Morgunblaðið - 04.11.2007, Page 17
hlutann að meirihlutinn styddi það
algjörlega.“
Síðan er „sömu glærunum kastað
upp á vegg“ og fyrri daginn, að sögn
Hönnu Birnu. „Við spyrjum: „Hvar
er kynningin? Og fáum þau svör að
það sé engin frekari kynning. Við
spyrjum hvar eru svörin? Engin
svör. Það er bara sagt: „Við teljum
að þetta sé góður bísness.““
Það að Guðmundur Þóroddsson
skyldi ekki breyta kynningunni er
útskýrt þannig innan REI að borg-
arstjóra hafi skilist kvöldið áður að
ekki vantaði frekari kynningu á sam-
runanum heldur á starfsemi REI og
hvaða verkefni væru í gangi á vegum
félagsins.
Fundurinn stóð frá 12 til 14, var
mjög dramatískur og náði hápunkti
þegar Hanna Birna spurði borg-
arstjóra: „Er það þannig að við
stöndum frammi fyrir orðnum hlut?“
Og borgarstjóri svarar: „Já, þetta er
orðinn hlutur. Við ætlum að afgreiða
málið í stjórn OR í dag.“ Borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lýstu miklum tilfinningum og skoð-
unum til málsins, var gróflega mis-
boðið, töldu framkomu Guðmundar
Þóroddssonar lítillækkandi og að
það væri verið að ganga algjörlega
yfir umboð þeirra sem borgarfull-
trúa.
– Var umboð veitt á fundinum?
„Það var ekki beðið um umboð,
segir Hanna Birna. „Það var bara
sagt að málið yrði afgreitt eftir
klukkutíma.“
Hjörleifur B. Kvaran segir að Vil-
hjálmur hafi sagst hafa skýrt umboð
til að klára málið við komuna á
stjórnar- og eigendafund. „En ef
borgarfulltrúar hefðu viljað stoppa
málið, þá tel ég að þeir hefðu getað
gert það. Ef þeir hefðu sagt: „Við er-
um ekki tilbúin,“ þá hefði það betur
komið fram á þeim tíma.“
Borgarfulltrúarnir voru ósáttir
við Vilhjálm, en ósáttari við mennina
sem svöruðu engu. „Við vorum mið-
ur okkar,“ segir Hanna Birna. „Eftir
á að hyggja áttum við að segja: „Þið
farið ekki inn á fund og gangið frá
þessu.“ En við upplifðum þetta
þannig að það væru stjórnarslit. Til-
finningar Björns Inga voru þannig,
sterkar og heitar. „Í raun er ótrúlegt
hversu mikinn slag við tókum á
þessu augnabliki miðað við hvað við
vissum lítið. Okkur fannst þetta
rangt í prinsippinu og þess vegna
tókum við slaginn. Ef við hefðum vit-
að allt, þá hefðum við tekið hann
harðar.“
Samruni samþykktur
Þegar Svandís mætir á stjórnar-
og eigendafundinn kl. 15 sama dag,
3. október, lætur hún vita af því að
hún muni ekki styðja málið. Fyrir
fundinum eru fjórar tillögur og eru
allar samþykktar bæði á stjórnar-
og eigendafundi. Þar er samþykktur
samruni REI og GGE, þar sem REI
verður yfirtökufélag, og „stjórn-
arformanni og forstjóra heimilað að
undirrita samninginn og önnur sam-
runagögn þegar þar að kemur.“
Mestar deilur hefur vakið þriðja
tillaga sem lá fyrir fundinum um að
OR samþykki „fyrirliggjandi samn-
ing“ við REI hf. um „aðgang að
tækniþjónustu o.fl.“ Að baki því lá
margþættur óframseljanlegur
einkaréttarsamningur til 20 ára á
Svæðinu, sem m.a. laut að þjónustu
sem átti eftir að skilgreina.
Hjörleifur B. Kvaran segist vel
geta tekið undir það að kynning á
samningnum hafi ekki verið nægj-
anleg, eins og borgarstjóri hafi
kvartað yfir. „Í öllu falli var hún
ófullnægjandi fyrir þá sem komu ný-
ir að málinu.“
Kynntur í London
Daginn eftir að samruninn var
samþykktur í stjórn OR var hann
kynntur á vegum FL Group í Lond-
on, 4. október. Þar kom m.a. fram að
tilkynnt hefði verið um samrunann
3. október, honum lyki 31. október,
fjármögnun lyki í febrúar 2008 og
fyrirtækið yrði skráð á markað 2009.
Í framtíðarsýn fyrirtækisins er
markið sett hátt, 200 til 400 gígavött
í virkjunum á næstu tveim árum,
fjárfesting upp á 300 til 400 millj-
arða. Sama dag vonast Guðmundur
Þóroddsson í hádegisviðtali Stöðvar
2 eftir tuga milljarða hagnaði.
Bjarni kom úr Afríkuför sinni
þennan dag og talaði á fjár-
festakynningunni í London. Um
kvöldið hringir Vilhjálmur í hann og
biður um að samningar við starfs-
menn REI um kaup á hlutabréfum
séu dregnir til baka. Bjarni segist
ætla að fara yfir það með stjórninni,
kemur heim daginn eftir, 5. október,
og ákveðið er á stjórnarfundi laug-
ardaginn 6. október að draga þá til
baka.
„Þessir samningar voru hugsaðir
til að tengja saman hagsmuni starfs-
manna og fyrirtækis,“ segir Bjarni.
„Starfsmenn voru varðir tapi en
nutu ekki hækkunar að fullu í þrjú
ár. Við vildum tryggja okkur krafta
starfsmanna fram yfir skráningu
2009.“ Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var vilji til að semja á ný
við þá eftir samrunann, enda yrði
OR þá komið í minnihluta í félaginu.
Eftir samrunafundinn byrjar um-
ræðan að þróast með óhagstæðum
hætti fyrir REI vegna andstöðu sex
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
og óánægju Svandísar Svav-
arsdóttur. Í fjölmiðlum um kvöldið
kemur í ljós afstaða minnihlutans
gagnvart kaupréttarsamningum
sem borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins höfðu „ekki grænan
grun“ um og þeim fannst „hafa verið
gengið harkalega fram“ í þessu máli.
„Okkur finnst allir fulltrúar meiri-
hlutans í stjórn OR hafa brugðist
okkur, Haukur Leósson, Vilhjálmur
og Björn Ingi,“ segir Gísli Marteinn.
„Og auðvitað líka fulltrúar minni-
hlutans, Samfylkingin samþykkir og
Vinstri grænir sitja hjá, en það voru
ekki mínir fulltrúar.“
Einkennilegur biðtími
Skýrt hefur verið frá fundum sex-
menninganna án Vilhjálms í fram-
haldinu, m.a. með forystu flokksins á
föstudeginum. „Allt tal um að það sé
óeðlilegt er út í hött, segir Hanna
Birna. „Okkur fannst sem umboðið
hefði verið tekið af okkur og við urð-
um að greina formanni flokksins frá
því, hvernig við upplifðum það. For-
maðurinn verður að geta átt slík
samtöl.“
Gagnrýni hefur komið fram innan
raða Sjálfstæðisflokksins á að Geir
H. Haarde skyldi ekki hafa tekið á
vandanum, sem kominn var upp,
með meira afgerandi hætti úr því
hann blandaði sér í málið. „Þetta
hefði aldrei komið upp í tíð Davíðs
Oddssonar,“ segir einn sjálfstæð-
ismaður á meðan annar bendir á að
meirihluti sjálfstæðismanna hafi ein-
mitt fallið í formannstíð Davíðs.
Svo líða þrír dýrmætir dagar þar
til sjálfstæðismenn hittast aftur. Og
margt gerist bakvið tjöldin á þeim
tíma, Björn Ingi Hrafnsson ákveður
á laugardeginum að flýta för sinni
heim frá Kína, kemur til landsins á
sunnudagskvöld og fundar með sínu
fólki á mánudagsmorgni.
Mikill skjálfti er innan OR og
REI, gamli stjórnarformaðurinn Al-
freð Þorsteinsson kominn í atburða-
rásina. Ekki verður heldur framhjá
því horft að í eigendahópi GGE eru
þungavigtarmenn í Framsókn, s.s.
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
varaformaður og ráðherra. Björn
Ingi og Vilhjálmur tala ekkert sam-
an þennan tíma eða þar til á þriðju-
dag, en Björn Ingi er þó í sambandi
við Hönnu Birnu og Gísla Martein.
„Þetta var einkennilegur biðtími,“
segir einn borgarfulltrúi. Beðið var
niðurstöðu sáttafundar borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokks og blaða-
mannafundar í kjölfarið. En ekkert
lá fyrir um niðurstöðuna. Óvissan
var mikil. Og óljóst af hverju biðin
stafaði, þótt nefnt sé að ekki hafi all-
ir borgarfulltrúar verið í borginni og
borgarstjórinn ekki áttað sig á al-
vöru málsins. „Hann var sjálfur að fá
upplýsingar og bregðast við þeim.“
Á sáttafundinum á mánudegi voru
málin rædd „í mikilli eindrægni og
einlægni“ og borgarstjóri „baðst
margfaldlega afsökunar“. Hann
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 17
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Jafnvægi
Harður og þ rautseigur þ egar á þarf að halda – mjúkur, lipur og
þægilegur í dagsins önn. Að mæta ólíkum þ örfum og bregðast
hárrétt við mismunandi aðstæðum; þetta eru kröfur samtímans.
Komdu og reynsluaktu Mitsubishi Pajero.
Til afgreiðslu strax.