Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Leikhúsin í landinu
Allir á svið
>> 49FREKAR MEÐAL
LILJA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, SÖNGKONA
BLOODGROUP, ER AÐALSKONA VIKUNNAR >> 55
FRÉTTASKÝRING
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
GLITNIR hefur sóst eftir því að
komast inn í virkjunarframkvæmd-
ir á Þeistareykjum, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Glitnir
lagði fyrir nokkru fram hugmyndir
að útfærslu um hvernig kaup Glitn-
is á hlut Orkuveitu Húsavíkur í
Þeistareykjum ehf. gætu farið
fram, en því tilboði hafnaði Orku-
veitan. Glitnir er einn af eigendum
Geysir Green Energy.
Einnig eru heimildir fyrir því að
til hafi staðið að Glitnir eignaðist
hlut í Þeistareykjum ehf. í gegnum
Akureyrarbæ. Það átti að gerast
með þeim hætti að Glitnir keypti
sig inn í Fallorku ehf,, sem stofnað
var um virkjanir frammi í Eyjafirði
og er í eigu Norðurorku hf. Lagt
var upp með að Norðurorka myndi
leggja eigur inn í Fallorku, m.a.
hlut sinn í Þeistareykjum ehf.
Þetta strandaði á því að Lands-
virkjun beitti sér gegn áformunum.
Þar héldu menn því fram að ef þeim
yrði hrint í framkvæmd myndi það
virkja forkaupsréttarákvæði ann-
arra eigenda, Landsvirkjunar og
Orkuveitu Húsavíkur. Skiptar
skoðanir eru á því meðal lögfræð-
inga hvort forkaupsréttarákvæðið
yrði virkt undir þessum kring-
umstæðum. En ekkert hefur orðið
úr þessum áformum að svo stöddu.
Enn á eftir að bora fyrir
milljarða á Þeistareykjum
Þá hefur verið leitað hófanna hjá
Orkuveitu Húsavíkur um mögu-
leika á kaupum á 1,7 megavatta
orkustöð sem tekin var í notkun ár-
ið 2000. Hún framleiðir raforku úr
heitu vatni frá Hveravöllum og
annar um 70% af orkuþörf Húsa-
víkur.
Það er sagt flækja málið að Glitn-
ir er viðskiptabanki Norðurþings
og Orkuveitu Húsavíkur og fjár-
magnaði orkustöðina og leiðsluna
að hluta. Norðurþing eigi eftir að fá
frekari fjármögnun frá bankanum,
því enn eigi eftir að bora fyrir millj-
arða á Þeistareykjum.
Morgunblaðið/BFH
Litadýrð Háhitasvæði Þeistareykja.
Glitnir á
Þeista-
reykjum?
Glitnir vildi kaupa í
Þeistareykjum ehf.
FORSENDUR borgarráðs fyrir því að hafna samruna
Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy eru
fyrst og fremst tvær, að mati Svandísar Svavarsdóttur,
formanns stýrihóps um samruna REI og GGE. Meðal ann-
ars að allar reglur hafi verið þverbrotnar, umboð farið fyr-
ir ofan garð og neðan auk þess sem kynningu og opinberri
umræðu hefði verið ábótavant.
Þrjár tillögur stýrihópsins voru lagðar fyrir og sam-
þykktar á fundi borgarráðs í gær. Í fyrsta lagi fellst borg-
arráð ekki á samruna REI og GGE og telur jafnframt að
þjónustusamningur Orkuveitu Reykjavíkur og REI sé
óviðunandi. Í öðru lagi telur borgarráð að eigendafundur
OR 3. október sl. og þær ákvarðanir sem þar voru teknar
séu háð miklum annmörkum og mikill vafi leiki á um lög-
mæti fundarins. Í þriðja lagi samþykkir borgarráð að
beina því til fulltrúa borgarinnar í stjórn OR að ljúka mál-
inu í samræmi við þessa niðurstöðu borgarráðs. Fulltrúar
allra flokka fögnuðu niðurstöðunni að loknum borgarráðs-
fundi og sagði Björn Ingi Hrafnsson m.a. að upplýsingar
hefðu komið fram um að ekki hefði verið rétt staðið að
samrunanum og því nauðsynlegt að byrja með hreint borð.
Samningar standa þar til annað kemur í ljós
Hannes Smárason, stjórnarformaður Geysir Green,
segist þurfa að fara yfir málið með lögmönnum félagsins
og telur samninga standa þar til annað kemur í ljós. „Það
eru samningar í gildi á milli aðila sem hljóta að standa þar
til menn semja sig frá þeim eða einhver utanaðkomandi
verður fenginn til að kveða upp dóm í þeim efnum.“
Ítrekað var reynt að ná í Bjarna Ármannsson, stjórn-
arformann REI, vegna málsins en án árangurs. Í fréttum
Stöðvar 2 sagði Bjarni hins vegar að ákvörðunin ylli sér
þungum vonbrigðum og sér sýndist að verið væri að kasta
verulegum fjármunum á glæ.
REI | 6 og miðopna
Allar reglur þverbrotnar í
samrunaferli REI og GGE
Í HNOTSKURN
»Samruni Reykjavík Energy In-vest og Geysir Green Energy
var samþykktur á hluthafa- og eig-
endafundi Orkuveitu Reykjavíkur
3. október sl.
»Svandís Svavarsdóttir höfðaðimál fyrir dómstólum þar sem
hún fór fram á að fundurinn yrði
dæmdur ógildur vegna formgalla.
»Borgarráð samþykkti í gær til-lögur stýrihóps Svandísar. Með
því lýsir ráðið sig mótfallið samruna
REI og GGE, og telur þjónustu-
samning OR og REI óviðunandi.
VOPN af ýmsum gerðum fundust í
húsleit sem lögreglan á Suður-
nesjum gerði síðdegis í gær, með
hjálp sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra, lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu og tollgæslunnar, í fé-
lagsheimili bifhjólasamtakanna
Fáfnis. Einnig fannst lítilræði af
ýmsum tegundum fíkniefna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins tengist húsleitin komu
meðlima úr bifhjólasamtökunum al-
ræmdu Vítisenglum (e. Hell’s Ang-
els) hingað til lands, en von er á
ótilgreindum fjölda meðlima um
helgina. Af þeim sökum verður við-
búnaður í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar með mesta móti. Talið
er að heimsóknin tengist 11 ára af-
mæli Fáfnis.
Tveir menn voru í húsakynnum
Fáfnis þegar lögreglu bar að. Að
sögn lögreglu var tekin skýrsla af
mönnunum og þeim í kjölfarið
sleppt. Morgunblaðið/Júlíus
Húsleit
hjá Fáfni
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að tímabundið landa-
mæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins fari fram í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar næstu daga. Eftirlitið hófst síðdegis í gær og stendur til
miðnættis á sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var í net-
útgáfu Lögbirtingablaðsins í gær.
Í yfirlýsingu sem dómsmálaráðherra sendi til aðalskrifstofu ráðherraráðs
Evrópusambandsins í gær kemur fram að gripið sé til tímabundins landa-
mæraeftirlits af sérstöku tilefni á næstu dögum sem ógni allsherjarreglu og
þjóðaröryggi. Nánari upplýsingum um hið sérstaka tilefni verði komið á
framfæri við samstarfsríki innan Schengen um SIRENE-samskiptakerfið.
Ekki er farið fram á almennar aðgerðir samstarfsríkja í Schengen. Sér-
stökum aðstoðarbeiðnum verður beint til tiltekinna samstarfsríkja innan
Schengen á grundvelli löggæslusamvinnu óháð landamærum. Jafnframt
kemur fram að Ísland muni tilkynna samstarfsríkjum innan Schengen taf-
arlaust um afnám persónueftirlits á innri landamærum og skila skýrslu um
framkvæmd ákvörðunar um landamæraeftirlit á innri landamærum.
Eftirlitið hert vegna
ógnar við þjóðaröryggi