Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 23 flest okkar höfum valið þá lífsleið að vinna við fisk í þessum litla bæ, höfum við metn- að fyrir því sem við erum að gera og órétt- látar ásakanir í okkar garð stinga sárt. Afsökun frá Morgunblaðinu mundi tryggja því aftur áskrift mína.“ Ómaklega vegið að mörgum Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæj- arstjóri í Grundarfjarðarbæ, segir að Agnes hafi gengið of langt í grein sinni. Gefið hafi verið í skyn að stór hópur fólks hafi bundist samtökum um að svindla á öllu kerfinu, þegar fiskur sé fluttur út í gámum. Skilja hefði mátt greinina þannig að það væri skoðun blaðsins að þetta væri allt stórþjófar, þó lítið „ef“ hafi staðið í henni. „Okkur þykir mjög ómaklega vegið að stórum hópi fólks,“ segir hann og vísar til þess að sé um svindl að ræða þurfi öll keðjan að vera með. Guðmundur Ingi seg- ir vont að sitja undir því í blaði eins og Morgunblaðinu að vera þjófkenndur. „Fólk sem les svona grein og les þetta leggur engan ofurþunga á orðið „ef“ í þessu samhengi. Fólki sárnar og gerir þá kröfu að blaðið finni þessum ummælum stað en sé ekki eingöngu með vísun í „ólyginn sagði mér“. Okkur finnst því bera skylda til sem vandaður fjölmiðill að rannsaka málið og upplýsa þá hvar þessi stórfelldi þjófnaður sé.“ Bæjarstjórinn er jafnframt hafnarstjóri í Grundarfirði. „Ég hef aldrei haft veður af neinu slíku svindli við gámaútflutninginn og mér finnst skrýtið ef það fer fram án þess að við höf- um hugmynd um það.“ Hann bendir á að höfnin vigti aflann, „og þar með yrðum við að taka þátt í svindlinu.“ Það leynir sér ekki að umfjöllunin hefur haft áhrif á Grundfirðinga og Guðmundur Ingi segir að menn verði fyrir áreiti vegna hennar. Eftirlitið sé mikið en hafnaryfirvöld og Fiskistofa verði hugsanlega að efla það enn frekar við gámaútflutninginn til að sýna fram á að þessar gömlu sögur eigi ekki við rök að styðjast. „Ég heyri ekki annað en að menn telji það sér ekki til framdráttar að stunda svindl eða svíkja afla undan,“ segir hann. „Með einhverjum hætti verður að reka ofan í þá menn sem halda því fram að þetta sé svona eða þeir að sýna fram á allt þetta svindl í gámaút- flutningnum.“ Guðmundur Ingi segist alltaf hafa litið á Morgunblaðið sem mál- svara sjávarútvegsins á Íslandi og aldrei upplifað annað en að Morgunblaðið hafi staðið vörð um hagsmuni greinarinnar, þó það hafi ekki alltaf átt samleið með öllum straumum og stefnum. „Maður hefði haldið að greinar af þessu tagi gætu frek- ar átt það til að birtast annars staðar,“ segir hann. steinthor@mbl.is sláttuvélarmál Baugs.“ Að sögn Þórarins er erfitt að sitja undir ásökunum um svindl, en það sé í höndum fjölmiðla að kynna sér þessi mál og greina frá nið- urstöðum sínum. „Menn eru ofboðslega reiðir yfir því að vera sakaðir um svona þjófnað og glæpastarfsemi og eins og þetta er sett upp í Morgunblaðinu er þetta eitt stærsta glæpamál Íslandssög- unnar. Það hefði nú einhvern tíma þótt vert að kafa ofan í slík mál og að sjálf- sögðu á Morgunblaðið að biðjast afsök- unar á svona fréttaflutningi, því þetta er ekki boðlegt.“ Kristján Guðmundsson, yfirvélstjóri hjá Guðmundi Runólfssyni hf. og einn að- aleigandi fyrirtækisins, segir að Grund- firðingar sitji eftir með sárt ennið. „Við erum ósáttir við þessar aðdróttanir, ásak- anir um þjófnað,“ segir hann. „Við höfum unnið í þessu kerfi nánast frá barnsaldri og höfum ekkert verið að skoða hvort hægt sé að svindla í því. Það hefur ekki verið okkar vilji. Menn lifa ekki á þjófn- aði, svindli og svínaríi. Þeir sem hafa ætl- að sér að lifa á því hafa aldrei komist áfram í lífinu.“ Aflinn öllum aðgengilegur Rúnar Sigtryggur Magnússon, skipstjóri og stjórnarformaður hjá Soffanías Cecils- syni hf., segist ekki skilja hvatirnar á bak við það að ráðast á fjölda manns með svona ásökunum og ekki þurfi mikla rann- sóknarblaðamennsku til að hrekja um- mælin. Starfsmenn fyrirtækjanna hafi margir hverjir unnið hjá þeim í mörg ár og lagt sig fram af fremsta megni. Sama eigi við aðra sem hlut eigi að máli, jafnt innan lands sem utan. „Allir reyna að vinna sína vinnu eins vel og þeir geta og svo fá þeir svona á sig.“ Sóley SH, skip Soffaníasar Cecilssonar hf., landar á mið- vikudögum og er aflinn boðinn upp á Eng- landi á mánudögum. Rúnar leggur áherslu á að allir geti boðið í aflann og að- gengi að afla skipa sem landi alltaf á sama tíma á sömu dögum sé almennt mjög gott. Það séu engin trúarbrögð hjá sér að senda fiskinn, sem sé að minnstum hluta þorskur, til Englands heldur sé ástæðan sú að þar hafi jafnbesta verðið fengist. Rúnar áréttar að venjulegt fólk geti ekki staðið í svindli eins og um sé rætt. Það hafi ekki heilsu í það. Hins vegar gjósi þessi umræða oft upp, einkum á haustin, þegar vanti fisk og ljóst sé að sumir innan sjávarútvegsins vilji koma í veg fyrir gámaútflutninginn. „Þessum mönnum er frjálst að bjóða í þennan afla. Ég vil bara fá hæsta verðið og við höldum áfram að vera stolt af því sem við erum að gera. Við erum heiðarlegt og venjulegt fólk, sem er stolt af sínu lifibrauði og hefur hvorki taugar né heilsu til að standa í svindli. Þó menn og hafnaryfirvöld, flutningaaðilar, allt skrifstofufólk hjá sjávarútvegsfyr- irtækjunum og allir sem sjái um papp- írsvinnu og uppgjör, Fiskistofa, erlendir eftirlitsmenn, opinberir starfsmenn er- lendis og allur markaðurinn. „Svo má ekki gleyma því að fiskurinn er keyptur af stórum aðilum erlendis. Það gengur ekki upp að stór fyrirtæki, eins og til dæmis í Bretlandi, sem bjóða upp á fiskborð geta ekki eingöngu selt þorsk. Fyrirtækin kaupa ekki bara þorsk og selja síðan sem ýsu, flatfisk, steinbít, löngu og keilu. Það selur enginn dýrari fisk sem ódýrari fisk og neytandinn þekkir líka muninn á þorski og til dæmis steinbít.“ Ef verið væri að stela þorski af launum sjómanna þá segir Þórarinn að rangt sé að sjómenn þori ekki að tjá sig um svona mál. „Það er ekki rétt því sjómenn eru engir aukvisar. Þegar við gerum upp túrana stendur magn hverrar tegundar á launaseðlinum og hafi skip fiskað nokkur hundruð tonn af þorski yfir mánuðinn myndi ekki einn sjómaður líða það að enginn þorskur kæmi fram á launaseðlinum og fyrir vikið fengi hann helmingi lægri laun en hann ætti að fá. Sagt er að sjómenn þori ekki að segja neitt því þá séu þeir bara reknir. Tilfellið er að það eru stéttarfélög og sjó- mannasambönd í landinu og það þarf eng- inn að koma fram undir nafni. Sé um svindl að ræða taka þau þá líka þátt í glæpnum, allir hagsmunaaðilar sjó- manna, skipstjórnarmanna, háseta og vél- stjóra. Það stendur hvergi steinn yfir steini í þessum fullyrðingum og þetta eru einhverjar alvarlegustu fullyrðingar sem hafa komið fram og komu fram í Morg- unblaðinu af öllum blöðum. Olíumálið spannaði mörg ár og var ekki talað um 6 milljarða þar? Þarna er verið að tala um 12 milljarða á hverju ári, miðað við 300 krónur á kílóið. Á 10 árum eru það um 120 milljarðar. Það er aðeins meira en stóra kvótasvindl sé ólíðandi, því saklausir menn séu sakaðir um ótrúlegustu hluti. „Þetta er stórt og mikið bull um mikinn þjófnað,“ segir hann. „Þetta er ekki hægt því eftirlitskerfið er það mikið. Í fyrsta lagi er enginn að svindla og það er heldur ekki hægt að svindla. Það gleymist líka að breska ríkið tekur toll af fiski, reyndar ekki af þorski og ýsu en allt upp í 4,5% toll af öðrum tegundum. Skattyfirvöld í hverju landi passa sitt og athuga þetta vel. Þess vegna verða allar skýrslur að standa eins og stafur á bók.“ Í fyrra voru um 52 þúsund tonn af ferskum fiski flutt út frá Íslandi. Þórarinn segir að 20 þúsund hafi verið forvigtuð á mörkuðum, tæplega 7 þúsund tonn hafi verið flutt út frá Grundarfirði og Fiski- stofa hafi tekið út um 8 þúsund tonn á bryggjunum. Tölurnar tali sínu máli og allt tal um svindl standist ekki. Alhæf- ingar eins og t.d. að allt að 90% í gám- unum sé þorskur og 40 þúsund tonn af þorski fari þannig ólöglega út séu alvar- legar ásakanir. Miðað við 300 kr. á kílóið sé um 12 milljarða kr. á ári að ræða, sem þýði að fluttir væru út 52 gámar á viku með óskráðum þorski. „Þetta eru yf- irnáttúrulegar ásakanir,“ segir hann og bætir við að ansi margir þyrftu að koma að málinu. Í fyrsta lagi þyrfti skipstjórinn að falsa allar veiðiskýrslur. Í öðru lagi þyrftu allir sjómennirnir að taka þátt í glæpnum. Líka löndunaraðilarnir, hafnarstarfs- ýsir algjörri fáfræði á því mál ganga fyrir sig. Manni öð eins og Sun en ekki Þetta er frétt eins og ðust á höfnina í Grund- öllun um svonefnda vatns- rður að lýsi þekking- Ég kannast ekki við að a sig með tómum körum og um að það sé löglegt,“ seg- eyrum körin niður á nda tali og törum bílana nað væri einfaldlega ekki in eru aldrei vigtuð tóm. kistofu eru körin skráð 42 ör með fiski eru vigtuð er rá.“ Þórður segir um- a og þegar uppgangurinn kunum. Allir hafi verið til- á fréttir um sukk og að heldur þú að margir u dönsku blöðin hafi haft vernig bankar starfa? Fólk ði því en bankastarfsmenn Þetta er einfaldlega ekki ina sem við getum vonað er að þið skoðið málið frá g ef þið komist að því að amkvæmanlegt væri af- afskaplega notaleg.“ jánsson, fjármálastjóri hjá ólfssyni hf., segir að um- blaðsins í liðinni viku um num um svindl á bug Morgunblaðið/ÞÖK dun í Grundarfirði er fiskikörunum staflað í gáma. Fiskur sem fer til Englands er vigtaður þar. Áskell son Þórarinn Kristjánsson Kristján Guðmundsson Rúnar Sigtryggur Magnússon Guðmundur Ingi Gunnlaugsson ÞÓRARINN Kristjánsson, fjármálastjóri hjá Guðmundi Runólfssyni hf., og Þórð- ur Áskell Magnússon, eigandi Djúpakletts, lýsa ferli gámafisks frá veiðum til kaupanda með eftirfarandi hætti: 1. Þórarinn bendir á að skip félagsins veiði í troll. Þegar trollið sé híft upp sé gengið frá fiskinum í kör með ís og í veiðiskýrslu sinni greini skipstjórinn frá því hvar halið hafi átt sér stað, hvað það hafi tekið langan tíma og innihaldi halsins. 2. Síðan sé aflanum landað í körunum. Sá fiskur, sem fari til Englands, fari óvigtaður í gáma, en gámarnir séu brúttóvigtaðir. Oftast séu menn frá Fiski- stofu á bryggjunni til að fylgjast með lönduninni og að allt fari að reglum. Fiskurinn sé ekki vigtaður sérstaklega því við umstöflun og endurísun minnki geymsluþolið og gæðin sem þýði lægra verð. Fiskur sem fari annað en til Englands sé úrtaksvigtaður. Á hafnarvigtinni sé hvert kar vigtað og hver tegund fyrir sig og síðan sé ákveðinn hundraðshluti vigtaður íslaus. Sé fiskur í sjö körum eða færri sé allur fiskurinn vigtaður og séu meira en 50 kör sé fiskur í 18 körum vigtaður. 3. Skipstjóri eða stýrimaður og háseti skrái kör og tegundir sem fari í hvern gám. Í 20 feta gám fari t.d. um 40 kör og um 60 kör í 40 feta gám. Ákveðið eyðublað frá Fiskistofu sé fyllt út og því skilað til hafnarvarðar. 4. Því næst segir Þórarinn að hann fái þetta eyðublað. Hann búi til útflutnings- reikning og útflutningsskýrslu, svonefnda U1 skýrslu. Jafnframt beri sér að setja inn á skráningarvef Fiskistofu gámanúmerið, fjölda kara og þyngd í körum, en á þessu stigi sé ekki búið að vigta fiskinn upp á kíló. 5. Gámur með körum er innsiglaður á bryggjunni, fluttur til Reykjavíkur og þaðan með skipi til Englands. Á viðkomustað sé gámurinn opnaður í viðurvist fulltrúa Fiskistofu. Talið sé út úr gámnum, kassarnir taldir og hver einasta tegund vegin upp á kíló. 6. Síðan sé fiskurinn seldur og þá komi til baka nákvæm kílóatala af hverri teg- und, þ.e. heildarinnihald gámsins. Þá sé fylltur út lokareikningur og búin til ný útflutningsskýrsla þar sem innihaldið komi fram upp á kíló. Ferli gámafisks frá veiðum til kaupanda er ekki hægt því eftirlitskerfið er það mikið. Í lagi er enginn að svindla og það er heldur ekki vindla. […] Menn eru ofboðslega reiðir yfir því kaðir um svona þjófnað og glæpastarfsemi og tta er sett upp í Morgunblaðinu er þetta eitt læpamál Íslandssögunnar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.