Morgunblaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 80
80 SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
Ertu ungur námsmaður íleit að húsnæði? Viltukynna þér upplýsingarvarðandi skattgreiðslur
þínar? Ertu kominn á efri ár og
þarft að kanna lífeyrismálin? Ertu í
sambúð og vilt grafast fyrir um
réttarstöðu þína?
Hafirðu áhuga á að leita svara
við ofangreindum spurningum þá
er síðan www.island.is nokkuð
merkileg uppflettirit með ýmsum
upplýsandi og handhægum fróð-
leik.
Bílar, húsnæði, sjúkrahús
Á www.island.is er í kjarnyrtu
máli hlaupið yfir ýmsa praktíska
þætti lífsins. Í yfirflokknum „Bíll-
inn“ er til að mynda hægt að skoða
undirflokka eins og „Ökunám og
-réttindi“, „Bifreiðakaup“, „Skrán-
ing og skoðun“ og „Bifreiðatrygg-
ingar og -gjöld“. Hér er augljóslega
ekki um neina skemmtilesningu að
ræða, en það er ábyggilegt að gott
getur verið að fá svör við atriðum
sem tengjast þessum hlutum.
Einnig er til dæmis hægt að
skoða ýmislegt er viðkemur hús-
næðiskaupum, leiguhúsnæði og bú-
ferlaflutningum, heilbrigðisþjón-
ustu og réttindum sjúklinga.
Öll erum við jú neytendur. Á
www.island.is má nálgast ýmsar
handhægar upplýsingar, til að
mynda um samninga, kaup og vöru-
Praktískir þættir lífsins
Nýtileg www.island.is, er handhægt uppflettirit fyrir þá sem eitthvað eru að vesenast eða grúska í málum sem
þeir hafa kannski ekki mikla þekkingu á, svo sem lífeyrissjóðstekjum og tekjutryggingarauka.
öryggi. Öryrkjar og fatlaðir geta og
glöggvað sig á réttindum sínum. Þá
er útskýrt hvað felst í greiningu
fatlaðra og örorkumati.
Börn geta skoðað ýmislegt er
snertir leik þeirra og störf. Ung-
lingar á aldrinum 13–16 ára geta,
svo dæmi sé tekið, fræðst um það
að þeim er bannað að vera á al-
mannafæri eftir klukkan tíu á
kvöldin.
Loks gefst útlendingum kostur á
að átta sig á réttindum sínum og
skyldum, atriðum er snerta at-
vinnuleyfi og námskeið í íslensku.
Blaðrið útskýrt
Ýmis hugtök og skilgreiningar
sem iðulega heyrast í orðræðu
pólítíkusa og ráðamanna eru skýrð
á www.island.is. Á síðunni er ein-
faldlega orðabók með stuttum og
hnitmiðuðum skýringum á fallegum
orðum einsog „lífeyrissjóðstekjur“
og „tekjutryggingarauki“.
Hér er stiklað á stóru. Umfjölluð
síða, www.island.is, er handhægt
uppflettirit fyrir þá sem eitthvað
eru að vesenast eða grúska í málum
sem þeir hafa kannski ekki mikla
þekkingu á.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: WWW.ISLAND.IS»
/ ÁLFABAKKA
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6:30 - 8:30 - 10:30 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 4 LEYFÐ DIGITAL
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 3:30 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.14.ára
DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.14.ára LÚXUS VIP
LICENSE TO WED kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.7.ára
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 3 - 5:30 LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 2:30 - 5:15 - 8 - 10:40 B.i.10.ára
THE TRANSFORMERS VIP kl. 2 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 12:30 LEYFÐ
HARRY POTTER kl. 12:30 - 3 B.i.10.ára
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
Þrjár vikur
á toppnum í USA
BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI?
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- S.V, MBL HLJÓÐ OG MYND
SÝND M
EÐ ÍSLE
NSKU
OG ENS
KU TAL
I
Ertu að fara að gifta þig?
Þá viltu alls ekki lenda í honum!!!
Drepfyndin gamanmynd með hinumeina sanna
Robin Williams og ungstirninu Mandy Moore.
HLJÓÐ OG MYND