Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 35
framandi slóðir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 35
Hulda Björnsdóttir skrifar frá Kína
6. febrúar var síðasti dagur árs svíns-
ins hér í Kína. Ár rottunnar, sem tal-
ið er verða gott ár, er gengið í garð.
Til stóð að ég færi til vinafólks hér í
Fuzhou en þar sem mig langaði að
upplifa hvernig síðasti dagur ársins
væri í borginni fór ég út að ganga um
fimmleytið. Ég gleymdi mér á göng-
unni, kom ekki heim fyrr en tæplega
níu, og þar sem ég hafði gleymt sím-
anum heima heyrði ég ekki þegar
hringt var til þess að láta mig fá
heimilisfang vinafólksins.
Það var yndislegt að ganga um
Hua Lin RD og Wu Zuli RD. Ég hef
gengið þessar götur frá 11. janúar og
þær hafa verið haldreipi mitt í að rata
um borgina, fasti punkturinn í tilveru
minni. Ég hef villst alveg ótrúlega.
Þar sem ég gekk um göturnar þetta
kvöld brosti fólk til mín, kinkaði kolli
og allir voru fullir tilhlökkunar. Faðir
gekk á eftir mér með dóttur sinni og
var að segja henni eitthvað sem virt-
ist mjög merkilegt og ég skildi auð-
vitað ekki. Þau gengu í rólegheitum
alveg eins og ég og nutu þess að anda
að sér síðustu augnablikum ársins.
Brosmilt fólk
Fólkið í búðunum brosti til mín og
vinkaði, það er farið að þekkja þessa
undarlegu konu sem gengur um göt-
urnar og brosir til þeirra. Það er auð-
velt að láta sér þykja vænt um fólkið
sem hefur orðið á vegi mínum. Margt
ungt fólk var á ferli um leið og ég, það
er duglegra að heilsa og finnst flott
að geta sagt hello og mér finnst voða
flott að geta sagt ni hao á móti. Eldri
kynslóðin er varkárari og horfir bara.
Þennan síðasta dag ársins var þetta
öðruvísi, margir heilsuðu og brostu
svo unaðslega að hjarta mitt fylltist
fögnuði og sælu.
Sumir héldu á litlum börnum og
víða gengu fjölskyldur saman. Það
var mikið sprengt síðustu dagana. Í
götunni minni voru sölustaðir fyrir
flugelda og ungt fólk þar að afgreiða.
Það reyndi að fá mig til þess að
kaupa en ég sagði meio og allir hlógu
dátt.
Fínir skór fyrir nýja árið
Það er fullt af skóbursturum sem
hafa reynt að fá þessa konu til þess
að leyfa sér að bursta skóna, sem hef-
ur auðvitað verið full þörf á, en hún
hefur ekki gefið sig. Fljótlega eftir að
ég kom til Fuzhou fann ég stað þar
sem ég gat fengið að borða yndislega
súpu með núðlum og grænmeti.
Fyrsta kvöldið fann starfólkið leið til
þess að komast að því hvað ég vildi,
hvaðan ég var og vakti mikla hrifn-
ingu að ég væri frá Íslandi. Við not-
uðum tölvu og orðasafn og gekk bara
vel. Það var opið hjá þeim 6. febrúar
og ég fékk mér heita súpu í kuld-
anum. Þegar ég gekk út var einn skó-
burstarinn að bursta skó ungs manns
sem sat með son sinn í fanginu. Ég
stoppaði og horfði á þá, það var ekki
hægt annað þeir voru svo fallegir og
skóburstarinn vandaði sig svo mikið.
Ungi maðurinn útskýrði fyrir mér að
það væri nýarsdagur á morgun og
skórnir þyrftu að vera fínir. Ég
spurði hvernig maður segði gleðilegt
nýtt ár á kínversku og feðgarnir
kenndu mér það í sameiningu.
Ég ákvað að fara heim með varn-
inginn sem ég keypti í stórmark-
aðinum, koma aftur og láta pússa
mína skó svo ég yrði fín á nýársdag.
Te samkvæmt hefðinni
Á leiðinni heim kom ég við í tebúð.
Ég átti ekkert almennilegt te og
þarna var búð sem ég gat fengið það
sem mig langaði í. Nú sá ég hvað ég
hafði látið plata mig laglega í júní
þegar ég keypti te og hló dátt með
sjálfri mér. Þegar te er keypt í al-
mennilegri tebúð fær viðskiptavin-
urinn auðvitað að bragða og þá bæt-
ast oft fleiri við. Ungur maður
bættist í hópinn í þetta skipti og við
drukkum jasminte sem var búið til í
glærri könnu.
Ég horfði á kubbinn opnast og
þetta unaðslega blóm birtist. Eigand-
inn sagði að þetta te væri gott fyrir
bragð og auga. Ég valdi samt það
sem var venjulegra því mér fannst
bragðið af því betra. Svo var mér
sýnt eitthvað kringlótt með lítilli
kónguló, auðvitað dauðri. Vatni var
hellt yfir gripinn og bunaði þá út úr
honum eins og gosbrunni. Voða fal-
legt og mér skildist að þetta ætti að
vera gott fyrir sálina. Kannski kemst
ég seinna að því hver tilgangurinn er
en ég keypti ekki gripinn. Gleðilegt
nýtt ár.
Áramót Í götunni voru sölustaðir fyrir flugelda og þar var af nógu að taka
enda mikið sprengt um áramót í Kína.
Fagnað Ung og brosmild stúlka brá blysi á loft í tilefni áramótanna.
Þennan síðasta dag ársins
var þetta öðruvísi, margir
heilsuðu og brostu svo un-
aðslega að hjarta mitt
fylltist fögnuði og sælu.
Á síðasta degi svínsins
Höfundur flutti búferlum
til Kína í upphafi ársins.