Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 39
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Sýnd kl. 4 og 5:45 Með íslensku tali
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU
MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
eee
S.V. - MBL.
www.laugarasbio.is
"LÍFLEG SUMARSKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
Miðasala á
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
Evan hjálpi okkur
“Besta sumarmyndin til þessa”
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
“Pottþéttur
hasar”
“... vandaður sumarsmellur
með hátt skemmtanagildi
fyrir fleiri en hasarunnendur”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
STÆRSTA
GRÍNMYND SUMARSINS
“2 vikur á toppnum!”
Taxi 4 kl. 6 - 8 - 10
1408 kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Die Hard 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Magnaður spennutryllir
sem sló óvænt í gegn í Bandaríkjunum
Byggð á sögu Stephen King
FRÁ
LEIKSTJÓRA
BRUCE
ALMIGHTY
Sýnd kl. 6, 8, og 10 Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10
450 k
r.
Sýnd kl. 4 Ísl. tal - 450 kr.
“Besta sumarmyndin til þessa”
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
“Pottþéttur
hasar”
“... vandaður sumarsmellur
með hátt skemmtanagildi
fyrir fleiri en hasarunnendur”
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
Yippee Ki Yay Mo....!!
Sýnd kl. 7:30 og 10
Byggð á sögu Stephen King
“2 vikur á toppnum!”
NÚ VERÐUR ALLT GEFIÐ Í BOTN
HÖRKUSPENNANDI GRÍNMYND
FRÁ LUC BESSON
Yippee Ki Yay Mo....!!
-bara lúxus
Sími 553 2075
Magnaður spennutryllir sem sló
óvænt í gegn í Bandaríkjunum
KVENNASVEITIN Heimilistónar
hefur sent frá sér plötuna Herra ég
get tjúttað. Auk geisladisksins fylgir
útgáfunni DVD-diskur með heimild-
armyndinni Heimilistónar í Am-
eríku. Myndin segir frá ferð hljóm-
sveitarinnar til Bandaríkjanna,
tónleikahaldi hennar og ýmsum æv-
intýrum þar í landi.
Tónlist Heim-
ilistóna er létt popp
frá sjöunda áratugn-
um sem hefur verið
snarað yfir á ís-
lensku. Textarnir
eru oft þýddir beint yfir á íslensku
og eru afskaplega skemmtilega sam-
settir. Beinu þýðingarnar gera þá
oft skemmtilegri en ella, þeir verða
fyndnari og hrárri fyrir vikið.
Myndin er skemmtileg viðbót
enda flestar liðskonur Heimilistóna
vandaðar leikkonur. Ekki fer mikið
fyrir raunsæi en til þess var leik-
urinn ekki gerður. Herra ég get
tjúttað var nú líklega ekki tekin upp
í þeim tilgangi að breyta tónlistar-
sögunni en engu að síður er hún
mjög skemmtileg. Mér þótt best að
hlusta á hana við heimilisstörfin og
legg til að aðdáendur sveitarinnar
geri slíkt hið sama. Tónlist á borð við
þessa á að gleðja – og ná dömurnar í
Heimilstónum svo sannarlega að
koma því verki til skila.
Gleðitónar Heimilistóna
TÓNLIST
Geisladiskur + Mynddiskur
Heimilistónar – Herra ég get tjúttað
Helga Þórey Jónsdóttir
HLJÓMSVEITIN Lada Sport hefur verið starfandi um
alllangt skeið. Hún tók þátt í Músíktilraunum árið 2004 og
varð þar í öðru sæti. Síðan þá hafa orðið talsverðar manna-
breytingar í sveitinni sem hún hefur staðið af sér með
prýði.
Time and Time Again er fyrsta stóra plata sveitarinnar.
Tónlistin er hresst rokk í anda Weezer og fleiri álíka
hljómsveita – án þess þó að hún sé stónerrokksveit. Mér
þótti ég einnig heyra áhrif frá Dinosaur Jr og fleiri síð-
rokkssveitum. Engu að síður hefur Lada Sport sinn eigin
hljóm, hún er ekki ein af þessum sveitum sem apa eftir eft-
irlætistónlistarmönnunum sínum og gefa
það út á plötu. Frekar fylgja meðlimir
hennar þeim stíl sem þeim líkar og leika
sér innan hans.
Lögin eru afskaplega vönduð og vel
samin. Útsetningarnar ganga upp og henta
lögunum ágætlega. Textana myndi ég seint kalla tímamóta-
verk en þeir eru skemmtilegir, oft fyndnir og jafnvel fullir
af reiði. Lagið „Gene Pacman“ þótt mér sérstaklega
skemmtilegt en auk þess má nefna „The World is a Place
for Kids Going Far“ sem einnig er hressandi tónsmíð.
Lada Sport má vel við plötu þessa una. Hún er vönduð og
metnaðarfull auk þess sem hljóðfæraleikurinn er mjög fínn.
Við að hlusta á plötuna varð mér þó ljóst að Lada Sport nýt-
ir ekki fyllilega þá fjölbreytni sem sveitin býr greinilega yf-
ir. Það sem skortir er bætt upp með virkilega góðu samspili
og mjög sterkum lagasmíðum. Á heildina litið er þetta mjög
eiguleg plata, stútfull af fallegu gleðirokki.
Hrífandi gleðirokk
TÓNLIST
Geisladiskur
Lada Sport – Time and Time Again
Helga Þórey Jónsdóttir
Á DÖGUNUM kom út safndisk-
urinn Gleðilegt sumar sem inni-
heldur 17 lög sem eru að stærstum
hluta ný frumsamin lög eða nýjar
upptökur. Meðal flytjenda á plöt-
unni má nefna Pál Óskar með „Allt
fyrir ástina“, Silvíu Nótt, Todmo-
bile, LÍZU, Ingó Idol, Hreim Örn
Heimisson, Vini vors og blóma,
Frummenn, Sigrúnu Völu, rokk-
sveitina Mána, kántrísveitina
Klaufa, Oxford, Tomma rótara, Jó-
hönnu Wiklund og Raflost.
Af þessari upptalningu má sjá að
um skemmtilega blöndu af lista-
mönnum er að ræða, allt frá stórk-
anónum í íslenskri tónlist til ungra
efnilegra listamanna, segir m.a. í
fréttatilkynningu frá útgefendum.
Hagnaður af útgáfunni rennur
óskertur til góðgerðarmála.
Sumar Hinir gamalkunnu Vinir
vors og blóma eiga lag á plötunni.
Gleðilegt sum-
ar komin út
FATAHÖNNUÐURINN Stella
McCartney er ólétt. Þetta er
þriðja barn Stellu og eiginmanns
hennar Alasdha-
ir Willis en að-
eins eru sjö
mánuðir síðan
annað barn
þeirra hjóna
fæddist.
Stella er dótt-
ir Bítilsins
Pauls McCart-
ney og segir
heimildarmaður
Daily Mirror að
Paul elski að
hafa fjölskyld-
una í kringum
sig og það hafi
komið honum í gegnum skiln-
aðinn við Heather Mills.
Stella, sem er 35 ára, fæddi
dótturina Bailey Linda Olywn 8.
desember á síðasta ári. Fyrsta
barn hennar og James fæddist 25.
febrúar 2005 og von er á þriðja
barninu í lok þessa árs.
Því hefur verið slegið fram að
Stella muni biðja annaðhvort fyr-
irsætuna Kate Moss eða fatahönn-
uðinn Sadie Frost um að vera
guðmóðir næsta barns, en þær
stöllur þrjár eru miklar vinkonur.
Von á þriðja
barninu
Stella McCartney