Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 24
líka til sölu, að sögn listakon-
unnar. Til sýnis verður úrval af
hönnun Toru. Auk einstakrar ská-
lalínu úr handblásnu gleri í mörg-
um lögum verða til sýnis vasar,
drykkjarglös og minni skálar.
Tora hefur undanfarið ár unnið í
samvinnu við danska húsgagna-
framleiðandann Fritz Hansen, sem
markaðssetur og selur glerhönnun
hennar. Í Kaupmannahöfn fæst
hönnun hennar m.a. í versl-
ununum Den mindste designbutik,
Butik for borddækning og Stille-
ben.
Vildi kynnast japanskri list
Tora, sem er fædd árið 1960, er
yngst fjögurra systkina, barna
þeirra Guðrúnar Sigurðardóttur
og Jens Urup, sem kynntust í
Listaakademíunni í Kaupmanna-
höfn og hafa síðan starfað sem
listamenn. Eftir að mennta-
skólaárum Toru lauk, varð hún
mjög upptekin af öllu því sem jap-
anskt var svo hún dreif sig með
lest til Japans, þá 21 árs, með
smáviðkomu í dönskum listaskóla,
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Glerskálar hinnar íslensk-danskættuðu listakonuToru Urup eru enginsmásmíði því að hver
skál vegur heil átta kíló og þær
koma í öllum regnbogans litum.
Fínu skálarnar hennar Toru, sem
virka svo einfaldar en eru svo
flóknar í allri hönnun og fram-
leiðslu, kalla á óskipta athygli
augans enda er hver skál und-
urfagurt listaverk í sjálfu sér sem
hefur bæði notagildi og fer einkar
vel á hvaða borði sem er.
„Ég hef einkum áhuga á að sjá
hvernig fólk skynjar hlutina mína
og form með augum, tilfinningum
og öðru skynbragði sem það hefur
til að bera. Áhugi minn snýst ekki
um að búa til gagnlega hluti, sem
fara mega í uppþvottavélina, held-
ur miklu fremur fallega hluti sem
virka vel og geta gert gæfumun-
inn í minimalísku umhverfi,“
segir Tora í samtali við
Daglegt líf í gær á meðan
hún var að stilla verkum
sínum upp í versluninni
Epal í Skeifunni sem
opnar með pomp og
prakt um helgina eftir
870 fermetra viðbætur
við húsnæðið. Fyrir var
verslunarrýmið í 500
fermetrum, en nú hefur
verið aldeilis bætt um
betur með nýrri hæð.
Skálar, vasar og
drykkjarglös
Toru var boðið að sýna hönnun
sína í versluninni í tilefni tímamót-
anna, en munirnir eru vissulega
um víddum og sterkum sjón-
rænum áhrifum. Kringlóttu
glerskálarnar eru blásnar í lögum
af þunnu ópal-gleri og þykku
gegnsæju gleri. Hún segir að kar-
akter hráefnisins, litatónar og
þykkt þess kalli fram mismunandi
áhrif á rýmisskynjunina.
Listakonan vinnur að hönnun
sinni í Kaupmannahöfn, en segist
hafa nána samvinnu við glerblás-
arana sína í Tékklandi, sem sjái
um að blása glerið og búa hlutina
sína til. Því miður fari glerblás-
urum fækkandi og þekkingin í
Evrópu sé nánast að hverfa.
Ættuð úr Vigur og Skagafirði
Þegar betur er forvitnast um ís-
lenskar ættir Toru kemur í ljós að
föðurætt Guðrúnar Sigurð-
ardóttur, móður Toru, er úr Vigur
því faðir hennar var Sigurður Sig-
urðarson, fyrrum sýslumaður í
Skagafirði, og faðir hans var Sig-
urður Stefánsson, fyrrum alþing-
ismaður frá Vigur. Móðir Guð-
rúnar var hins vegar Stefanía
Arnórsdóttir og faðir hennar var
Arnór Árnason, fyrrum prestur í
Hvammi í Laxárdal í Skagafirði.
„Ég heimsótti Ísland síðast í sum-
ar með mömmu minni og svo fór-
um við á ættarmót í Vigur fyrir
tveimur árum. Þetta með að
spyrja hverra manna maður sé er
alveg séríslenskt, held ég. Við
spyrjum aldrei svona í Dan-
mörku,“ segir Tora og hlær um
leið og hún heldur áfram að raða
glermununum sínum upp í Epal.
Skálarnar kalla á sterk sjónræn áhrif
Mæðgurnar Tora ásamt íslenskri móður sinni Guðrúnu Sigurðardóttur,
sem sjálf lærði í Kúnstakademíunni í Kaupmannahöfn á sínum tíma.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Listakonan Tora Urup hannar m.a. veglegar skálar, blásnar í lögum af þunnu ópalgleri og þykku gegnsæju gleri.
Tora Urup, sem er ís-
lensk í móðurættina og
dönsk í föðurættina,
hefur nú í eitt ár unnið í
samvinnu við danska
húsgagnaframleiðand-
ann Fritz Hansen, sem
markaðssetur og selur
glerhönnun hennar.
þar sem hún
starfaði á ker-
amikverkstæði í gömlum og
frægum keramikbæ, sem heitir
Tokoname. Þar starfaði hún í hálft
annað ár og var auk þess að fitla
lítið eitt við gler, að sögn. „Ég
lærði mikið í Japan, en svo sneri
ég aftur til Kaupmannahafnar og
settist í Danish Design School þar
sem ég var í tvö ár í keramikinu
og í þrjú ár í glerinu. Að námi
loknu stofnaði hún verkstæði með
nokkrum skólafélögum, en dreif
sig svo í meistaranám í Royal Col-
lege of Art í Lundúnum árið 1994.
Hún sneri þá á ný til Danmerkur
og vann í mörg ár hjá Holmega-
ard glas og Royal Copenhagen.
Frá árinu 2001 hefur hún rekið
eigið fyrirtæki undir eigin nafni.
Hún hannar m.a. borðbúnað fyrir
fjöldaframleiðslu auk minni hluta,
en til að ná þeim gæðum, sem ein-
kenna list hennar, hefur hún sam-
starf við sérfræðinga í Evrópu og
Japan.
Glerblásararnir í Tékklandi
Formið er einfalt með tilvísun í
hefðbundna glermuni, en þekking
Toru á framleiðsluferlinu og hrá-
efninu gerir henni kleift að ná nýj-
daglegtlíf
Kraftmiklar göngukonur nutu
margréttaðrar arabískrar
veislumáltíðar sem borðaður
var með fingrunum.» 30
Fingramatur
Félagsmenn matarklúbbsins
Freistingar eru ánægðir með að
leggja Krabbameinsfélagi Ís-
lands lið í sinni baráttu.» 26
Lamb og lúða
|föstudagur|2. 11. 2007| mbl.is