Morgunblaðið - 13.11.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 310. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
MÖGNUÐ TILÞRIF
LISTAHÁTÍÐINNI UNGLIST LAUK UM HELGINA
MEÐ FLOTTRI KEPPNI Í BREIKDANSI >> 48 Leikhúsin í landinu
Ekki missa
af neinu >> 45
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
RÍKISSTJÓRN mið- og hægriflokkanna
í Danmörku heldur velli samkvæmt síðustu
skoðanakönnunum en á vefsíðu Berlingske
Tidende voru í gærkvöldi birtar niðurstöður
stórrar Gallup-könnunar sem benda til að
Venstre, flokkur Anders Fogh Rasmussen
forsætisráðherra, Íhaldsflokkurinn og
Danski þjóðarflokkurinn, sem styður stjórn
Foghs en á ekki aðild að henni, fái 93 þing-
menn kjörna. Verði það niðurstaðan í þing-
kosningunum sem fara fram í Danmörku í
dag situr Fogh áfram, enda væri stjórn
hans þar með komin yfir 90 þingmanna
markið sem tryggir meirihluta á þingi.
Könnunin bendir til að Venstre og
Danski þjóðarflokkurinn hafi unnið mjög á
síðustu daga kosningabaráttunnar. Nýtt
bandalag Nasers Khader, sem fram til
þessa hefur virst ætla að verða í oddastöðu
eftir kosningarnar, er hins vegar í frjálsu
falli og miðað við Gallup-könnunina nýju,
sem byggist á svörum 3.125 líklegra kjós-
enda, gerir flokkurinn ekki mikið meira en
rétt skríða yfir 2% markið sem þarf til að ná
inn manni, þ.e. könnunin sýnir Nýtt banda-
lag með 2,5%.
Khader vill Fogh – en nýjan Fogh
Hugsanlega gerði Khader mistök þegar
hann í sjónvarpskappræðum á sunnudag
lýsti því yfir að hann styddi Fogh til áfram-
haldandi forystustarfa, fremur en vinstri
blokkina. Yfirlýsingin vakti spurningar því
henni fylgdu ummæli um að Khader vildi
samt ekki þann Fogh sem hefur stýrt Dan-
mörku frá 2001, hann vildi „nýjan Fogh“
sem forsætisráðherra. Var Khader þar lík-
lega að meina að hann vildi breytingar á
innflytjendastefnunni, en yfirlýsingarnar
kunna að hafa minnt kjósendur rækilega á
þá þversögn sem fælist í því að Fogh stydd-
ist annars vegar við flokk Khaders og hins
vegar við Danska þjóðarflokkinn sem hefur
beitt sér fyrir hörðustu innflytjendastefnu í
gjörvallri Evrópu.
Allar kannanir síðustu daga höfðu sýnt að
þó að stjórnarflokkarnir myndu fá fleiri
þingmenn kjörna en vinstriflokkarnir sem
eru í stjórnarandstöðu þá næðu þeir ekki
yfir 90 þingsæta markið. Af þeim sökum
virtist ljóst að Khader myndi leika lykilhlut-
verk í framhaldinu. Svo gæti auðvitað farið
ennþá – enda hafa engin atkvæði verið talin
upp úr kjörkössunum – en Gallup-könnunin
í gærkvöldi telst þó til meiriháttar tíðinda.
Reuters
Kappræður Vel fór á með Naser Khader
og Anders Fogh Rasmussen í gærkvöldi.
Gríðarleg
spenna í
Danmörku
Fogh heldur velli ef
marka má nýja könnun
ÞAÐ voru Korpuskóli og Árbæj-
arskóli sem komust áfram á
fyrsta undanúrslitakvöldi
Skrekks, hæfileikakeppni grunn-
skóla Reykjavíkur, sem fram fór
í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu.
Fjögur undanúrslitakvöld fara
fram í vikunni og úrslitakvöldið
verður þriðjudagskvöldið 20.
nóvember þegar átta grunn-
skólar keppa til úrslita.
Það voru sjö skólar sem
kepptu um sæti í úrslitunum í
gærkvöldi. Auk þeirra tveggja
sem komust áfram voru það
Hvassaleitisskóli, Landakots-
skóli, Langholtsskóli, Háteigs-
skóli og Vogaskóli.
Morgunblaðið/Golli
Skrekkur
kominn í
fullan gang
Spreyta sig í hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur
Frumleiki og fimi | 49
VÍSITALA neysluverðs hækkaði um 0,65%
milli mánaða, sem er mesta hækkun í nóvem-
bermánuði í 17 ár. Segja greiningardeildir
Glitnis og Kaupþings að líkur hafi aukist á stýri-
vaxtahækkun Seðlabanka Íslands.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
segir að skoðað verði hvort ástæða sé til að taka
húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins seg-
ir að verðbólgan sé allt of mikil og fram-
kvæmdastjóri ASÍ tekur í sama streng.
Fasteignaverðið alltaf þáttur
Verðbólgan mælist 5,2% miðað við síðustu 12
mánuði en ef ekki er tekið tillit til breytinga á
húsnæðisverði þá hefði verðbólgan aðeins
hækkað um 1,9% á síðustu 12 mánuðum. Vísi-
tala neysluverðs hefur hækkað um 4,8% það
sem af er árinu, en fasteignaverðið hefur hækk-
að um 18,4% á sama tíma.
Greiningardeild Glitnis segist ekki telja að
húsnæðismarkaður taki að kólna fyrr en Íbúða-
lánasjóður lækki vexti á lánum sínum, sem muni
væntanlega gerast í næsta útboði sjóðsins. Við-
skiptaráðherra segir að það sé spurning hve
raunhæf mæling á verðbólgu fengist ef húsnæð-
isliðurinn væri tekinn alveg út, en ástæða sé til
að skoða málið og kanna hvort húsnæðisliðurinn
vigti of þungt og skekki myndina. Hins vegar
verði alltaf að taka tillit til fasteignaverðsins
með einhverju móti, eins og til dæmis Bretar
geri, og að óathuguðu máli sé ekki hægt að
kveða upp úr um hvort taka eigi húsnæðisliðinn
alveg út eða ekki.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
segir að það geti ekki verið lausn í efnahags-
málum að taka út úr vísitölunni einhverja liði
sem hækka, en það sé öllum í hag að meira jafn-
vægi komist á á húsnæðismarkaði.|6 og 15
Til skoðunar að taka fast-
eignir út úr vísitölunni
Mesta hækkun vísitölu neysluverðs í nóvember í 17 ár Húsnæðisliðurinn
hækkar mest Bankarnir telja auknar líkur á stýrivaxtahækkun Seðlabanka.
Í HNOTSKURN
» Sem fyrr er húsnæðisþáttur neyslu-verðsvísitölunnar sá sem hækkar
mest, eða um 0,36%.
» ASÍ bendir á að neysluvörur og þjón-usta hækki verulega í verði.
FLEST verstu óveðrin á Norður-Atl-
antshafi síðastliðin fimm ár urðu í
kringum Ísland, að því er athugun
norskra nemenda Haraldar Ólafsson-
ar prófessors í veðurfræði leiddi í ljós.
Nemendurnir könnuðu gögn úr
gervitunglum sem mæla vindhraða
yfir hafinu. Sýndu þau að fárviðrin,
þegar vindur er yfir 40 m/s, verða
helst milli Íslands og Grænlands og
fyrir sunnan og austan Ísland.
Fárviðrin urðu helst að vetrarlagi,
það er á tímabilinu frá október og
fram í mars.
Í vetur er ætlunin að rannsaka nán-
ar óveður í Norðurhöfum og verður
flogið út í þau frá Norður-Noregi. | 2
Veðravíti við Ísland
Morgunblaðið/RAX