Morgunblaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 36
„Ég skelf ennþá af
öllu adrenalíninu
eftir skautaatriðið,“
sagði Bilan … 38-9
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
HÁTÍÐIN Valkyrjur verður haldin
í fyrsta sinn í Hinu húsinu um
helgina, en þar munu ungar konur á
aldrinum 15 til 25 ára fagna fjöl-
breytileika kvenna og afsanna þá
mýtu að konur séu konum verstar.
Hátíðin verður opnuð klukkan 18
á morgun með tónlist frá hljóm-
sveitinni Ladycats og kynningu á
námskeiðum, eða skemmum eins og
aðstandendur hátíðarinnar kalla
þær, sem fara fram á laugardaginn.
Þar verður meðal annars hægt að
læra að skipta um dekk, taka mynd-
ir og mála sig á fljótlegan hátt.
Konur sem starfa í Hinu húsinu
standa að hátíðinni og undirbjuggu
sig með því að dreifa spurn-
ingalistum til ungra kvenna og kom-
ast þannig að því hvað þær vildu
helst gera á hátíðinni. „Úr varð að
vera með nokkrar lokaðar skemmur
þar sem fjallað er um til dæmis
jóga, ljósmyndun og svo var mikill
áhugi fyrir námskeiðinu „Kynlíf,
ástir og unaður“ þar sem Ragnheið-
ur Eiríksdóttir leiðbeinir,“ segir
Eva Einarsdóttir verkefnisstjóri.
„Maður heyrir oft eitthvert tal um
að stelpur geti ekki unnið saman og
séu hver annarri verstar og við vilj-
um ýta þannig klisjum í burtu.“
Auk lokuðu námskeiðanna sem
konur þurfa að skrá sig í fyrirfram
verður boðið upp á opin örnámskeið.
Fiffað upp á fötin
Sara María í Nakta apanum er
ein þeirra sem stjórna námskeiðum
um helgina. Það ber yfirskriftina
„Flýtitíska“ og þar verður kennt
hvernig breyta má fötum með litlum
tilkostnaði. „Það er hægt að breyta
fötum sem eru ekkert mjög tískuleg
í eitthvað sem er mjög tískulegt
með því að fiffa upp á þau,“ segir
Sara. „Þetta er svo ódýrt og ein-
falt.“
Allar konur á aldrinum 15 til 25
ára eru velkomnar á Valkyrjuhátíð-
ina og þátttaka er ókeypis.
Förðun og dekkjaskipti
Morgunblaðið/G.Rúnar
Í Nakta Apanum Sara María og Eva Einarsdóttir í búðinni góðu.
Hátíð ungra kvenna haldin í fyrsta sinn í Hinu húsinu
www.hitthusid.is
Stuðsveitin
Bloodgroup, með
Kristínu Lilju í
broddi fylkingar,
er nýkomin heim
úr tónleikaferð
um Bretland og
treður upp í heljarinnar partíi sem
símafyrirtækið Nova og tískumerk-
ið Diesel halda á NASA annað
kvöld. Ferðin byrjaði á tvennum
tónleikum með bandarísku hljóm-
sveitinni Man Man í London og
Manchester en því næst hélt hóp-
urinn til Nottingham og þar spiluðu
þau með vinahljómsveit sinni, Yu-
nioshi. Túrinn endaði síðan í Brigh-
ton á laugardaginn þar sem sveitin
spilaði á tónlistarhátíðinni Great
Escape. Áhugasamir ættu að fylgj-
ast með myndbandsbloggi sem
póstað verður á MySpace-síðu
sveitarinnar innan skamms. Þess
má svo geta að fyrsta upplagið af
fyrstu breiðskífu sveitarinnar,
„Sticky Situation“, er uppselt en
næsta sending er væntanleg.
Bloodgroup komin
heim úr Bretlandstúr
En aftur að partíinu á Nasa.
Diesel og Nova lofa flottustu tísku-
veislu sumarsins annað kvöld þar
sem boðið verður meðal annars upp
á ilmvatns- og vínkynningu en um
2.000 miðar eru í boði þrátt fyrir að
Nasa taki ekki fleiri en 1.000
manns. Þetta þýðir náttúrlega að
fyrstir koma, fyrstir fá. Gríðarstór
ljósþokuveggur (LED) hefur verið
settur upp á Nasa auk þess sem ein
stærsta diskókúla landsins verður
hengd í loftið yfir nýreistu sviði
sem verður búið færibandi. Fyr-
irsætur kvöldsins koma allar frá
dansstúdíói World Class en þar hef-
ur Stella Rósinkrans þjálfað þær
bæði dag og nótt undanfarna daga.
Miðar eru fáanlegir í Galleríi 17 og
í útibúum Nova.
Tískuveisla sumarsins
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
LJÓSMYNDARINN Anna Pálmadóttir hefur
sérhæft sig í því að mynda börn og náð langt á
því sviði. Hún hefur tekið fjölda mynda fyrir
tímaritið Vogue Bambini og verslanakeðjurnar
Bloomingdales og Gap. Hún hefur verið búsett í
New York síðustu sextán ár ásamt manni sínum
Guy Aroch sem er þekktur ljósmyndari. Með-
fram tískumyndatökunum vinnur Anna að eigin
ljósmyndum, þar sem viðfangsefnið er líka
börn, en efnistökin eru listrænni og frjálslegri. Í
síðustu viku setti hún upp ljósmyndasýninguna
Sun Lou Blue í París.
„Þarna var ég að mynda börn í sínum eigin
heimi. Sýningin gekk út á leyndardómsfull
augnablik í æskunni. Hún stóð bara í tvo daga,
við ákváðum að hafa hana stutta, en bjóða fullt
af fólki. Það var boðið upp á súkkulaði og öll
stemmingin var frekar krakkaleg, ég setti þetta
svolítið upp eins og barnaafmæli,“ segir Anna.
Falleg og óútreiknanleg börn
Anna lærði ljósmyndun í School of Visual
Arts í New York og hefur starfað við að ljós-
mynda börn síðan hún útskrifaðist fyrir þrettán
árum. „Mér finnst þau bara svo falleg og óút-
reiknanleg. Maður veit aldrei fyrirfram hver
niðurstaðan verður, þetta er alltaf eins og
ferðalag. Þetta er að vissu leyti erfiðara en að
mynda fullorðin módel, en ég lít á það sem
áskorun.“
Samkeppnin er hörð í ljósmyndun og alls ekki
gefið að menntaðir ljósmyndarar geti haft lifi-
brauð sit af henni. „Ég er með umboðsmann,
það er mikið atriði,“ segir Anna. „En þú færð
náttúrulega ekki góðan umboðsmann án þess að
taka góðar myndir. Þetta tók smá tíma og
þarna spilar heppni mikið inn í og að hitta rétt
fólk. Það er ekki eins hörð samkeppni í barna-
ljósmyndun og annarri tískuljósmyndun, ég
held að það séu ekki eins margir sem stunda
hana. En það er í rauninni annað skapandi
verkefni að koma sér á framfæri, til viðbótar
við sjálfa ljósmyndunina. Þú þarft alltaf að
finna nýjar leiðir til þess að vekja áhuga hjá
fólki svo það ráði þig. Ég hef til dæmis búið til
nokkrar bækur og reynt að vera skapandi í því
hvernig ég auglýsi mig.“
Myndar fyrir Vogue
Anna Pálmadóttir hélt ljósmyndasýningu í barnaafmælisstíl í París
Ljósmyndari og módel Anna Pálmadóttir og
dóttir hennar fyrir utan Kaffi París þegar
þær komu í heimsókn til Íslands nýlega.
Barnamyndir Ungur sýningargestur virðir fyrir
sér myndir á sýningunni sem Anna hélt í París.