Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 28
lifun
28 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
V
ið féllum fyrst og
fremst fyrir staðsetn-
ingunni. Þetta hús
stendur á æðislegum
stað og héðan sést vítt
til allra átta. Esjan skartar sínu
fegursta þegar horft er úr stofunni
og við njótum þess að hafa óhindr-
að útsýni. Eins stendur húsið í
enda götunnar og við erum með
mikið mólendi hér í kring þar sem
ekki má byggja vegna þess að það
er sprungusvæði sem gengur yfir
holtið,“ segja þau Soffía Gunn-
arsdóttir og Runólfur Sveinbjörns-
son sem keyptu sér tæplega fok-
helt hús í Jónsgeisla í Grafarholti
og innréttuðu með það í huga að
þetta væri framtíðarheimili þeirra.
„Ólafur Þórólfsson byggði húsið
og okkur varð vel til vina eftir að
við keyptum það og núna erum við
í samstarfi og eigum saman bygg-
ingarfyrirtækið Sjólagnir og
byggjum hús fyrir aðra alla daga,“
segir Runólfur og bætir við að þau
Soffía hafi heillast af hönnun húss-
ins en Jón Þór Þorvaldsson arki-
tekt teiknaði það. „Við breyttum
lítillega, fækkuðum veggjum til að
opna rýmið á efri hæðinni og opn-
uðum eldhúsið meira. Á neðri
hæðinni víxluðum við líka geymslu
og baðherbergi.“
Arkitektinn Arnar Þór Jónsson
aðstoðaði þau við skipulagningu
innanstokks. „Við vildum hafa
þetta nokkuð samfellt, ekki mörg
og ólík efni á gólfum, veggjum eða
borðplötum. Til dæmis er sama
granítið á aðalbaðherberginu niðri
og er uppi í eldhúsi. Eins er sama
granít í borðplötunni á eyjunni
sem er í borðstofunni og við erum
líka með það í arninum. Við létum
parketið flæða upp á vegg í stiga-
ganginum og upp á handriðið til
að gefa hlýlegan blæ. Rennihurðir
eru nánast í öllum skápum og
hurðaropum, en það er gert til að
spara pláss.“
Tímaleysi haft í huga við val
Þau segja að vissulega hafi
stundum hellst yfir þau valkvíði
þegar þau þurftu að ákveða ótal
atriði. „Sérstaklega í ljósi þess að
við hugsum þetta sem framtíð-
arheimili. Það er svolítið stress-
andi að velja eitthvað sem maður
þarf að vera sáttur við eftir þrjá-
tíu ár. Þess vegna reyndum við að
hafa þetta eins tímalaust og mögu-
legt er, til dæmis með því að hafa
frekar ljósar innréttingar. En það
má alltaf breyta stemningunni
með málverkum, púðum eða öðr-
um skrautmunum og svo er aldrei
að vita nema við skiptum út inn-
Morgunblaðið/Kristinn
Víðátta Óneitanlega sést vítt til allra átta frá framtíðarheimilinu og íbúarnir kunna því vel að láta náttúruna umvefja sig.
Fjallasýn og villtur mói
Einfaldleiki Stofa, borðstofa og eldhús flæða sem eitt rými og gluggarnir ná alveg niður að gólfi.
Nýtt heimili Þau Soffía og Runólfur er ánægð með nýja heimilið sitt og ró og næði umhverfisins.
Að sjá vel til fjalla og
hafa gott pláss í kring-
um húsið sitt var það
sem skipti sköpum þeg-
ar ungt par fjárfesti í
framtíðarheimili í Graf-
arholtinu. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
heimsótti þau.
Við bjuggum í þriggja
herbergja íbúð í fjöl-
býli í Ártúnsholtinu
og fyrst fannst okkur
þögnin hérna yf-
irgnæfandi, því hér er
mikið næði. En núna
kunnum við vel við
það og allt þetta rými
er þegar orðið hvers-
dagslegt.