Morgunblaðið - 03.02.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 33. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SUNNUDAGUR
FJÖL-
BREYTNI
MYRKIR MÚSÍK-
DAGAR HEFJAST
FIMM KYNSLÓÐIR >> 34
SÆTUR
SIGUR
VÍÐFÖRULL Í
ÓPERUHEIMINUM
KRISTINN SIGMUNDSSON >> 30
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
UMRÆÐUR um eignarhald á orkuauðlindum
landsins hafa staðið meira og minna í heila öld,
bæði í samfélaginu og á Alþingi. Og hver er nið-
urstaðan? Því er fljótsvarað: Hún er rýr. Að
minnsta kosti erum við enn að deila um það hver
eigi vatnið og hver eigi jarðhitann djúpt í iðrum
jarðar. Þetta er alltént niðurstaða Aagotar Vigdís-
ar Óskarsdóttur lögfræðings.
„Við höfum sem þjóð ekki komist að niðurstöðu
muni. Frumvarp iðnaðarráðherra, sem nú er til
umfjöllunar í þingflokkum, gengur öðrum þræði
út á að eignir ríkisins á orkusviðinu verði ekki
framseldar einkaaðilum með varanlegum hætti.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir að ef um það næðist pólitísk samstaða á Al-
þingi síðar að selja einkaaðilum land til nýtingar á
orkuauðlindum, t.a.m. í afmörkuðum tilvikum,
væri það að sjálfsögðu heimilt þrátt fyrir ákvæði
frumvarpsins.
Heit umræða í heila öld
Umræður um eignarhald á orkuauðlindum hafa staðið í hundrað ár Niðurstaðan rýr Skortur á
leikreglum skaðlegur, segir formaður Samfylkingar Eignir ekki framseldar, samkvæmt frumvarpi
Orkar tvímælis | 10
um það hvernig við ætlum að haga þessum málum.
Að vísu voru þjóðlendulögin á sínum tíma ákveðin
lausn vegna þess að þá var skorið úr um það að
ríkið færi með eignarhald á stórum landsvæðum
þar sem mjög mikilvægar auðlindir er að finna.
Þeim yfirráðum fylgja eignarráð á téðum auðlind-
um,“ segir Aagot.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, telur að skortur á leikreglum á
þessum markaði hafi verið skaðlegur. Segir hún
löngu tímabært að skýrt sé kveðið á um eignar-
hald á orkuauðlindum til að verja almannahags- Fallvatn Hver á eignarréttinn?
Daniel Sturridge er sparkið í blóð
borið og hefur framganga hans
vakið athygli um víðan völl. Sumir
spá því að hann verði lausnin á
framherjavandræðum, sem Man-
chester City hefur glímt við.
Sturridge er eins
og stormsveipur
Evrópubúar eru margir vonsviknir
með stefnu stjórnar Bush og vonast
eftir grundvallarbreytingu á
bandarískri utanríkisstefnu eftir
forsetakosningarnar.
Stirt samband í
stjórnartíð Bush
Í Bandaríkjunum er komin fram lít-
il en vaxandi hreyfing gegn skatt-
heimtu. Þekktasti málsvari hennar
er leikarinn Wesley Snipes sem
undanfarið hefur átt í vök að verj-
ast fyrir dómstólum.
Snipes vill ekki
borga skattinn
RAGNA Hermannsdóttir var 56 ára
þegar hún útskrifaðist af náttúru-
sviði úr öldungadeild Menntaskólans
við Hamrahlíð árið 1980. Tvítug
hafði hún hafið nám í Garðyrkju-
skólanum á Reykjum, útskrifast það-
an, gift sig og stofnað garðyrkjustöð
í Hveragerði ásamt manni sínum.
Fyrir einskæra tilviljun tók hún
sem valfag kúrs í myndlist í mennta-
skólanum og eftir það varð ekki af
listabrautinni snúið. Þá var hún gift
kona og saman höfðu þau hjónin alið
upp þrjú fósturbörn.
Árin liðu og þegar ekki var lengur
pláss fyrir hana í garðyrkjustöðinni,
eins og hún segir, fékk hún mikinn
áhuga á ljósmyndun. Hún hætti að
reykja og keypti sér myndavél fyrir
peningana sem ella hefðu farið í
sígarettur, kom sér upp ljósmynda-
stofu og stundaði samhliða nám í
ljósmyndun í bandarískum bréfa-
skóla. Hún útskrifaðist eftir tvö ár,
fékk réttindi og síðar tók hún nám-
skeið í faginu í Sun Valley í Idaho.
Straumhvörf
Ragna segir myndlistarkúrsinn
forðum daga hafa valdið straum-
hvörfum í lífi sínu. Hún fluttist til
Reykjavíkur og hóf nám í Myndlista-
og handíðaskólanum og skömmu
síðar skildu þau hjónin. Síðar hélt
hún til Bandaríkjanna í ljósmynda-
skóla og hóf þar að búa til bókverk,
sem að hluta eru á sýningu hennar í
Suðsuðvestur í Keflavík, sem nú
stendur yfir. Eftir að Ragna útskrif-
aðist úr Myndlista- og handíðaskól-
anum ákvað hún, sextug að aldri, að
reyna að komast inn í Ríkisakadem-
ínua í Amsterdam. „Það var spenn-
andi að vera í Hollandi,“ segir
Ragna, sem nú er 83 ára og á að baki
langan og litskrúðugan feril. | 22
Á miðjum aldri gekk Ragna Hermannsdóttir í gegnum miklar breytingar
Svo lengi
lærir sem lifir
Á áttugasta og fjórða aldursári heldur
hún sýningu á listaverkum sínum
Árvakur/Kristinn
Ævintýralegt líf Ragna Hermannsdóttir hefur lært garðyrkju, ljósmyndun
og myndlist, m.a. í Ríkisakademíunni í Amsterdam.
VIKUSPEGILL
„ÞAÐ voru vonbrigði að samningar skyldu ekki takast
um tillögur þær sem ASÍ lagði fram, ég reiknaði satt að
segja með að það myndi ganga. Mér fannst þetta borð-
leggjandi kostur og mér kom á óvart að þetta skyldi
verða niðurstaðan,“ segir Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
varaforseti ASÍ, í viðtali í Morgunblaðinu í dag, þar sem
hún ræðir m.a. stöðu kjaraviðræðnanna og tillögur sem
ASÍ lagði fyrir stjórnvöld. „Í þessari ríkisstjórn eru ólík-
ir flokkar og það hlýtur að auka breidd í afstöðunni. Við
vitum ekki hvort það er gott eða slæmt, við vitum það
ekki fyrr en samningar eru búnir. Fyrirfram tel ég að
það sé af hinu góða. En það er nýtt að semja við ríkis-
stjórn sem hefur svona mikinn meirihluta og hvaða áhrif
það hefur er ekki ljóst enn þá.“ | 28-29
Ólíkir flokkar ríkisstjórnar
auka breidd í afstöðunni
Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir