Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 10
10 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
GEIR H. HAARDE
hefur veikt stöðu flokksins veru-
lega í borginni,“ segir Geir. „Það
hefur líka haft neikvæð áhrif á
fylgi flokksins á landsvísu. Það er
mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn
að sem fyrst verði bundinn endi á
þá óvissu sem ríkir um forystu
flokksins í borgarstjórn.
Við fengum reyndar mjög góða
Gallup-könnun í janúarmánuði sem
sýndi að báðir stjórnarflokkar
bættu við sig fjórum prósentustig-
um frá kosningunum. Ég tel að
stefna okkar á vettvangi landsmál-
anna sé til þess fallin að auka
traust á ríkisstjórninni og stöðu
hennar, ekki síst Sjálfstæð-
isflokknum. Fyrir tæpum tveimur
vikum lýsti oddviti borgarstjórn-
arflokksins því yfir að hann hygð-
ist hugleiða stöðu sína. Ég reikna
A
ugu margra hafa
beinst að Sjálf-
stæðisflokknum á
undanförnum
mánuðum. Enda
hefur flokkurinn
lent í sviptingum í
höfuðvígi sínu,
Reykjavík, og á landsvísu hefur
ríkisstjórnin tekist á við ýmis erfið
mál. Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur flokkurinn tapað miklu fylgi
í Reykjavík og öfugt við það sem
Geir H. Haarde, formaður flokks-
ins og forsætisráðherra, hafði von-
ast eftir virðist það hafa haft áhrif
í landsmálunum.
„Enginn vafi leikur á að það
ástand sem skapast hefur á vett-
vangi borgarmálanna og í borg-
arstjórnarflokki sjálfstæðismanna
með því að Vilhjálmur og borg-
arstjórnarflokkurinn nái farsælli
niðurstöðu í sínum málum innan
skamms tíma. Meginmáli skiptir að
fullkomið traust ríki á milli sam-
herja á þeim vettvangi og að sjálf-
stæðismenn í borgarstjórn vinni að
sínum góðu málum í meirihluta
kjörtímabilið á enda.“
Kjarasamningar ekki of dýrir
– Ríkisstjórnin hefur þó staðið í
ströngu.
„Ríkisstjórnin hefur komið
mörgu í verk og sumt af því
byggst á erfiðum ákvörðunum, nú
síðast loðnuveiðibannið. Það var
óhjákvæmilegt eftir síðustu rann-
sóknir á miðunum en við vonum að
loðnan sýni sig aftur og munum
auðvitað vakta miðin. En ef
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
2010 Kjarasamningurinn gildir vonandi út 2010, að sögn Geirs H. Haarde forsætisráðherra, og skapar forsendur til að auka stöðugleika og draga úr verðbólgu.
ÉG HYGGST EKKERT BREYTA
UM STJÓRNUNARSTÍL
Dagarnir eru viðburðaríkir í lífi forsætis-
ráðherra. Í mörg horn að líta. Pétur Blön-
dal ræðir við Geir H. Haarde um skoð-
anakannanir, fjármálamarkaðinn,
kvótakerfið, stýrivexti og sitthvað fleira.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
»Tökum yfirlýsingar einstakra
manna misjafnlega hátíðlega
12