Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 45
UMRÆÐAN
SÍÐUSTU dagana hafa fjöl-
miðlar gert það að umtalsefni að
ég hafi í góðra vina
hópi farið inn á stað
þar sem póker var
spilaður upp á pen-
inga og tekið í spil.
Augljóst er að sumum
þykir það ekki við
hæfi að þingmaður
setjist að slíku spila-
borði og kallar það
viðhorf raunar á þarfa
umræðu um hvers
vegna nokkrar teg-
undir fjárhættuspils
eru leyfðar og jafnvel
reknar af ríkisvaldinu
á meðan aðrar eru í hlutskipti litla
ljóta andarungans og hafa beðið
þess lengi að fá uppreist æru.
Ég hef alla tíð verið áhugamað-
ur um margs konar spilamennsku.
Ég spila t.d. bridge af miklum móð
og hef bæði orðið Íslandsmeistari í
þeirri íþrótt og Norðurlandameist-
ari með unglingalandsliði Íslands.
Skemmtilegast finnst mér þó að
spila við móðurömmu mína sem er
á níræðisaldri og nýtir sér langa
reynslu við spilaborðið með þeim
meistaralega hætti að fáir stand-
ast henni snúning.
Í spilum eru peningar stundum
lagðir undir. Á bingókvöldum
greiða menn þátttökugjald og hin-
ir heppnu hirða pottinn. Á bridge-
hátíð sem ég sótti um síðustu helgi
greiddu allir þátttökugjald og þeir
slyngustu fengu hluta þess í verð-
launafé. Með mér við spilaborðin
voru hæstaréttardómari, seðla-
bankastjóri og bæjarstjóri og fjöl-
miðlar greindu með velþóknun frá
stóru og vel heppnuðu móti.
Reglulega birta fjölmiðlar fréttir
af þeim sem stærsta vinninginn
hljóta í happdrættum og lottó- eða
lengjuleikjum landsmanna. Í nafni
menntagyðjunnar og hjálp-
arsamtaka eru spilakassavíti rekin
í skúmaskotum um alla borg og á
fjölmörgum netsíðum er fólki boð-
ið að leggja fjármuni undir og
freista gæfunnar í alls kyns spil-
um, veðmálum og happdrættum.
Lög banna ekki að spilaður sé
póker upp á peninga. Það mega
þingmenn, bankastjórar og móð-
urömmur gera hvenær sem þeim
sýnist. Þess vegna datt mér ekki í
hug eitt andartak að fjölmiðlum
gæti þótt það misbjóða almennu
velsæmi að ég spilaði póker en
skemmtilegt og til fyrirmyndar að
ég spilaði bridge upp á verð-
launafé.
Ég skal játa það líka að ég hef
spilað á sunnudögum. Ég þori að
veðja upp á sumum finnist það alls
ekki við hæfi.
Ég hafði ekki hugsað mér að
verða sérstakur baráttumaður fyr-
ir réttinum til að leggja peninga
undir í spilum. Sjálfsagt hefur um-
ræðan, þótt hún hafi skapast af
frekar litlu tilefni, verið upplýs-
andi engu að síður. Ég hef líka
fengið tilefni til að hugleiða hvers
vegna það sé ólöglegt að útvega
aðstöðu á borð við herbergi og
spilaborð fyrir áhugasama pók-
erspilara á meðan yfirvöld setja
kíkinn fyrir blinda augað hvað
varðar t.d. rekstur spilakassavít-
anna sem því miður leika marga
sem falla í spilafíkn afar grátt.
Flestir fara létt með að spila
bridge, póker, tuttuguogeinn, vist
eða rommí, leggja kapal og spila
matador án þess að verða spilafíkl-
ar. Flestir geta líka fengið sér
rauðvín með helgarsteikinni án
þess að verða alkóhól-
istar. Frá þessu eins
og öðru eru auðvitað
undantekningar, sum-
um verður hált á
svellinu og þurfa að
leita sér aðstoðar, en
lausnin er ekki allt-
umlykjandi for-
sjárhyggja sem bann-
ar fjárráða
einstaklingum að auka
spennuna við spila-
borðið með því að
leggja svolítið undir.
Með því er ég þó ekki
að gera lítið úr þeim vanda sem
spilafíkn er og vil skoða þau mál
enn frekar í ljósi þeirrar umræðu
sem átt hefur sér stað.
Tvískinnungurinn blasir við öll-
um sem horfa á þetta mál sann-
gjörnum augum. Ég hvet til hrein-
skiptinnar umræðu um hvað sé
heppilegt í þessum efnum og
hvernig við getum tryggt að hin
ólíka spilamennska landsmanna
geti setið við sama borð.
Að sitja við sama borð
Birkir Jón Jónsson vill hrein-
skiptna umræðu um ólíka spila-
mennsku landsmanna
» Lög banna ekki að
spilaður sé póker
upp á peninga. Það
mega þingmenn, banka-
stjórar og móðurömmur
gera hvenær sem þeim
sýnist.
Birkir Jón Jónsson
Höfundur er þingmaður og áhuga-
maður um spilamennsku.
Fréttir
í tölvupósti
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
GRÆNAHLÍÐ – ARINN
6 herb. 148,2 fm á 3. hæð (efstu) ásamt 36,3 fm bílskúr. Hæðin skiptist í hol, stórar stof-
ur með arni, 4 herbergi, eldhús, baðh., þvotthús og gestasnyrtingu. V. 45 m. 7372
SÓLEYJARRIMI – FALLEGT ÚTSÝNI
Glæsilegt 210 fm (þ.a. er bílskúr 29,9 fm) raðhús byggt árið 2006. Eignin skiptist m.a. í
þrjú svefnh., fatah., tvö baðh., tvær stofur og eldh. Allar innréttingar og gólfefni er mjög
vandaðar. Örstutt er í leik- og grunnskóla. V. 56,9 m. 7349
ÓLAFSGEISLI – GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Fallegt og vel staðsett tvílyft 200 fm raðhús í fremstu röð við Ólafsgeisla með óviðjafn-
anlegu útsýni yfir Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu, borð-
stofu, sjónvarpsherbergi, fjögur herbergi, þvottahús, baðherbergi og geymslu. Einstakt
útsýni. Frábært skipulag. Garðurinn snýr til suð-vesturs. Mjög sólríkur. 7368
LANGABREKKA 18 – SÉRHÆÐ
Mjög björt og vel skipulögð 125,9 fm efri sérhæð ásamt 24,5 fm bílskúr, samtals 150,4
fm í fallegu og vel viðhöldnu tvíbýli. V. 38,9 m. 7359
BÓLSTAÐARHLÍÐ – LAUS STRAX
Falleg og vel skipulögð 137,9 fm (þ.a. bílskúr 21,8 fm) 4ra herb. íbúð á 3. hæð á eftirsótt-
um stað. Eignin skiptist í forstofuhol, eldh., stofu og borðstofu, þrjú svefnh, og baðh.
Örstutt er í leiksvæði fyrir börn og alla þjónustu. Eignin stendur innarlega í botnlanga.
V. 28,9 m. 7330
EFSTALAND – LAUS STRAX
Mjög glæsileg, björt og vel skipulögð 3ja herb. íbúð á 2. hæð með miklu útsýni, í góðu
fjölbýli. Íbúðin er öll nýstandsett á vandaðan hátt. Nýtt eldhús, gólfefni, hurðir og skápar.
Glæsileg eign. V. 25,9 m. 7143
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 17.00-18.00.
OPIÐ H
ÚS
SÓLHEIMAR – ÞARFNAST VIÐHALDS
Vel skipulöggð 104,9 fm íbúð á 10. hæð
með mjög miklu útsýni. Íbúðin skiptist í
forstofu, baðherbergi, eldhús, hol. 2 til 3
herbergi og stofu. V. 22,5 m. 7364
LAUFENGI – LAUS STRAX
4ra herb. björt og góð íbúð á 2. hæð með
sérinngangi og stæði í opnu bílskýli (nr. 9).
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, 3 svefnher-
bergi, stofu, eldhús og baðherb. m. þvotta-
aðstöðu. V. 22,7 m. 7356
ÁRBORG - LAND VIÐ SELFOSS
44 ha land við núverandi íbúðabyggð á Selfossi. Landið liggur að Björk, sem
er í eigu Árborgar og er framtíðar byggingarland Selfoss. Þetta land er í land-
búnaðarnotkun og er hægt að sækja um lögbýlisrétt eða skipuleggja hluta eða
allt til íbúðabyggðar. Land sem eykur verðgildi sitt. Allar nánari upplýsingar
gefur Andri Sig., sölustjóri DP FASTEIGNA í síma 561 7765 eða
andri@dp.is. ATH. Grunnskóli og leikskóli innan um 1 km fjarlægðar.
Flugvöllur er í um 1,5 km fjarlægð.
KJARRVEGUR 2
GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGSDALNUM
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Glæsilegt einbýlishús/tengi-
hús staðsett við opið svæði,
skógi vaxið með útsýni yfir
Fossvogsdalinn og til sjávar.
Húsið er um 380,0 fm þ.m.t.
30,7 fm bílskúr, kj. og tvær
hæðir, innréttað á vandaðan
og smekklegan hátt og skipt-
ist m.a. í 4 glæsilegar stofur,
tvær garðstofur, eldhús með
ljósum innréttingum, 5 góð
herb. auk líkamsræktarherb.
og fataherb. og tvö baðherb.
Allar innréttingar eru sér-
smíðaðar og granít, parket og flísar á gólfum. Suðursvalir út af efri
hæð. Ræktuð lóð með fallegu holtagrjóti og timburverönd með
skjólveggjum. Verðtilboð.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.