Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 24

Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 24
24 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI 200 MIÐAR seldust á árlega að- ventutónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands strax á fyrsta sölu- degi, skv. frétt frá hljómsveitinni. Tónleikarnir verða haldnir í Íþróttahöllinni laugardaginn 8. des- ember kl. 18 og einsöngvari verður Garðar Thor Cortes „sem er um þessar mundir að hasla sér völl um heim allan sem einn af okkar bestu söngvurum.“ Einnig syngur Söng- félagið Sálubót með hljómsveitinni. Á efnisskránni verður jóla- og að- ventutónlist. Stjórnandi er Guð- mundur Óli Gunnarsson. Miðasala fer fram í Pennanum-Eymundsson í Hafnarstræti. Morgunblaðið/Þorkell 200 miðar fóru strax Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is HUGMYND bæjaryfirvalda á Akur- eyri um að lækka niðurgreiðslur til fólks vegna dvalar barna þess hjá dagforeldrum hefur fallið í grýttan jarðveg. Undirskriftalistar liggja nú frammi hér og þar í bænum þar sem hugmyndinni er mótmælt. Ekki er langt síðan umræddar greiðslur til foreldra voru hækkaðar töluvert, en þá var ekki gert ráð fyrir því að börnum í daggæslu myndi fjölga jafnmikið og raunin hefur orð- ið. Þau voru 45 árið 1999 en eru nú 149, þrátt fyrir að fjöldi fæddra barna á ári hafi lítið breyst. Þá hefur kostnaðurinn við þessa þjónustu aukist mjög mikið eða úr rúmum 5 milljónum árið 1999 í tæpar 70 millj- ónir árið 2007. Samhliða hefur rým- um í leikskólum verið fjölgað um 416. Þegar farið var að taka 18 mánaða börn inn í leikskóla vorið 2006 var talið að börnum í daggæslu myndi fækka, en raunin varð þveröfug. Á sama tíma var ákveðið að for- eldrar greiddu sama gjald fyrir börn í daggæslu og í leikskólum. Þess vegna varð að leita eftir samningum við dagforeldra um hámarksgjald þar sem gjaldskrá þeirra var frjáls og gjaldið því mishátt. Hluti sam- komulagsins var að hámarksgjald yrði 65 þúsund krónur á mánuði fyrir átta tíma vistun á dag. Um leið var dagforeldrum skapað starfsöryggi í allt að 10 mánuði á ári ef barni hjá þeim væri boðið pláss í leikskólum Akureyrarbæjar og dagforeldrið fengi ekki annað barn í staðinn. Tryggingin er fólgin í því að Akur- eyrarbær greiðir dagforeldri áfram eins og ef það væri með barn í vistun þar til annað barn kemur í plássið. Samningurinn var til eins árs og á fundi fulltrúa bæjarins með viðræðu- hópi á vegum dagforeldra var á dög- unum kynnt sú hugmynd að hætt yrði að miða gjald foreldra við leik- skólagjaldskrána frá og með 1. jan- úar 2008. Þess í stað myndu foreldr- ar sem eru giftir eða í sambúð greiða 50% af gjaldi dagforeldra á móti Ak- ureyrarbæ og einstæðir foreldrar 40% á móti 60% Akureyrarbæjar. Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrar, segir það af illri nauðsyn sem hugmyndin kemur fram. Kostn- aðurinn við niðurgreiðslur til dag- gæslu sé orðinn miklu meiri en gert var ráð fyrir og því standi Akureyr- arbær frammi fyrir tveimur valkost- um; annars vegar að halda niður- greiðslunum óbreyttum og takmarka fjölda barna sem fá nið- urgreiðslu eða að lækka niður- greiðsluupphæðina til að geta greitt sömu upphæð með öllum börnunum. Hugmyndir um lækk- un vekja litla lukku Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mikill földi Mun fleiri börn eru hjá dagforeldrum á Akureyri en áður var. Í HNOTSKURN »Verði hugmynd bæjarinsað veruleika lækkar nið- urgreiðsla líklega um 10-12 þúsund kr. á mánuði, til giftra foreldra, með barni sem er í 8 tíma vistun á dag. Bent er á að þrátt fyrir það yrði niður- greiðslan meiri en annars staðar; 34.144 á Akureryri, 29.640 í Hafnarfirði, 30.000 í Kópavogi og 31.880 í Reykja- vík svo dæmi séu tekin. Í DAG fer fram haustþing Akureyr- arAkademíunnar og ber yfirskrift- ina Sauðkindarseiður í ull og orð- um. Samkoman er í Húsmæðra- skólanum við Þórunnarstræti kl. 13-19 og er óður til sauðkind- arinnar. Þar verður fléttað saman hugvísindum, búvísindum, listum og matarmenningu. Þingið er öllum opið og endurgjaldslaust. Óður til sauð- kindarinnar STJÓRN Akureyrarstofu hefur ákveðið að um miðjan janúar verði haldinn opinn hugmyndafundur íbúa bæjarins um hátíðarhöld um verslunarmannahelgina. Hvað vill fólk? BIRGIR Sigurðsson opnar í dag á Café Karolínu í Listagilinu sýningu sem hann kallar Café Karólína Versus Listasafn Reykjavíkur B- salur: Hugmynd að leið rafmagns. Sýningin hefst kl. 14. Hugmyndir að leið rafmagns FÉLAG áhugafólks um heimspeki á Akureyri ætlar að hefja vetrarstarf sitt á því að halda „heimspekikaffi- hús“ á sunnudögum. Hið fyrsta er á dagskrá á morgun, sunnudag, á Bláu könnunni á milli kl. 11 og 12. Fyrsti frummælandi verður Krist- ján Kristjánsson, prófessor í heim- speki við HA, en erindi hans ber heitið: Stafar illmennska undan- tekningalaust af fáfræði eða geð- sjúkdómi? Kaffihúsa- heimspeki JÓN Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði við Háskóla Íslands og forstjóri líftæknifyrirtækisins Ens- ímtækni ehf., flytur fyrirlestur um lyfjaþróun úr íslensku sjávarfangi nk. mánudag í Háskólanum á Akur- eyri. Einkum verður sjónum beint að fjáröflun hjá erlendum fjárfest- ingabönkum til verkefna í lyfjaþró- un og markaðssetningu. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L103 á Sólborg og hefst kl. 9.05. Allir eru velkomnir. Fjáröflun lyfjaþróunar Selfoss | Sig- urður Sigur- sveinsson, skóla- meistari Fjöl- brautaskóla Suðurlands, hef- ur sagt lausri stöðu sinni við skólann og gerir ráð fyrir að hætta þar störf- um 1. febrúar 2008. Hann hefur verið skólameist- ari í fjórtán ár og starfaði þar áður sem áfangastjóri í átta ár. „Það er engin sérstök ástæða fyr- ir þessu hjá mér – nema sú tilfinning að nú sé komið nóg. Þetta hefur ver- ið afar skemmtilegur tími við stjórn þessa skóla,“ sagði Sigurður sem til- kynnti starfsmönnum skólans þessa ákvörðun sína á fundi með þeim 1. nóvember. Hann fetar í fótspor Þórs Vigfús- sonar, fyrrverandi skólameistara, sem á sínum tíma tilkynnti ákvörð- un sína um að hætta sem skólameist- ari í byrjun nóvember, þá eftir rúm- lega 10 ára starf sem skólameistari. „Ég er bara að líta í kringum mig og hef ekkert ákveðið. Það kemur bara í ljós hvað verður,“ sagði Sigurður. Sigurður skóla- meistari hefur til- kynnt uppsögn Sigurður Sigursveinsson ÁRBORGARSVÆÐIÐ Árborg | Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt að koma á almenningssamgöngum á milli Selfoss, Eyrabakka og Stokkseyrar frá og með næstu áramótum. Fram kom á fundinum að Þing- vallaleið ehf. hefur sérleyfi á þess- ari akstursleið út næsta ár og var ákveðið að leita eftir samningum við fyrirtækið um verkefnið. Kostn- aður liggur ekki fyrir. Almenningssam- göngur á Eyrar Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | Fræðslunet Suðurlands stendur nú á haustönn fyrir nám- skeiði í pólsku fyrir áhugasama, eins og það er nefnt í kynningu. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á námskeið í pólsku hjá Fræðslunetinu en á vegum þess standa nú yfir fjölmörg námskeið. Þrettán nemendur sækja um þessar mundir 30 stunda námskeið í pólsku þar sem þeir fá innsýn í mál- ið og pólska menningu. Þeir sem sækja námskeiðið eiga það allir sammerkt að vera í einhverjum samskiptum við Pólverja í starfi og einkalífi og vilja sækja sér þekk- ingu og leiðsögn í því að fikra sig áfram við að læra pólskuna. Kennslan fer fram á átta kvöldum í skólastofum Fræðslunetsins í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Það er Aneta M. Matuszewska, kennari, bókavörður og leiðsögu- maður, sem kennir hópnum. „Það gengur bara vel að kenna Íslend- ingum pólsku og þetta er einn besti hópurinn sem ég hef verið með,“ sagði Aneta sem flutti kennsluna síðastliðinn fimmtudag inn í kennslueldhús Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar kom til liðs við hana Mirka Borecka sem starfar hjá Ási í Hveragerði. Hún stýrði nemendum í því að elda átta pólska rétti og fræddi þá um leið varðandi hráefni og aðferðafræði við elda- mennskuna. Þurftu nemendur að taka við og skilja fyrirskipanir hennar á pólsku varðandi matseld- ina og ef andlit þeirra urðu eitt spurningarmerki og ekkert ætlaði að ganga þá skaut hún inn einu og einu íslensku orði til að ýta undir skilninginn. Það var létt yfir mannskapnum í eldhúsinu og í lokin var síðan settur upp 8 rétta kvöldverður sem gerð voru góð skil. Pólskt Nemendur með tilbúna pólska rétti í eldhúsinu, Mirka Borecka er í fremri röð til hægri og Aneta M. Matuszewska í aftari röð fyrir miðju. Eldamennska í pólskunáminu Selfoss | Félag opinberra starfs- manna á Suðurlandi flutti í nýtt og stærra skrifstofuhúsnæði á Austur- vegi 38 á Selfossi síðastliðinn fimmtudag Félagið var stofnað 31. maí 1973 og voru stofnfélagar 28 frá 5 sveitarfélögum. Í dag eru fé- lagsmenn yfir 600 og nær fé- lagssvæðið frá Hornafirði til Sveitar- félagsins Ölfuss. „Þetta er mjög góð aðstaða hérna hjá okkur og góður andi í þessu húsi. Það er rúmt um okkur og gott að starfa hérna, við fáum hér góða fundaraðstöðu sem skiptir miklu máli,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS, en hún er einnig formaður í Samfloti bæjarstarfs- mannafélaga í komandi kjarasamn- ingum. Hún sagði vinnuna vera að fara í gang á þeim vettvangi, fram- undan væri formannafundur sem væri eitt af fyrstu skrefunum og einnig yrðu haldin samningatækni- námskeið til þess að efla samninga- fólkið. Límum hópinn saman Tiltekin starfsmannafélög sveitar- félaga hafa haft með sér samflot við gerð kjarasamninga í tuttugu ár. Það er hins vegar í fyrsta skipti nú sem Samflotið fær fullnaðarumboð til samninga. Félögin munu því greiða atkvæði í einu lagi um samn- inginn sem næst en ekki hvert fyrir sig eins og verið hefur. „Við munum líma hópinn vel sam- an svo allir tali sem einn maður,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formað- ur Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi. FOSS flytur í nýtt skrifstofuhúsnæði Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Stjórn Við opnun skrifstofunnar, Þuríður Jónsdóttir, María Þórarins- dóttir, Ásbjörn Sigurðsson, Elín Björg Jónsdóttir og Pamela Morrison.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.