Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 54

Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Heimilistæki Uppþvottavél Glæný Bosch uppþvottavél í kassa- num til sölu. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 554 3279 og 695 8868. Hljóðfæri Fiðla til sölu Smíðuð af Karel Goll. Djúpur og fallegur hljómur. Er í góðu ástandi. Nánari upplýsingar á www.ymislegt.net/violin Iðnaðarmenn Pípulagningameistari getur bætt við sig verkefnum stórum sem smáum. Upplýsingar í síma 892 8720. Múrverk, flísalagnir, utanhúsklæðningar, viðhald og breytingar. Sími 898 5751. Námskeið Enska! Einstætt enskunámskeið fyrir þá sem vilja þjálfa talmál og styrkja enskugrunninn. Námskeið á 19 cd diskum, vinnubók með enska og íslenska textanum. Námsleiðbein. Aðstoð frá kennara á námstímanum. Nánari upplýsingar á tungumal.is. Skráning í síma 540 8400 og 8203799 Gisting www.floridahus.is Mikið úrval sumarhúsa í Orlando í Flórída til leigu. Glæsileg hús í boði, golfvallahús og nálægt Disney. www.floridahus.is eða tölvupóstfang info@floridahus.is Golf Golfbílar Er með nýja Golfbíla og Golf-fjórhjól á frábæru verði. H-Berg ehf. Sími 893 3347. Gefins Nokkrir pottofnar fást gefins gegn því að vera sóttir. Upplýsingar í síma 858 5222. Húsnæði óskast Par óskar eftir íbúð Reglusamt og reyklaust par, tæknifræðingur og nemi óska eftir 2ja-3ja herbergja íbúð á höfuðborgasvæðinu. Skilvísum greiðslum heitið. Verðhugmynd 80.000 kr. Upplýsingar í e-mail: hrunjons@khi.is eða í síma 690 3034 Óska eftir íbúð Óska eftir að taka að leigu stúdio eða 2ja herb. íbúð. Skilvísum greiðslum heitið, reykleysi og snyrtimennsku. Meðmæli ef óskað er. S:899 5292. Barnagæsla Vantar góða mömmu/ ömmu/ frænku í 8 vikur. 16 mán. stelpa þarf að komast í pössun frá byrjun mars í 6-8 vikur, virka daga kl. 10-16. Uppl. í síma 696 5521/695 4755. Dýrahald Tíbet Spaniel hvolpar til sölu Til sölu Tíbet Spaniel hvolpar, fjörugir, skemmtilegir og kelnir. Orðnir 3 mán. Þeir eru heilsufarskoðaðir, bólusettir, ormahreinsaðir og ættbókafærðir hjá HRFI uppl. í síma 846 0723. Smáauglýsingar 5691100 Gullsmárinn Það var spilað á 12 borðum 21. ferbrúar sl. og þessi urðu úrslitin í N/S: Sigtryggur Ellertss.- Tómas Sigurðss. 195 Jón Stefánss. - Eysteinn Einarss. 189 Guðm. Magnúss.- Leifur .Jóhanness. 184 A/V Auðunn Guðmss. - Björn Árnas. 214 Sigríður Gunnarsd. - Björn Björnss. 209 Óli Gíslason - Sigfús Skúlason 199 Spilað var á 10 borðum 18. febr- úar og urðu úrslitin þessi í N/S: Magnús Halldórss.- Þorsteinn Laufdal 16 Elís Kristjánsson - Páll Ólason 197 Leifur Kr.Jóhanness- Ari Þórðars. 196 A/V Hrafnhildur Skúlad. - Þórður Jörundss. 208 Sigfús Skúlason - Óli Gíslason 200 Bergljót Gunnarsd.- Jóhanna Gunnld. 191 Úrslit í N/S 14. febr. en þá var spilað á 13 borðum Haukur Guðbjartsson - Jón Jóhannsson 319 Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 309 Sigurður Gunnlaugss. - Sigurpáll Árnas. 299 A/V Jónas Jónsson - Einar Markússon 328 Guðbjörg Gunnarsd. - Fjóla Helgadóttir 308 Sigtryggur Ellertss. - Tómas Sigurðss. 307 Bridsfélag Kópavogs Ákveðið var að fresta Hrað- sveitakeppninni um eina viku, en þess í stað var spilaður eins kvölds Howell tvímenningur sl. fimmtu- dag þar sem Gulli Bessa og Stein- ar sýndu mátt sinn og megin. Röð efstu para: Guðlaugur Bessas.- Jón St Ingólfss. 213 Bryndís Þorsteinsd. - María Haraldsd. 178 Loftur Péturss. - Þórður Jónsson 174 Árni M Björnss.- Heimir Tryggvas. 172 Jörundur Þórðars. - Þórður Jörundsson 170 Björn í stuði í Akureyr- armótinu í einmenningi Á fyrsta spilakvöldinu af þremur í Akureyrarmótinu í einmenning náði Björn Þorláksson langbesta skori eða 65,0%. Mótið er jafn- framt firmakeppni félagsins og Björn spilaði fyrir fjölmiðlafyrir- tækið N4. Næstur var Stefán Sveinbjörnsson með 55,6% (Marín ehf.) og í 3.-5. sæti með 53,3% skor urðu Una Sveinsdóttir (Villaprent), Helgi Steinsson og Sigfús Aðal- steinsson. Samanlagður árangur tveggja kvölda gildir í einmenn- ingsmótinu. Næsta einmennings- kvöld er 23. mars en næst á dag- skrá B.A. er tveggja kvölda Heilsuhornstvímenningur. Heilsu- hornið á Glerártorgi veitir verð- laun í formi vöruúttektar. Spila- mennska hefst í Lionssalnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð kl. 19:30 og spilarar eru beðnir að mæta tím- anlega þann 26.2. til skráningar. Stjórn B.A. minnir á sunnudags- bridge á sama stað kl. 19:30. Spil- aður er eins kvölds tvímenningur. Bridsfélögin á Suðurnesjum Mánudaginn 18. febrúar var spil- aður eins kvölds tvímenningur hjá Bridsfélaginu Muninn, Sandgerði, og Bridsfélagi Suðurnesja og voru 9 pör sem mættu og spilað á 4 borðum sem er nú heldur rýrt. Úrslit kvöldsins eru sem hér segir: Birkir Jónsson og Karl Einarsson 92 Dagur Ingimundars. og Karl G. Karlss. 84 Reynir Jónss. og Kristján Kristjánss. 81 Jón Ólafur Jónss. og Sigurður Albertss. 73 Næstkomandi mánudag 25. febr- úar hefst nokkurra kvölda aðal- sveitarkeppni félaganna og verður spilað eftir kerfi sem er kallað sveitarokk. Það er þannig að allir spila með öllum í sveit. Og tvö efstu pörin í þessari keppni verða okkar fulltrúar á Kjördæmamótinu ásamt völdum pörum. Hvetjum við alla til að skrá sig í þetta skemmtilega mót tímanlega hjá Lilju Guðjónsdóttur í síma 868- 7313. Reykjanesmótið í tvímenningi verður haldið hér hjá okkur aðra helgina í mars. Spilað er alla mánudaga í Fé- lagsheimilinu að Mánagrund og hefst spilamennska á slaginu 19:15. Stjórnir félaganna hvetja alla þá sem áhuga hafa á brids að láta sjá sig og vel verður tekið á móti nýj- um spilurum. Alltaf er heitt á könnunni. Keppnin um Súgfirðingaskálina Þriðja lota í keppni um Súgfirð- ingaskálina, tvímenningsmóti Súgfirðingafélagsins, var spiluð eftir bridshátíðina. Heildarstaðan er svohljóðandi en alls hafa 16 pör spilað í keppninni. Arnar Barðason - Hlynur Antonsson 452 Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd. 448 Eðvarð Sturluson - Þorleifur Hallbertss. 412 Einar Ólafsson - Þorsteinn Þorsteinss. 408 Friðgerður Friðgeirsd.- Kristín Guðbjd. 403 Meðalskor er 390 stig. Staðan á toppnum jafnaðist nokkuð og stefnir í spennandi keppni. Úrslitin í þriðju lotu, hátíðarlot- unni, meðalskor 130 stig. Auðunn Guðmss. - Hlynur Antonsson 164 Einar Ólafsson - Þorsteinn Þorsteinss. 154 Sveinbjörn Jónss. - Karl Jóh.Þorsteinss. 149 Sigurður Sigurðars. - Guðbjörg Gíslad. 145 Fjórða lota verður spiluð mánu- daginn 17. mars í spilasal Brids- sambands Íslands. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is ✝ Frank JosephPonzi fæddist í New-Castle í Penn- sylvaníuríki í Bandaríkjunum hinn 18. maí 1929. Hann lést á heimili sínu í Brennholti í Mosfellsdal 8. febr- úar síðastliðinn, á 79. aldursári. For- eldrar hans voru innflytjendur frá Ítalíu, Josephina og Attilio Ponzi. Hann var elstur þriggja bræðra en hinir eru David Ponzi og Richard Ponzi vínbóndi sem búsettir eru í Bandaríkjunum. Frank stundaði nám í myndlist við Art Students League í New York og síðar nám í listasögu og forvörslu við Oxford-háskóla á Englandi. Hann starfaði við kvik- myndadeild City College í New Kjarvalsstöðum á fyrstu starfs- árum safnsins þar. Jafnframt vann hann að eigin listsköpun, for- vörslu, ráðgjöf og sá um ýmsa list- viðburði og sýningar, auk þess sem hann stundaði rannsóknir á sviði íslenskrar menningar- arfleifðar. Liggja eftir hann grein- ar og bækur um þau efni, þ. á m. bók um Finn Jónsson listmálara. Frank gerði tvær heimild- armyndir um brautryðjendurna dr. Alexander Jóhannesson há- skólarektor og Engel Lund söng- konu. Einnig stundaði Frank sjálfs- þurftarbúskap í Brennholti, eink- um á sviði ylræktar og fiskeldis. Á síðari hluta ævinnar sinnti Frank aðallega ritstörfum. Hann skrifaði fjórar veglegar bækur um Ísland á síðustu öldum, byggðar á sýn erlendra leiðangurs- og lista- manna í málverkum og ljós- myndum. Síðasta bók Franks er endurminningabókin „Dada Col- lage and Memoirs. Athöfnin fór fram í kyrrþey. York og síðar sem listráðunautur hjá Guggenheim-safninu í New York. Árið 1958 fluttist hann til Íslands ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Tóm- asdóttur söngkonu. Þau reistu bæ sinn Brennholt í Mosfells- dal og áttu þar heima síðan. Börn þeirra eru Tómas Atli og Margrét Jósefína. Börn Tómasar og Kristjönu Bjargar Benediktsdótt- urr eru Guðrún Theódóra og Gabríel, og börn Margrétar og Ólafs Árna Bjarnasonar eru Ást- ríður Jósefína, Bjarni Jósef og Frank Nikulás. Frank vann við forvörslu hjá Þjóðminjasafni Íslands og síðar hjá listasafni Reykjavíkurborgar á Ég kynntist Frank Ponzi þegar hann var orðinn gamall maður. Frank var dæmigerður ítalskur Bandaríkjamaður af austurströnd- inni, strákur frá Pennsylvaníu sem sinnti herþjónustu í Kóreustríðinu og flutti eftir það til New York. Hann menntaðist sem listsagnfræðingur. Hann kynntist Marcel Duchamp, Hans Richter og fleiri þekktum lista- mönnum. Um tíma vann hann með Zero Mostel í sjónvarpsþáttum Ze- ros. Í New York kynntist hann einn- ig Guðrúnu Tómasdóttur sem var þar í söngnámi og ákvað að fara til Íslands með henni. Þegar hann kom í fyrsta skipti til landsins heilsuðu þau upp á fjölskylduna. Þegar Frank var búinn að heilsa upp á alla var honum sagt að líta bak við bæinn þar sem einn frændinn væri að vinna. Þegar Frank fór út í myrkrið sá hann mann að svíða kindahausa. Hvaða trúarat- höfn er ég nú að trufla, hugsaði hann. Þau fengu land hjá Hraðastaða- bónda við Suðurá þar sem hún liðast fram úr Helgadal og inn á sléttuna í Mosfellsdal. Þar heitir Brennholt. Þegar ég kom fyrst þangað bjuggu þau við sjálfsþurftarbúskap, rækt- uðu silung og grænmeti og áttu meira að segja vínvið í gróðurhúsi. Þar höfðu þau byggt upp hús sem óx áleiðis upp í holtið eftir því sem árin liðu. Þau höfðu einnig reist gróður- hús, skemmu og steypt sundlaug enda var heitt vatn í holu, meira en nóg fyrir heimilið og silungana. Þarna sat Frank og gerði við mál- verk, skrifaði bækur og sýslaði við eitt og annað. Mosfellingar kunnu að meta störf þeirra hjóna og gerðu þau að heiðursborgurum bæjarins. Frank safnaði ljósmyndum og teikn- ingum erlendra ferðalanga sem höfðu sótt heim Ísland. Hann skrif- aði og gaf út bækur sem varpa ljósi á það hvernig útlendingar sáu landið á öldunum sem leið. Þessi saga er lítið skoðuð af Íslendingum sem hafa sjálfir fundið upp allt og gert allt fyrstir. Oft rak Frank sig á að ljós- myndir voru kenndar Íslendingum sem erlendir ferðalangar höfðu tek- ið. Þetta voru menn sem fyrstir gengu á hæsta fjall landsins, fyrstir tóku myndir af alls kyns tækjum og vinnuaðferðum vegna þess að Ís- lendingar létu annars bara taka myndir af sér í sparifötunum en menningarþjóðin Íslendingar vill sem minnst af útlendingunum vita. Það mátti finna að hann taldi sig hafa getað unnið á stærra sviði ef hann hefði búið áfram í New York. Á Íslandi valdi hann sér þó bústað og eignaðist sína fjölskyldu, þar ólust upp Tómas og Margrét. Á Íslandi fann hann ríka sögu sem hann skoð- aði og stúderaði fram á síðustu stundu. Hann vann síðustu árin að ævisögu sinni og handlék eintak af nýútgefinni bókinni þegar febrúar heilsaði. Viku síðar var hann allur. Ég naut hjálpar Franks og þakka fyrir alla góða tíma með honum, hvort sem það var að negla þak í híf- andi roki eða sitja hjá þeim hjónum, fá sér kaffi með biscotti frá Guðrúnu og hlusta á Frank. Megi minning hans lifa. Ég votta eftirlifendum sam- úð mína. Sveinn Ólafsson. Frank Ponzi er fallinn frá. Hann fékk að deyja í faðmi Guðrúnar Tóm- asdóttur, konu sinnar. Frank var maður tveggja heima, sjálfsþurftarbóndinn í Brennholti og heimsmaðurinn. Hann var af ítölsku foreldri, fæddur og uppalinn í stór- borginni New York. Frank var holdgervingur þess sem tengja má við sen-búddisma, þar sem lagt er upp úr natni og fágun, með fullkomnun að leiðarljósi. Hvort held- ur hann var að prikla tómatplöntur, skrifa texta, gera við málverk fallinna listamanna eða búa til vín úr eigin víngarði. Frank og Dúna kynntust á náms- árunum í New York og tók Frank þá afdrifaríku ákvörðun að flytja með henni til Íslands og það í heimasveit hennar. Þar reistu þau sér hús við bakka Suðurár, stærðarinnar gróð- urhús, með öllu því inni í sem fólk þráir að innbyrða nú til dags. Þau hjón gerðu Brennholt að hálfgerðri paradís, enda var þar fíkjutré og lítill lækur sem liðaðist um garðinn. Við hjónin kynntumst Frank á sama tíma, annað okkar hér í Mosfellsdal, en hitt í Norður-New York, þar sem hann bjargaði lífi Halldórs frá drukknun. „Þið þrjú eruð mér að kenna,“ sagði hann líka þegar hann hitti okkur fjölskylduna. Frank var fljótur að koma sér inn í bæði íslenska menningu og bænda- samfélag. Sennilegast fyrstur Banda- ríkjamanna sem gekk um á tékk- neskum gúmmískóm. Hann hafði græna fingur og það var viss serem- ónía að ganga með honum í gegnum gróðurhúsið, sníkja af honum fræ og fá leiðbeiningu um ræktun. Svo þeg- ar inn í stofu var komið tók við háal- varleg kennslustund og umræða um list, sögu hennar og stöðu og fór þá Frank iðulega inn í vinnustofuna sína, eina þá úttroðnustu sem til er, og náði í bækur, blöð eða sendibréf, máli sínu til stuðnings. Oft var reynt að rökræða við Frank, sem endaði iðulega á því að maður fór sneyptur út, samt með fangið fullt af salati og tómötum. Frank lét ekki lífsgæðakapphlaup- ið hlaupa með sig í gönur. Hann var nægjusamur, húmoristi, ræðinn og kveikti ævinlega á einhverju skemmtilegu. Hann þekkti fjölmarga úr ameríska listheiminum og hélt nánu sambandi og fylgdist með öllu, þó að hann hafi búið hér á útnára heimsins. Það var ævinlega gest- kvæmt í Brennholti og sumir komnir yfir hafið einungis til að heimsækja Frank. Á síðari árum fór Frank að hafa meiri áhuga á að mála sjálfur og lét sig þá hverfa til Ítalíu þar sem hann fann andagiftina. Síðasta verk Franks var að lesa fyrsta eintak af nýju bókinni sinni, endurminninga- bók sem er að koma út vestanhafs. Það er mikill sjónarsviptir að Frank, hann gerði mikið fyrir land og þjóð. Bækur hans um Ísland á fyrri öldum í máli og myndum eru óvið- jafnanlegar heimildir um íslenskt þjóðfélag, sem hann sýndi ávallt mik- inn áhuga og kynnti okkur betur er- lendis, en nokkurt útflutningsráð. Frank skilur bara eftir sig góðar endurminningar sem munu lifa með okkur lengi. Guðný og Halldór, Melkoti. Frank Ponzi MINNINGAR Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.