Morgunblaðið - 13.11.2007, Page 42

Morgunblaðið - 13.11.2007, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG VILDI AÐ EINHVER MUNDI BJÓÐA MÉR Á GRÍMUBALL! NEI! Í ALVÖRUNNI?!? STUNDUM FÆ ÉG HEIMÞRÁ... EN ÞAÐ ER KANNSKI EÐLILEGT ÞEGAR MAÐUR ER AÐ HEIMAN... ÉG HELD AÐ Í OKKUR ÖLLUM SÉ LÖNGUN TIL AÐ FARA AFTUR TIL STAÐARINS SEM VIÐ VORUM ALIN UPP Á! HVAÐ HEFUR ÞÚ VERIÐ LENGI AÐ HEIMAN? TÆPT KORTER AF HVERJU LEST ÞÚ ALLTAF FYRIR MIG Á KVÖLDIN EN EKKI MAMMA? VEGNA ÞESS LESTUR FYRIR SVEFNINN ER PABBASTARF ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÞAÐ SÉ EINA „PABBASTARFIГ SETTIR ÞÚ EKKI DISKINN ÞINN Í VÉLINA? SAGA KVÖLDSINS HEITIR, „ÁSTÆAÐN FYRIR ÞVÍ AÐ DRAUMAPRINSINN BJÓ EINN“ DRAUMA HVAÐ? ÞAÐ ER MJÖG MIKILVÆGT FYRIR VÍKING AÐ FORGANGSRAÐA... OG ÁTTA SIG Á ÞVÍ HVAÐ SKIPTIR HANN MESTU MÁLI Í LÍFINU LEYFÐU MÉR AÐ GISKA... SKIPIÐ ÞITT... ER ÞAÐ EKKI? ÞÚ ERT AÐ VERÐA HEITARI PABBI, ÉG ER HRÆDDUR Í ÞESSU SAFNI... MÁ ÉG SOFA VIÐ HLIÐINA Á ÞÉR? AUÐVITAÐ, KALLI VIÐ GETUM HELDUR EKKI SOFNAÐ... MEGUM VIÐ LÍKA FÆRA OKKUR HINGAÐ AUÐVITAÐ ÉG FÆ AÐ MINNSTA KOSTI AÐ KYNNAST BEKKJARSYSTKINUM KALLA TÖLUVERT BETUR EINS OG ÉG HÉLT! ÞAÐ HEFUR EINHVER ÁTT VIÐ ÞESSA VALSLÖNGVU ÞAÐ REYNDI EINHVER AÐ DREPA MARY JANE OG NARNA LEMARR LÉT SIG HVERFA RÉTT ÁÐUR EN TÖKUR HÓFUST dagbók|velvakandi Enn á að herja á lífeyrisþega Í Blaðinu í lok september er grein eftir viðskiptaráðherra um flatan skatt. Undir flestum kring- umstæðum yrði ég feginn ef flatur skattur yrði tekinn upp en það er eitt í greininni sem er stórvarasamt og vona ég að það komi aldrei til fram- kvæmda. Þar er sagt: flatur skattur með skattleysismörkum þó þannig að ef tekjur eru undir skattleys- ismörkum er viðkomandi greiddur mismunurinn. Um leið yrði hvers kyns tekjutrygging vegna elli, örorku og atvinnuleysis afnumin. Já, einmitt það. Flatur skattur á semsagt að koma öllum til góða nema lífeyr- isþegum. Að leggja til að tekjutrygg- ing elli- og örorkulífeyrisþega yrði af- numin segir allt sem segja þarf. Engir aðrir í þjóðfélaginu eiga að taka á sig kjaraskerðingar til móts við flatan skatt nema lífeyrisþegar. Þetta leggur til samfylkingarmaður en helstu loforð Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar voru þau að leggja höfuðáherslu á að bæta kjör lífeyrisþega. Gerir viðskiptaráðherra sér grein fyrir að mjög margir lífeyr- isþegar eru með tekjutryggingu uppá 30-40 þúsund krónur. Á að afnema það til að flatur skattur verði tekinn upp? Ég yrði ansi hræddur um að al- mennir launþegar myndu láta í sér heyra ef til dæmis orlof upp á 10% yrði afnumið til að koma upp flötum skatti. Eða að barnabætur yrðu af- numdar. Ég vona að forsvarsmenn lífeyrisþega verið vel á verði gagn- vart svona fáránlegum hugmyndum ráðherra í ríkisstjórn. Lífeyrisþegi. Allir hlakka til NÚ nálgast jólin og um áramót eru lausir kjarasamningar verkalýðsins, þá bíða einnig öryrkjar sem setið hafa á hakanum í öllu svokölluðu launaskriði. Við höfum beðið eftir rauða litnum í stjórnmálunum, hinum mannlega þætti, og vonumst við eftir að eftir okkur verði munað. Við hlökkum til eins og börnin. Við getum ekki leyft okkur að brosa í búðinni vegna þess að við erum að eyða síð- ustu krónunni. Við hlökkum til að brosa með samfélaginu eins og aðrir. Við treystum á hina nýju rík- isstjórn sem hefur gefið fyrirheit um betri tíma fyrir þá lægst settu í þjóð- félaginu. Veit ég vel að þegar margir fá hlutdeild í almannatryggingunum þá vegur það þungt, en hver vill ekki sjá brosandi þjóð í ferðamanna- straumnum þar sem enginn ágirnist annarra hlut heldur hefur efni á því að kaupa sínar nauðsynjar upp á eig- in spýtur? Vil ég leggja til málanna þá skoðun mína að ríkisstjórnin sem við höfum í dag sé sú réttlátasta sem hugsast getur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur langa reynslu að baki og er mátt- arstólpi stjórnarinnar og Samfylk- ingin er mannúðar- og jafnrétt- isflokkur. Ég á von á að með þessum pólum muni Íslendingar ná lendingu í mörgum erfiðum málum eins og Evr- ópubandalagsmálum sem ég tel að séu þýðingarmikil fyrir okkur í þeim alheimshreyfingum sem eiga sér stað um þessar mundir. Við verðum að treysta nágrönnum okkar og skilja það mikilvæga markmið að samein- aðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Þetta er aldagömul speki sem á jafnmikinn rétt á sér í dag og þegar þetta var fyrst sagt. Ég lít á það sem vor í stjórnmálum okkar sem er að eiga sér stað nú. Stjórnmálin hafa verið að þróast undanfarin ár og jarð- vegurinn undirbúinn fyrir nýtt nú- tímaþjóðfélag þar sem meira jafn- ræði ríkir í hugmyndafræðinni. Framtak einstaklingsins er virt, því að þegar einstaklingurinn getur ein- hverju áorkað brosir þjóðfélagið með þeim sem hefur lagt sitt af mörkum að bæta þjóðfélagið. Öryrkja þyrstir í að vera með og leggja sitt af mörkum til bætts sam- félags. Öryrkjar eru mislitur hópur sem allir vilja verða viðurkenndir sem fyrsta flokks þjóðfélagsþegnar eins og aðrir. Við vonumst til að geta brosað um jólin eins og þorri lands- manna. Ég treysti þessari ríkisstjórn til góðra verka fyrir landsmenn alla hvernig sem í pottinn er búið, áfram mannúð og sanngirni fyrir alla. Bjarni Þór Þorvaldsson, Hraunbæ 182, Reykjavík. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Stafganga nýtur aukinna vinsælda hér á landi og má víða sjá fólk í þess háttar göngu, bæði úti í náttúrunni og á götum borgarinnar. Þessi maður var í stafgöngu við Vífilsstaðavatn í góða veðrinu á laugardaginn. Morgunblaðið/Sverrir Stafganga við Vífilsstaðavatn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.