Morgunblaðið - 19.06.2007, Side 52
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Met á sjóstöng?
Þjóðverjinn
Andre Rosset
veiddi 175 kg
lúðu á sjóstöng á
Súgandafirði í
gær og er jafnvel
talið að þetta sé
stærsta lúða sem
veiðst hefur á
sjóstöng hér við
land. » Forsíða
Kvótakerfið
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
telur gagnrýni Einars Odds Krist-
jánssonar alþingismanns ekki trú-
verðuga. Segir hann Einar Odd alla
tíð hafa unnið að því að bora göt á
kvótakerfið. » Forsíða
5½ ár fyrir hnífstungu
Hæstiréttur dæmdi í gær 19 ára
gamlan karlmann í 5½ árs fangelsi
fyrir manndrápstilraun með því að
stinga annan karlmann með hnífi í
bakið með þeim afleiðingum að hann
hlaut lífshættulegan áverka og var-
anlegan taugaskaða. » 2
Þunglyndi og kvíði
Aldraðir sem bíða eftir hvíldar-
innlögn á Landakotsspítala þjást
margir af þunglyndi og kvíða. Að
jafnaði eru um 50 manns á biðlista
eftir 8-10 plássum sem til boða
standa og getur biðtíminn hlaupið á
mánuðum. » 8
Bein aðstoð hefst á ný
ESB hyggst hefja aftur beinan
fjárstuðning við palestínsku heima-
stjórnina, en rúmt ár er liðið síðan
þeim stuðningi var hætt. » 18
SKOÐANIR»
Staksteinar: Bílaumferð og borgarlíf
Forystugreinar: Skólar og einka-
rekstur | Sarkozy tryggir stöðu sína
Ljósvakinn: Þjóðleg hnattvæðing
UMRÆÐAN»
Atvinnubílstjórar … fyrir þig
Fjármögnun Háskólans í Reykjavík
Langtímaáhrif veiða á vöxt þorsks
Miklar áskoranir á sviði raforku
2! & *6"#!
") *
7!
""1"3"
/
/
/ /
/ /
/ /
/
/ / / / /
/
, 85 # /
/ / / / /
9:;;<=>
#?@=;>A7#BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA#8"8=EA<
A:=#8"8=EA<
#FA#8"8=EA<
#->##A1"G=<A8>
H<B<A#8?"H@A
#9=
@-=<
7@A7>#-)#>?<;<
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
Hægviðri eða haf-
gola. Skýjað með köfl-
um eða léttskýjað,
stöku síðdegisskúrir.
Þoka við N-strönd. » 10
Observer segir
Steingrím Eyfjörð
fyndinn og einn at-
hyglisverðasta lista-
manninn á Feneyja-
tvíæringnum. » 44
MYNDLIST»
Er sannur
grínisti
KVIKMYNDIR»
Bertolucci heiðraður í
Feneyjum. » 48
Gagnrýnandi segir
Íslendinga klénar og
leiðigjarnar bækur
og ekki líklegar til
að stuða nokkurn lif-
andi mann. » 48
BÓKMENNTIR»
Óttalegt
klám
TÓNLIST»
Motion Boys hita upp
fyrir The Rapture. » 49
KVIKMYNDIR»
Brimarinn silfraði vinsæl-
astur um helgina. » 47
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Drossía geymd í jörðu í hálfa öld
2. Andlát: Ómar Ö. Kjartansson
3. „Mér leið alveg skelfilega …“
4. Býður West Ham í Eið?
UPPSELT var á landsleik Íslend-
inga og Serba í Laugardalshöllinni á
sunnnudagskvöldið 5 dögum áður en
leikurinn fór fram – 2.700 aðgöngu-
miðar seldust eins og heitar lumm-
ur. Sama var uppi á teningnum fyrir
ári þegar íslenska landsliðið mætti
Svíum í umspilsleik fyrir heims-
meistaramótið. Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, segir HSÍ
hefðu getað selt a.m.k. 5.000 að-
göngumiða á hvorn leik. Hann vill að
hugað verði að byggingu nýrrar
þjóðarhallar sem geti hýst stórleiki í
handknattleik.
„Ég vil sjá stórt keppnishús rísa
og tel rétt að menn leiði hugann að
því að byggja nýja þjóðarhöll sem
geti að sjálfsögðu hýst fleiri íþrótta-
greinar en handknattleik.“ | Íþróttir
Vill nýja
þjóðarhöll
KAUPÞING virðist ætla að hasla
sér völl sem ráðgjafi í kaupum og
sölu á breskum knattspyrnuliðum,
en skemmst er að minnast þátttöku
bankans í tilboði Mikes Ashleys í
Newcastle United. Fyrir skömmu
bættist enn ein fjöðrin í hatt ís-
lenska bankans en hann fjármagn-
aði og sinnti ráðgjafarhlutverki við
kaup fjárfestingarfélagsins Enic á
um 12% hlut í Tottenham Hotspur.
Enic, sem er í eigu Joe Lewis og
Daniel Levy, átti fyrir 54% í félag-
inu. Enic greiddi fyrir hlutinn and-
virði 3 milljarða króna, en Levy er
stjórnarformaður Tottenham. | 16
Ráðgjöf vegna
Tottenham
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„HANN getur lifað eðlilegu lífi, en íþróttamaður verð-
ur hann aldrei,“ sagði Kristbjörn Tryggvason yfirlækn-
ir við Ingu Valborgu Einarsdóttur þegar sonur hennar
útskrifaðist af barnadeild Landspítalans fyrir 34 árum.
Það lá þó fyrir syninum, Sigurði Vali Sveinssyni, að
verða þekktur fyrir þrumuskot sín og lunknar línu-
sendingar í handbolta. Siggi Sveins var í 19 ár í ís-
lenska handboltalandsliðinu og skoraði 730 mörk í
landsleikjum, auk þess að keppa bæði á Ólympíuleikum
og taka þátt í að sigra B-heimsmeistarakeppnina í Par-
ís árið 1989.
Barnaspítali Hringsins fagnar í dag 50 ára afmæli
sínu með pomp og prakt. Núverandi og fyrrverandi
sjúklingar fjalla um það í Morgunblaðinu í dag hvernig
vistin á sjúkrahúsinu var og er. Hinir ungu sjúklingar
bera því söguna eins vel og hugsast getur. Auk Sig-
urðar minnist annar fyrrverandi sjúklingur, Einar
Freyr Einarsson kerfisfræðingur og flugmaður, þess
þegar hann sigraðist á beinkrabba með hjálp starfs-
fólks Barnaspítalans. Hann segir ótrúlega fórnfýsi og
velvilja þeirra sem þar störfuðu það eftirminnilegasta
við dvölina. | 14Morgunblaðið/G. Rúnar
Vinátta, velvilji og fórnfýsi er
það sem lifir í minningunni
Barnaspítali Hringsins fagn-
ar hálfrar aldar afmæli í dag
♦♦♦
♦♦♦
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
ÍSLENSKAR konur láta heldur bet-
ur að sér kveða þessa dagana sem
endranær. Í dag er einmitt kven-
réttindadagurinn 19. júní og eru nú
liðin 92 ár síðan konur á Íslandi
fengu kosningarétt.
Kosningarétturinn er einn stærsti
áfangi jafnréttisbaráttunnar, en
henni er þó hvergi nærri lokið því
betur má ef duga skal. Í tilefni dags-
ins ætla Kvenréttindafélag Íslands,
Femínistafélag Íslands og fleiri að
„mála bæinn bleikan“ og eru Íslend-
ingar allir hvattir til þess að hafa
bleika litinn í hávegum í dag til að
sýna stuðning við jafnrétti með já-
kvæðum hætti.
Óvíst er hvort íslenska landsliðið í
knattspyrnu hefur færi á að taka
þátt í gleðinni í dag, en þær halda
þó uppi merki íslenskra kvenna á
öðrum vettvangi því þær keppa nú
að því að komast í úrslitakeppni
Evrópumótsins 2009 í Finnlandi.
Óhætt er að segja að stelpurnar séu
íslensku kvenþjóðinni, og þjóðinni
allri, til mikils sóma því þær hafa
staðið sig með eindæmum vel, enda
tróna þær á toppi riðilsins ásamt
franska liðinu. | 8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðið æfir á kvenréttindadegi
Íslenskar konur eru í rífandi sókn
ODDNÝ Sturlu-
dóttir og Felix
Bergsson, fulltrú-
ar Samfylkingar-
innar í menning-
armálaráði
Reykjavíkur,
sátu hjá þegar
Ragnar Bjarna-
son var útnefndur
borgarlistamað-
ur. Þeim þóttu vinnubrögðin í nefnd-
inni einkennileg því aldrei var rætt
við fulltrúa minnihlutans um hverjir
kæmu til greina sem borgarlista-
menn. Oddný tók þó fram að Raggi
Bjarna væri frábær söngvari og vel
að heiðrinum kominn, gagnrýnin
snerist um vinnubrögðin.
Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi VG,
samþykkti útnefninguna og hafði
ekkert út á hana að setja. | 45
Samfylking
deilir á
vinnubrögð
Oddný Sturludóttir