Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Okkar elskulega móðir, ANNA JÓNSDÓTTIR frá Blátindi, lést á heimili sínu, Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, mánudaginn 9. júlí. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum, laugardaginn 14. júlí kl. 14.00. Stefanía Þorsteinsdóttir, Viktor Helgason, Sigrún Þorsteinsdóttir, Sigurður Elíasson og aðstandendur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HANS CHRISTIANSEN listmálari, Reykjamörk 2, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, fimmtudaginn 5. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss og Heilsugæslu Suðurlands á Selfossi og í Hveragerði fyrir einstaka umönnun og alúð. Bryndís Pape, Adam Lavey, Gréta Pape, Jóhann Haraldsson, Þóra Christiansen, Guðmundur Guðmundsson, Daníel og Amber, Viktor Bersi, Alexander, Egill Ian og Arna Katrín. ✝ Okkar ástkæra sambýliskona, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, AGNES M. JÓNSDÓTTIR, Fífuhvammi 5, 200 Kópavogi, lést á heimili sínu, miðvikudaginn 11. júlí. Útför auglýst síðar. Margrét A. Kristinsdóttir, Bergþór Bergþórsson, Ágústa Óskarsdóttir, Jón Ólafur Bergþórsson, Guðný Laxdal Helgadóttir, Örnólfur Kr. Bergþórsson, Kristín Birna Sævarsdóttir, Agnes Björg Bergþórsdóttir, Sveinjón Jóhannesson og barnabörn. ✝ Elsku hjartans drengurinn okkar, ÞORBERGUR GÍSLASON ROTH, Hveramýri II og Furubyggð 34, Mosfellsbæ, sem lést af slysförum aðfaranótt sunnudagsins 8. júlí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 17. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður á Mosfelli í Mosfellsdal. Vera Roth, Gísli Jóhannsson, Helena Jónsdóttir, Þrándur Gíslason, Þórunn Gísladóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Hildur Kristín Hallgímsdóttir og aðrir aðstandendur ✝ Sigríður Guð-laugsdóttir fæddist á Guðna- stöðum í Austur- Landeyjum 23. jan- úar 1931. Hún and- aðist á líknardeild Landakotsspítala 4. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin á Guðnastöðum, Guð- laugur Magnús Ólafsson, f. 18.11. 1893, d. 25.3. 1970, frá Eyvindarholti og Júlía Jónasdóttir, f. 28.7. 1899, d. 27.5. 1974, frá Hólmahjáleigu í Austur-Landeyjum. Foreldrar Guðlaugs voru Ólafur Ólafsson bóndi í Eyvindarholti, frá Hólmi í A-Landeyjum, og kona hans Sig- ríður Ólafsdóttir frá Múlakoti í Fljótshlíð. Foreldrar Júlíu voru Jónas Jónasson bóndi og formað- ur í Hólmahjáleigu og kona hans byggingameistara. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú. Sigríður giftist 6.5. 1967 Ing- ólfi Majassyni húsgagna- og inn- anhússarkitekt, f. á Leiru í Grunnavíkurhreppi 22.7. 1919. Foreldrar Ingólfs voru hjónin í Leiru Guðrún Elísabet Guð- mundsdóttir, f. 8.10. 1884, d. 19.6. 1974, og Majas Jónsson, f. 19.5. 1881, d. 7.9. 1919. Dóttir Sigríðar og Ingólfs er Júlía Guð- rún Ingólfsdóttir innanhússhönn- uður, f. 18.2. 1968. Sigríður ólst upp við venjuleg sveitastörf. Hún var í nokkra vet- ur vinnukona hjá læknishjón- unum á Stórólfshvoli, þeim Odd- nýju Guðmundsdóttur og Helga Jónassyni. Hún vann eina vertíð við fiskvinnslu í Vestmannaeyjum og var einn vetur í Húsmæðra- skólanum í Reykjavík. Hún vann á Kópavogshælinu um skeið, einnig nokkur ár í versluninni Exeter í Reykjavík. Hún vann um tíma við ræstingar í Hvassaleit- isskólanum en síðast vann hún í býtibúri hjá Barnaspítala Hrings- ins í 18 ár. Útför Sigríðar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Ragnheiður Hall- dórsdóttir frá Ósa- bakka á Skeiðum. Systkini Sigríðar eru: 1) Ragnheiður, f. 23.4. 1927, d. 25.6. s.á. 2) Jónas fyrrv. rafveitustjóri í Hafn- arfirði, f. 21.4. 1929, kv. Dórótheu Stef- ánsdóttur gæslu- konu. Þau áttu fjög- ur börn. 3) Ólafur tæknifræðingur, f. 7.2. 1933, d. 19.10. 2000. Sambýliskona Ólafs var Guðrún Þorgerður Vil- hjálmsdóttir snyrtifræðingur, f. í Vestmannaeyjum 21.1. 1933. 4) Ragnar fyrrv. bóndi á Guðnastöð- um, f. 5.5. 1934, kv. Margrit Strupler frá Weinfelden í Sviss. Þau eiga fimm börn. 5) Ingibjörg Jóna, fyrrv. matráðskona í Reykjavík, f. 27.3. 1940. Var gift Sturlu Einarssyni húsgagna- og Kær systir, Sigríður Guðlaugs- dóttir, hefur kvatt þennan heim eft- ir erfið veikindi. Þegar horft er til baka eru endurminningarnar ljúfar, þrátt fyrir að fráfall hennar snerti viðkvæmar taugar í brjósti manns. Hún var alltaf kölluð Sísí af vinum og vandamönnum, en það nafn gaf hún sjálfri sér þegar hún fór að tala. Hún ólst upp við venjuleg sveita- störf en fór snemma að vinna ann- ars staðar. Hún var m.a. í nokkur ár vinnukona hjá læknishjónunum á Stórólfshvoli en þar komst hún í kynni við umönnun sjúkra, sem síð- ar átti eftir að koma henni vel. Hún vann í nokkur ár á Kópavogshælinu og við ræstingastörf og verslunar- störf en lengst starfaði hún í 18 ár í býtibúri Barnaspítala Hringsins og var þar þangað til hún hætti vegna aldurs. Í tilefni af því var henni ým- is sómi sýndur af starfsfólki spít- alans. Sísí var alls staðar í uppá- haldi þar sem hún vann. Hún var einn vetur í Húsmæðra- skólanum í Reykjavík. Áður en Sísí festi ráð sitt hélt hún til um skeið hjá vinafólki sínu á Kópavogsbraut 45, hjá þeim hjónum Sigríði Gísladóttur og Ólafi Jóns- syni. Þar í heimili var Fanney systir Sigríðar Gísladóttur sem hafði verið á Guðnastöðum þegar Sísí var á ungaaldri. Þær systur voru miklar hannyrðakonur og þarna vann Sísí ýmsa handavinnu, en hún var mjög myndarleg í höndum og t.d. bróder- aði hún fallegar landslagsmyndir. Það var mikið gæfuspor hjá Sísí þegar hún kynntist manni sínum Ingólfi. Bjuggu þau sér fagurt heimili í Mjóuhlíð 14 í Reykjavík. Þangað var alltaf gott að koma og hjálpuðu þau okkur ómetanlega við að gæta barna okkar þegar við þurftum á því að halda, sem verður seint fullþakkað. Veiðiferðir voru vinsælar og áttu fjölskyldurnar góð- ar stundir í þeim. Við Dóróthea vottum þeim Ingólfi og Júlíu Guðrúnu okkar dýpstu samúð. Jónas Guðlaugsson. Elskuleg móðursystir okkar hef- ur kvatt. Yndislegri frænku er varla hægt að hugsa sér. Hún hafði stórt hjarta og setti ávallt aðra framar sjálfri sér. Það var alltaf gaman að spjalla við Sísí frænku. Hún fylgdist vel með því sem var efst á baugi í þjóð- félaginu og hafði einlægan áhuga á fólki. Sísí var líka sérlega gestrisin. Það horfði stundum til vandræða hversu hörð hún var á því að maður þyrfti ávallt að þiggja veitingar þeg- ar maður kom í heimsókn. Hún gat snarað fram fínasta kaffihlaðborði á örskotsstundu áður en nokkrum mótmælum varð komið við. Sísí var mikil barnagæla og feng- um við systkinin sannarlega að njóta þess þegar hún gætti okkar sem börn. Kannski var það einmitt þá að það myndaðist sérstakur kær- leiksþráður á milli okkar Sísíar, sem aldrei slitnaði, þótt stundum liði langt á milli heimsókna og símtala. Við þökkum fyrir tímann sem við höfðum saman og kveðjum okkar kæru frænku með þessu fallega ljóði: Þig faðmi friður guðs og fái verðug laun, þitt góða hjarta, glaða lund og göfugmennska í raun. Við kveðjum þig með þungri sorg og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. – – Vér munum þína högu hönd og hetjulega dug, og ríkan samhug, sanna tryggð og sannan öðlingshug. Guð blessi þig. Þú blóm fékkst grætt og bjart um nafn þitt er, og vertu um eilífð ætíð sæl vér aldrei gleymum þér. (Jón Trausti) Elsku Ingólfur og Júlía Guðrún, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning um ást- kæra frænku mun ávallt lifa í hjört- um okkar. Guðlaug Júlía, Einar og Atli. Kæra frænka og föðursystir Sísí, það er sárt að missa þig, en nú hef- ur þú fengið hvíld eftir löng og erfið veikindi. Ég man fyrst eftir þér sem lítill drengur og tengjast margar þær æskuminningar ættaróðali Guð- laugs afa og Júlíu ömmu á Guðna- stöðum. Þú varst dugleg að leika við mig sem og líta eftir mér og varst alltaf einstaklega góð við mig. Foreldrar mínir áttu þig alltaf að ef það þurfti að fá pössun fyrir strákinn. Það var alveg toppurinn á tilver- unni að fá að vera í pössun hjá Sísí frænku, þá var mikið gaman að vera til. Veiðitúrar að Hlíðarvatni og Djúpavatni voru fastir punktar í til- verunni frá því ég man eftir mér, þar áttum við margar góðar stundir saman með fjölskyldum okkar. Ég gleymi ekki hörkunni í þér þegar þú mættir að Djúpavatni í fyrrasumar, þá orðin mikið veik, en áhuginn fyrir að mæta og kasta fyr- ir fisk var öllu ofar. Þín var sárt saknað við Djúpa- vatnið þetta sumarið. Það sem upp úr stendur í minn- ingunni um þína persónu er að þú varst alltaf góð við mig og vildir allt fyrir mig gera. Þú varst alltaf kát, brosmild og í góðu skapi, hvað sem á bjátaði, og hef ég aldrei nokkurn tímann hitt nokkra manneskju eins ríka af þessum eiginleikum, og það virkaði á mig eins og þú geislaðir ætíð af lífsgleði. Nú er dagur runninn að kveldi og veiðitúrarnir verða ekki fleiri í þess- ari tilveru. Ég þakka þér Sísí frænka fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég votta Ingólfi og Júlíu Guðrúnu samúð mína, mikill er missir ykkar. Stefán Jónasson. Kæra Sísí frænka, þá er komið að kveðjustund. Í minningu minni er farin skemmtileg, glaðleg og góð kona. Ég minnist þess úr æsku minni þegar foreldrar mínir voru erlendis og ég varð þess heiðurs að- njótandi að fá að vera hjá ykkur á meðan. Ég hlakkaði alltaf ákaflega mikið til því á þínu heimili leið mér vel og mikið var tekið vel á móti litla frænda úr Hafnarfirði. Fyrir mér var það ævintýri líkast að vera hjá þér. Júlía Guðrún lék við mig og saman fórum við í fótbolta á Mikla- túni, niður í bæ á sólríkum sunnu- dögum, í Tónabíó að sjá kvikmyndir og á morgnana fór ég í sund með Ingólfi. Svo má ekki gleyma þeim frábæru stundum sem við áttum við að spila á spil við eldhúsborðið. Þetta voru skemmtilegir tímar fyrir lítinn dreng að vera hjá þér í höf- uðborginni Reykjavík og jafnframt að upplifa þann frið og ró sem ríkti á þínu heimili. Hjá þér Sísí lærði ég að borða súrmjólk og brauð með kæfu í morgunmat og fannst það gott. Einnig gleymi ég aldrei góða lamba- kjötinu og brúnu sósunni sem að var himnesk og var upphafið að áhuga mínum á sósugerð síðar á lífsleið- inni, að ógleymdu ískalda krana- vatninu sem var betra og áhuga- verðara en gosdrykkir. Einnig minnist ég þeirra frábæru stunda sem fjölskyldur okkar áttu við Djúpavatn á Reykjanesskaga við silungsveiðar. Þó oft á tíðum hafi fiskurinn ekki verið stór áttu fjölskyldur okkar góðar stundir saman úti í náttúrunni. Á þessum degi vil ég og fjölskylda mín votta Ingólfi og Júlíu samúð okkar. Í huga og anda erum við með ykkur á þessum erfiðu tímum. Að lokum vil ég minnast Sísí frænku, þessari frábæru manneskju á eft- irfarandi hátt: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guðmundur Jónasson. Kveðja frá Barnaspítala Hringsins Barnaspítali Hringsins hefur not- ið þess að afbragðsfólk hefur valist til starfa á spítalann. Sigríður Guð- laugsdóttir var í þeim hópi og starf- aði á Barnaspítala Hringsins í tæpa tvo áratugi. Sigríði þótti afskaplega vænt um Barnaspítala Hringsins og þó fyrst og fremst um börnin, sem þar dvöldu. Hún var einstaklega um- hyggjusöm og vann störf sín af mik- illi alúð. Börnin, sem dvöldu lengi á spítalanum, þekktu Sigríði oft sem „góðu konuna“. Hlýtt viðmót henn- ar og væntumþykja fyrir börnunum létti þeim oft dvölina og mörg eiga góðar minningar um Sigríði. Sigríður var einnig kankvís og glöð með góða lund. Í býtibúrinu var því oft skrafað og spjallað mikið og það varð að eins konar miðstöð, þar sem hægt var að fá gott kaffi og jákvætt viðmót. Stundum flutu einnig með sögur frá Sigríði frá því er hún var lítil stúlka í sveitinni eða frá veiðiferðum í silungsveiði. Starfsfólk Barnaspítala Hrings- ins er þakklátt fyrir ánægjulegt samstarf og góðar minningar um yndislega konu. Fyrir hönd Barna- spítala Hringsins sendi ég eigin- manni Sigríðar, börnum og öðrum aðstandendum innilegustu samúð- arkveðjur. Ásgeir Haraldsson. Að leiðarlokum langar mig að minnast Sísíar með örfáum orðum. Sísí var einstaklega ljúf og barngóð kona sem börn hændust að. Rósarækt var henni hugleikin og eins og fyrir einhverja galdra gat hún ræktað gullfallegar rósir úr nánast engu, þekki ég engan annan sem hafði þennan hæfileika. Að vera nálægt Sísí var alltaf gaman og gott því hún heillaði mann með líflegum frásögnum, fallega dillandi hlátrinum sínum og heillandi, tindrandi augnaráðinu sínu. Það er með kæru þakklæti sem ég kveð þessa fallegu og lítillátu konu og votta Ingólfi og Júlíu Guð- rúnu dýpstu samúð. Guð blessi minningu Sísíar. Guðrún Elísabet. Sigríður Guðlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.