Morgunblaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 27
✝
Ástkær eiginmaður minn,
INGVAR GUÐJÓNSSON,
Skaftahlíð 4,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn
17. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fjóla H. Halldórsdóttir.
✝
Elskuleg mamma mín, unnusta, dóttir okkar, systir
og mágkona,
ELÍSABET ARNÓRSDÓTTIR,
sem andaðist fimmtudaginn 15. maí, verður
jarðsungin frá Hjallakirkju föstudaginn
23. maí kl. 15.00.
Betsý Ásta Stefánsdóttir,
Valtýr Sævarsson,
Arnór L. Pálsson, Betsý Ívarsdóttir,
Páll Arnórsson, Sigríður Rut Hallgrímsdóttir,
Ágúst Arnórsson, María Veigsdóttir,
Jóhanna Steinsdóttir, Þorkell Guðmundsson.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 27
Nora kenndi á selló í
mörg ár í Suzukitón-
listarskólanum í
Reykjavík. Hún var
alltaf jákvæð og brosandi, bæði í
kennslu og í samskiptum við kenn-
ara og starfsfólk skólans. Hún vakti
yfir velferð nemenda sinna með sam-
blandi af hlýju og ákveðni. Þegar
hún sat fyrir framan nemendahóp og
spilaði með þeim seiddi hún tóna úr
sellóinu sem gott var að hlusta á.
Með hljóðfæraleik sínum var hún
fyrirmynd nemenda sinna en líka var
Nora Kornblueh
✝ Nora SueKornblueh
fæddist í Hunt-
ington í New York-
ríki í Bandaríkj-
unum 18. júlí 1951.
Hún lést í Reykjavík
2. maí síðastliðinn.
Útför Noru var
gerð frá Fossvogs-
kirkju 19. maí sl.
fallegt að horfa á hana
þegar hún spilaði, því
hún var svo aðlaðandi
við hljóðfærið og gerði
allt að því er virtist
áreynslulaust.
Það var gott að tala
við Noru, því hún hafði
einlægan áhuga á því
hvernig aðrir hefðu
það og hverjum þeim
er við hana talaði
fannst hann eiga at-
hygli hennar óskipta.
Við söknuðum Noru
þegar hún hætti selló-
kennslunni við skólann og sneri sér
að öðrum störfum en við vissum að
hún myndi láta gott af sér leiða á
öðrum vettvangi.
Við sendum fjölskyldu Noru okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um um styrk þeim til handa á þess-
um erfiðu tímum.
Kennarar og starfsfólk Suzuki-
tónlistarskólans í Reykjavík.
Elskuleg móður-
systir mín, Sigríður
G. Schiöth, lést 18. apríl á Dval-
arheimilinu Hlíð á Akureyri. Hún
var fædd 3. febrúar 1914 á Lóma-
tjörn í Höfðahverfi og ólst upp í
stórum systkinahópi, systurnar
voru 8 og bræðurnir 4. Foreldrar
hennar voru Guðmundur Sæ-
mundsson frá Gröf í Eyjafirði og
Valgerður Jóhannesdóttir frá
Þönglabakka og Kussungsstöðum í
Fjörðum.
Sigga hafði ákaflega gaman af
að segja frá lífinu á Lómatjörn
þegar hún var að alast upp. Sem
ungur maður hafði pabbi hennar
spilað bæði á orgel og harmóniku,
og þegar börnunum fjölgaði
byggði hann við íbúðarhúsið og
keypti lítið stofuorgel sem börnin
lærðu á. Mamma hennar hafði
mjög góða söngrödd og söng iðu-
lega við heimilisstörfin. Þannig
lærðu börnin fjölmörg lög og
kvæði auk sálma. Þau vöndust því
tónlistariðkun strax á unga aldri,
bæði að syngja og leika á hljóð-
færi. Er þau stálpuðust mátti oft
heyra fallegan kórsöng hljóma frá
húsinu út yfir tún og engi.
Góðir tónlistarhæfileikar Siggu
komu snemma í ljós. Hún var inn-
an við tvítugt þegar hún fór til Ak-
ureyrar til að læra á orgel og var
þá í Kantötukórnum sem Björgvin
Guðmundsson tónskáld stjórnaði.
Einnig söng hún með Abraham-
skórnum svokallaða, blönduðum
kór sem Róbert Abraham Ottós-
son kom á fót og stýrði. Meðfram
kórstarfinu var hún í söngnámi hjá
Róbert og hélt einsöngstónleika á
Norðurlandi.
Sigga var rösk í hverju því starfi
sem hún tók að sér. Alla ævi vann
hún við og lifði í tónlist. Enda sæt-
ir það undrun hve mikið starf ligg-
ur eftir hana í þau rúmlega 40 ár
sem hún starfaði sem kirkjuorg-
anisti, kórstjóri og söngkennari í
Sigríður G. Schiöth
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir
Schiöth fæddist á
Lómatjörn í Höfð-
ahverfi 3. febrúar
1914. Hún andaðist
á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 18.
apríl síðastliðinn.
Útför Sigríðar
var gerð frá Ak-
ureyrarkirkju 28.
apríl sl.
Eyjafirði og á Húsa-
vík. Henni féll aldrei
verk úr hendi. Fyrir
nokkrum árum stofn-
aði hún og stjórnaði
Kór aldraðra á Ak-
ureyri og þegar hún
átti stund aflögu
skrifaði hún greinar
um sitthvað sem
henni fannst máli
skipta eða settist við
píanóið og samdi fal-
legt sönglag.
Þegar ég kom til
hennar á Hlíð í haust
sem leið spilaði hún fyrir mig fal-
legt lag við texta sem hún sjálf
hafði samið. Og í fyrravetur sagði
hún söguna um Hagalalla inn á
segulband, ævintýri sem flest börn
af Lómatjarnarættum hafa heyrt
af vörum móður sinnar eða ömmu.
Þegar ég var strákur bjó Sigga
hjá foreldrum mínum í Reykjavík í
stuttan tíma. Hún sótti söngnám-
skeið, söng í útvarp og tók þátt í
kórstarfi. Hún hafði fallega og
hreina sópranrödd og þegar hún
var að æfa sig fór hún létt með
hinar erfiðustu trillur á tónskal-
anum.
Í mörg ár hafa afkomendur
systkinanna frá Lómatjörn komið
saman á ættarmótum á gamla höf-
uðbólinu. Í hvert skipti var Sigga
sálin í hátíðahaldinu, æfði og
stýrði Lómakórnum, söng og lék á
stofuorgelið, sagði frá, hvatti og
hughreysti, alltaf jafn góðlátleg og
innileg og forðum.
Það er skarð fyrir skildi, nú
þegar Sigga Schiöth er horfin af
vettvangi. Hennar er sárt saknað,
ekki aðeins af afkomendum hennar
og öðru skyldfólki, heldur öllum
þeim sem hún gladdi í gegnum ár-
in með söng og fagurri tónlist.
Far vel, elsku frænka.
Valgarð Runólfsson.
SENDUM
MYNDALISTA
✝
Ástkær faðir minn,
INGÓLFUR MAJASSON,
Mjóuhlíð 14,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala mánudaginn
19. maí.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
26. maí kl. 15.00.
Júlía Guðrún Ingólfsdóttir.
✝
Elskulegi afi okkar,
TRYGGVI DALMANN FRIÐRIKSSON,
Eiðsvallargötu 22,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 19. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarney Inga Óladóttir,
Tryggvi Dalmann Ólason
og Guðbjörg Anna Óladóttir.
✝
ÞÓRÐUR ÞÓRARINSSON,
sem lést á Fellsenda mánudaginn 12. maí, verður
jarðsunginn frá Kvennabrekkukirkju laugardaginn
24. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjúkrunarheimilið Fellsendi.
✝
Elskulegur bróðir minn og frændi okkar,
HAUKUR GUNNARSSON,
Austurbrún 2,
Reykjavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við
Hringbraut, laugardaginn 17. maí.
Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu
mánudaginn 26. maí kl. 13.00.
Guðrún Oddný Gunnarsdóttir,
Jón Gunnar Ólafsson,
Erla Ólafsdóttir, Guðmundur Helgi Sævarsson,
Sara Guðmundsdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVAVAR EINAR EINARSSON,
Sauðárkróki,
andaðist föstudaginn 16. maí.
Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 23. maí kl. 14.00.
Helena J. Svavarsdóttir, Reynir Barðdal,
Marta Svavarsdóttir, Sigurður J. Sigurðsson,
Magnús Svavarsson, Ragnheiður Baldursdóttir,
Sigríður Svavarsdóttir, Kristján B. Halldórsson,
afabörnin og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi,
langalangafi og langalangalangafi,
GUNNAR V. HALLGRÍMSSON
frá Eskifirði,
lést í Hulduhlíð, heimili aldraðra á Eskifirði sunnu-
daginn 11. maí. Útför hefur farið fram.
Hjartans þökk til allra sem sýndu okkur vinsemd og
hlýju við fráfall hans.
Margrét Gunnarsdóttir, Guðgeir Björnsson,
Dagný Gunnarsdóttir, Steindór Árnason,
Guðni Gunnarsson, Jóhanna Ólafsdóttir,
Gerður Gunnarsdóttir, Bjarni Gunnarsson
og afabörn.