Morgunblaðið - 03.11.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 300. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ENGLAHÖLL
HÚN HEFUR LENGI VERIÐ ÁNINGAR-
STAÐUR KUNNRA ÍSLENDINGA >> 21
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
ÍBÚÐALÁNAVEXTIR hafa ekki
verið hærri hér á landi í 6–7 ár. Kaup-
þing hefur ákveðið að hækka þá upp í
6,4% en fyrir rúmlega þremur árum,
þegar bankinn hóf að bjóða viðskipta-
vinum almenn húsnæðislán, voru
vextirnir 4,15%.
Þegar bankarnir fóru að bjóða hús-
næðislán voru stýrivextir Seðlabank-
ans 5,16%. Þeir fóru að hækka á síðari
hluta ársins 2004 og eru núna komnir
upp í 13,75%. Þessi mikla hækkun
knýr bankana til að hækka sína vexti.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
Greiningar Kaupþings, telur þó að
bankarnir hafi haldið aftur af sér við
hækkanir á verðtryggðum útlána-
vöxtum þar til undir sumarlok og
halda megi því fram að þeir hafi haft
lítinn eða engan hagnað af fasteigna-
lánum að undanförnu.
Tilgangur Seðlabanka með hækkun
vaxta er að reyna að stuðla að minni
fjárfestingum og minni eyðslu og þar
skiptir húsnæði miklu máli. Vaxta-
kjörin hafa augljóslega versnað mikið.
Maður sem tók 15 milljóna króna lán á
4,15% vöxtum borgaði 64.587 kr. á
mánuði í afborganir. Taki sami maður
jafnstórt lán eftir helgina á 6,4% vöxt-
um þarf hann að greiða 87.242 kr. á
mánuði. Hækkunin er 35%.
Fleiri erlend lán?
Búist er við því að Íbúðalánasjóður
þurfi að hækka vexti en ekkert liggur
þó fyrir um hvenær það gerist.
Óánægja hefur verið hjá Seðlabank-
anum með það hversu lengi Íbúða-
lánasjóður hefur verið að hækka vexti
en ein ástæðan fyrir því er að sjóð-
urinn hefur í skuldabréfaútgáfu lagt
áherslu á útgáfu til langs tíma en þar
hefur ávöxtunarkrafan verið lægri en
á skuldabréfum til skemmri tíma.
Það hefur færst í vöxt að fólk fjár-
magni húsnæði sitt með erlendum
lánum. Búast má við því að þessi nýj-
asta vaxtahækkun ýti undir þá þróun.
Bankarnir gera hins vegar strangari
kröfu um veðsetningu þegar tekin eru
gengisbundin lán enda er áhættan
meiri þar sem gengi gjaldmiðla getur
sveiflast verulega á skömmum tíma.
35% hærri
greiðslur
Húsnæðisvextir ekki
verið hærri í 6–7 ár
KÁTT var á hjalla í Flataskóla í
Garðabæ í gær þar sem sýningin
Þjóðadagur fór fram. Nemendur
skólans hafa að undanförnu tekið
þátt í verkefnavinnu þar sem þau
hafa fræðst um heimkynni hvert
annars, en nemendur Flataskóla
tengjast tuttugu og einu landi að Ís-
landi meðtöldu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þjóðadagur í Flataskóla
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN verð-
ur gangsett á mánudag, gangi áætl-
anir Landsvirkjunar eftir. Þá á að
ræsa fyrstu vél Fljótsdalsstöðvar af
sex fyrir vatni úr Hálslóni og keyra
hana á 115 MW afli.
Fullum vatnsþrýstingi er nú náð í
40 km löngum aðrennslisgöngum
milli Hálslóns og Fljótsdalsstöðvar
en þau liggja víðast á 150 m dýpi
undir Fljótsdalsheiði. Heildarfall-
hæð vatnsins úr Hálslóni að aflvél-
unum sex er 599 m. Lokaprófanir á
vélum virkjunarinnar standa yfir og
reiknað er með að þær verði ræstar
með viku til tíu daga millibili uns
virkjunin nær fullum afköstum í árs-
lok. Uppkeyrslutíminn fer þó eftir
því hversu hratt álver Alcoa Fjarða-
áls á Reyðarfirði getur tekið við raf-
orkunni.
Jökulvatnið úr Hálslóni mun nú
renna eftir aðrennslisskurði utan við
stöðvarhúsið í Fljótsdal, út í Jökulsá
í Fljótsdal og þaðan í Lagarfljót til
sjávar.
Kárahnjúkavirkjun
gangsett eftir helgi
„STJÓRNIN samþykkir einróma að
fallast á tilmæli borgarráðs um að
hverfa frá samrunanum og öðrum
umdeildum ákvörðunum sem teknar
voru á fundinum 3. október,“ segir
Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur.
Henni var af stjórn OR falið að ræða
um stöðu og framhald málsins við
aðra hluthafa í REI og aðra þá aðila
sem málið varðar. Í samtali við
Morgunblaðið leggur Bryndís
áherslu á að stjórn OR sé með sam-
þykkt sinni í gær ekki að hverfa frá
útrás OR. „Það stendur ekki til,
heldur þarf að finna henni farveg á
nýjum grunni,“ segir Bryndís.
„Ég fagna þessari niðurstöðu,“
segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
stjórnarmaður í OR. „Við erum kom-
in aftur á ákveðinn núllpunkt. Nið-
urstaðan er sem sé sú að málið var
svo illa ígrundað og illa undirbúið að
það var ástæða til að setja það aftur
á byrjunarreit.“ | Miðopna
Hætt við
samruna en
ekki útrás
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÁTTA meðlimum bifhjólasamtakanna Vítisengla
(Hell’s Angels) var í gærdag og gærkvöld neitað
um leyfi til landgöngu við komuna til landsins.
Eiginkonur tveggja voru með í för og líklegt er
talið að þær fylgi mönnum sínum þó svo þeim
standi til boða að sækja landið heim. Fólkið
dvaldi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nótt. Gert
er ráð fyrir að það fari allt úr landi með áætl-
unarflugi fyrir hádegið, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, og að ganga megi út frá því að
tveir lögreglumenn fylgi hverjum og einum Vít-
isengli, alls sextán lögreglumenn – líkt og við
sambærilegar aðgerðir áður.
Áfram verður fylgst með komuflugi til lands-
ins um helgina og einnig fyrirhugaðri afmæl-
isveislu bifhjólasamtakanna Fáfnis sem fram fer
í kvöld, en meðlimir Vítisengla ætluðu að vera
þar viðstaddir. Nokkrir Fáfnismenn biðu af
þeim sökum í Flugstöðinni eftir félögum sínum
fram eftir degi.
Samkvæmt heimildarmanni Morgunblaðsins
eru nokkrir Vítisenglanna sem teknir voru
höndum í gær með dóma á bakinu fyrir alvarleg
brot. Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglu-
stjóra kemur fram að samtökin tengist fjár-
kúgun, fíkniefnaviðskiptum og ofbeldisbrotum.
Starfsemi þessari og veisluhöldum fylgi þá fíkni-
efnaneysla og ógn við frið og allsherjarreglu.
Enginn Vítisenglanna óskaði eftir lögmanns-
aðstoð eftir að þeim var synjað um landgöngu,
samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra.
Því er Oddgeir Einarsson, lögmaður hjá Opus,
ósammála og fullyrðir hann að haft hafi verið
samband við lögmannstofuna í gær og óskað eft-
ir aðstoð. Aðspurður segist hann ekki hafa feng-
ið að hitta mennina í gærdag.
Sextán lögreglumenn munu
fylgja Vítisenglum úr landi
Átta meðlimir bifhjólasamtakanna Vítisengla voru teknir höndum í Leifsstöð í gær
Í HNOTSKURN
»Á fimmtudag var ákveðið að taka upptímabundið landamæraeftirlit á innri
landamærum Schengen-svæðisins.
»Sama dag var gerð húsleit hjá Fáfni ogfundust m.a. vopn og fíkniefni.
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170
www.boconcept.is
EF ÞÚ FINNUR EKKI
RÉTTU STÖÐINA
EKKI KENNA OKKUR UM
X
E
IN
N
IX
0
7
11
0
01
Leikhúsin í landinu
Gott leikhús
>> 56