Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 57
eftir Marius von Mayenburg
Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir
Frumsýning á Smíðaverkstæðinu 5. apríl
www.leikhusid.is
Á GRÍNDAGINN mikla, 1. apríl, leggja hljómsveitirnar
Dr. Spock, Benny Crespo’s Gang og Sign upp í hring-
ferð um landið á vegum Rásar 2 og tónlistartímaritsins
Monitors. Þetta mun vera þriðja árið í röð sem Rás 2
stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast
kraftar Rásar 2 og Monitors svo að úr verður stærsta
hringferðin til þessa.
Samkvæmt fréttatilkynningu er helsti tilgangur ferð-
arinnar sá að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni
tækifæri til að sjá og heyra í fremsta tónlistarfólki
landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð og fyrir lítið
fé.
Hringurinn
1. apríl, Fjölbrautaskóli Suðurlands (Selfossi).
2. apríl, Prófasturinn (Vestmannaeyjum).
3. apríl, Sindrabær (Höfn í Hornafirði).
4. apríl, Valhöll (Eskifirði).
5. apríl, Græni hatturinn (Akureyri).
10. apríl, Paddy‘s (Reykjanesbæ).
11. apríl, Nasa (Reykjavík). Bein útsending á Rás 2.
Þrjár rokk-
sveitir í hring-
ferð um landið
Morgunblaðið/Golli
Gítarrokk Lay Low sýnir að jafnaði á sér þyngri hlið
með félögum sínum í Benny Crespo’s Gang.
Morgunblaðið/Sverrir
Glys og glaumur Ragnar Sólberg og félagar hafa
sjaldan verið í betra formi en einmitt nú.
Morgunblaðið/Ómar
Áfram gakk Óttar Proppé verður efalaust í góðum
gír á túrnum líkt og endranær þegar hann kemur
fram með Dr. Spock.
Fréttir í tölvupósti