Morgunblaðið - 03.02.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 03.02.2008, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR L eikurinn hefst með Stjörnustríði á Hótel Loftleiðum miðvikudag- inn 13. febrúar. Þá verð- ur forsmekkurinn gef- inn. Á meðal „stjörnu“-spekinga sem spá í spilin verða Birkir Jón Jónsson þingmaður, Davíð Oddsson seðla- bankastjóri og Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttardómari. Daginn eftir verður landsleikur á milli Íslands, kvennasveitar Banda- ríkjanna, þar sem Hjördís Eyþórs- dóttir er liðsmaður, og tveggja norskra sveita, heimsmeistara í karlaflokki og Norðurlandameistara í kvennaflokki. Bridgehátíðin hefst fyrir alvöru um kvöldið með keppni í tvímenningi, sem stendur fram á föstudag, og sveitakeppnin verður frá laugardegi til sunnudags. Margir sterkustu briddsspilarar heims hafa keppt á Bridgehátíð frá því hún var fyrst haldin árið 1982 og árið í ár verður engin undantekning þar á. Til leiks mæta fjölmargir spil- arar sem unnið hafa til helstu met- orða. Á engan er hallað þegar nefndir eru norsku heimsmeistararnir sem lyftu Bermúdaskálinni í haust, Tor Helness, Boye Brogeland og Erik Sælensminde. Norska sveitin vann raunar einnig sveitakeppnina á Bridgehátíðinni í fyrra. Fyrsta Bermúdaskálin „Daginn! Daginn,“ heilsar Helness og virðist hress á morgnana. Engin ástæða til annars, því hann hafði sig- ur kvöldið áður [fimmtudags] í fjórðu umferð forkeppni norska meist- aramótsins, sem leikin er með útslátt- arfyrirkomulagi. „Við verðum að vinna sex leiki í röð til að komast í úrslitin, þar sem átta til tíu pör etja kappi saman. Þá hefst glíman fyrir alvöru,“ segir hann. Helness hefur oft verið á meðal keppenda á Bridgehátíð, en þetta er í fyrsta skipti sem hann mætir til leiks sem heimsmeistari. Til þess að kom- ast á heimsmeistaramótið í Kína þurfti norska sveitin að verða á meðal fimm efstu í Evrópukeppninni og náði hún þriðja sæti. „Þetta er í fyrsta skipti sem Norðmenn vinna heimsmeistarakeppnina í bridds,“ segir Helness. „Við höfum tvisvar komist í úrslit, en töpuðum í bæði skiptin.“ – Hvað breyttist? „Ég veit það ekki,“ segir hann og dæsir. „Í hverju liði eru þrjú pör og að mínum dómi var þetta í fyrsta skipti sem Noregur gat teflt fram þremur góðum pörum, áður áttum við tvö góð pör, og eitt síðra. Keppnin stendur lengi og öll pörin þurfa því að spila marga leiki. Þess vegna eigum við ekki möguleika ef allir standa ekki fyrir sínu. Það spilar líka inn í að við höfum öðlast meiri reynslu.“ – Hvernig myndirðu lýsa keppn- isstílnum? „Við beitum norska stílnum, en þó er þetta mismunandi eftir pörum. Eitt þeirra spilar meira í anda Íslend- inganna, leikur úthugsuð vinnings- kerfi, en hin tvö spila frjálsara bridds og sókndjarfara. Fjölbreytnin hjálp- ar til, en auðvitað verðum við að vera góðir spilarar!“ – Svo spilarðu póker! „Já, briddsið hefur verið meira en bara áhugamál síðustu árin, en ég spila póker mér til gamans. Þú hefur eflaust heyrt af háum verðlauna- fjárhæðum á pókermótum, en ég er ekki í þeim stellingum, heldur fyrst og fremst að skemmta mér. Ég hef spilað á netinu og í Las Vegas. Fyrir tíu árum komst ég á lokaborðið í Vegas, varð í fimmta sæti, og síðasta sumar tók ég þátt í aðalkeppninni, þar sem sex til sjö þúsund taka þátt, og varð í 254. sæti.“ – Hvernig nýtist bridds í póker? „Stærsti kosturinn er sá að maður er vanur að halda einbeitingu klukku- tímum saman og getur haldið það út dögum saman.“ – Sonur þinn spilar líka! „Honum gekk vel á pókermóti í London fyrir tveimur árum, varð í öðru sæti á mjög stóru móti og fékk um tvær milljónir norskra króna í verðlaunafé.“ – En hann spilar ekki bridds? „Ekki enn, en hann skilur út á hvað það gengur. Og talar um að hann vilji læra það. Hann er aðeins 21 árs.“ – Hversu gamall varst þú þegar þú byrjaðir að spila bridds? „Ég byrjaði að spila heima hjá for- eldrum mínum níu ára gamall og tók þátt í fyrsta mótinu tólf eða þrettán ára. Og þá byrjaði gamanið. Eftir það hef ég spilað í næstum fjörutíu ár samfleytt.“ – Hvað heillar við briddsið? „Það er erfitt að segja. Ég hef stúderað stærðfræði, tölfræði og tölv- unarfræði – segi stundum að ég muni tölur en síður nöfn. En þetta snýst um meira en það. Bridds er ástríðu- fullur leikur og þrátt fyrir að ég hafi spilað ótal spil áratugum saman, þá endurtekur spilið sig aldrei. Hver hönd er ný og hver leikur nýr. Það heillar, auk þess sem maður eignast góða vini og spreytir sig á spennandi keppni.“ Hann bætir við eftir stundarþögn. „Og svo fæ ég að ferðast til Ís- lands!“ Óviðeigandi gagnrýni „Þetta hefur verið gott ár,“ segir Hjördís Eyþórsdóttir, sem mætir til leiks á Bridgehátíð, eini íslenski at- vinnumaðurinn í íþróttinni. Og þar sem hún er með varanlega búsetu í Bandaríkjunum gat hún unnið sér inn rétt til að keppa í öðru af tveimur kvennalandsliðum Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu sl. haust. Það tókst og sveitin hafnaði í fimmta sæti eftir að hafa tapað fyrir Frökkum í átta liða úrslitum með einu stigi. „Þetta er grátlega lítill munur eftir 96 spil,“ segir hún. „Lokastaðan var 178 gegn 177 stigum! En það var mik- ill heiður að keppa fyrir hönd Banda- ríkjanna og skemmtileg lífsreynsla.“ – Það vakti athygli að hin banda- ríska sveitin, sem vann keppnina, gagnrýndi Bush við verðlaunaaf- hendinguna. „Mér fannst það óviðeigandi og ekki rétti staðurinn fyrir slíkar yf- irlýsingar,“ segir Hjördís. „Þegar menn koma fram fyrir hönd síns lands, þá varðar engan um það hvar þeir standa í pólitík.“ Hjördís mætir til leiks með tveim- ur stöllum sínum úr bandaríska lið- inu, Rozanne Pollack og Cheri Bjerk- an, en sú fjórða er Valerie Westheimer. Allt eru þetta þekktar landsliðskonur og hefur Bjerkan m.a. orðið heimsmeistari kvenna. Sjálf hefur Hjördís unnið ófáa Bandaríkja- meistaratitla, en slík mót fara fram þrisvar á ári, og hún vann silfrið á HM í Montreal árið 2002. – Hvað spilarðu mikið á dag? „Í keppnisferðum spilar maður frá níu á morgnana til ellefu á kvöldin, oftast eru tarnirnar þrjár yfir daginn og stendur hver þeirra í þrjá til fjóra tíma. Yfirleitt eru mótin vikulöng. Maðurinn minn [Curtis Cheek] er einnig atvinnumaður og það sýnir hversu álagið er mikið að hann verð- ur aðeins heima í tvær vikur í janúar, febrúar og mars, en ég verð aðeins meira heima, því ég spila líka á net- inu.“ – Þar hefurðu spilað á móti kunn- um viðskiptajöfri! „Já, ég spila í hópi með Jimmy Cayne, sem hefur verið mikið í frétt- um upp á síðkastið, eftir að Bear Sterns, sem hann var forstjóri fyrir, tapaði háum fjárhæðum vegna svo- nefndra undirmálslána. Einhvern tíma var talað um 700 milljónir – doll- ara!“ Árvakur/Arnór Ragnarsson Meistarar Norska sveitin sigraði í fyrra, Jan Petter Svendsen, Erik Sælensminde, Rune Hauge og Tor Helness. Byrjaði að spila bridds níu ára Bridgehátíð hefst um miðjan febrúar og koma þátttakendur víða að. Pétur Blöndal rýndi í spilin og talaði við heimsmeistarann Tor Helness og at- vinnumanninn Hjördísi Finnbogadóttur. » „Þetta er grátlega lítill munur eftir 96 spil,“ segir Hjördís. „Lokastaðan var 178 gegn 177 stigum! En það var mikill heiður að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna og skemmtileg lífsreynsla.“ Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður www.lyfja.is - Lifið heil VEISTU AÐ VATN ER BESTI SVALADRYKKURINN? ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 3 59 11 0 1/ 07 K ratar eru kratar, – í Al- þýðuflokknum og í Sam- fylkingunni. Og ganga aftur. Nú hefur það gerst, að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd til að rýmka reglur um fjárfestingar erlendra aðila hér á landi og tekur fram, að vel komi til greina að hleypa erlendum aðilum að sjávarútveginum. Er engu líkara en hann hafi fundið rykfallið minnisblað frá þeim tíma, sem flokksbróðir hans, Jón Sigurðsson, sat í sama stóli. En hætt er við, að miðinn lendi aftur of- an í skúffunni og rykfalli. Þorskstofn- inn er ekki til sölu á erlendum upp- boðsmörkuðum. Það var trúaratriði hjá krötum, að það yrði lögfest, að nytjastofnar á Ís- landsmiðum væru sameign íslensku þjóðarinnar. Þetta er almenn yfirlýs- ing og geðþekk og við greiddum öll atkvæði með henni á Alþingi. Til þess voru þorskastríðin háð að svo sé. En auðvitað þýddi yfirlýsingin, að fisk- veiðiheimildirnar yrðu ekki seldar út- lendingum. Löggjafinn er sam- kvæmur sjálfum sér. Vonandi! Fiskverkafólk hefur misst vinnuna í sjávarplássum um allt land. Sum- part vegna breyttra framleiðsluhátta. Sumpart skertra aflaheimilda. Og þetta er saga, sem við þekkjum öll, og teygir anga sína til áranna áður en kvótakerfið var lögfest. Ég hygg, að viðskiptaráðherra hafi, meðan hann var óbreyttur þingmaður, lýst yfir áhyggjum sínum af þessari þró- un. Þess vegna hlýtur hann að svara því nú, hvaða áhrif hann telji, að það muni hafa á sjávarbyggðir, ef fisk- veiðiheimildirnar komast smátt og smátt í hendur útlendinga, – ef nytja- stofnar á Íslandsmiðum hætta að vera sameign íslensku þjóðarinnar. Því að ein eftirgjöf leiðir til annarrar. Og markmiðið hjá hinum eina og sanna krata að ryðja burt öllum hindrunum á vegferðinni til Evrópu- sambandsins. Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra hefur bent á, að því verði ekki haldið fram með neinum rétti, að ekki séu til staðar áhuga- samir innlendir fjárfestar, þegar kemur að fjárfestingum í íslenskum sjávarútvegi, og tekur kaup Brims á Útgerðarfélagi Akureyringa sem var sem dæmi. Og hann segir enn frem- ur: „Í fyrsta lagi mega menn ekki gleyma að útlendingar hafa heimild til óbeinnar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi. Þær heimildir eru rýmri en margir hafa gert sér grein fyrir. Í öðru lagi þá geta útlendingar fjárfest í íslenskum sölufyrirtækjum, svo dæmi séu nefnd, og þess hefur raunar orðið vart síðustu misserin.“ Í viðtali við 24 stundir 19. janúar ítrekar hann, að skoðun sín og stefna Sjálfstæðisflokksins sé óbreytt í þessum efnum og bætir við: „Sjávar- útvegurinn er mjög sérstök atvinnu- grein og hér er um að ræða nýting- arrétt á okkar helstu auðlind. Við háðum okkar landhelgisstríð á sínum tíma til þess að fá óskoraðan rétt til nýtingar á okkar efnahagslögsögu. Og ég vil ekki að við glötum þeim ár- angri í einhverju fljótræði.“ Atvinnulíf okkar og gjaldeyrisöflun er ekki eins háð sjávarútveginum og áður. Eftir sem áður stendur hann PISTILL » Og markmiðið hjá hin- um eina og sanna krata að ryðja burt öllum hindr- unum á vegferðinni í Evr- ópusambandið. Halldór Blöndal Fiskveiðiheimildirnar séu í höndum Íslendinga undir lífskjörum og byggð hér á landi. En auðvitað ekki nema hann búi við eðlileg rekstrarskilyrði og ör- yggi. Flestir eða allir, sem gera út á fiskveiðar, hafa keypt til sín kvóta og margir allan kvótann, sem þeir eiga. Og það eru þeirra sjálfsögðu mann- réttindi að fá að nýta hann, ráða yfir því sem þeir hafa keypt. Ég vænti þess, að mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna geri ekki athugasemdir við það. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.