Morgunblaðið - 03.02.2008, Page 26
kvikmyndir
26 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
G
ael García Bernal,
fulltrúi mexíkanskrar
bíónýbylgju númer eitt,
kom fljúgandi frá Ís-
landi að þessu sinni en
annars hefur leiðin legið milli Trolly-
wood og Taílands, til að leika hjá Lu-
kas Moodysson í myndinni Mammut,
og milli Lundúna og Reykjavíkur til
að leika hjá Gísla Erni Garðarssyni.
Stundum kemur hann við í Mexíkó …
Það var myndin Drama/Mex á
Gautaborgarhátíðinni í fyrra, sem
kom nýja framkvæmdastjóranum
Marit Kapla á sporið að eigin sögn.
Spor sem tengist því allra nýjasta í
mexíkanskri kvikmyndagerð, því
Drama/Mex var framleidd hjá Can-
ana Films í Mexíkóborg, kvikmynda-
félagi sem Gael García Bernal stofn-
aði ásamt vinum sínum, leikaranum
Diego Luna og framleiðandanum
Pablo Cruz. Pablo er einnig á svæð-
inu, með tvær myndir úr félagsbúinu:
Gocohochi og fyrrnefnda Déficit.
Gael reynist töfrastjarna sem skín
kvölds og morguns í hvaða veðri sem
er, heiðskíru eða dumbungi, jafnvel
húðarigningu og roki, óháð lang-
ferðum um loftin blá. Það er dáðst að
látleysinu: bara eins og hver annar
bíógestur í gallabuxum og hettu-
treyju, ekki einu sinni í hlífðarfötum í
óveðrinu! Og stjörnuleikarinn lætur
ekki bíða eftir sér í blaðaviðtal nema
örfáar mínútur, þrátt fyrir stíft pró-
gramm dag og nótt.
„Gott kvöld, gott kvöld, yndislegt
veður,“ tónar hann einsog til að prófa
ósýnilegan hljóðnema um leið og
hann dansar inn úr rigningunni að
morgni dags. Staður: veitingahúsið
Respekt við Járntorgið, nálægt aðal-
miðstöð hátíðarinnar. Þegar hann
fær hrós fyrir tónlistarval nætur-
innar, hljómar svarið að bragði:
„Þú hefur ekki smakkað matinn
sem ég elda!“
Í opnunarveislunni var hann nefni-
lega ráðinn DJ eftir miðnættið, leysti
af heimastjörnur úr kvikmynda- og
tónlistarheiminum á DJ-maraþoni
fram eftir nóttu. Nærvera hans varð
dúndrandi hápunktur næturinnar og
hin ábyrga Marit Kapla lukkuleg með
þá kynningu á mexíkönsku þema árs-
ins.
– Á Gael fleiri áhugamál. Fótbolta?
„Jú að sjálfsögðu er fótbolti hluti af
lífinu. Ég var sex ára gamall þegar
argentínska liðið kom í heimsókn og
ég sá Maradona. Ég sá hann leika, ég
féll í stafi. Augnablik sem ég man
enn …“
En auðheyrilega eru kvikmyndir
númer eitt, og vinirnir, vinnan, leik-
urinn, samstarfið.
Ný bíógullöld í Mexíkó og sein-
asta „nýnýnýbylgjan“.
Fyrir um 50 árum átti Mexíkó sitt
gullna tímabil í kvikmyndagerð. Svo
kom lægð. Árið 2000 voru aðeins 6
nýjar myndir frumsýndar, en þar á
meðal var Amores perros sem reynd-
ist upphafið á heimsframa Gael
García Bernals. Árið 2006 voru gerð-
ar 34 myndir og árið 2007 heilar 70.
Mexíkanskar myndir njóta nú athygli
á stórhátíðum, í Cannes, Feneyjum
og víðar, með leikstjórana Alejandro
González Iñárritu, Alfonso Curón og
Guillermo del Toro í fararbroddi.
Michel Lipke sem á stuttmynd í
mexíkönsku deildinni – El niño sin
piernas no puede Bailar/Fótalausi
strákurinn getur ekki dansað – hefur
gert úttekt á þróuninni fyrir Gauta-
borgarhátíðina, og talar um Nýja
gullöld. Hann er jafnaldri Gaels, um
þrítugt, og starfsmaður Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Mexíkó,
Contempráneo de la Ciudad de Méx-
ico.
Hina öru fjölgun á innlendum bíó-
myndum þakkar hann meðal annars
nýjum lögum sem auðvelda prívat
fyrirtækjum að styrkja kvikmyndir.
En listræna velgengni tileinkar hann
annars vegar þeirri kynslóð kvik-
myndagerðarfólks sem barðist við að
gera óháðar myndir á áttunda og ní-
unda áratugnum og eru enn að, svo
sem Arturo Ripstein, Paul Leduc,
Nicolás Echevarría, María Novaro,
Jorge Fons, Felipe Cazals, Maryse
Sistach, Luis Estrada Carlos Carrera
og Ignacio Ortiz. Og hinsvegar talar
hann um „the newest new new new
generation“ í mexíkanskri bíómynda-
gerð, og leggur fram langan nafna-
lista, meðal annars nýliðana á Gauta-
borgarhátíðinni með myndir frá 2007:
Simón Bross; Ernesto Contreras;
Enrique Begne, Pedro Aguilera og
Israel Gárdenas að ógleymdum Gael
García Bernal.
„Svo lengi sem þessir óháðu kvik-
myndagerðarmenn halda áfram að
gera þær myndir sem þá í alvöru
langar til að gera og meðan kerfið
leyfir það og hugsanlega örvar, þá er
bjart framundan,“ er niðurstaða Mic-
hels. Bæði hann Gael leggja þó
áherslu á að engin einlit stefna sé í
gangi heldur myndir eftir ungt hæfi-
leikafólk, sem er frumlegt og fylgið
sér. Þegar Gael spáir í framtíðina,
segir hann athyglina undanfarið gera
meiri kröfur um gagnrýnið hugarfar
og vandvirkni og að kvikmyndagerð-
arfólk sé meðvitað um það.
„Mínuskynslóðin“
„Í fátækum löndum eru allar hliðar
lífsins pólitískar, allar ákvarðanir.
Hvar þú gengur í skóla, hvaða fót-
boltaliði þú heldur með, hvað þú borð-
ar. Allt skiptir máli,“ segir Gael sem
hikar ekki við að taka afstöðu, og
segja hug sinn í málum sem lúta að
menningarlegum aðskilnaði og þjóð-
ernishyggju.
En hver ætli hafi verið kveikjan að
„Déficit“, sem þýðir mínus á íslensku
eða halli. Gael segist vera fæddur
með þetta orð alveg framan í sér rétt
eins og orðin kreppa og gengisfelling.
„Það á við um mína kynslóð, ekki
bara mig, við erum mínuskynslóðin,
alin upp við svona hverfulleika. Einn
daginn er gengið þetta og næsta ann-
að. Tilgangslaust að láta stjórnast af
peningum, þeir eru eitthvað sem
kannski er ekki til. En tvöfeldnin í
pólitík og gjáin milli ríkra og fátækra
er óhugnanleg. Og ég nota „Déficit“
líka um tilfinningalegan mínus.
Söguþráðurinn kviknaði í timbur-
mönnum. Það er algengt í Mexíkó-
borg að fá kolvitlausar upplýsingar,
ef maður spyr til vegar, vera á leið í
sama partí alla nóttina. Sagan var um
strák sem lokkar kærustuna sína til
að bruna hingað og þangað, allt útaf
annarri stelpu. Ekki baun gaman að
segja frá svoleiðis nema í timbur-
mönnum og aðeins timbraður hlust-
andi hlær. En þrem dögum seinna
komst sagan á kreik í kollinum,
breyttist í alvöruhugmynd með trag-
ískum undirtónum og „Déficit“ varð
lykillinn. Það er glaumur og gleði í
myndinni en líka harmleikur sem ég
vona að komist til skila.“
Í Déficit eða Mínus, leikur Gael
dekraðan dreng rúmlega tvítugan
Cristobal, yfirstéttarstrák í við-
skiptafræði. Faðir hans er hátt settur
spilltur pólitíkus og þegar foreldr-
arnir flýja landið til að redda sér úr
klandri, byrjar ballið: á yfirborðinu er
veisla; undir yfirborðinu glittir í
gjána milli fólks.
Þegar Cristobal og systir hans
bjóða til veislu í foreldralausri lúx-
usvillu, afhjúpast afstaðan til þjón-
ustufólksins sem býr í húsinu og allt-
af í kallfæri, og til jafnaldrans Adán,
sonar garðyrkjumannsins sem passar
eða passar ekki inn í gengið. Eins
reynir á sambandið við 17 ára litlu
systur, föður í fjarlægð og kærustu á
villigötum.
Leikarar eru sérstök tegund
Þótt mér þyki Gael bara heppinn
með leikara í aðalhlutverkið og hon-
um þyki „skelfilegt“ að leikstýra
sjálfum sér, eftir að hafa slegið í gegn
í tvígang í hlutverkum hjá Alejandro
González Iñárritu (Amores Perros og
Babel), leikið Che Guevara hjá Wal-
ter Salles, klæðskipting hjá Pedro
Almodóvar ásamt fleiri afrekum,
langar mig að heyra hvað honum
fannst um að leikstýra meðleik-
urunum í Mínus?
„Allt annað mál,“ segir Gael. „Það
var gaman, þá þóttist ég vita hvað ég
var að gera. Leikarar eru alveg sér-
stök tegund. Það þarf að segja rétta
hluti á hárréttum augnablikum og
vita hvenær á ekki að segja aðra
hluti. Leikstjóri þarf að skapa örygg-
isnet fyrir leikarann og geta sagt
gjörðu svo vel, nú er þér óhætt að
henda þér fram af …“
– Og hvað ertu þá núna? Hvað viltu
helst gera? Sérðu þig sem leikara eða
leikstjóra í framtíðinni?
„Ég er leikari. Ég lít fyrst og
fremst á mig sem leikara. Það er starf
sem ég er stoltur af.“
Canana films – og „skrímslið“
Ambulante
Þeir félagar í Canana Films eru
búnir að framleiða fjórar myndir á
minna en tveim árum: J.C. Chávez,
heimildarmynd eftir Diego Lunas,
auk þriggja áðurnefndra mynda, en
Cocohochi er eftir Israel Gárdenas og
Laura Amelia Guzmán. Og ekki nóg
með eigin kvikmyndaframleiðslu, Ga-
el segir glaður frá Ambulante, heim-
ildarmyndahátíð sem þeir félagar
hafa komið á laggirnar og sem ferðast
nú milli 18 borga í Mexíkó með 30
heimildarmyndir, sýningar í bíó, ut-
anhúss, í fangelsum og skólum.
„Svo nú er Ambulante orðin
skrímsli, það er fínt, hún er farin að
lifa eigin lífi,“ segir hinn „energíski“
Gael, sem nokkrum mínútum síðar er
mættur á fullsetinn Drekann ásamt
nývöknuðum Pablo Cruz.
Þeir opna þann hluta hátíðarinnar,
sem nefnist Nýja Mexíkó, með húmor
og myndinni Déficit. Gael tileinkar
sýninguna öllum fjarstöddu vinunum
sem tóku af örlæti tóku þátt í tilurð
hennar og bætir við: „Hún er ekkert
löng! Þið náið ekki að láta ykkur leið-
ast, ég lofa því!“
En Gael hefur ekki sagt sitt síðasta
orð þann daginn; hann á að mæta í
tjaldinu bak við Drekann á „master-
klass“ klukkan þrjú síðdegis. Og það
gerir hann. Rétt eins og nóttina áður
fara símarnir á loft um leið og hann
birtist; allir að nota innbyggðu
myndavélarnar sínar. Eins og á rokk-
tónleikum. Og orðalag fótboltaþjálf-
arans „tala saman strákar“ er ekkert
langt undan þegar hann lýsir sam-
stöðunni meðal mexíkanskra nýliða í
kvikmyndagerð, „compañeros hvað
sem á dynur“.
Svo flýgur hann á braut sína um
himinhvolfið, en mexíkanska bylgjan
heldur áfram að virka á 10 daga
Gautaborgarhátíð. Tvær merkar
heimildarmyndir fljóta með: Traz-
ando Aleida/Tracing Aleida eftir
Christiane Burkhard og Nacido sin/
Born Without eftir Eva Norvind, um
munnhörpuleikarann Jose Flores,
fæddan án handleggja … en með
mikla persónutöfra (kosin besta
heimildarmyndin í Mexíkó á liðnu
ári). Horft er til baka með gersemum
frá fyrra gullaldartímabili: Días de
Otoño eða Haustdagar frá 1963 og
Macario frá 1960, báðar eftir Roberto
Galvadón, og frá 1950 er myndin Los
Olvidados eftir Luis Buñuel, sem
fluttist til Mexíkó á fimmta áratugn-
um og gerði þá mynd sína um götu-
börn í Mexíkóborg.
Mínus frá Mexíkó í plús
„Það er skelfilegt að leik-
stýra sjálfum sér! Von-
laust að spjalla sam-
an …,“ sagði Gael García
Bernal við Kristínu
Bjarnadóttur á Al-
þjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Gautaborg. Þar
opnaði hann þann hluta
hátíðarinnar sem helg-
aður er Mexíkó með
mynd sinni Déficit eða
Mínus. Hans fyrsta leik-
stjórnarverkefni og hann
sjálfur í aðalhlutverki.
Skærasta stjarnan Gael García Bernal kom fljúgandi frá Íslandi á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Gautaborg, þar sem hann er skærasta stjarnan og
löngu er uppselt á hátíðarsýningu Déficit í Drekabíóinu við Járntorgið.
Í fátækum löndum eru
allar hliðar lífsins póli-
tískar, allar ákvarðanir.
Hvar þú gengur í skóla,
hvaða fótboltalið þú held-
ur með, hvað þú borðar.
Allt skiptir máli.
Höfundur er ljóðskáld