Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 50

Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 50
50 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ebba GuðrúnEggertsdóttir fæddist í Bald- urshaga á Akureyri 21. apríl 1935. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri föstudaginn 8. febrúar síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Eggerts Ólafssonar, f. 1905, d. 1975, og Jónínu Benediktsdóttur, f. 1906, d. 1994. Ebba giftist hinn 3. janúar 1960 Benjamín Ár- mannssyni rafvirkja frá Borg- arfirði eystra, f. 6.11. 1925, d. 26.7. f. 1985, gift Inga Karli Sigríð- arsyni, dóttir þeirra er Sigríður Karen og Benjamín Ingi, f. 1989, unnusta Fanndís Ósk Brynj- arsdóttir, sonur þeirra er Fenrir Ingi. 4) Guðrún Greta, f. 1963, gift Helga Haraldssyni, f. 1963, þeirra börn eru Herdís f. 1990 og Har- aldur f. 1992. 5) Eggert, f. 1967, kvæntur Ástu Hrund Jónsdóttur, f. 1972, börn þeirra eru Gunnar Atli f. 1992, Sigrún Ebba, f. 1999 og Marín Ósk, f. 2003. Fyrir á Eggert soninn Fjölni Þey, f. 1986. 6) Sævar Ísleifur, f. 1973, sam- býliskona Lilja Jakobsdóttir, f. 1976, dætur Lilju eru Steinunn Alda og Maríanna Vilborg. Ebba bjó alla ævi í Eyjafirði, lengst af á Akureyri. Hún var hús- móðir og vann ýmis störf, lengst af á skóverksmiðjunni Iðunni. Útför Ebbu fór fram frá Höfða- kapellu á Akureyri 15. febrúar, í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. 1980. Börn þeirra eru: 1) Anna Jónína, f. 1959, gift Brynjari Jacobsen f. 1957, þeirra börn eru: Guð- mundur Rúnar, f. 1978, sambýliskona Sigríður Ragna Björgvinsdóttir, þau eiga 2 syni, Óliver Enok og Aron Ísak, Ebba Særún, f, 1982, á hún 2 dætur, And- reu Marý og Elisu Lönu og Brynja Ey- rún, f. 1995. 2) Ár- mann f. 1960. 3) Sigríður, f. 1961, gift Guðgeiri Halli Heimissyni, f. 1956, þeirra börn eru Rósa Dröfn, Elsku hjartans mamma. Með þessu ljóði Jórunnar Ólafsdóttur frá Sörlastöðum, sem hún sendi okkur þegar pabbi dó 1980, viljum við kveðja þig með hjartans þökk fyrir allt það sem þú varst okkur og gerðir fyrir okkur. Brostinn er hlekkur í bjartri festi brenna á hvörmum tár. Þung fylgdu örlög þöglum gesti þau gjöra sporin sár. Hér örlagavöldin öflum sínum óvænt stefndu til leiks. En skuggi fannst ei á skildi þínum og skær var æ logi kveiks. Gafstu af auðlegð þíns góða hjarta gafst með fögnuð í hug. Vígðir þú líf þitt vorinu bjarta vísaðir öðru á bug. Mild var þín hyggja og mundin haga mild var hún gerð þíns brags. Með ljósum stöfum var lífs þíns saga letruð til hinsta dags. Burtu er vina og breytt er högum brennir sig undin inn. En gullnar perlur frá gæfudögum geymast við arinn þinn. Minning þín vakir sem vor í hjarta veitandi yl og frið. Gróðurinn angar og geislar skarta er gistir þú hærra svið. Minning þín mun ávallt lifa með okkur og lýsa um ókomin ár. Við vitum að nú líður þér vel, þú ert komin til pabba og annarra ástvina. Við elskum þig. Börnin þín og fjölskyldur. Elsku amma mín. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég sakna þín svo sárt. Vil ekki trúa því að þú sért farin. Við áttum svo gott spjall einar uppi í herberginu þínu þegar ég kom norður um jólin. Það var ynd- islegt. Ég sá það samt á þér að þú varst ekki eins og þú áttir að þér að vera, ég fann það á mér. Þrátt fyrir það var hrikalega erfitt að fá frétt- irnar um þenna illvíga sjúkdóm þinn í byrjun janúar. Ég talaði oft við þig í síma meðan á veikindum þínum stóð og þú varst alltaf svo jákvæð. Eitt skiptið sagðir þú við mig: „Nabba mín, ég held ég sé bara öll að hressast.“ Mér fannst svo frábært að heyra jákvæðni þína og vildi að orð þín hefðu ræst, en það fór á hinn veginn. Ég á svo margar yndislegar og góðar minn- ingar frá þér, amma mín. Að koma í Byggó var alltaf yndislegt og það verður erfitt að koma þangað núna þegar Ebba amma mín tekur ekki á móti mér með orðunum: „Ebba mín, ertu komin eða: „Nabba mín, voðalega er gott að sjá þig“ og knúsar mann í kaf. Við áttum yndislegt og sterkt samband sem ég er og verð æv- inlega þakklát fyrir. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér hinum megin, afi er búinn að bíða þín lengi. Litlu skvísurnar mínar, Andrea Mary og Elísa Lana, spyrja oft um langömmu sína, þær biðja englana að passa þig á hverju kvöldi í bæn- um sínum. Ég kveð þig með sökn- uði og endalausum tárum. Amma mín, mér þykir endalaust vænt þig, minningin um yndislega konu og ömmu lifir í hjarta mínu. Sjáumst síðar. Þín Ebba Særún, „nabban þín“. Elsku besta amma mín. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig, minningar sem ég mun aldrei gleyma. Ég þakka þér fyrir að hafa veitt mér gleði og ánægju. Þú verður alltaf í hjarta mínu og ég vona að þú vitir hvað ég elska þig mikið. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þín ömmustelpa Brynja Eyrún. Elsku langamma. Við þökkum þér fyrir allar stundirnar okkar saman og allar góðu minningarnar sem við munum aldrei gleyma. Nú ertu komin til Benna langafa og við vitum að þið verðið ánægð saman. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. (Hákon Aðalsteinsson.) Þín elskandi langömmubörn, Óliver Enok, Aron Ísak, Andrea Mary og Elísa Lana. Ebba Guðrún Eggertsdóttir Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA RUNÓLFSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði 11. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Rúnar Smárason, Valgerður Kristjánsdóttir, Lára K. Byrns, Gary Kent, Ingvar S. Garðarsson, Anna Ragnarsdóttir, Friðgeir Garðarsson, Freyja Ásgeirsdóttir, Garðar Oddur Garðarsson, Sigmundur Freyr Garðarsson, Ragnheiður Samúelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INDIANA INGÓLFSDÓTTIR, Starrahólum 7, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 16. febrúar, verður jarðsungin þriðjudaginn 26. febrúar frá Grafarvogskirkju kl. 11.00. Stefán Gunnar Vilhjálmsson, Sigríður Jóna Ásmundsdóttir, Jóhann Gunnar Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HÓLMFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Skarðshlíð 29d, Akureyri, lést að Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 19. febrúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29. febrúar kl. 10.30. Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, ARNÓRA FRIÐRIKKA SALÓME GUÐJÓNSDÓTTIR, síðast til heimilis að Sléttuvegi 13, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 26. febrúar kl. 14.00. Eiríkur Valdimarsson, Arnfríður H. Valdimarsdóttir, Ólafur Árnason, Magnúsína G. Valdimarsdóttir, Þór G. Þórarinsson, Sigurjóna Valdimarsdóttir, Kristjón Sigurðsson, Arnór V Valdimarsson, Guðlaug Jónsdóttir, Páll G. Valdimarsson, Soffía Gísladóttir, Sigurborg Valdimarsdóttir, Jón Egilsson, Guðjón Valdimarsson, Ólafía G. Einarsdóttir, og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, GUÐNÝ VALGEIRSDÓTTIR Ofanleiti 29, Reykjavík, sem lést mánudaginn 11. febrúar á Landspítalanum við Hringbraut, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. febrúar kl. 15.00. Egill Valgeirsson, Þorbjörg Valgeirsdóttir, Ólafur H. Hannesson, Ásdís Egilsdóttir, Erlendur Sveinsson, Hrefna Egilsdóttir, Sigurður Pálsson Beck, Dagný Egilsdóttir, Magnús Kristinsson, Garðar Hilmarsson, Sigríður Benediktsdóttir, Ólöf Kristín Ólafsdóttir, Jón Egilsson, Ása Ólafsdóttir, Ólafur Örn Ólafsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir okkar og mágkona, JÓNÍNA RANNVEIG SNORRADÓTTIR Fögrusíðu 11c, Akureyri, sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 20. febrúar, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju 28. febrúar kl. 10.30. Arngrímur Ævar Ármannsson, Daníel Snorri Jónsson, Hulda Dagmar Reynisdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Stefán Steinarson, Ármann Pétur Ævarsson, Rakel Hinriksdóttir, Sandra Björk Ævarsdóttir, Þórir Snorrason, Guðrún Ingimundardóttir, Lovísa Snorradóttir, Hilmir Helgason, Unnur Björk Snorradóttir, Jónas Marinósson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.