Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.11.2007, Blaðsíða 22
Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | Aðalgata 11 á Blönduósi er reisulegt hús sem staðið hefur í heila öld. Þetta gamla hús var töluvert farið að líða fyrir aldur sinn og var komin tími til að hlúa að því og það veru- lega. Þeim sem unna gamla bæjarhluta Blönduós hefur orðið að ósk sinni um endurbætur á húsinu því eigendur hússins, hjónin Sigurður Jóhannesson og Sigrún Lovísa Sigurðardóttir, hafa heldur betur sýnt hug sinn í verki. Í sumar var gerður nýr grunnur að húsinu og núna er verið að fjar- lægja bárujárn af því og til stendur að setja í það nýja glugga og klæða það fyrir veturinn. Það má segja það að það fari endurnýj- unarbylgja um gamla bæjarhlutann á Blöndu- ósi því fyrir dyrum stendur að gera upp gömlu kirkjuna sem hef- ur verið gefin og afhelg- uð. Fleiri gömul hús hafa verið gerð upp á þessu svæði á und- angengnum árum þann- ig að þeir sem leggja leið sína um gamla bæ- inn geta horfið aftur um 100 ár og látið hugann reika, andað að sér sög- unni og fersku lofti Hú- naflóans. Aldargamalt í endurnýjun lífdaga Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Smíðar Guðmundur Sigurjónsson og Helgi Bragason, starfsmenn trésmiðjunnar Stíg- anda, voru einbeittir við gluggaísetningu. 22 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES GARÐAR K. Vil- hjálmsson, bæj- arfulltrúi í Reykjanesbæ, var kosinn nýr fulltrúi í stjórn Sambands sveit- arfélaga á Suð- urnesjum á aðal- fundi sem haldinn var á Vallarheiði um helgina. Var hann kosinn í stað Steinþórs Jóns- sonar, fráfarandi formanns, sem ekki gaf kost á sér. Stjórnin var að öðru leyti endur- kjörin. Samkvæmt hefðinni er komið að fulltrúa Garðs að taka við for- mennsku. Verður Oddný Harð- ardóttir bæjarstjóri því væntanlega kosin formaður SSS á fyrsta stjórn- arfundi. Með þeim í stjórn eru Jóna Kristín Þorvaldsdóttir úr Grindavík, Óskar Gunnarsson úr Sandgerði og Birgir Örn Ólafsson úr Vogum, öll forsetar bæjarstjórna. Nýr formað- ur hjá SSS Oddný Harðardóttir Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Grindavík | Verið er að skipuleggja eða undirbúa skipulagningu stórra iðnaðarsvæða í landi Grindavík- ur. Jafnframt mun bærinn efna til markaðssetn- ingar á bænum til uppbyggingar iðnaðar. Þar er horft til orkufreks stóriðnaðar með lítilli mengun um- hverfis. Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavíkur- bæjar, kynnti þessi áform þegar bæj- arstjórarnir á Suðurnesjum sögðu frá því sem efst er á baugi hjá þeim á að- alfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Viðbrögð við niðurskurði Þessi nýja stefnumörkun kemur í kjölfar niðurskurðar þorskveiðiheim- ilda og óánægju forsvarsmanna Grindavíkurbæjar með það að ekki skuli hafa verið tekið tillit til sjávarút- vegsins í bæjarfélaginu við ákvörðun mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar. Ólafur Örn rifjar það upp í samtali við Morgunblaðið að Grindavík hafi byggt allt sitt á fiskveiðum og fisk- vinnslu. Útgerðir þar missi mestan þorskkvóta allra sveitarfélaga í tonn- um talið við niðurskurð stjórnvalda á aflaheimildum í haust. Viðbrögð forsvarsmanna bæjar- félagsins eru að leggja meiri áherslu á iðnaðaruppbyggingu og nýta til þess þá kosti sem svæðið hefur yfir að ráða, svo sem mikið land, góða stað- setningu og mikinn jarðhita. Grindavíkurbær á þegar skipulagt 50 ha iðnaðarsvæði sem hugsað var fyrir fiskeldi vestast í Grindavíkur- landi, við Sandvík. Verið er að skipu- leggja um 150 ha iðnaðarsvæði við Húsatóftir, rétt vestan við bæinn. Þá er ætlunin að taka upp viðræður við meðeigendur bæjarins að óskiptu landi Járngerðarstaða um að taka frá og skipuleggja allt að 500 hektara iðn- aðarsvæði austan Grindavíkurvegar að Reykjanesbrautinni. „Jafnhliða þessum undirbúningi verður farið í öfluga markaðssetningu á þessum svæðum til stóriðju. Við sækjumst eftir samstarfi við aðila til að byggja upp,“ segir Ólafur Örn. Hann tekur fram að ekki sé verið að hugsa um álver heldur fremur iðnað sem mengar umhverfið lítið. Segir að margt komi til greina í því efni. Sér- staklega er horft til orkufreks iðnað- ar. Segir bæjarstjórinn að ákjósan- legt væri að vinna með Hitaveitu Suðurnesja til að nýta orkuna sem þar er til uppbyggingar í sveitarfé- laginu. Taka frá land fyrir stóriðju í Grindavík Morgunblaðið/Brynjar Gauti Orka Grindvíkingar vilja nota orku sem virkjuð er í bæjarlandinu til at- vinnusköpunar þar. Frá orkuveri Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi. Í HNOTSKURN »Nú er um 200 ha iðnaðar-svæði ónotað í Grindavík eða í skipulagsvinnu. »Hugmyndir eru uppi umað bæta við allt að 500 ha svæði, fyrir stóriðju. Ólafur Örn Ólafsson SVEITARSTJÓRNARMENN á Suðurnesjum telja tímabært að hug- að verði að stækkun húsnæðis Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og umræðu vegna nýrra framhaldsskóla. Kemur það fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi SSS um helgina. Umræðan kemur í kjölfar frétta um fjölgun nemenda í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja sem þegar hefur sprengt utan af sér húsnæði sem ný- lega var stækkað og nýja framhalds- skóla. Stjórnendur Grindavíkurbæj- ar hafa vakið athygli á því að Grindavík sé eitt stærsta byggðarlag landsins þar sem ekki er boðið upp á framhaldsnám. Hafa verið viðræður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja um námsframboð þar. Í ályktun SSS er vakin athygli á mikilli fjölgun íbúa á öllu svæðinu. Sérstaklega er tekið fram að brýnt sé að hefja vinnu við stofnun fram- haldsskóla í Grindavík auk þess sem áfram verði staðið að uppbyggingu framhaldsskólastarfs á Vallarheiði. Vilja fram- haldsskóla í Grindavík Skálholt | Skálholtskórinn mun halda útgáfutónleika í Skálholts- dómkirkju laugardaginn 17. nóv- ember næstkomandi, ásamt Barna- og Kammerkór Bisk- upstungna. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Meðal annars flytur Skálholts- kórinn tónlist af disk sínum, „Mín sál, þinn söngur hljómi“, sem út kom í haust á vegum Skálholts- staðar. Einnig verður flutt kant- atan „Leyfið börnunum að koma til mín“ eftir Jón Ásgeirsson og tónlist við ljóð Jónasar Hallgríms- sonar, en þann 16. nóvember, á Degi hinnar íslensku tungu, eru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Einsöngvari með kórunum verður Hrólfur Sæmundsson. Aðgangur er ókeypis og eru all- ir velkomnir. Skálholtskórinn með útgáfutón- leika í kirkjunni LANDIÐ Þorlákshöfn | Stórsveit Suðurlands kemur fram á tónleikum Tóna við hafið í Þorlákshöfn á morgun, mið- vikudag, ásamt djasssöngkonunum Kristjönu Stefánsdóttur og Guð- laugu Dröfn Ólafsdóttur. Stórsveit Suðurlands er skipuð tónlistarfólki sem allt tengist Suð- urlandi á einhvern hátt og hefur áhuga á stórsveitartónlist. Stjórn- andi er Vignir Þór Stefánsson. Efn- isskrá tónleikanna samanstendur af þekktum stórsveitarlögum í anda Glenn Miller og fleiri meistara. Þetta eru þriðju tónleikar Tóna við hafið þennan vetur og verða þeir í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss og hefjast klukkan 20. Stórsveit Suður- lands leikur á Tónum við hafið Eftir Örn Þórarinsson Siglufjörður | Bæjarstjórn Fjalla- byggðar samþykkti á dögunum að taka tilboði Rauðku ehf. í fjögur hús sem í eru sex íbúðir í Siglufirði. Til- boð fyrirtækisins hljóðaði upp á 40 milljónir króna en á húsunum hvíla 75 milljónir. Vonir standa til að Varasjóður íbúðalána greiði mis- muninn þannig að skuldir sveitar- sjóðs lækki við þetta um 75 millj- ónir króna. Óskar Kr. Óskarsson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, sagði í samtali við fréttaritara að nú væri unnið að því að finna hentugt húsnæði fyrir þá sem í húsunum búa, en tvær íbúð- anna standa þegar auðar. Óskar sagðist reikna með að þær íbúðir yrðu afhentar mjög fljótlega og aðr- ar jafnóðum og fólk flytti úr þeim. Þessi hús standa við götuna Hafn- artún og voru byggð í félagslega húsnæðiskerfinu á sjöunda áratugn- um. Tilbúnir við opnun ganga Rauðka ehf. er nýstofnað hluta- félag sem einstaklingar standa að. Tilgangur félagsins er tengdur ferðaþjónustu. Það hefur auk áð- urnefndra íbúða fest kaup á einu húsi á hafnarsvæðinu sem áður var nýtt til fiskverkunar. Óskar bæjarstjóri sagði að auk þessa, að létta skuldabagga af sveit- arsjóði, gerðu menn sér vonir um að þarna kæmi öflugt ferðaþjónustu- fyrirtæki sem yrði tilbúið með starf- semi um það leyti sem jarðgöngin verða opnuð. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Ný not Fjallabyggð selur fjögur íbúðarhús með alls sex íbúðum. Þau verða notuð við ferðaþjónustu. Hér eru tvö af húsunum við Hafnartún. Selja íbúðir fyrir ferðaþjónustu AÐALFUNDUR Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum lýsti yfir full- um stuðningi við áform um bygg- ingu álvers í Helguvík. Fram kemur að brýnt sé að setja sterkar stoðir undir atvinnulífið á svæðinu og rifjað upp í því sam- bandi að stærstu hópuppsagnir í sögu þjóðarinnar hafi komið á síð- asta ári í kjölfar brotthvarfs varn- arliðsins og að þorskkvótinn hafi verið skertur. Það álit er látið í ljósi að afskipti stjórnvalda hljóti fyrst og fremst að miða að því að liðka til fyrir framvindu verkefnisins, að því gefnu að ytri skilyrðum sé fullnægt. Styðja nýtt ál- ver í Helguvík SVEITARSTJÓRNARMENN leggja ríka áherslu á að þeir fjár- munir sem urðu til vegna sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja, fjármagnstekjuskattur sveitarfé- laganna vegna söluandvirðis HS og sölu ríkisins af eignum á Keflavík- urflugvelli renni til uppbyggingar á Suðurnesjum enda séu þar mörg verkefni óunnin. Í ályktun aðal- fundar SSS er þess óskað að haft sé samráð við sveitarfélögin um val á verkefnum og úthlutun fjármagns. Fjármagnið á Suðurnesin ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.