Morgunblaðið - 04.11.2007, Qupperneq 23
ember, var á mála hjá Chelsea sem
unglingur en kom til Leeds frá ut-
andeildarliðinu Wealdstone vorið
2006. Honum gekk illa að vinna sér
sæti í liðinu í fyrra og var bæði lán-
aður til Scunthorpe og Carlisle.
Margir bjuggust við því að hann
þyrfti að róa á önnur mið í sumar en
Wise ákvað að veðja á drenginn. Það
hefur margborgað sig og Beckford
er lykilmaður í liði Leeds í dag. Hann
vann sér það m.a. til frægðar í leik
gegn Bristol Rovers fyrir skemmstu
að skora með bakfallsspyrnu.
Kandol fæddist fyrir 26 árum í
Afríkuríkinu Kongó en hefur breskt
ríkisfang. Hann hefur komið víða við
í neðri deildum og utan deilda í Eng-
landi en kom til reynslu hjá Leeds
síðla árs 2006, þá nýskriðinn úr
grjótinu vegna ítrekaðra umferð-
arlagabrota. Tveimur mánuðum síð-
ar var gengið til samninga við kapp-
ann og í haust hefur hann launað
húsbændum á Elland Road traustið
með góðri frammistöðu.
Þeir Beckford hafa smollið saman
og munu án efa etja kappi um
markakóngstitilinn í þriðju deild-
inni. Vel fer á með þeim og „fögn“
þeirra þykja fyrir augað, ekki síst
heljarstökk Kandols. Hann á ekki
langt að sækja það en frændi hans er
enginn annar en ólíkindatólið Lom-
ana LuaLua, sem nú leikur með
Olympiacos á Grikklandi.
Sparkrisinn hefur þegar sett ann-
an fótinn fram úr rúminu og stuðn-
ingsmenn Leeds United bíða þess nú
í ofvæni um allan heim að hann fari
allur fram úr – og endurheimti forna
frægð.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2007 23
» Rjúpan hefur það frekarskítt.
Ólafur K. Nielsen , fuglafræðingur á Nátt-
úrfræðistofnun Íslands, í erindi, sem hann
flutti hjá Skotveiðifélagi Íslands.
» Hefði ég eitthvað að segjaum Ceciliu myndi ég örugg-
lega ekki segja það hér.
Nicolas Sarkozy , forseti Frakklands, í
viðtali við sjónvarpskonuna Leslie Stahl í
60 mínútum, en forsetinn tilkynnti í síð-
asta mánuði að hann og eiginkona hans til
ellefu ára hefðu ákveðið að skilja.
» Ég kem til með að ráða ferð-inni en ekki 200.000 „lands-
liðsþjálfarar“ úti í bæ.
Ólafur Jóhannesson , nýráðinn þjálfari
karlalandsliðsins í knattspyrnu.
» Ef það eru einhverjir svonaskúrkar hjá okkur, þá er
þeim ekki úthlutað lóðum hér.
Gunnar I. Birgisson , bæjarstjóri Kópa-
vogs, spurður hvort svipta ætti verktaka
réttinum til lóðakaupa komi upp gallar í
byggingum, sem þeir beri ábyrgð á.
» Áþján vegna áfengissýki ermál allra Íslendinga.
Ari Matthíasson , framkvæmdastjóri SÁÁ,
í grein þar sem hann vísar m.a. til nið-
urstaðna íslenskrar könnunar þar sem
fram kom að 87% þeirra þriggja þúsunda,
sem svöruðu, áttu einhvern mjög nákom-
inn sem var alkóhólisti.
» En tilfinningin er alveg æð-isleg og ég bjóst alls ekki við
þessu.
Fanney Lára Guðmundsdóttir , nýkrýnd
Miss Scandinavia Baltic Sea.
» Þeir hafa misnotað traustokkar og lagt okkur til rang-
ar upplýsingar.
Gylfi Arnbjörnsson , framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Íslands, sem telur ekki
lengur forsendu fyrir því að erindrekar
ASÍ tilkynni komu sína í upphafi verð-
könnunnar í ljósi þess einbeitta vilja sem
verslanir Krónunnar og Bónuss hafi sýnt
til að blekkja neytendur.
» Það er þessi hóflausa nytja-hyggja nútímans sem ræður,
nú eru allir í útrásinni, pening-
unum og bönkunum.
Sigurður Líndal , nýráðinn prófessor í lög-
um við Háskólann í Bifröst, en vegna
menningararfleifðarinnar hefur hann
áhyggjur af því að fáir fara í fög, sem ekki
eru beinlínis hagnýt í viðskiptalífi nú-
tímans.
» Síðustu ár hafa Íslendingarmátt búa við eitt versta al-
mannatryggingakerfi á Norð-
urlöndum.
Sigursteinn Máson , formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands, í grein í Morg-
unblaðinu.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/RAX
Þjálfari Ólafur Jóhannesson, nýráðinn þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu
á fundi með fréttamönnum. Honum á hægri hönd eru Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri sambandsins.
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Erlendur Eiríksson málarameistari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Lyktarlaus
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
M
A
L
3
97
08
1
0.
2
0
0
7
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari,
Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri,
Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig.
Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík • Fóðurblandan, Selfossi, Hvolsvelli og Egilsstöðum.