Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 12

Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 12
12 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ GEIR H. HAARDE þetta er raunin, að bannið standi út vertíðina, er höggið þungt fyrir þennan mikilvæga atvinnuveg. Hitt er annað mál að niðurstaða kjarasamninga í síðustu viku eyðir óvissu. Vonandi gildir kjarasamn- ingurinn út árið 2010 sem skapar forsendur til þess að sameiginlegt markmið okkar og hins almenna vinnumarkaðar náist – að auka stöðugleika og draga úr verðbólgu. Ríkið kemur að samningunum með margvíslegum hætti og flest atrið- in eru í samræmi við stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar. Margt stóð til á kjörtímabilinu og gott að um þau atriði skuli vera þokkalega breið samstaða. Ég nefni sérstaklega skattaþátt- inn, skattalækkanir einstaklinga í formi hækkunar persónuafsláttar og aukinna barna- og vaxtabóta. En einnig verulega lækkun á tekjuskattshlutfalli fyrirtækja úr 18 í 15%. Til lengri tíma tel ég að sú breyting sé tekjuöflunaraðgerð og hafi ekki í för með sér tekjutap, nema þá til skamms tíma. Það var reynslan af lækkuninni úr 30 í 18% á sínum tíma. Með þessu sendum við skilaboð út á markaðinn um að við viljum standa við bakið á at- vinnulífinu, ekki síst bönkunum, í þeim lausafjárerfiðleikum sem steðja að. Ég finn að þetta atriði vegur þungt við núverandi að- stæður.“ – Getur verið að kjarasamning- arnir hafi verið of dýrir í þeirri lægð sem framundan er? „Ég tel ekki að svo sé. Kjara- samningarnir eru mjög skyn- samlegir af hálfu aðila vinnumark- aðarins. Þeir byggjast á þeirri hugsun að verðmætasköpun sé undirstaða velferðar í landinu. Auðvitað reyna allar launahækk- anir á fyrirtækin en sú skyn- samlega niðurstaða að afmarka launahækkanir við tekjulægstu hópana auðveldar fyrirtækjunum að standa við skuldbindingar sínar. Það er hins vegar ekki ósennilegt að fyrirtæki í ýmsum greinum þurfi á næstu mánuðum að hag- ræða í rekstri sínum til að bregð- ast við utanaðkomandi áföllum, einkum lánsfjárkreppu á alþjóð- legum mörkuðum og aflabresti á miðunum hér heima. Íslenskt efna- hagslíf hefur reyndar aldrei verið betur í stakk búið til að standa af sér slík áföll og kemur þar einkum til sterk staða ríkissjóðs, gífurlegar eignir lífeyrissjóðanna og stöndug og vel rekin fyrirtæki.“ Flinkir bankamenn – Eftir því er tekið að þú ert já- kvæður í tali þrátt fyrir að nei- kvæðar fréttir berist af fjár- málamörkuðum hér heima og erlendis? „Það er vegna þess að grunn- þættirnir í íslensku efnahagslífi og í starfsemi bankanna eru mjög sterkir. En það er lausafjárskortur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, sem við höfum ekki búið til og ráð- um ekki við, en sem bitnar á fjár- málastofnunum okkar. Sama má segja um olíuverðshækkanir úti í heimi. Við ráðum ekki för á þeim markaði. Og þær hækkanir á elds- neyti sem við flytjum til landsins eru í raun skattur á okkar þjóð- arbú. Sem betur fer höfum við heil- mikinn styrk til þess að takast á við þennan vanda. Þá er ég að tala um ríkið, sem er nánast skuldlaust, og getur þar af leiðandi búið sig undir áföll. Bankarnir eru líka að bregðast við þessum aðstæðum, hafa sterkan efnahag og hafa haft góða afkomu framundir það síð- asta. Auðvitað verða bankarnir, hver og einn, að hugsa um að leysa sín mál sjálfir og ég get ekki kennt þeim neitt í því efni. Bankamenn á Íslandi eru flinkir í sínu fagi og munu áreiðanlega grípa til þeirra ráðstafana sem mögulegar eru til að draga úr kostnaði og minnka efnahagsreikning bankanna ef með þarf. Ég tel það til fyrirmyndar að nýr stjórnarformaður Glitnis lækk- aði laun stjórnarmannanna sjálfra. Þó að sparnaður af því sé ekki stór með hliðsjón af heildarefnahag bankans felur hann í sér mikilvæg táknræn skilaboð.“ – Það hlýtur að vera áhyggjuefni hversu hátt skuldatryggingaálag er á íslensku bankana? „Ljóst er að staða bankanna, hvað varðar öflun nýs lánsfjár á erlendum mörkuðum, er núna mjög þröng, eins og allra annarra. En kunnáttumenn telja að það kunni að rætast úr því ástandi á næstu mánuðum. Ef ekki er staðan náttúrlega mjög alvarleg. Ég fór vel yfir þetta á nýaf- stöðnu Viðskiptaþingi og við höfum átt margvísleg samtöl um þetta mál við bankana, Seðlabankann og fleiri. Ríkisstjórnin er tilbúin að leggja sitt af mörkum til þess að koma réttum upplýsingum á fram- færi um íslensk efnahagsmál, aldr- ei er nóg að gert í þeim efnum, og efna til samstarfs um það milli bankanna, Seðlabankans, og fleiri. Það mun ekki breyta grundvall- arástandi á fjármálamörkuðum en við getum reynt að útrýma rang- hugmyndum um stöðu Íslands. Ekki gleyma því að ef horft er til þess hversu hagkerfið er opið og alþjóðavætt eru til erlendir að- ilar sem hagnast á því að taka stöðu gegn krónunni og eru til- búnir til þess, án þess að við fáum rönd við reist. Við þurfum að búa okkur undir allt mögulegt í þeim efnum. Það er fylgifiskur opins fjármálakerfis að slíkir fjárfestar eru á ferðinni, stundum kallaðir spákaupmenn, og geta verið sjóðir og fjárfestar af ýmsu tagi.“ – Þú talaðir um að við hefðum ekki búið til lausafjárskortinn, en má ekki rekja erfiðleikana að hluta til gífurlegrar skuldsetningar ís- lenskra fjármálafyrirtækja? „Bankarnir hafa verið djarfir í útrásinni og fjárfestingum erlend- is. Það hefur verið hluti af þeirra viðskiptamódeli, ef svo mætti segja, og við þær aðstæður sem komnar eru upp, þá getur það skapað erfiðleika. En ég býst nú við því að flestar fjárfestingar bankanna erlendis hafi verið góðar í þeim skilningi að þær skili ávöxt- un og þá eru þær ábyggilega góð söluvara ef á þarf að halda á nýjan leik. Sumir hafa sagt að þetta við- skiptamódel feli í sér ábyrgðarleysi en ég vil ekki taka mér það orð í munn. En menn hafa verið djarf- ir.“ Trúnaðartraust lykilatriði – Er hægt að ætlast til þess að ríkið komi til bjargar með fjármuni skattborgaranna ef einkageirinn hefur farið fram með óábyrgum hætti? „Almennt séð er það ekki. Auð- vitað stöndum við vörð um okkar bankakerfi að því leyti sem lög og reglur segja til um. En ríkið tekur aldrei alla áhættu af mönnum sem standa í áhætturekstri. Það hefur aldrei verið ætlunin. Ríkissjóður stendur vel og hefur gott láns- traust en það verður líka að gæta þess að nýta það með réttum hætti.“ – Hefur ríkið bolmagn til þess að hlaupa undir bagga ef allt fer á versta veg? „Í fyrsta lagi hafa bankar komið vel út úr álagsprófum, m.a. þeim sem Fjármálaeftirlitið leggur fyrir þá, og svo hefur Moodys komist að jákvæðri niðurstöðu um stöðu rík- issjóðs gagnvart bönkunum ef á reyndi. En enginn ríkissjóður get- ur staðið af sér alvöru hrun í bankakerfinu. Við sjáum hvað Northern Rock kostar breska ríkið og þó er það lítill banki á þeirra mælikvarða. Aðalatriðið er að það ríkir trún- aðartraust og við höfum ekki ástæðu til að gera því skóna að bankar hér séu í hættu. Og þar með ekki innistæður sparifjáreig- enda. Trúnaðartraust er lykilatriði í öllum bankaviðskiptum.“ – Skuldatryggingaálag ríkisins hefur einnig hækkað, raunar þre- faldast. „Okkur finnst það mjög óeðlilegt vegna þess hvað ríkissjóður skuld- ar lítið, nettóskuldir eru nálægt núlli og ríkissjóður hefur engin sérstök áform um að fara út á lánamarkaðina. Þetta álag er því undarlegt. En það er sennilega til komið vegna þess að einhverjir telja að með óbeinum hætti beri ríkissjóður ábyrgð á bönkunum. Þetta er því afleiðing af hinu háa skuldatryggingaálagi bankanna, sem ég tel reyndar líka að sé óeðli- lega hátt miðað við hvað þeir eru stórir og stöndugir.“ – Rætt hefur verið um að fram- undan séu sameiningar íslenskra fjármálafyrirtækja, til dæmis Glitnis og Landsbankans. Myndu stjórnvöld greiða fyrir því gagn- vart samkeppnisyfirvöldum? „Ég vil ekki ræða einstaka banka í því sambandi en það er hugsanlegt að það þurfi að breyta eitthvað lagaumhverfinu. Ég úti- loka ekki neitt slíkt. En í grunninn er það hlutverk markaðarins að leita leiða til að hagræða og þá hvort sameiningar í einhverri mynd eru svarið.“ – Er líklegt að ríkisstjórnin horfi til þess jákvæðum augum? „Ég tel að við myndum gera það ef sýnt væri fram á að ekki væri farið gegn hagsmunum almennings í samkeppnislegu tilliti.“ Smæðinni fylgir sveigjanleiki – Það hefur lengi staðið til að taka á stöðu Íbúðalánasjóðs. „Og stendur til. Félagsmálaráð- herra er með vinnu í gangi við að einangra félagslega þáttinn í íbúðalánakerfinu, þannig að við getum tryggt áfram aðstoð til þeirra sem þurfa á því að halda en rekið íbúðalánakerfið að öðru leyti á markaðslegum forsendum. Í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem gefin var út í tengslum við nýja kjarasamninga, segir að unnið verði að stefnumótun í húsnæð- islánum þar sem skyldur hins op- inbera verði skilgreindar og verka- og kostnaðarskipting ríkis og sveit- arfélaga endurskoðuð. Jafnframt vill ríkisstjórnin taka til endur- skoðunar fyrirkomulag vaxta- og húsnæðisbóta. Þetta tengist allt hlutverki Íbúðalánasjóðs. Einnig ætlum við að fella niður stimp- ilgjöld vegna kaupa á fyrstu fast- eign og koma á sparnaðarkerfi fyr- ir ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið í fyrsta skipti. Við erum ekki ennþá búin að finna framtíðarfyrirkomulagið í þessum efnum. Það má vel vera að það verði heildsölubanki, eins og þekkist sumstaðar í öðrum löndum, sem allir sem veita húsnæðislán eiga viðskipti við. En það er hins vegar rangt að tala um bankakerfið, sem að vísu kom fullgeyst inn í íbúða- lánamarkaðinn fyrir nokkrum ár- um, sem einhvern sérstakan óvin íbúðareigenda eða húsbyggjenda. Það er pláss fyrir alla þessa aðila á lánamarkaði fyrir íbúðarhúsnæði og við þurfum að koma umgjörð- inni í varanlegt horf sem allir geta unað við. Það er ómögulegt að Íbúðalánasjóður sé endalaust bit- bein og deiluefni í stjórnmálum eða milli ríkisvaldsins og atvinnulífs- ins.“ – Þú nefnir ímyndarmál sem dæmi um sértækar aðgerðir rík- isstjórnarinnar. Er fleira á prjón- unum? „Já, það er verkefni okkar dags daglega að vinna að því. Sérstakur hópur á vegum forsætisráðuneyt- isins vinnur nú að tillögum um hvernig við getum bætt ímynd Ís- lands. Viðskiptaþingið í fyrra var sérstaklega helgað því og við tók- um þátt í undirbúningi að því nokkrir ráðherrar á þeim tíma. Fundurinn sem við ráðherrar átt- um með bankastjórum nú nýverið var hinsvegar ekki nema að hluta til um það enda er ljóst að þegar kemur að íslenskum efnahags- og bankamálum eru bankarnir best fallnir til að útskýra sína stöðu og gera það sjálfir vandlega gagnvart lánardrottnum, matsfyrirtækjum og fleirum. En hvað varðar efnahagslífið á Íslandi og sérstöðu þess, sem er mikil og helgast af því hvað hér er lítið hagkerfi, þá geta stjórnvöld vel útskýrt hana og kannski betur en bankamennirnir. Það er athygl- isvert að þegar hingað koma er- lendir sérfræðingar og setja sig virkilega vel í inn í málin, eins og Frederic S. Mishkin, sem vann skýrslu með Tryggva Þór Her- bertssyni árið 2006, og Richard Porters, sem vann skýrslu með Friðriki Má Baldurssyni í fyrra, hvað þeir eru fljótir að átta sig á því að grundvallaratriðin eru í góðu lagi en smæð hagkerfisins veldur stundum misskilningi. Og við erum svo heppin hér á Íslandi að smæðinni fylgir líka Hagræðing Geir segir ekki ósennilegt að fyrirtæki þurfi á næstu mánuðum að hagræða í rekstri sínum. »Sameigin- leg fiskveiði- stefna ESB hefur siglt í strand Árvakur/Kristinn Ingvarsson 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.