Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 189. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is KVEIKIR NEISTANN BJÖRT Í GESTGJAFAHLUTVERKI Á LISTA- HÁTÍÐ UNGS FÓLKS Á SEYÐISFIRÐI >> 18 BALTASAR: ÉG ER MÁRI Í LOPAPEYSU SMEKKMAÐUR ÍSLENSKUR AÐALL >> 40 FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ÞEGAR starfsemi leggst af í rækju- vinnslu Ramma hf. á Siglufirði í október missir 31 starfsmaður vinnuna og tapast þar með um 7% starfa í bænum. Allt starfsfólkið er íslenskt utan einn Rúmeni, margt er komið á miðjan aldur og á að baki langan starfsaldur hjá fyrirtækinu. Í framhaldinu er óvíst hvernig líftækni- fyrirtækinu Primex reiðir af, en það stundar úrvinnslu á rækjuskel. Þegar síð- asta rækjuvinnslan í bænum hættir er óljóst hvaðan hráefnið kemur. Rammi hf. hefur rekið rækjuvinnsluna síðan 1986 og lengi vel störfuðu þar um 130 manns, á vöktum allan sólarhringinn. Síðustu ár hefur aðeins verið unnið á dag- inn og í vetur stöðvaðist starfsemin um nokkurra vikna skeið vegna hráefnis- skorts. Þessi samdráttur er ekkert eins- dæmi, störfum í sjávarútvegi hefur snar- fækkað á Siglufirði eins og víðast hvar á landinu. Rammi hf. skilaði iðgjöldum til verkalýðsfélagsins Vöku fyrir 351 starfs- mann fyrir tíu árum, en í ár hafa einungis borist iðgjöld vegna 56, auk sex starfs- manna Egilssíldar. Sá rekstur tilheyrði áður fyrirtækinu, en er nú rekinn sjálf- stætt. Verkamenn, sjómenn, iðnaðarmenn og verslunarfólk á Siglufirði er flest í Vöku, en ríkisstarfsmenn og bankamenn standa að mestu þar fyrir utan. Þeir sem greiddu iðgjöld til félagsins voru 816 fyrir tíu árum en eru 295 í ár. Menntunarmöguleikar lykilatriði Þrátt fyrir allt ríkir talsverð bjartsýni á Siglufirði. Fólki fjölgaði í bænum á milli 2005 og 2006 eftir stöðuga fækkun árin á undan og ýmis starfsemi hefur byggst upp eða er í bígerð. Sparisjóðurinn er með 30 manns í vinnu við fjarvinnslu fyrir lífeyrissjóðina, stækkun sjúkrahússins er fyrirhuguð og vinna stendur yfir við gerð Héðinsfjarðarganga. Þegar þau verða komin í gagnið er fyrirhugað að fram- haldsskóli taki til starfa á Ólafsfirði. Signý Jóhannesdóttir, formaður Vöku, telur bætta menntunarmöguleika í heima- byggð lykilatriðið í aðgerðum vegna vænt- anlegra uppsagna og minnir á að lög um vinnumarkaðsaðgerðir kveði á um að greiða megi fólki atvinnuleysisbætur á meðan það sækir sér menntun til nýrra starfa. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Frá Siglufirði Störfum í sjávarútvegi hefur fækkað stöðugt síðustu ár. Leita nýrra atvinnu- tækifæra Rækjuvinnsla á Siglu- firði leggst af í október Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is SEXTÍU brot, sem varða akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, voru skráð hjá lögreglu í júnímánuði eingöngu. Jafngildir þetta tveimur brotum á dag í júní. Eru því skráð brot í þessum málaflokki orðin 210 talsins á tímabilinu 1. jan- úar til 30. júní. Í fjórtán banaslysum í fyrra voru ofsaakstur, áfengi og fíkniefni meginorsök, en þetta er helmingur allra slysa á árinu, skv. upp- lýsingum frá Umferðarstofu. Ölvaðir ökumenn urðu valdir að níu banaslysum og í tveimur slys- um til viðbótar fóru verulega ölvaðir einstak- lingar í veg fyrir umferð. Í einu slysi var öku- maður undir áhrifum ólöglegra fíkniefna. Að sögn Páls E. Winkels aðstoðarríkislög- reglustjóra breyttust ákvæði umferðarlaga í fyrra sem höfðu í för með sér nákvæmari skil- greiningu á brotum af þessu tagi. „Það eitt að ávana- eða fíkniefni mælist í blóði ökumanns merkir að hann er þar með orðinn óhæfur til að stjórna ökutæki,“ bendir hann á. „Áður voru þessi mál matskennd með því að sérfróðir aðilar urðu að meta í hvert sinn hvort magn fíkniefna í viðkomandi ökumanni væri nægjanlegt til að gera hann algerlega óhæfan til aksturs.“ Ekkert umburðarlyndi Ef ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna er tekið sérstakt próf á staðnum sem gefur vísbendingu um neyslu og í framhaldi er tekið blóðsýni til stað- festingar. Reynist það jákvætt missir ökumaður réttindi sín þangað til dómur kveður nánar upp úr með ökuleyfissviptingu á grundvelli ákæru. „Lögreglan hefur nú mun öflugri tækjabúnað til að mæla fíkniefni í ökumönnum og auk þess hefur eftirlitið verið hert,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. „Samkvæmt nýjum umferðarlögum er engu umburðarlyndi gagnvart þessum brotum til að dreifa. Ef ökumaður er staðinn að akstri undir áhrifum einhverra ólöglegra fíkniefna missir hann ökuréttindin og skiptir þá engu hversu lítil eða mikil vímuáhrifin eru. Það hafa hlotist af mjög alvarleg slys vegna þessara brota, jafnvel banaslys, en sem betur fer er lögreglan í dag betur í stakk búin til að uppræta þennan ófögn- uð. Svo virðist sem þess misskilnings hafi gætt hjá fólki að „auðveldara“ sé að komast upp með akstur undir áhrifum fíkniefna í samanburði við ölvunarakstur, en með nútímatækni er hægt að afhjúpa neyslu þessara efna á staðnum.“ Tveir eru teknir dag hvern undir áhrifum fíkniefna Lögreglan getur greint fíkniefni í ökumönnum á staðnum ÞEIM sem áttu leið fram hjá flettiskilti við Kringluna í gær hefur eflaust brugðið nokkuð í brún þegar þeir sáu hitamælinn sem trónir ofan á skiltinu. Víst er að nokkrum hefur fundist heitt, enda heiðskírt og samkvæmt töl- um Veðurstofunnar um 15 stiga hiti en vafalaust hefur fáum dott- ið í hug að hitinn væri jafnhár og mælirinn gaf til kynna. Hefði sú verið raunin mættu Ís- lendingar vera stoltir af því að slá heimsmet, en hæsti hiti sem hing- að til hefur mælst á jörðinni er 57,7 gráður en það var í Líbýu í Afríku. Skýringuna er þó ekki að finna í dularfullum kenningum eða skyndilegri aukningu gróður- húsaáhrifa heldur einfaldlega góðri og gamaldags tæknibilun.Morgunblaðið/Frikki Lygamæl- ir slær met Á einum stað í Reykjavík var heitara en víðast hvar í heiminum HINN 1. ágúst næstkomandi hefst formlega starfsemi Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands, sem verður til við sameiningu Iðntækni- stofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Í auglýs- ingu frá Iðntæknistofnun í Morgunblaðinu í gær segir þó að vegna sumarleyfa verði stofnunin í raun lokuð til þriðjudagsins 7. ágúst, en skiptiborð taki við skilaboðum þangað til. Samkvæmt bráðabirgðaákvæðum laga um stofnun fyrirtækisins sem sett voru í mars eiga starfsmenn þeirra stofnana sem nú leggjast af rétt á starfi hjá Nýsköpunarmiðstöðinni með sömu ráðningarkjör- um og áður giltu, en Þorsteinn Ingi Sigfússon, nýskipaður forstjóri stofnunarinnar, segir að mjög erfitt hafi reynst að manna fyrirtækið þessa fyrstu daga eftir formlega opnun, vegna sumarleyfa. Eiginleg starfsemi hefst því ekki fyrr en viku eftir formlega opnun. Nýskipunarmiðstöð Íslands er ætlað að styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs og styðja við frumkvöðla og sprota- og nýsköp- unarfyrirtæki, auk þess að stunda tæknirannsóknir og greiningar. Starfsemi hefst með sumarleyfum 26 79 / IG 12 Þú færð IG-veiðivörur á næstu þjónustustöð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.