninguna að
athuga og samþykkti hana. „Þetta
var tillaga frá formanni. Mér
skilst að þegar borgarlistamaður
er valinn þá sé það yfirleitt þannig
að formaður komi með tillögu,
þannig hafi það verið gegnum ár-
in. Mér finnst engin ástæða til að
gera athugasemd við það núna,“
segir Árni.
Aðspurður segist hann ekki vita
hvað valdið hafi því að samfylking-
armenn sátu hjá, hvort það hafi
verið aðferðafræðinni að kenna
eða valinu sjálfu. „Það bara kemur
tillaga frá formanni og hún var
þessi. Ég spurði bara hvaða aðferð
hefði verið við-
höfð, hvort ein-
hver fagnefnd
hefði tekið fyrir
tillögur eða nöfn
og svörin voru
þau að svona
hefði þetta alltaf
verið. Nefnd-
armenn gátu
sent inn hug-
myndir, við
fengum tölvupóst þess efnis.“
Meirihlutinn ræður
Kjartan Magnússon, formaður
ráðsins, segir alla borgarfulltrúa
mega koma með tillögur að því
hver skuli útnefndur borg-
arlistamaður. Þeir þurfi að koma
þeim til ráðsmanna. Það hafi alltaf
verið þannig að formaðurinn komi
með tillögu og ráðið taki loka-
ákvörðunina. Sé ágreiningur um
útnefningu fari fram atkvæða-
greiðsla og meirihlutinn ráði því
hvernig fer.
Samfylking sat hjá við út-
nefningu borgarlistamanns
Oddný Sturludóttir gagnrýnir vinnubrögð meirihlutans
Öllum frjálst að koma með tillögu, segir nefndarformaður
Kjartan
Magnússon
Oddný
Sturludóttir
Árni Þór
Sigurðsson
Morgunblaðið/Golli
Í Höfða Ragnar Bjarnason tók lagið við afhendinguna í Höfða á 17. júní.
ÞEIR feðgar Guðmundur
Steingrímsson og Stein-
grímur Guðmundsson eru í
fararbroddi í íslenskum
trommuleik; þó hvor með
sínum hætti. Guðmundur
einn fremsti djasstrommari
okkar, en Steingrímur sá eini
sem hefur náð valdi á tabla-
trommunum indversku. Fátt þykir
mér tilbreytingarminna en trommu-
plötur og því kom skemmtilega á
óvart hversu þeim feðgum tókst að
halda athygli minni með fjölbreyttum
pólífónískum hryntöfrum og orðlist.
Upphafslagið ber sama nafn og
skífan og er byggt á hinum fræga
Haggard/Bauduce dúett: The Big
Noise from Winnetka. Þar leikur
Kristján Guðmundsson með á píanó
og hinn kornungi og efnilegi Arn-
ljótur Sigurðsson á bassa. Guðmundi
bregst þar ekki bogalistin á settið
frekar en fyrri daginn. Síðan taka við
verk þar sem sett Guðmundar og
tabla Steingríms eru í aðalhlutverki
og oft kyrja þeir feðgar innganginn. Í
Bright And Cold Day hljómar fugla-
söngur Steingrímssonar eins og á
Nafnakalli Guðmundar Ingólfssonar.
Ekki má gleyma að Guðmundur sýnir
burstafimi sína allvíða og slær bon-
gótrommur og Steingrímur dar-
bouka. Beat in A Dream er stór-
skemmtilegt verk, með
þjóðvísnatilvitnunum, sampli og
dramatísku sampli. Skífa fyrir fleiri
en trommugeggjara.
Trommusveifla með
indverskum blæ
Tónlist
Geisladiskur
Guðmundur & Steingrímur: In
the Swing of the Night.
Morgunblaðið/Eyþór
Eplið og eikin Feðgarnir Steingrímur Guð-
mundsson og Guðmundur Steingrímsson.
Vernharður Linnet
JÓN ÁSGEIR &
afmælisveislan er
í grunninn háðs-
ádeila á íslenskt
samfélag og þjóð-
þekkta ein-
staklinga. Teikni-
myndasagan er
grófgerð og
„óvönduð“ en
stundum fyndin. Teikningarnar eru
þannig að búkar persóna og um-
hverfi er handteiknað en hausarnir
eru svo útklipptar ljósmyndir af
andlitum viðkomandi.
Stíll og andi teiknimyndasög-
unnar er í anda South Park-
sjónvarpsþáttanna og húmorinn er
stundum andstyggilegur. Aðalskots-
pónn sögunnar er Sjálfstæðisflokk-
urinn enda Baugsfeðgar í aðal-
hlutverkum. Ungir sjálfstæðismenn
eru kjölturakkar og Björn Bjarna-
son er sendur til Íraks, þar sem
hann dvelur svo í góðum félagsskap
við Bush, Cheney, Rice og Rums-
feld. Davíð Oddsson er tekinn til sér-
stakrar meðferðar og er m.a. látinn
biðjast afsökunar á fautaskap sínum
í gegnum tíðina. Það er reyndar klón
hans sem gerir það.
Jón Ásgeir & afmælisveislan er
græskulaust gaman sem býður
stundum upp á hæfilega kvikind-
islegt grín og skot á stjórnmála- og
valdafólk. Teiknimyndasagan er
skemmtilegt form sem hentar aug-
ljóslega í skopstælingu og háðs-
deilur. En Jón Ásgeir er svona ein-
nota bók, gerð í einum hvelli, og
stenst til dæmis ekki samanburð við
þær teiknimyndasögur sem Hug-
leikur Dagsson hefur gefið út á und-
anförnum misserum.
Efst á baugi
BÆKUR
Teiknimyndasaga
Eftir Óttar M. Norðfjörð. Sögur útgáfa
2007, 59 síður.
Jón Ásgeir & afmælisveislan
Geir Svansson
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
20/6 kl 20, 29/6 kl 20, 1/7 kl 15,
1/7 kl 20, 5/7 kl 20, 13/7 kl. 20,
14/7 kl 15, 14/7 kl. 20, 11/8 kl. 20,
12/8 kl. 20, 18/8 kl. 20, 19/8 kl. 20,
30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR
Á Byggðasafninu eru sex sýningar opnar í sumar:
Saga Egyptalands, Þannig var... Saga Hafnarfjarðar,
Leikfangasýning, Sívertsens-húsið, Siggubær og Álfasýning.
Opið alla daga kl. 11:0017:00 og til 21:00 á fimmtudögum.
HAFNARBORG, MENNINGAR- OG LISTASTOFNUN HAFNARFJARÐAR
Til 24. júní 2007
Salur I, Temma Bell Ný málverk
Salir II og III, Louisa Matthíasdóttir og Leland Bell,
Sameiginlegt líf, uppstillingar
Bogaskáli, Ruth Boerefijn, Innra landslag Innsetning
Opið: kl. 11:0017:00 alla daga nema þriðjudaga, á fimmtu-
dögum er opið til kl. 21:00.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS. Fim 21/6 kl. 20 UPPS. Fös 22/6 kl. 20 UPPS.
Lau 23/6 kl. 20 UPPS. Sun 24/6 kl. 20 UPPS. Fim 28/6 kl. 20 Síðustu sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is