Morgunblaðið - 03.11.2007, Page 64
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Synjað um landgöngu
Átta meðlimum bifhjólasamtak-
anna Vítisengla var í gær synjað um
leyfi til landgöngu við komuna til
landsins. Fólkið dvaldi í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar í nótt. » Forsíða
Ótti við miltisbrand
Mikill viðbúnaður var settur af
stað í gær vegna hugsanlegrar hættu
á miltisbrandi á byggingarsvæði í
Garðabæ. » 4
Lækka þarf skattbyrði
Landssamband íslenskra versl-
unarmanna (LÍV) leggur í komandi
kjarasamningaviðræðum áherslu á
að skattkerfið verði nýtt til að
minnka skattbyrði lágtekjufólks og
efla velferðarkerfið. » 2
Áfall fyrir tamíl-tígra
Óttast er að vopnahléið á Sri
Lanka fari endanlega út um þúfur
eftir að S.P. Thamilselvan, leiðtogi
stjórnmálaarms tamíl-tígranna, lét
lífið í árás stjórnarhersins í gær. » 18
SKOÐANIR»
Staksteinar: Tapið á áætlun?
Forystugreinar: Óvissuástand á
fjármálamörkuðum | Brýn þörf á
framtíðarsýn
UMRÆÐAN»
Jafnaðarm., vínhn. og miskunnsemi
Af ýmsum málum á Akranesi
Ný tegund gagnrýni: Farið að lögum
Sala bjórs og léttra vína
Þýðandi þjóðarinnar
Hvít hallarbylting Kristjáns
Dalamaður frá Amsterdam
Fyrir utan jábræðralag
LESBÓK»
3
3
3
3 4(##
5$%(
. !#$+
!
6(!*#
"!#!*$$2$!&(.("$ 3 3
3
3 3 3 3
-# 7 0 %
3
3 3
89::;<=
%>?<:=@6%AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@%7$7<D@;
@9<%7$7<D@;
%E@%7$7<D@;
%1=%%@2$F<;@7=
G;A;@%7>$G?@
%8<
?1<;
6?@6=%1+%=>;:;
Heitast 8 °C | Kaldast 3 °C
Vaxandi suðvesta-
nátt, 15–20 m/s norð-
vestantil síðdegis, víða
8–15 m/s annars stað-
ar. Rigning SV-lands. » 10
Artímariti er ætlað
að fylla upp í tóma-
rúm í íslenskri
myndlistarumræðu
og gera myndlistina
aðgengilegri. »54
MYNDLIST»
Nýtt tímarit
um myndlist
FÓLK»
Stjörnurnar voru skæl-
brosandi á BAFTA. » 56
Tónlistarþróun-
armiðstöð verður
starfrækt næstu
þrjú ár, þökk sé
Reykjavíkurborg og
Landsbanka. » 60
TÓNLIST»
Reksturinn
tryggður
FÓLK»
Paris Hilton ætlar að láta
frysta sig. » 60
TÓNLEIKAR»
Fimmtu íslensku Frost-
rósatónleikarnir. » 58
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Viðbúnaður vegna miltisbrands
2. 15 ára morðingi myndaði fórnarl.
3. Stórtapaði á að þiggja bætur
4. Alvarl. umferðarsl. á Selfossi
ÓLAFUR Elías-
son myndlist-
armaður og Hans
Ulrich Obrist,
sýningarstjóri
hjá Serpentine-
galleríinu í
Lundúnum,
munu leiða sam-
an hesta sína í
miklu sýning-
arverkefni á næstu Listahátíð sem
hefst á vormánuðum.
Sýningin mun fylla allt Hafn-
arhúsið og verður þema hennar
listir og vísindi, en þeir félagar
unnu út frá svipuðu þema í sumar í
Serpentine. Þar hannaði Ólafur
sumarskála með arkitektinum Kjet-
il Thorsen. Sérstök áhersla verður
á myndlist á Listahátíð í vor. 20
Listir og vísindi
á Listahátíð
Hans Ulrich Obrist
HANN hefur fært okkur öll leikrit
Shakespeares, mörg ljóða hans,
grísku harmleikina, fjölda ljóða eft-
ir Hóras, helstu skáld Vesturlanda,
kynnt fyrir okkur ljóðlist Kínverja
og Japana, sígilda ljóðleiki og Kór-
aninn sjálfan; bókmenntakanon
sem er svo mikill að vöxtum og
gæðum að sá sem læsi hann einan
og ekkert annað teldist afbragðsvel
lesinn maður víðast hvar í heim-
inum,“ segir Gauti Kristmannsson
um Helga Hálfdanarson þýðanda
en í vikunni var opnuð sýning á
verkum Helga í Þjóðmenning-
arsafninu.
Gauti segir Helga sannarlega
standa undir því að vera kallaður
þýðandi þjóðarinnar.| Lesbók
Þýðandi
þjóðarinnar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TÓMASI Helgasyni, flugmanni hjá
Landhelgisgæslu Íslands, var fagn-
að mjög þegar hann lenti fokkervél
Gæslunnar TF-SYN á Reykjavík-
urflugvelli síðdegis í gær. Var þetta
í síðasta skipti sem Tómas lendir
vélinni sem starfsmaður Landhelg-
isgæslunnar en hann lét af störfum
í gær – á 65 ára afmælisdegi sínum.
Á flugvellinum biðu vinir, vanda-
menn og starfsfélagar en Tómas
hefur átt afar farsælum ferli að
fagna hjá Gæslunni og starfað þar
síðan árið 1973. Fyrstu fimmtán ár-
in starfaði hann á TF-SYR en hin
síðari á TF-SYN. Hann ber Sýn
söguna vel. „Hún hefur reynst
okkur alveg svakalega vel og á enn
mikið eftir,“ sagði Tómas í samtali
við Morgunblaðið. Hann reiknar
ekki með að láta af flugi um leið
og starfi hjá Gæslunni. „Nei ætli
það, maður er jú enn með flugdell-
una og vonast til að geta flogið
áfram. Þetta er jú bara einn áfang-
inn.“
Spurður út í eftirminnileg atvik
á löngum ferli segir Tómas af-
skaplega margt koma upp í hug-
ann. „Það er til dæmis sjúkraflug
til Englands og Danmerkur. Ferð-
irnar til Skopje til að ná í flótta-
fólk eru einnig mjög eftirminnileg-
ar og svo fórum við fyrr á árinu á
Sýn til Beirút með sprengjusveit
Gæslunnar.“ Hann segir jafnframt
standa upp úr að aldrei hafi neitt
komið upp á í hinum fjölmörgu
ferðum á ferlinum.
Áður en Tómas stýrði TF-SYN
til lendingar í síðasta skipti flaug
hann henni í lágflugi framhjá flug-
skýli Gæslunnar, og þaðan fylgd-
ust yfirmenn hennar með. Eftir að
vélin var lent sprautaði Slökkvilið
Reykjavíkurflugvallar síðan vatni í
boga yfir hana í heiðursskyni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við TF-SYN Guðjón Jónsson, fyrrverandi yfirflugstjóri hjá Gæslunni, var einn þeirra sem tóku á móti Tómasi.
Kvaddur að loknu flugi
Tómas Helgason, flugstjóri Gæslunnar, lætur af störfum
Flogið hægt og lágt.
VEFVARP mbl.is
unum, m.a. dóttir hans Svala, Stef-
án Hilmarsson og Ragnar Bjarna-
son. Stór hljómsveit leikur undir,
barnakór syngur, karlakór og
gospelkór. Mikið í lagt, sem sé.
„Ég er svolítið slappur í löpp-
inni,“ svaraði Björgvin í gær, þegar
blaðamaður spurði hvernig hann
hefði það, nýbúinn að ljúka við plöt-
una Jólagestir 4.
En hvað hefur Bo sem aðrir hafa
ekki? „Ætli ég sé ekki bara búinn
að vera svolítið lengi í bransanum.
Eins og Mick Jagger sagði: „Ef þú
ert nógu lengi í bransanum þá
venst fólk þér.““ Bo er búinn að
vera í bransanum í 40 ár.
MIÐAR á jólatónleika Björgvins
Halldórssonar, sem haldnir verða
laugardaginn 8. desember í Laug-
ardalshöll, seldust upp á innan við
klukkustund í gær. Nokkur hundr-
uð miðar voru einnig seldir í fyrra-
dag, í forsölu Mastercard.
Skipuleggjandi tónleikanna, Ís-
leifur Þórhallsson, segist ekki vita
til þess að miðar á íslenska tónleika
hafi selst jafnhratt áður. „Það voru
eiginlega allir miðarnir farnir eftir
hálftíma og svo tók álíka langan
tíma að selja restina,“ sagði Ísleifur
í gær, en 2.500 miðar voru í boði.
Fjöldi þjóðþekktra listamanna mun
koma fram með Björgvini á tónleik-
Ljósmynd/Gassi
Jólabarn Björgvin snyrtilegur til fara með hundinum Tuma.
Uppselt á Bo
Miðar á jólatónleika Björgvins
seldust upp á innan við klukkustund