Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
FJÖLBREYTT fuglalíf er í Viðey en
æðarfugl er þar algengastur fugla en
varptíma hans lýkur venjulega í upp-
hafi júlímánaðar. Aðrar algengar
fuglategundir í eyjunni eru fýll, grá-
gæs, hrossagaukur, sendlingur, og
tjaldur en alls verpa þar um 30 fugla-
tegundir. Þessir og aðrir íbúar eyj-
unnar úr dýraríkinu hafa hins vegar
fengið sjaldséða nágranna: Steypubíl,
skotbómulyftarara, skurðgröfu og
dráttarvél en framkvæmdir eru nú í
fullum gangi við friðarsúlu Yoko Ono.
Þótt Viðey sé ekki langt undan höf-
uðborginni gerir hafið sem á milli er
það að verkum að flutningur á efnum
og tækjum er háður ýmsum vand-
kvæðum. Ber þar helst að nefna að
sigla þarf með efni,verkfæri og vinnu-
vélar yfir sundið. Jafnframt kann að
reynast torvelt að skreppa út í næstu
verslun ef eitthvað gleymist.
Í stað þess að steypubílnum sé ekið
heim til steypustöðvar í hvert skipti
til að sækja steypu hefur nokkru
magni hráefnis verið landað í Viðey
en því hefur síðan verið blandað sam-
an í steypubílnum.
Þótt umfangsmiklar framkvæmdir
hafi verið gerðar á eyjunni er nú orðið
þó nokkuð síðan að þurft hefur slíkan
tækjakost. Helst má nefna að þegar
Reykjavíkurborg tók við eyjunni árið
1986 voru gerðar miklar endurbætur
á Viðeyjarkirkju og Viðeyjarstofu en
stórt jarðhýsi var þá steypt við Við-
eyjarstofu.
Geislarnir munu hríslast upp
Stefnt er að því að friðarsúlan verði
vígð þann 9. október næstkomandi
eða á afmælisdegi Johns Lennons.
Ekki hefur verið upplýst að fullu
hvernig endanleg mynd listaverksins
verður en Svanhildur Konráðsdóttir,
sviðsstjóri menningar- og ferðama-
álsviðs Reykjavíkurborgar segir að
„súlan“ verði í raun margir ljós-
geislar sem muni hríslast upp frá
jörðinni og sjást úr nokkurri fjar-
lægð. Hönnun verksins er ekki ein-
föld og segir Svanhildur að áskorun
verkefnsinsins hafi verið að finna leið
til að koma sýn listamannsins í fram-
kvæmd þannig að verkið falli að um-
hverfinu. „Það hefur tekið töluvert
langan tíma og mikla leit að finna
réttu ljósin, sem bæði eru af réttum
lit og styrkleika og búa yfir þeim eig-
inleikum að ná fram þessum mark-
miðum sem Yoko Ono og við höfum
sett.“
Verkið er hringur sem er um 18
metrar í þvermál en í miðju hans
verður síðan brunnur þaðan sem ljós-
ið mun berast. Svanhildur segir ís-
lenskt berg verða notað í verkið og
það muni því falla mjög vel að um-
hverfinu þegar ekki verði kveikt á
ljósgeislunum. Ekki er gert ráð fyrir
að kveikt verði á súlunni allt árið um
kring en í ár munu geislar berast frá
verkinu frá og með 9. október til 8.
desember, en sú dagsetning er tákn-
ræn fyrir að þann dag árið 1980 lést
John Lennon . Einnig mun loga á súl-
unni á gamlársdag og því næst eina
viku á vorjafndægrum á næsta ári
sem og við sérstök tækifæri.
Vinnusvæði í Viðey Eftir mikla hönnunarvinnu eru framkvæmdir nú hafnar við listaverk Yoko Ono, friðarsúluna
sem varpa mun upp ljósgeislum í vetur, en verkið er tileinkað friði í heiminum.
Morgunblaðið/RAX
Nýir Viðeyjarbúar Ýmsar vinnuvélar hafa sést í Viðey upp á síðkastið og ráku sumir upp stór augu þegar sást til steypubíls þar í vikunni enda umferð slíkra bíla ekki algeng þar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Friðarsúla Yoko
Ono rís í Viðey
KAUPVANGSSTRÆTI 6 var að
miklu leyti tekið í notkun í gær eftir
endurbætur og mun nú hýsa veit-
ingastaðinn Friðrik V. Húsið er
breytt að innan jafnt sem utan, en
ytra heldur það að stórum hluta af
upprunalegu útliti sínu.
Á efri hæð hússins, sem búið er að
taka í notkun, er veitingasalur,
veislusalur, bar, eldhús, starfs-
mannaaðstaða, móttaka og salerni.
Á neðri hæðinni verður sælkera-
verslun og hádegisverðarstaður, en
lokið verður við að innrétta þá hæð í
mánaðarlok, að sögn Arnrúnar
Magnúsdóttur, annars eiganda veit-
ingastaðarins Friðriks V.
Framkvæmdir við húsið hófust í
byrjun mars en í febrúar undirrit-
uðu staðurinn og KEA samning um
verkefnið og leigu hússins til 10 ára.
Verkið var því fljótunnið og klárað
þegar háannatími ferðamennsk-
unnar á Akureyri er ríkjandi. Fyrstu
tvo dagana eru væntanlegir á fjórða
hundrað gestir á veitingastaðinn.
„Aðstaðan verður betri og þjón-
ustan enn fjölbreyttari. Kjarninn í
ímynd okkar verður þó sem fyrr að
byggja á hráefni úr heimahéraði.
Það gerum við á veitingastaðnum og
í nýju sælkeraversluninni þar sem
ímynd eyfirskra matvæla verður
haldið á lofti með ferskum mat-
vörum og spennandi nýjungum. Við
viljum vera veitingahús í fremstu
röð, staðsett í hjarta Eyjafjarðar, og
það að vera komin inn í þetta hús er
gleðiefni fyrir okkur,“ segir Friðrik
V. Karlsson, aðaleigandi staðarins.
Friðrik V tekur til starfa í Grófargili
Uppgert Nýja húsnæðið er samtals 460 fm, sem rúma veitingahús, sælkeraverslun og hádegisverðarstað.
Ánægður Friðrik V. Karlsson tekur við heillaóskum og blóma-
gjöf úr hendi Halldórs Jóhannssonar, framkvæmdastjóra KEA.
Opið Sigrún Björk bæjarstjóri afhjúpaði
merkið og opnaði staðinn formlega.
Aldargamalt hús öðlast líf á nýjan leik
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Lúxus Húsið er hið glæsilegasta að innan og að hluta til á tveimur hæðum.