Morgunblaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM
ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU
MYND SUMARSINS?
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára
BLADES OF GLORY kl. 6 B.i.12.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 9 - 10:40 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 8 - 10:40
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBLeeeeKVIKMYNDIR.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
CODE NAME: THE CLEANER kl. 5:20 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
„ÍSLENDINGAR er bókaflokkur fyr-
ir þá sem hafa gaman af sögum úr
samtímanum. Hér mætast fjölmiðla-
heimur, viðskiptaheimur og undir-
heimar Íslands í skemmtilegum bók-
um þar sem ekkert er dregið undan.
Persónur eru óþægilega líkar ein-
staklingum úr íslensku þjóðfélagi og
meira sannleikskorn er í hverri sögu
en hollt þykir. Með þessum bókaflokki
opnast gáttin að Íslendingum, hinni
nýríku þjóð í norðri.“
Af þessari lýsingu að dæma, sem
prýðir bak fyrstu tveggja bindanna í
bókaflokknum, er í boðuðum bóka-
flokki um að ræða gagnrýni („þar sem
ekkert er dregið undan“) á íslenskt
samfélag, tímabæra háðsádeilu á ný-
ríku þjóðina, smáborgarana. Undir
sögurnar skrifar T. Thorvaldsen.
Brotið á bókunum (rífleg lófastærð
upp á rúmlega hundrað síður og til-
heyrandi „subbu-hallærislegri“ bók-
arkápu) minnir á ódýr smárit, svona
pölpfiksjón, fyrri áratuga sem einkum
fluttu blautlegar sögur og allrahanda
klám. Um var að ræða svona ódýr ön-
dergránd dónarit
sem eru í sjálfu sér
áhugaverð bók-
menntategund.
Lýsingin á
bókaflokknum
hljómar hreint
ekki illa. En sagan
og textinn í bók-
unum er einfald-
lega klénn og leiðigjarn og ekki líkleg-
ur til að stuða nokkurn lifandi mann.
Það er einfaldlega alltof mikið dregið
undan. Í framhaldi af þessu mætti
spyrja hverjum, eða hvaða markhópi
bókaflokkurinn sé ætlaður?
Helsti galli Íslendinga er því sá að
háðsádeilan virkar ekki. Það vantar
slagkraft í skrifin. Það er auðvitað
voða strákslegt að nafngreina þekkta
alþingismenn á balli, í Súlnasalnum, og
senda svo uppdiktuð eintök af þeim
inn á klósett að ríða. En það bara dug-
ir ekki. Það eru engin óþægindi í text-
anum og sem lykilsaga er Íslendingar
fullkomlega óáhugaverð saga. Það
skortir líka fjarlægð frá sorpritunum, í
hvora áttina sem er, annaðhvort með
ýktara klámi/grófleika eða meiri skáld-
skap. Það besta sem hægt væri að
segja um Íslendinga er að frágangur
er góður.
Óttalegt klám
BÆKUR
Bókaflokkur
(bindi 1 og 2) eftir T. Thorvaldsen.
Sögur útgáfa 2007.
Íslendingar
Geir Svansson
EINAR Hákonarson, hinn rótgróni
og athafnasami listmálari, sýnir nú
málverk sín í Listhúsi Ófeigs. Einar
hefur verið iðinn við að gagnrýna
skort á aðgengi starfandi málara að
listasölum borgarinnar og vissulega
er hægt að vera honum sammála
um að húsnæði Ófeigs er óhentugt
til sýninga á stærri málverkum.
Þó er maður ekki viss um hvort
það sé húsnæðinu um að kenna hve
sundurleit sýningin virðist en mikill
munur á milli stærða verka og mis-
munandi nálganir í málverkunum
sjálfum ýta undir þá tilfinningu að
um samtíning sé að ræða. Sumar
myndirnar bera sterk höfund-
areinkenni Einars frá því að hann
kom fyrst fram með fígúratífu mál-
verkin sín á miðjum sjöunda ára-
tugnum, aðrar minna meira á valin
brot úr sögu málaralistarinnar.
Þetta getur bent til þess að Einar
sé leitandi og gefi sér ótakmarkað
frelsi til tilrauna. Titlar myndanna,
myndefnið, litríkið og óheft vinnu-
brögð bera vitni um ástríður og
húmor. Sýningin virðist fyrst og
fremst vera óður til hinnar róm-
antísku hugmyndar um óhaminn og
skapandi kraft listamannsins sem
er drifinn áfram af innri þörf en
ósjaldan misskilinn af samtíma sín-
um.
Litríkt og fjörugt
MYNDLIST
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5
Sýningin stendur til 20. júní. Opið á versl-
unartíma. Aðgangur ókeypis.
Einar Hákonarson – málverk
Morgunblaðið/G.Rúnar
Húmor „Titlar myndanna, myndefnið, litríkið og óheft vinnubrögð bera
vitni um ástríður og húmor,“ segir m.a. í dómi.
Þóra Þórisdóttir
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN
Bernardo Bertolucci verður heiðr-
aður á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum og hlýtur heiðursverðlaun
Gullna ljónsins í ár. Bertolucci, sem
líklega er þekktastur fyrir kvik-
myndirnar Last Tango in Paris og
The Last Emperor, mun taka við
verðlaununum á lokakvöldi hátíð-
arinnar hinn 8. september. Síðasta
mynd Bertolucci var The Dreamers
þar sem hann rifjaði upp frjálsar ást-
ir í París í kringum stúdentaóeirð-
irnar 1968 og uppgötvaði í leiðinni
Bond-stúlkuna Evu Green.
Kvikmyndahátíðin í Feneyjum er
elsta kvikmyndahátíðin sem enn er
haldin en leikstjórar á borð við Dav-
id Lynch, Tim Burton, Clint Eastwo-
od og Hayao Miyazaki hafa hlotið
heiðursverðlaunin nýlega. Verðlaun
hátíðarinnar nú eru nefnd Gullna
ljónið en voru upphaflega nefnd eftir
einræðisherranum Benito Mussolini.
ReutersHeppinn Bertolucci með Evu Green.
Bernardo Bertolucci
heiðraður í Feneyjum
BANDARÍSKA leikkonan Julia Ro-
berts eignaðist í gær sitt þriðja
barn, dreng sem hefur hlotið nafnið
Henry Daniel
Moder.
Talsmaður
leikkonunnar
sagði að móður
og barni heils-
aðist vel en
drengurinn kom
í heiminn í Los
Angeles.
Julia og mað-
ur hennar, kvik-
myndatökumað-
urinn Danny
Moder, eiga fyr-
ir tveggja ára
tvíbura, Hazel
og Phinnaeus.
Julia mun
næst sjást á
hvíta tjaldinu í
myndinni Char-
lie Wilsons
War, sem Mike
Nichols leikstýrir, og verður frum-
sýnd síðar á árinu.
Reuters
Þriðja
barn Juliu
RobertsLEIKKONURNARungu Sienna Miller og
Keira Knightley hafa
gefið partístand upp á
bátinn fyrir borðleiki.
Stöllurnar, sem leika
nú í kvikmyndinni
The Edge of Love í
Wales, hafa gefið
kvöld í bænum upp á
bátinn til að geta spil-
að kotru.
Heimildarmaður
sagði við ástralskt
tímarit að Miller væri
mikill borðleikja-
aðdáandi og nú hefði
hún fengið Knightley í
lið með sér. „Þeim
finnst þetta mjög
fyndið því fólk dregur
þá ályktun að þær séu
úti að skemmta sér öll
kvöld en í staðinn eru
þær í þægindum
heima eins og gamlir
karlar og æsast allar í
keppnisskapinu yfir
kotruspili. Miller segir
að hún velji kotru
fram yfir stórt partí.“
Miller, 25 ára, og
Knightley, 22 ára, eru
orðnar góðar vinkon-
ur síðan þær voru
báðar ráðnar í hlut-
verk í myndinni sem
fjallar um velska
skáldið Dylan Thom-
as. En handritið að
The Edge of Love
var skrifað af móður,
Knightley, Sharman
Macdonald.
Í myndinni kemur
fyrir atriði þar sem
fegurðardísirnar tvær
deila heitri senu með
meðleikara sínum
Matthew Rhys sem
leikur skáldið.
„Ég er mjög hrifin
af Keiru. Hún er
mjög viðkunnanleg og
skilur mig og bak-
grunn minn. Við töl-
um heilmikið um
hversu furðuleg öll
þessi athygli er og
auðvitað stráka. Ég
hef fundið vin fyrir
lífstíð í henni,“ sagði
Miller um meðleik-
konu sína.
Miller og Knightley
spila kotru á kvöldin
Sienna Miller
Keira Knightley