Morgunblaðið - 08.05.2008, Síða 43

Morgunblaðið - 08.05.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 43 ER PLÁSS FYRIR STARFSFRAMA TVEGGJA EINSTAKLINGA ÁSKORANIR OG TÆKIFÆRI Á ÞÍNU HEIMILI? 13. MAÍ 2008 MANNAUÐUR er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans, Deloitte, Árvakurs og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Landsbankinn er meginstyrktaraðili verkefnisins. Á ráðstefnunni verður fjallað um þær áskoranir og tækifæri sem sambýlisfólk stendur frammi fyrir þegar báðir aðilar eru í fullri vinnu; ásamt lausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Dagskrá Starfsframi – áskoranir og rannsóknir á fjölskyldustefnum fyrirtækja Dr. Steven Poelmans, prófessor við IESE háskólann í Barcelona Kaffihlé Reynslusögur Ágústa Johnson, framkvstj. Hreyfingar og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra; Ragnhildur Ágústsdóttir, forstöðum. þróunarsviðs Tals og Júlíus Ingi Jónsson, vörumerkjastj. Vífilfells; Halldóra Traustadóttir, markaðssviði Glitnis og Ólafur Stephensen, ritstjóri 24 stunda; Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða HR og Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri skrifstofu forseta Íslands. Áskoranir og lausnir sem rata inn á borð sálfræðinga Andrés Ragnarsson, sálfræðingur Pallborðsumræður Léttar veitingar að ráðstefnu lokinni Fundarstjóri: Eva María Jónsdóttir Verð: 5000 kr. fyrir einstaklinga 4000 kr. fyrir pör (60% afsláttur) Skráning á www.mannaudur.is 14:00 15:30 15:45 16:25 16:35 17:00 G O TT F O LK GRÍNMYNDIN Superbad fær flestar tilnefningar, eða fimm tals- ins, til MTV-kvikmyndaverð- launanna sem afhent verða í Kali- forníu hinn 1. júní næstkomandi. Juno kemur næst með fjórar tilnefn- ingar. Tilnefningarnar eru í sam- ræmi við þá hefð MTV að verðlauna helst léttar og vinsælar myndir sem koma ekki til álita á virðulegum verðlaunahátíðum á borð við óskar- inn. Helstu tilnefningar í ár eru eftir- taldar: Besta mynd  Juno  Transformers  Pirates of the Caribbean: At World’s End  I Am Legend  Superbad  National Treasure: Book of Secrets Besti leikari  Will Smith (I Am Legend)  Shia LaBeouf (Transformers)  Denzel Washington (American Gangster)  Matt Damon (The Bourne Ultimatum)  Michael Cera (Juno) Besta leikkona  Ellen Page (Juno)  Keira Knightley (Pirates of the Caribbean: At World’s End)  Katherine Heigl (Knocked Up)  Amy Adams (Enchanted)  Jessica Biel (I Now Pronounce You Chuck and Larry) Besta illmennið  Johnny Depp (Sweeney Todd:The Demon Barber of Fleet Street)  Denzel Washington (American Gangster)  Angelina Jolie (Beowulf)  Topher Grace (Spider-Man 3)  Javier Bardem (No Country For Old Men) Besti koss  Shia LaBeouf og Sarah Roemer (Disturbia)  Amy Adams og Patrick Demp sey (Enchanted)  Daniel Radcliffe og Katie Leung (Harry Potter and the Order of the Phoenix)  Ellen Page og Michael Cera (Juno)  Briana Evigan og Robert Hoff man (Step Up 2 The Streets) Léttar og vinsælar Superbad Fær flestar tilnefningar. BRESKI rithöfundurinn J.K. Rowling hefur fengið það lögfest að ljósmyndir sem teknar voru í leyfisleysi af syni hennar yrðu aldrei birtar aftur í fjölmiðlum. Myndirnar voru tekin með aðdráttarlinsu úr mikilli fjarlægð. Lög- fræðingar Rowling telja þetta tímamótadóm. Málinu hafði áður verið vísað frá dómi en Rowling og eiginmaður hennar áfrýjuðu þeim úrskurði. Í yfirlýsingu frá þeim hjónum segir að þau geri sér grein fyrir frægð Rowling í kjölfar Harry Potter-bókanna en þau vilji engu að síður að börn þeirra lifi eðlilegu fjölskyldu- lífi og fái frið fyrir fjölmiðlum. Dómsúrskurð- urinn sé því þýðingarmikill fyrir framtíð barnanna. Einn dómara sagði það óvefengjanlegan rétt hvers barns að fá frið fyrir ókunnugum ljós- myndurum, hvort sem það ætti fræga foreldra eða ekki. Myndirnar umræddu voru teknar í nóvember 2004, af syni þeirra hjóna, David, en þá var hann tveggja ára. Hjónin voru í göngu- túr með David sem sat í kerru. Sunday Ex- press tímaritið birti myndir af þessum göngu- túr. Rowling og eiginmaður hennar, Neil Murray, lögsóttu í kjölfarið útgefanda blaðs- ins, Express Newspapers, og ljósmyndastof- una Big Pictures. Lögbann á myndir af syni Rowling Reuters J.K. Rowling Vill að óprúttnir ljósmyndarar láti börn sín í friði. FIMM listamenn hafa lagt fram tillögur sínar að kennileiti í Kent-sýslu á Englandi, sk. Ebbsfleet-kennileiti, sem á að sjást úr lofti, frá vegi og úr lest. Turnar-verðlaunahafinn Mark Wallinger er einn tillögusmiða og leggur hann til að reistur verði risavaxinn, hvítur hestur, 33 sinnum stærri en meðalhestur á beit. Hestur þessi myndi líta hnarreistur yfir Ebbsfleet-dal, skammt frá austurmörkum Stór-Lundúnasvæðisins. Tilkynnti verður um vinningstillöguna í haust og stefnt að því að lokið verði við kennileitið árið 2010. Fleiri Turner-verðlaunahafar eiga tillögur að kennileiti, þau Richard Deacon og Rachel Whiteread. Whiteread leggur til að reist verði fjall með litlu húsi ofan á, Deacon leggur til risavaxinn stálskúlptúr og franski listamaðurinn Daniel Buren leggur til að reistur verði turn úr kubb- um sem geislar muni skína í gegnum. Skúlp- túrinn Christopher Le Brun vill reisa risavax- inn disk með væng innan í, og vísar það til guðsins Merkúrs úr rómverskri goðafræði. Hvíti hesturinn Tillaga Turner-verðlauna- hafans Mark Wallinger að risahesti í Kent. Lagt til að risa- hestur rísi í Kent

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.