Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 32

Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 32
32 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÓVISSUÁSTAND Á FJÁRMÁLAMÖRKUÐUM Það hefur engin breyting orðið áþví óvissuástandi, sem ríkthefur á alþjóðlegum fjármála- mörkuðum frá því síðla sumars. Við- skiptadagblöð eru enn full af fréttum um afleiðingar þessa óróleika. Heimsþekktir bankar og fjármála- fyrirtæki hafa orðið fyrir þungum áföllum. Fyrir nokkrum dögum varð aðalforstjóri bandaríska fjármálafyr- irtækisins Merril Lynch að segja af sér eftir miklar varúðarfærslur fyr- irtækisins. Nú er rætt um það, hvort aðalforstjóri eins af stærstu bönkum heims, Citigroup verði líka að segja af sér. Greinendur á fjármálamörk- uðum segja, að bankinn verði að finna 30 milljarða dollara með eignasölu, minni arðgreiðslum eða nýju hlutafé til þess að styrkja stöðu bankans. Hlutabréf í Citigroup hafa lækkað í verði um 7%. Verð hlutabréfa í öðrum bönkum hefur líka lækkað verulega og má þar nefna hlutabréf í Barclays bankanum brezka, sem hafa lækkað um 5,4%. Enn er þessi þróun að verulegu leyti skrifuð á þá sérstöku tegund bandarískra húsnæðislána, sem hafa verið talin undirrót óvissunnar á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum á und- anförnum mánuðum. Hið jákvæða við þróunina hér er að íslenzki hlutabréfamarkaðurinn er farinn að hreyfast í takt við hluta- bréfamarkaði í nálægum löndum. Hættan er hins vegar sú, að með sama hætti og við höfum vegna útrás- arinnar hagnazt á uppgangi fjármála- markaða í nálægum löndum getum við orðið fyrir barðinu á niðursveifl- um á þessum sömu mörkuðum. Hér á Íslandi hafa tiltölulega litlar umræður verið um þessa þróun. Æskilegt væri, að þær yrðu meiri og að sérfróðir menn, bæði í greininga- deildum bankanna og annars staðar leggi mat á þessa þróun og hvaða áhrif hún gæti haft á stöðu íslenzkra fyrirtækja, sem starfa á þessum sömu mörkuðum. Við þurfum að vera undir það búin, að óvissuástandið á erlendum fjár- málamörkuðum hafi áhrif hér. Við þurfum að gera okkur grein fyrir hvernig bezt er að bregðast við. Það ber að hafa í huga í þessu sam- bandi, að seðlabankar beggja vegna Atlantshafsins hafa lagt mikið á sig til þess að skapa jafnvægi á fjármála- mörkuðunum á nýjan leik. Það hefur yfirleitt tekizt í nokkra daga en ekki meira og er til marks um að fjárfestar eru enn kvíðnir um framhaldið. Þeir sem fróðastir eru um þessa markaði hér á Íslandi þurfa að láta til sín heyra um það, hvernig þeir meti þessa stöðu og hvert þeir telja líklegt að framhaldið verði. Seðlabanki Íslands hefur aðgang að beztu fáanlegum upplýsingum á vettvangi helztu seðlabanka heims og tekur væntanlega mið af þeim. En hvað segja aðrir? BRÝN ÞÖRF Á FRAMTÍÐARSÝN Á ráðstefnu Capacent í fyrradag,undir yfirskriftinni „Áskoranir í skipulagsmálum“, var Jóhannes Þórð- arson, deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Ís- lands, einn frummælenda og horfði sérstaklega til þess glataða tækifæris sem Borgartúnið í Reykjavík væri. Hann vísaði í máli sínu til fréttar í Morgunblaðinu frá 10. október sl. en þar kom m.a. fram að við þá hröðu uppbyggingu sem verið hefði í Borg- artúni „virðist hafa gleymst að ein- hverju leyti að líta til rýmisins á milli bygginganna“ og að „ekki hafi verið unnið heildrænt deiliskipulag fyrir svæðið“. Það er auðvitað með miklum ólíkindum að fyrst nú sé verið að vinna heildrænt deiliskipulag fyrir götu sem búin er að vera í jafnörri uppbyggingu á allra síðustu árum og raun ber vitni. Heildrænt skipulag hefði vitaskuld átt að liggja fyrir áður en þessar miklu framkvæmdir hófust. Í Morgunblaðinu í gær segir að í máli Jóhannesar hafi komið fram að „gæði innihaldsins í afgreiðslum sem ættu sér stað hjá skipulagsyfirvöldum á Íslandi skiluðu ekki árangri og þær næðu oft ekki að bæta bæjarímynd- ina. Spurning væri hvort aðalskipu- lagsgögn væru frekar ástandslýsing en framtíðarsýn. Í aðalskipulagi væri ekki rætt um mælikvarða og stærðir með hliðsjón af mannlegum viðmiðum og hlutföllum, lítið væri minnst á hlut- föll og formfræði og myndmáli væri ekki beitt. Hugmyndir um áferð, skala og viðmið væru ekki settar fram. Svo virtist sem deiliskipulagi væri ætlað að vera rammi utan um byggingar en ekki utan um bæjar- rými. Ekki væri rætt um gæði og borgin væri skipulögð í reitum en ekki rýmum. Deiliskipulagið virtist ekki ná að samtvinna reitina til að úr yrði bæjarmynd. Umhverfisáhrifin væru ekki metin nema að takmörkuðu leyti og það gleymdist að verið væri að fjár- festa í manngerðu umhverfi fyrir fólk til að minnsta kosti 50 ára. Of mikið væri rýnt í hluti eins og hvort nýting- arhlutfall væri 1 eða 10, en ekki væri rætt um fagurfræði“. Það er ástæða til að taka undir með Jóhannesi þegar hann spyr hvort það geti verið að dæmi eins og Borgartúnið sé „afleið- ing af fyrirbæri sem félli undir henti- stefnu, framkvæmdarómantík, hags- munapot, gróðasjónarmið eða glímuskjálfta“. Sá „vandræðagangur“ sem Jóhannes segir einkenna skipu- lag Borgartúns sýnir vanda borgar- innar í þessum málaflokki í hnot- skurn. Gagnrýni hans er hörð og löngu tímabær. Borgin á að þjóna íbú- um sínum til framtíðar með mark- vissri stefnumótun og aðhaldi gagn- vart framkvæmdaaðilum. Það á ekki að líðast að hagsmunir annarra en al- mennings, svo sem byggingarverk- taka – t.d. varðandi byggingarmagn og um leið hámörkun gróða – ráði borgarmyndinni. Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur (OR) mun halda áfram á næstu dögum að framfylgja samþykktum borgarráðs og fól Bryndísi Hlöð- versdóttur stjórnarformanni að ræða við aðra hluthafa REI og fleiri sem málið varðar og vinna tillögur í málinu. Þá er stefnt að því að boða til nýs eigendafundar í Orkuveitunni að fengnum tillögum stjórnarformanns. Hvað varðar starfsemi Reykjavik Energy Invest ákvað stjórnin að endurnýja heimild til kaupa á nýju hlutafé í fyrirtækinu í því augna- miði að tryggja hagsmuni Orkuveitunnar. Þá áskildi stjórnin sér rétt til að taka nýjar ákvarðanir varðandi málefni REI og samruna þess við Geysir Green Energy og tók fram að engar meiri háttar ákvarðanir yrðu teknar í starfsemi REI án aðkomu stjórnar OR. Bókun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, sem samþykkt var á fundi hennar í gær, er svohljóðandi: „Með vísan til bókunar borgarráðs Reykja- víkur frá því í gær, 1. nóvember, samþykkir stjórn OR eftirfarandi ályktun: 1. Stjórn OR fellst á tilmæli borgarráðs Reykjavíkur varð- andi samruna REI og Geysir Green Energy, o.fl. og mun leita viðeigandi leiða til að tryggja að tillagan geti náð fram að ganga. 2. Að fengnum tilmælum borgarráðs sam- þykkir stjórn Orkuveitunnar að falla frá sam- c) að samnin ustu o. d) að samrun skv. „fyri eignarh Green Áski ákvarð ræmi v þykki sínu sem veitt var hinn 3. okt. sl. á stjórnar- og eigendafundi OR, að því er eft- irfarandi atriði varðar: a) að OR kaupi nýtt hlutafé í REI að fjár- hæð kr. 2.600.000.000 á genginu 1,0 sem stað- greiðist fyrir 1. febrúar 2008. b) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki að hlutir félagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf., að bókfærðu verði kr. 8.674.611,-, verði lagðir inn sem hlutafé í REI á genginu 2,7 og fái hlutafé í REI að nafnvirði kr. 3.209.276 sem undanfari samruna REI og Geysir Green Energy. Stjórn Orkuveitu ur fellst á tilmæl Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að fallast á tilmæli borg október síðastliðinn í tengslum við samruna Reykjavik Energy Inve tiltekinna ráðstafana til að tryggja fjárhagslega hagsmuni félagsins. Skipst á skoðunum Kjartan Magnússon, borgarfulltr Bjarna Ármannsson og Guðmund Þórhallsson, forstjór Samruni úr sögunni Stjórn Orkuveitunnar er skipuð sex mönnum, fimm kjörnum af borgarstjórn Rey versdóttir formaður, Ástráður Haraldsson, Jón Sigurðsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvars „STAÐA mála er sú að stjórnin sam- þykkir einróma að fallast á tilmæli borgarráðs um að hverfa frá samrun- anum og öðrum umdeildum ákvörð- unum sem teknar voru á fundinum 3. október ásamt því að tryggja hagsmuni Orkuveitunnar inni í REI, því að við viljum því félagi ekkert illt,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, stjórn- arformaður Orkuveitu Reykjavíkur. „Mér er síðan falið annars vegar að ræða við aðra hluthafa í REI og aðra aðila sem að málinu hafa komið um framhaldið á þessum verkefnum sem menn voru í saman.“ OR á REI að stærstum hluta en aðr- ir hluthafar eru Bjarni Ármannsson og Jón Diðrik Jónsson. – Er einfalt mál að strika yfir þenn- an samruna? „Samruninn sem slíkur er flókið ferli og hann var í miðju ferlinu,“ segir Bryndís. „Það er flókið bæði lög- fræðilega og út frá ýmsum öðrum for- sendum. En í sjálfu sér er ekkert ann- að að gera núna í þessari stöðu en að setjast niður og sjá hvernig hægt er að vinna að framgangi þessara mála. Við erum ekki að hverfa frá útrás Orku- veitunnar. Það stendur ekki til, heldur þarf að finna henni farveg á nýj- um grunni. Það er verkefnið fram- undan. [...] Lagalega staðan er í raun sú að okkar mati að við erum stödd þar sem við vorum 3. október að mestu leyti. Aðal- málið er hvernig við vinnum úr fram- haldinu.“ – Kemur til greina að byrja sam- runaferlið upp á nýtt? „Ég ætla ekki að tjá mig um það á þessari stundu,“ segir Bryndís. „Núna fljótlega þurfum við að setjast niður og skoða stöðuna og meta þetta á nýjum forsendum. Það er mjög mikilvægt að vanda öll skref í þessu máli núna. Ef það er eitthvað sem við getum lært af þessu ferli þá er það að undirbúa ákvarðanir vel og taka engin skref nema að vel ígrunduðu máli.“ Bryndís segir að stjórn OR muni funda oft á næstunni um málið. Næsti fundur hefur ekki verið tímasettur. Útrás áfram á nýjum grunni Bryndís Hlöðversdóttir „ÉG er mjög ánæ þessa niðurstöðu að taka til baka o samruna sem var Geysir Green En Reykjavík Energ ir Júlíus Vífill Ing arfulltrúi Sjálfstæ stjórnarmaður í O komin aftur á ákv punkt, þannig að ur nú með svipuð það gerði fyrir 3. urstaðan er sum var svo illa ígrun irbúið að það var setja það aftur á Það er nú staðfes stæðismenn voru okkar sannfæring Beðinn um viðb ummælum Hann sonar, stjórnarfo Green Energy, a skylda gæti hafa Júlíus Vífill það v ljós. „Ég tel þó a verið bjartsýn fyr ins að svo verði e Bakk REI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.