Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 49

Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 49 UMRÆÐAN Til leigu 235 fm nýlegt einbýlishús á einni hæð við Fákahvarf. Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu og fjögur her- bergi. Innbyggður bílskúr. Húsið er laus strax. Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali í síma 861-8511 Fákahvarf, við Elliðavatn - til leigu Mb l 97 50 30 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 Mi›hraun 16 • Laust strax 172 m2 Lagerhúsnæ›i • 178 m2 Lagerhúsnæ›i + 112 m2 skrifstofur á efri hæ›. Selst í einu e›a sitt hvoru lagi. Vöruhús vi› Sundahöfn 4000 m2 til leigu Til leigu 4.000 m2 í n‡ju vöruhúsi vi› Sundahöfn. Afhending vori› 2008. Topp fjárfesting! Vesturbær – verslun og fljónusta Til leigu allt a› 2000 m2 í væntanlegum n‡byggingum í nágrenni vi› BYKO í Fiskisló›. Nor›lingabraut 4: Stær› húss allt a› 3.100 m2 og ló› 4.287 m2 Nor›lingabraut 8: Stær› húss allt a› 4.800 m2 og ló› 6.813 m2 Auk fless eru áætla›ir bílakjallarar undir húsunum. Atvinnuhúsnæ›i í Nor›lingaholti Glæsilegar n‡byggingar fyrir atvinnuhúsnæ›i til sölu á frábærum sta›. 6 8 10 Byggingarnar eru á hönnunarstigi. Afhending eftir 1 ár. Vesturlandsvegur Rétt hjá Bauhaus ló›inni. Til sölu/leigu 2.000 m2 í væntanlegri n‡byggingu, sem mun blasa vi› umfer›inni. Ármúli Til leigu ca. 680 m2 lagerr‡mi á jar›hæ› og ca. 300 m2 skrifstofur‡mi á 1. hæ›. Laus 1. apríl. Til leigu í Síðumúla Mjög gott 342 m² skrifstofuhúsnæði með sérinngang á 2. hæð í nýlegu húsnæði við Síðumúla til afh. strax. Húsnæðið er bjart með glugga á 3 vegu, fullinnréttað með ágæta blöndu af opnum rýmum og lokuðum her- bergjum. Dúkur á gólfum og niðurtekin loft með innfelldri lýsingu. Góðar tölvulagir og tölvuskápur í sérherbergi. Mikil lofthæð. Öryggiskerfi. Snyrtilegt og gott skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Áhugasamir hafið samb. við skrifstofu okkar. Sanngjarnt leiguverð. Sími 511 2900 Mb l 97 55 38 SÖNGSKÓLINN í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes hefur enn á ný staðið í stórræðum. Að þessu sinni flutti Nemendaópera skólans meistaraverk Mozarts, Brúðkaup Fígarós, í tvígang fyrir fullu húsi í Langholtskirkju. Brúð- kaupið er ein vinsælasta ópera allra tíma og byggist á leikriti Beaum- archais, La folle jour- née, ou le Mariage de Figaro. Leikrit þetta olli uppnámi enda hörð samfélagsádeila. Óperan hefur í gegn- um aldirnar verið túlkuð á marg- víslegan hátt. Að þessu sinni var valin leið gamanóperunnar. Hentaði það vel bæði hinum ungu söngv- urum og svo sýning- arrýminu. Sibylle Köll leikstjóra tókst með einstakri útsjónarsemi og innsæi í verkið að skapa sannfærandi um- hverfi og skýrar persónur með einföldum ráðum. Hver karakter átti sinn auðkennislit og stór litrík nafnspjöld létu áheyrendur ekki velkjast í vafa hver væri á ferð- inni. Umfram allt tókst Sibylle að laða fram gleði og hlýju hjá söngvurunum og fá þá til þess að njóta stundarinnar og er það mik- ilvægt skref fyrir unga söngvara. 38 nemendur Söngskólans skiptu með sér hlutverkunum en 28 hljóðfæraleikarar úr Sinfón- íuhljómsveit Íslands mynduðu hljómsveitina sem Garðar Cortes stýrði af öryggi. Hann valdi smekkleg tempó sem hentuðu hin- um ungu söngvurum vel. Hljóm- sveitin spilaði létt og fallega og naut tónlist Mozarts sín í frábær- um hljómburði Langholtskirkju. Una Sveinbjarnardóttir kons- ertmeistari hefur sérstakt lag á Mozart og nær fram tærum hljómi sem þó er fullur hlýju. Þetta mun vera í 27. sinn sem óperudeild Söngskól- ans setur upp nem- endasýningu. Fyrsta nemendaópera Söng- skólans var Hans og Gréta eftir Hump- erdinck, og var sýnd árið 1982. Síðan hefur hvert verkefnið rekið annað og mikil stíg- andi verið í starfsem- inni. Um fjögur þús- und söngnemendur hafa gegnum árin skráð sig í Söngskól- ann. Má án efa telja Söngskólann í Reykjavík í hópi þeirra stofnana sem stuðlað hafa mest að framgangi sönglistar og óperu á Íslandi. Stór hluti starf- andi íslenskra óperusöngvara hef- ur numið við skólann og ótaldir eru þeir sem starfa í kórum eða við kórstjórn hérlendis. Erlendar rannsóknir benda til þess að fyrr- um söngnemendur séu mikilvægur hluti þeirra sem sækja óperur, söngtónleika eða komi að sjálf- boðnu starfi sem því tengist. Söngskólinn nýtur styrkja til kennslulauna frá Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum í landinu, en skólinn nýtur einnig styrkja frá Baugur Group sem leggur fjár- muni í að styrkja grunn góðrar söngmenntar á Íslandi. Nemendur Söngskólans stóðu sig með prýði og ekki var ein röng tilfinning í flutningi þeirra. Inn á milli glittir í söngstjörnur framtíð- arinnar. Einmuna gleði skein úr hverju andliti og ekki mátti á milli sjá hvorir skemmtu sér betur flytjendur eða áheyrendur. Það er mikilvægt hverjum þeim sem hyggur á starf óperusöngvara að fá að spreyta sig á sviði og með hljómsveit, fyrir framan fullan sal gesta. Þetta er ómetanleg reynsla fyrir alla þátttakendur og eiga þeir efalaust einhverjir seinna meir eftir að hugsa með hlýju til þessa tíma. Reynsla og ráðgjöf at- vinnufólksins sem stóð að þjálfun og undirbúningi Brúðkaupsins mun fylgja þeim út lífið. Forráðamönnum söngmennt- unar á Íslandi má ljóst vera að Söngskólinn í Reykjavík er fjör- egg sjálfrar söngmenntarinnar á Íslandi og ættu menn að taka höndum saman við einkaframtakið og tryggja rekstur skólans til framtíðar. Gleði í Brúðkaupi Fígarós Björn Jónsson skrifar um Söng- skólann Í Reykjavík og upp- færsluna á Brúðkaupi Fígarós »Nemendur Söng- skólans stóðu sig með prýði og ekki var ein röng tilfinning í flutningi þeirra. Inn á milli glittir í söng- stjörnur framtíðarinnar. Björn Jónsson Höfundur er óperusöngvari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.