Morgunblaðið - 15.05.2008, Side 11

Morgunblaðið - 15.05.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 11 FRÉTTIR SÉRSTAKUR átta kílómetra langur hjólastíg- ur frá Faxaskjóli að Reykjanes- braut var kynnt- ur í umhverfis- og samgöngu- ráði Reykjavík- ur á þriðjudag. Markmiðið er að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi með breiðari stíg, aðskilnaði og breyttri legu. Lagt er til að göngu- og hjóla- stígurinn verði með lýsingu sem hvorki spillir útsýni né veldur ná- grönnum stígsins ónæði. Í fyrsta áfanga verður sérstakur hjólastíg- ur lagður meðfram Ægisíðu frá Faxaskjóli að Suðurgötu. Áætlaður kostnaður við þá framkvæmd er 36 milljónir króna. Sérstakur stígur fyrir hjólreiðar SÁ áfangi verður í Garðabæ á há- degi í dag að opnaðir verða fimm nýir vefir sem unnið hefur verið að í vetur. Vefirnir sem verða opnaðir eru nýr vefur Garðabæjar, www.gardabaer.is og nýir vefir fyrir alla grunnskóla Garðabæjar, www.flataskoli.is, www.hofs- stadaskoli.is, www.gardaskoli.is og www.sjalandsskoli.is. Vefirnir fá allir áþekkt útlit og veftré allra skólavefjanna verða eins. Stór hópur starfsmanna frá öllum stofnunum bæjarins vann að undirbúningi vinnunnar við vefina fyrir Garðabæ og grunnskólana með fyrirtækinu Sjá sem er ráð- gjafarfyrirtæki í vefmálum. Nýir vefir í Garðabæ ÓSKAR Ágústs- son, starfsmaður Sorphirðunnar í Reykjavík, hefur um þessar mund- ir náð þeim áfanga að hafa starfað samfellt í 50 ár hjá Reykja- víkurborg (Sorp- hirðunni). Þessa áfanga verður minnst með kaffi- boði í Kaffi Flóru síðdegis í dag. Óskar er 66 ára að aldri og var honum gert að sturta úr fyrstu bíl- unum sem hann keyrði í sjóinn við Skerjagranda. Nánasti samstarfs- maður Óskars, Þórólfur Þorleifs- son, átti 50 ára afmæli hjá Sorp- hirðunni í fyrra. Þeirra flokkar sjá núna um sorphirðu frá heimilum í Breiðholtinu. Þess má geta að faðir Óskars vann einnig í öskunni. Í hálfa öld í öskunni Óskar Ágústsson OPIÐ hús verður í Skóla Ísaks Jónssonar föstudaginn 16. maí. Vinum og velunnurum skólans er boðið að koma og ganga um skól- ann og fylgjast með skólastarfinu frá kl 8.30 til 14.10. Dagskráin hefst með söng nem- enda kl. 8.30 og að honum loknum verða atriði í salnum fram eftir degi. Opið hús í Ísaksskóla Ný sending Glæsileg sumardress og -kjólar TAIFUN Laugavegi 63 • S: 551 4422 USB minnislyklar með rispufríu lógói. Ódýr auglýsing sem lifir lengi. 512 MB, 1 GB, 2 GB, 4 GB og nú líka 8 GB. www.alltmerkt.is sala@alltmerkt.is S: 511 1080 / 861 2510 www.ferdamalastofa. is Hvað gerir Ferðamálastofa fyrir þig? Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is Kynningarfundir á starfsemi Ferðamálastofu verða haldnir í maí 2008. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: Farið verður yfir starfsemi Ferðamálastofu og þjónustu stofnunarinnar við ferðaþjónustuaðila. Auk þess verða kynnt þróunarverkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu, sem Ferðamálastofa og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru að hleypa af stokkunum. Fundirnir eru öllum opnir sem áhuga hafa á að kynnast Ferðamálastofu og kynna sér möguleika til uppbyggingar á menningartengdri ferðaþjónustu. 20. maí Selfoss kl. 13:00-15:30 Hótel Selfoss 21. maí Borgarnes kl. 13:00-15:30 Hótel Hamar 22. maí Egilsstaðir kl. 13:00-15:30 Hótel Hérað 23. maí Höfn kl. 10:00-12:30 Hótel Höfn 27. maí Akureyri kl. 10:00-12:30 Hótel KEA 27. maí Varmahlíð kl. 14:00-16:30 Hótel Varmahlíð 30. maí Ísafjörður kl.10:00-12:30 Hótel Ísafjörður Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn KEILIR, Nýsköpunarmiðstöð Ís- lands, Háskóli Íslands og Þróun- arfélag Keflavíkurflugvallar und- irrituðu á gamla varnarsvæðinu í gær samning um stofnun nýs frum- kvöðla- og orkuseturs á há- skólasvæði Keilis, miðstöðvar vís- inda, fræða og atvinnulífs á Keflavíkurflugvelli. Frumkvöðlasetrið hefur hlotið nafnið Eldey. Hlutverk setursins er að skapa þekkingarumhverfi, að- stöðu og umgjörð fyrir frumkvöðla til að vinna að nýsköpun og að veita þeim faglega þjónustu. Auk þess mun Eldey hýsa kennslu Keilis í frumkvöðlafræði og aðra starfsemi Keilis á vegum skóla skapandi greina og Orku- og tækniskóla, segir í fréttatilkynningu. Eldey Runólfur Ágústsson, Keili, Þorsteinn Sigfússon, NMÍ, Jón Atli Bene- diktsson, HÍ, og Kjartan Eiríksson, Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, við undirritun samningsins um stofnun nýs frumkvöðla- og orkuseturs ásamt Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra og Árna Sigfússyni bæjarstjóra. Stofna orkusetur á gamla varnarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.