Morgunblaðið - 03.11.2007, Síða 37
að þjónustu muni stórhraka og
tegundum fækka, en smekkur
ræður hér miklu. Í stórmarkaði
gæti maður, ef eitthvert hik kem-
ur á mann gagnvart takmörkuðum
kostum, fengið svarið: Mig ekki
skilja eða samsvarandi á erlendu
máli. Aðgengi að verslunum
ÁTVR er jafnan gott og almennt
ekki verra en að tuskubúð, banka
eða lyfsölu.
Ef sú breyting, sem frumvarpið
gerir ráð fyrir, á sér stað verður
meira keypt af vörunni, einkum
bjór. Það krefst ákvörðunar að
fara í „Ríkið“ en varla að taka
með sér kippu af bjór við mat-
arkaup. Og enn: Hagnaður af söl-
unni rennur í vasa kaupenda í
fyrra tilvikinu.
Ef sala á bjór og léttu víni verð-
ur liður í matarkaupum versnar
hugsanlega hagur verslana ÁTVR
svo að skerða verður þjónustu,
jafnvel fækka verslunum og ef til
vill reynist jafnframt nauðsynlegt
að hækka skatta! Kannski kemur
þá aftur að því, þegar þú ferð til
að kaupa flösku af viskíi, að þú
verður aftur um stund róni.
» Aðgengi að versl-unum ÁTVR er jafn-
an gott og almennt ekki
verra en að tuskubúð,
banka eða lyfsölu.
Höfundur er lögfræðingur
og ellilífeyrisþegi.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 37
Í ÁR fagna skátar því um allan
heim að 100 ár eru liðin frá fyrstu
útilegunni á Bronsea-eyju í Eng-
landi sem markar upphaf skáta-
hreyfingarinnar. Íslenskir skátar
hafa minnst þessara tímamóta á
margvíslegan hátt allt árið. Sér-
stakt þema var sett fyrir afmæl-
isárið: Einn heimur – eitt heit, og
er vísað þar til alheimsbræðralags
skáta en allar þær 38 milljónir
skáta sem starfa í
159 þjóðlöndum
starfa undir sama
skátaheiti.
Á afmælisdegi
stofnanda skátahreyf-
ingarinnar Roberts
Baden-Powells 22.
febrúar sl., á hátíð-
arfundi stjórnar BÍS,
var afhjúpaður minn-
isvarði við Skátamið-
stöðina í Hraun-
bænum, sérgerður
koparskjöldur sem er
áfastur við stuðlaberg
sem er í röð þriggja
stuðlabergssteina er tákna fing-
urna þrjá er mynda skátakveðjuna.
Á sama degi var sérstöku afmæl-
isblaði skátahreyfingarinnar dreift
með Morgunblaðinu.
Í hátíðarmessu í Hallgríms-
kirkju á sumardaginn fyrsta var
þessara tímamóta sérstaklega
minnst og fjölmenntu skátar þar
til messu. Á svo mikilvægum tíma-
mótum var við hæfi að efna til
skátamóts og þau urðu tvö er ís-
lenskir skátar sóttu í sumar af
þessu tilefni. Fyrst var 100 ára af-
mælismót BÍS sem haldið var á
Úlfljótsvatni í júlí, langt helgarmót
sem heppnaðist í alla staði mjög
vel. Seinna mótið var alheimsmót
skáta sem haldið var í Englandi.
Aldrei áður hafa íslenskir skátar
sent svo fjölmenna sveit skáta á
erlendan viðburð, en 430 íslenskir
skátar voru þátttakendur. Þetta
var stórglæsilegur hópur, um eitt
prósent þátttakenda á mótinu en
alls voru þar 42 þúsund skátar.
Það var því ákaflega stoltur skáta-
höfðingi sem heimsótti mótið.
Þarna sannaðist að ef vel er að
verki staðið og manngildishug-
sjónin höfð að leiðarljósi geta 42
þúsund einstaklingar frá 157 þjóð-
löndum lifað saman í sátt og í
mjög nánu samfélagi í 10 daga án
nokkurra vandkvæða og án allra
vímuefna. Þetta var hreint út sagt
algjört ævintýri. Þá má nefna að
verndari skátahreyfingarinnar, for-
seti Íslands Ólafur Ragnar Gríms-
son og kona hans sýndu skáta-
hreyfingunni þann einstaka heiður
að heimsækja mótið íslenskum
þátttakendum til mikillar ánægju.
Vakti heimsókn þeirra mikla at-
hygli allra mótsgesta. Þá ber þess
líka að geta að samstarf skáta-
hreyfingarinnar við systursamtök
okkar Slysavarnafélagið Lands-
björg hefur alla tíð verið mikið og
farsælt. Voru 15 skátar úr þeirra
röðum í hópi okkar á alheims-
mótinu og kynntu þar hið einstaka
starf samtakanna og
heimsótti formaður
þeirra mótið.
Hinn 1. ágúst var
síðan haldinn tákn-
rænn viðburður á
heimsvísu sem fékk
heitið Sólrisuhátíð.
Viðburðurinn fór yfir
heiminn og skáta-
hreyfingin í hverju
landi fagnaði kl. 8.00
að morgni að stað-
artíma í hverju landi
og skátar sameinuðust
og endurnýjuðu skáta-
heitið. Það sama var
gert á upphafsstaðnum í Brown-
sea-eyju þar sem hvert land átti
fulltrúa frá alheimsmótinu og voru
þar því tveir íslenskir skátar. Fjöl-
menni var í Skátamiðstöðinni árla
þennan ágústmorgun og endurnýj-
aði hópurinn skátaheitið líkt og
skátar um allt land gerðu.
2. nóvember sl. héldu skátar
fjölmennan hátíðarkvöldverð með á
þriðja hundrað matargestum og
var forsætisráðherra Geir Haarde
og Inga Jóna Þórðardóttir kona
hans sérlegir heiðursgestir. Gær-
dagurinn, 2. nóvember, er sá dag-
ur sem íslenskir skátar nefna sinn
afmælisdag en í gær voru 95 ár frá
upphafi skátastarfs á Íslandi. Og
til að bæta um betur er í dag efnt
til veglegrar afmælishátíðar með
léttu ívafi í íþróttahúsinu Fífunni í
Kópavogi með stuðningi Kópavogs-
bæjar. Húsið verður opnað kl.
14.00 og verður þar margt á boð-
stólum, margvíslegar skátaíþróttir,
þrautabrautir, söngstundir, kassa-
bílarallí, hoppikastalar, andlits-
málun, kynningar og fleira. Sem
sagt mikið fjör og mikið gaman.
Og auðvitað verður boðið upp á af-
mælisköku og kaffi með. Skátar
svo og allir sem hafa áhuga á að
taka þátt í afmæli okkar eru vel-
komnir. Hátíðinni lýkur svo með
glæsilegri flugeldasýningu sem
stjórnað verður af Hjálparsveit
skáta í Reykjavík sem einnig fagn-
ar veglegum tímamótum í ár eða
75 ára afmæli.
Þá fer afmælisárinu senn að
ljúka. En táknrænn endir á því
verður í tengslum við aðvent-
ustund í Dómkirkjunni 2. desem-
ber nk. þar sem friðarljósið verður
tendrað. Skátahreyfingin hefur frá
upphafi lagt mikla áherslu á frið í
sem víðustum skilningi.
Nú er dögun nýrrar aldar í
skátastarfi og hér á Íslandi blásum
við skátar til sóknar með nýrri
skátadagskrá sem innleidd var í
starfið í haust og við væntum mik-
ils af. Skátastarfið er viðurkennt
forvarnarstarf og hafa rannsóknir
sýnt að þátttaka barna í skipu-
lögðu æskulýðs- eða íþróttastarfi
dregur úr líkum þess að þau lendi
í ógöngum með líf sitt. Því taka
skátar þátt í forvarnardeginum 21.
nóvember nk. sem forseti Íslands
kom á fót. Það er því í mörg horn
að líta og horfa skátar bjartsýnir
fram á veg og hlakka til að fagna
100 ára afmæli skátastarfs á Ís-
landi 2012.
Skátastarf
í 100 ár
Margrét Tómasdóttir
minnir á afmælishátíð
skáta í Fífunni í dag
Margrét
Tómasdóttir
»… verður efnt tilveglegrar afmæl-
ishátíðar með léttu ívafi
í íþróttahúsinu Fífunni í
Kópavogi með stuðningi
Kópavogsbæjar.
Höfundur er skátahöfðingi.
Fréttir
í tölvupósti
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÚ þegar búið er að nútímavæða
Biblíuna er kannski tímabært að nú-
tímavæða rekstrarform þjóðkirkj-
unnar, enda hefur ekki verið gerð
róttæk uppstokkun á rekstrinum þar
síðan um siðaskiptin. Einkavæðing-
arstefna ríkisstjórnar hefur nú skoð-
að flesta möguleikana á einkavæð-
ingu, allt frá RÚV til
heilbrigðiskerfisins, en hingað til
virðist sem auðmenn þjóðarinnar hafi
ekki litið þjóðkirkjuna hýru auga. Nú
ætti að verða breyting á.
Það sem greiðir götuna er að Björn
Bjarnason hefur lýst yfir áhuga á að
leggja niður kirkjumálaráðuneytið og
færa kirkjumál undir forsætisráðu-
neytið. Það ætti þess í stað að breyta
nafni málaflokksins í „Trúmál“ og
færa hann undir viðskiptaráðuneytið.
Næsta skrefið er að breyta innra
skipulagi. Karl Sigurbjörnsson skyldi
kallaður forstjóri frekar en biskup,
og fá „lamineruð“ nafnspjöld merkt
CEO. Ekki þyrfti að hanna lógó fyrir
fyrirtækið enda er krossinn mjög
verðmætt vörumerki nú þegar en það
mætti hanna heildstætt litaskema,
bréfsefni og „branding“-áætlun.
Því næst ættu menn að gera al-
mennt hlutafjárútboð. Hægt væri að
skrá kirkjuna á OMX og gefa prest-
um og meðhjálpurum „stock op-
tions“. Það mætti auka verðmæti fyr-
irtækisins með beinu netvarpi úr
öllum kirkjunum á sunnudögum, og
bjóða upp á „podcast“ á hátíð-
isdögum eins og jólunum. Og jafnvel
selja auglýsingar eins og í íþróttahús-
unum, hengja upp þriggja fermetra
auglýsingar frá Bónus eða Glitni utan
á pontuna. Þessi sálmur er í boði
Kaupþings.
Einnig mætti endurskoða jólin,
þau eru jú best auglýsta útsöluhelgin
á Vesturlöndum, trúarupplifanir á
spottprís. Hægt væri að selja að-
göngumiða í Dómkirkjuna og bjóða
tveir fyrir einn á bjór á krana. Hægt
væri að vera með „selebrití“ predik-
ara og leynigesti. Hægt væri að hafa
bænastundir fyrir alla leiki í úrvals-
deildinni og sýna svo leikinn á breið-
tjaldi eftir á. Þessi messa er í boði
Sýnar.
Helstu tekjulindirnar væru eflaust
í sölu syndaaflausnabréfa. Það var fá-
ránlegt að leggja af svo arðvænlega
iðju til að byrja með. Kirkjan hf. gæti
selt forstjórum stórra fyrirtækja
tryggingu fyrir því að þeir komist óá-
reittir inn í himnaríki, alveg óháð
stefnu þeirra í starfsmannamálum.
Þetta myndi jafnvel seljast betur en
mengunarkvóti. Þessi jarðarför er í
boði Alcoa.
Sumir myndu eflaust spyrja sig,
mun þetta seljast eitthvað? Svarið er
auðvitað: Hver myndi ekki vilja vera
hluthafi í Kirkjunni hf. þegar Messías
er endurborinn?
SMÁRI MCCARTHY,
Reykjavík.
http://smari.yaxic.org
Einkavæðum
þjóðkirkjuna
Frá Smára McCarthy:
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferð-
ir, býður áskrifendum sínum frábær tilboð
í ferðir til Tenerife í janúar. Um er að ræða
frábær sértilboð á vinsælum gististöðum, 15.
eða 22. janúar í 1 eða 2 vikur.Tenerife býður
frábærar aðstæður fyrir ferðamanninn; falleg-
ar strendur, glæsilega gististaði og fjölbreytta
afþreyingu. Við bjóðum glæsilegar ferðir á
frábærum kjörum og vinsæla gististaði, m.a.
á Playa de las Américas ströndinni. Hér er
nóg að gera í fríinu, fjöldi góðra veitinga- og
skemmtistaða, áhugaverðar kynnisferðir og
síðast en ekki síst þá er ódýrt að lifa í mat
og drykk. Gríptu þetta einstaka tækifæri og
smelltu þér í vetrarfrí með Heimsferðum og
njóttu lífsins til hins ýtrasta á Tenerife.
Ath. takmarkaður fjöldi herbergja / íbúða í
boði á þessu tilboðsverði!
kr. 39.995
1 eða 2 vikur – frábært sértilboð!
Janúarveisla á
15. eða
22. janúar
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu 2. nóv. til Heims-
ferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
49
6
Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Áskr. verð Alm. verð Þú sparar
Aguamarina Golf – íbúðir
2 fullorðnir og 2 börn (2-11 ára) í íbúð 39.995 63.895 23.900
Aparthotel El Duque – íbúðir
2 fullorðnir og 1 barn (2-11 ára) í stúdíó 47.693 71.293 23.600
2 fullorðnir og 2 börn (2-11 ára) í íbúð 44.695 68.195 23.500
Hotel Jacaranda (með morgunverði)
2 fullorðnir og 2 börn (2-11 ára) í fjölsk.herbergi 47.795 71.495 23.700
2 fullorðnir í herbergi 62.490 86.690 24.200
Aukagjald fyrir „allt innifalið“ kr. 7.500 (á mann í viku)
Hotel Bahia Principe (allt innifalið)
2 fullorðnir og 2 börn (2-11 ára) í „junior suite“ 66.295 91.095 24.800
2 fullorðnir í herbergi 83.790 109.190 25.400
Innifalið í verði er flug, skattar, gisting í viku (fæði skv. því sem valið er) og fararstjórn.
*) Sparnaður m.v. við 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára), sértilboð „junior suite“ á Bahia Principe í 2 vikur.
Athugið aðeins takmarkað framboð er í boði á þessu tilboðsverði.
Fyrstur kemur – fyrstur fær!
Verðdæmi og valkostir (vikuferð):
Þú sparar allt aðkr. 25.400á mann- allt að 106.000 kr. fyrir fjölskylduna*Tenerife
Netverð á mann