Morgunblaðið - 02.09.2007, Síða 33
sýningar annars staðar og það er
fullt af flottum ungum söngvurum.“
Þegar söngmarkaðurinn glæddist
aftur, hætti Kristján starfi við
tónlistarakademíuna í Vatíkaninu.
Hann hafði líka snúið sér að
einkakennslu og segist ætla að halda
henni áfram. Hann segist meðal
annars hafa aðstoðað eina tíu
íslenzka söngvara. Líkar honum
kennslan svona vel?
„Hún er ofsalega ánægjuleg,
þegar hæfileikana og metnaðinn
skortir ekki. Satt að segja hef ég
komið sjálfum mér á óvart, því
þolinmæði er ekki mín sterkasta
hlið, en það er með ólíkindum hvað
ég nenni að tuða við kennsluna.“
Moskvu vantar á listann
– Hvað ætlarðu að vera lengi að?
„Meðan heilsa og vilji eru í lagi, þá
eru mér allir vegir færir. Ég er nú
búinn að vera í yfir 30 ár í þessum
dramatísku óperum og
raunsæisóperum, þar sem
raddheilsan og raddstyrkurinn gera
útslagið. Og ég er enn í toppformi.
Ég segi það hreinskilnislega; ég er
að koma frá því að syngja í Aidu og
ég er stoltur af frammistöðunni. Mér
líður bara eins og ég sé 35 ára.“
– Er einhvers staðar óperuhús,
sem þú átt eftir að koma fram í?
„Ég er nú búinn að syngja víða.
En það er eitt hús, sem mig langar
að bæta á listann; óperuhúsið í
Moskvu.“
– Reykjavík?
„Segðu frekar óperuna í
Kópavogi. Mér skilst að óperan
verði hornreka í Tónlistarhúsinu í
Reykjavík. En í Kópavogi ætla
menn að reisa óperu. Þeir höfðu
samband við mig og vilja hafa mig
með.“
– Hvert er þitt álit á óperupoppi?
„Ég er ekki á móti því. Pavarotti
hefur verið ófeiminn við það. En
Nota Bene: eftir 30 ára feril sem
toppóperusöngvari. Ég skil vel
viðleitni manna sem vilja færa
óperuformið nær fólkinu með
þessum hætti. Ég held að þegar allt
kemur til alls þá fjölgi
óperuaðdáendum bara fyrir vikið.
Og það hlýtur að vera af hinu góða.
Sjálfur gaf ég út geisladisk fyrir
þremur árum sem má segja að sé í
þessa áttina. Reyndar var efni hans
frumsamið fyrir mig þannig að um
hreina nýsköpun var að ræða. Þetta
gekk nú ekki eins vel og ég vonaði.
Ég hef nú breytt þessu efni dálítið
og bætt við lögum og ætla að kynna
þetta í Kínaferðinni.
Við skulum sjá hvað setur.“
Langar að syngja
Pagliacci á Íslandi
– Er ný geislaplata á leiðinni?
„Ég hef safnað saman 40 aríum og
lögum, því bezta sem ég hef gert og
mig langar til þess að þetta komi út
á tvöföldum geisladiski.
Ég er ekkert farinn að fara á
fjörurnar við einhvern útgefanda.
Kannski ég geti selt þeim
hugmyndina austur frá!“
Kristján segist hafa sungið inn á
nokkur óperumyndbönd og einar 30
geislaplötur. Á 80 ára afmælisplötu
Arena de Verona, sem kom út 1993,
syngur Kristján úr Aidu og hefur
platan selzt í 3 milljónum eintaka.
Kristján hefur sungið í Verona í
Aidu 110 sinnum í fjórum
mismunandi uppfærslum.
– Er Aida uppáhaldsóperan?
„Ég hef sungið Toscu yfir 200
sinnum, í mörgum helztu
óperuhúsum heims, þar á meðal
Metrópólitan. Og ég hef sungið hana
tvisvar hér heima; konsertuppfærslu
og í Þjóðleikhúsinu. Mér þykir
rosalega vænt um það hlutverk.
Í seinni tíð með aldri og reynslu
hefur Óþelló hrifið mig meir og meir.
Og mig langar til að syngja Pagliacci
hér heima.“
Eins og samtalið byrjaði á
fjölskyldunótum fyrir norðan endum
við Kristján í túninu heima; við
Gardavatnið.
„Við hjónakornin höfum komið
okkur upp nýju tómstundagamni.
Við keyptum okkur bát og förum nú
öllum stundum út á Gardavatn, þar
sem við upplifum ekkert nema
unaðinn.
Stundum förum við með fleira
fólki og þá er kannski farið út á mitt
vatn, bátarnir bundnir saman, og
svo eigum við skemmtilega samveru
í mat og drykk.“
– Er fiskur í vatninu?
„Fullt af honum. En ég hef ekki
ennþá veitt í matinn.“
aríuna
freysteinn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2007 33
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Laya Yoga
Upplýsingar í síma 862-7675,
Björg Einarsdóttir, Sjúkranuddari - Reikimeistari
Í Laya Yoga er áhersla lögð á að skynja
orkustöðvar líkamans. Við tengjumst sköpun
hugans og sálarinnar með því að örva
ímyndunarafl og innsæi í leiddum hugleiðslum.
Kynningarkvöld:
Mánudaginn 3. sept.
í Bolholti 4, 4. hæð,
kl. 20.00.
Meðal efnis:
• Æðra Sjálfið
• Karma
• Sálarlexíur
• Fyrri líf
• Orkustöðvar
Hugleiðslunámskeið
Námskeiðið hefst
mánudaginn 10. sept.