Morgunblaðið - 03.11.2007, Síða 57

Morgunblaðið - 03.11.2007, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 57 T Ó N L E I K A R Á ALLRA HEILAGRA MESSU 4. NÓVEMBER 2007 KL. 17.00 Í HALLGRÍMSKIRKJU Requiem Requiem eftir Gabriel Fauré eftir Ildibrando Pizzetti Marta Guðrún Halldórsdóttir SÓPRAN Benedikt Ingólfsson BARITÓN Mótettukór Hallgrímskirkju Elísabet Waage HARPA Björn Steinar Sólbergsson ORGEL STJÓRNANDI: Hörður Áskelsson MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU VERÐ: 2.000/1.500 K R. "TÉKKNESKT TÓNAFLÓÐ" Dvorák: Serenaða og dansar Krommer: Oktett Tónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík Sunnudag 4. nóvember kl. 17:00 Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur Tónlistarsjóður Aðgangseyrir: 1.500 kr (1.000) Hnúkaþeyr ROKKSVEITIN Ask The Slave er nú kominn á fullt skrið með nýjum mannskap. Fyrir lá samt þessi plata, sem var tilbúin fyrir tveimur árum. Fljótlega eftir að upptökum lauk tóku meðlimir að ganga úr skaftinu og því örðugt að fylgja plötunni eftir af einhverju viti. Hún var því sett í salt en var kastað út fyrir stuttu, lík- lega til að loka á gamla tíma fyrir fullt og fast. Skemmst er frá að segja að platan fer ansi víða í stílum. Í grunninn er þetta þó ansi framsækið eða „progg- legt“ og maður heyrir áhrif frá Mars Volta, Tool og System of a Down. Hér er þó líka undurblíð ballaða „Some Text Missing“, strengir gera vart við sig í sumum laganna og sveitin tæklar lagið „Who Are The Brain Police?“, af meistaraverki Frank Zappa, Freak Out!, með tölu- verðum bravúr. „Silver Cock“ er hins vegar einslags hljóðverk, sam- anstendur af köllum og ópum áhorf- enda yfir hljóðfæraskruðningi. Það er auðheyranlegt að Ask the Slave er metnaðarfull sveit en það kemur fyrir að hún ræður ekki almennilega við að þjóna hinum háleitu mark- miðum. Hugmyndirnar krassandi en úrvinnslan síðri. En þessum kafla í sögu Ask The Slave er þá semsagt lokið og spenn- andi að heyra hvað menn bjóða upp á næst. Ég hygg að sú plata verði öllu straumlínulagaðri en þessi grip- ur þar sem menn eru mikið til að finna fótum sínum forráð. En efni- legt er þetta. Ruglað í rásunum Arnar Eggert Thoroddsen TÓNLIST Ask The Slave – Kiss Your Chora  HEATHER Mills, fyrrverandi eig- inkona bítilsins Pauls McCartney, segist fá harkalegri umfjöllun í bresku slúð- urpressunni en morðingjar og barnaníðingar. Þessu hélt Mills fram í við- tölum í bresku sjónvarpi í vik- unni. Hún nefndi sem dæmi að af- mæli dóttur hennar hefði ver- ið eyðilagt af blaðamönnum. Þeir hefðu blásið upp tilhæfu- lausar ásakanir um að flugeldasýningin í afmælinu hefði valdið dauða hunds á heimili í nágrenninu. Þá sagðist hún ítrekað hafa fengið morðhótanir og sagði McCartney ekkert hafa gert til þess að tryggja öryggi hennar og dóttur þeirra. Hún hefur nú biðlað til banda- rískra fjölmiðla um stuðning á þess- um erfiðu tímum. Fjölmiðlafulltrúi hennar í Los Angeles sendi tölvu- póst til fjölmargra ritstjórna í gær þar sem farið var fram á að menn skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu við hana á netinu. Harðar tekið á Mills en barna- níðingum Heather Mills ♦♦♦ Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.